Tíminn - 28.04.1993, Síða 12
AUGLYSINGASIMAR
686300
LlTTi
alltaf á miövikvidögum
NÝTTOG
ssr„gl
reiðholtsbakarí
VÖLVUFELU 13 - SÍMI73655
ýt/ HOGG-
^ DEYFAR
Verslið hiá fagmönnum
varahluti
JH
Hamarshófða 1 - s. 67-67-44
B
Iíniinn
MfÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1993
Hvort vegur þyngra líf og limir barna eða hagsmunir sjoppueiganda spyr forstöðumaður skóladagheimils:
Um 100 börn búa við stöðuga ógn
Elns og sjá má þurfa ökumenn að keyra upp á gangstétt tíl að komast að sölulúgunnL _ TfmarnyndAmiBjama
Um 100 böm ganga daglega
framhjá mikilli stysagildru.
Forstöðumaður á skóladag-
heimili hefur barist fyrir málinu
á annaö ár meö bréfaskriftum
tU nefnda og ráða borgarinnar
ásamt því að fara á fund borgar-
stjóra. Einnig hefur foreldrafé-
lag barist fyrir lagfæringum
ásamt forsvarsmönnum þriggja
dagheimila. Borgarráð sam-
þykkti lagfæringar fyrir 5 mán-
uðum en ekkert gerist „Ég
ímynda mér að það eigi að salta
þetta mál þótt búið sé að sam-
þykkja það í borgarráði,“ segir
Sæunn Karlsdóttir, forstöðu-
maður á skólaheimilinu við
Dyngjuveg, og spyr hvort hags-
munir eins sjoppueiganda vegi
þyngra en líf og Umir bama.
Þessi umtalaða slysagildra er að-
keyrsla að sölulúgu sölutums við
Sunnutorg. Aka þarf yfir gangstétt
til að komast að lúgunni. Jafhframt
er á sama stað biðstöð strætisvagns.
Sæunn hefur lagt fram gögn og m.a.
myndband sem sýna berlega fram á
mikla slysahættu en það kemur
fleira til. „Það hafa tveir starfsmenn
nærri því verið eknir niður og bfl-
amir nánast strokist við þá. Ég hef
staðið þama með hóp af bömum
þegar stórri bifreið var ekið í veg fyr-
ir þau þannig að þau þurftu snarlega
að víkja,“ segir Sæunn.
Það er ekki ofsögum sagt að henni
hafi verið vísað frá Pontíasi til Pflat-
usar í borgarkerfinu. „Fyrst fór þetta
fyrir umferðamefnd og þar var
þessu hafnað," segir Sæunn. Hún er
örg þegar hún rifjar upp rök nefnd-
arinnar fyrir þessari höftiun sem
henni finnst vera fáranleg. „Ein var
sú að þama hefði aldrei orðið slys,
önnur að það væm ýmsir staðir í
borginni hættulegri slysastaðir.
Jafnframt var það tínt til að fóstr-
umar gætu hægast fylgt bömunum.
Til að mæta þessari síðustu kröfu
hefðum við þurft að ráða starfsmann
sem eingöngu hefði það hiutverk að
fylgja bömunum fram hjá þessari
slysahættu en þess má geta að böm-
in sækja tíma hér og þar á öllum
tíma dagsins," bætir hún við.
Eins og gefur að skilja var Sæunn
ekki ánægð með lyktir málsins og
leitaði því til borgarstjóra. „Hann
sagðist ætla að athuga þetta en virt-
ist hins vegar ekki hafa neinn sér-
stakan áhuga á þessu máli,“ segir
Sæunn og skýrir það m.a. af því að
borgarstjóri hafði lítinn áhuga á að
kynna sér þau gögn sem hún lagði
fram máli sínu til stuðnings. Þar á
meðal var myndband sem fyrr er
nefnt og segir Sæunn að borgar-
stjóri hafi ekki sýnt neinn áhuga á
að kynna sér efni þess.
Sæunn skrifaði umferðamefnd bréf
og óskaði eftir að málið yrði tekið
fyrir öðru sinni. Til að gera Ianga
sögu stutta var málinu frestað í tví-
gang og erindinu vísað til umsagnar
í borgarkerfinu. Að endingu fór mál-
ið fyrir borgarráðsfund að kröfu
minnihlutans f umferðamefnd sem
samþykkti að setja upp hindranir
fyrir bfla vegna hættu.
Þetta var í nóvembermánuði og
síðan hefur Sæunn leitað stíft eftir
efndum. Hún fékk í fyrstu þau svör
að það væri ekki hægt að gera neitt
vegna þess að frost væri í jörðu.
Næst var svarað að beðið væri eftir
breytingartillögum frá eiganda sölu-
turnsins á fyrirhuguðum hindmn-
um. „Hann var að vísu búinn að
koma með eina tillögu en hún var
þess eðlis að í raun var um enga
breytingu að ræða,“ segir Sæunn.
Þá hófst bið eftir næstu tillögu að
sögn Sæunnar.
Því er svo við að bæta að nýlega
fékk Sæunn þau svör að eigandi
sölutumsins væri búinn að fá sér
lögfræðing þar sem hann telur að
verið sé að eyðileggja reksturinn fyr-
ir sér. „Ég hef því skrifað borgar-
stjóra nýlega öðm sinni. Þar spyr ég
hvort hagsmunir eins sjoppueig-
anda séu meira virði en líf og limir
bamanna,“ segir Sæunn.
Sæunni finnst málið allt með ólík-
indum. „Fyrir það fyrsta hefur eig-
andinn ekki lögformlegt leyfi fyrir
þessari aðkeyrslu. Hann hefur það
hvergi skriflegt," segir Sæunn og
hefur eftir honum að hann telji sig
hafa munnlegt leyfi sem honum var
gefið fyrir mörgum ámm. Jafnframt
bendir hún á að upphaflega hafi leyf-
ið verið skilyrt við öryrkja.
