Fréttablaðið - 16.03.2009, Page 9
MÁNUDAGUR 16