Sæunn segist draga þann lærdóm
af þessari málaleitan sinni að stjóm-
kerfi borgarinnar sé rotið. „Ég var
svo einföld að halda að þetta væri
bara ekkert mál. Ég hélt að allir
sæju þá bráðu hættu sem stafar að
öllum skólabömunum sem þurfa að
ganga hér um fyrir utan bömin á
þremur öðmm bamaheimilum hér í
nágrenni við skóladagheimilið,"
bætir Sæunn við.
Hún er ekki sú eina sem hefur leit-
að eftir að öryggi barnanna yrði bet-
ur tryggt en nú er. Þrátt fýrir sam-
eiginlegt bréf foreldrafélaga, for-
svarmanna dagheimila og augljósa
slysahættu virðist ekkert benda til
þess að úr rætist að áliti Sæunnar.
-HÞ
. . . E R L E
BELGRAD
Reffsiaögeröir
Strangar nýjar refsiaðgerðir Samein-
uðu þjóðanna gegn Júgóslaviu tóku
gildi I gær en þær setja landiö þvl
sem næst I algera einangmn. Þéttrið-
ið aöflutningsbann á landi, sjó, ám og
I lofti var sett á til að auka þrýsting á
að binda endi á strfðiö I Bosnlu en
það hefur orðið mörgum þúsundum
manns að bana og svipt margfalt fleiri
heimilum slnum. Nýju reglunum er
ætlað aö hegna þeirri Júgóslavlu sem
er undir stjóm Serba fyrir að takast
ekki aö fá bandamenn sfna I Bosnfu
til aö undirrita alþjóðlega friðaráætiun.
Aögerðimar uröu sjálfvirkar þegar Bo-
snlu-Serbar neituöu á mánudag aö
fylgja áætluninni.
I MOSKVU varaöi Bóris Jeltsfn forseti
Bosnfu-Serba við aö þeir gætu ekki
vænst nokkurrar vemdar ffá Rúss-
landi ef þeir héldu áfram aö viröa að
vettugi alþjóölegu friöaráætlunina um
landsvæði fynum Júgóslavlu.
Hjá SAMEINUÐU ÞJÓÐUNUM mis-
tókst Bandaríkjamönnum, þegar þeir
reyndu að gera lagfæringar á refsiað-
geröunum á slöustu stundu, að koma
banni yfir allar lúxusmatvömr sem
koma aðeins rfkum til góöa.
I NICOSIU á Kýpur sögðust stjóm-
völd hafa fryst Inneignir þriggja serb-
N D A R F R É
neskra banka og um 50 serbneskra
fyrirtækja utan strandlinu I samræmi
við hinar nýju refsiaögeröir S.þ.
MOSKVA
Skýlaus sigur Jelt-
síns
Niðurstöður frá þvl sem næst öllum
hinum geysistóm landsvæðum Rúss-
lands bentu I gær til að Bóris Jeltsin
stefndi I skýlausan sigur I þjóðarat-
kvæöagreiöslunni og heillaóskir
streymdu aö frá Vesturiöndum. Jeltsln
hlaut 58% stuöning I atkvæðagreiösF
unni á sunnudaginn þegar næstum öll
atkvæöin höföu veriö talin, að sögn
yfirmanns kjörstjómar, Vasily Kaz-
akov.
IWASHINGTON sagði Bill Clinton
forseti að sigur Jeltslns I þjóðarat-
kvæðagreiðslunni myndi auðvelda
leiö tillögu um 4 milljaröa dollara I að-
stoð til Rússlands gegnum banda-
rlska þingið.
RÓM
Utanþingsstjórn
Forsætisráðherraefni Itallu, Cario Az-
eglio Ciampi, hóf I gær myndun 52.
rikisstjómar landsins frá strlðslokum,
og heimildir innan stjómmálaheimsins
sögöu að vera kynni að stjómin særi
eiðstafinn áður en gærdagurinn væri
úti. Þessi 72ja ára fyrmm yfirseöla-
T T I R . . .
bankastjóri Itallu, sem verður fyrsti ut-
anþingsmaðurinn sem veitir forstöðu
rfkisstjóm I sögu Itallu, ætlar aö
mynda stjóm slna án þess að ráðfæra
sig við stjómmálaflokkana en það er
róttæk breyting á þvl sem venjan er.
SAN JOSE
19 hæstaréttardóm-
arar í gíslingu
Grlmuklæddir menn sem I gær
beindu byssuhlaupum að 19 hæsta-
réttardómurum I Costa Rica krefjast
20 milljóna dollara og ömggrar brott-
farar frá landinu, að sögn embættis-
manna. Fregnir hernidu að þeir sem
glslinguna frömdu tengdust kólom-
biskum kókalnbarónum og fæm fram
á að auk annarra yröi kólombiski flkni-
efnaforinginn Carfos Urquijo látinn
laus, en hann var tekinn höndum I
Costa Rica I september sl.
AURANGABAD, Indlandi
Orsakir flugslyss
kannaöar
Rannsóknarmenn hófu I gær rann-
sókn á ástæöum þess að Boeing 737
þota indverska flugfélagsins lenti á
flutningabll I flugtaki, rakst sföan á há-
spennuvíra og varð alelda á svip-
stundu með þeim afleiðingum að 55
manns létu llfið.
DENNI DÆMALAUSI
„Er þessi dagskrá nógu hlý fyrirþig, eða ætti ég að skipta
um stöð?“
S3B
AUKhl •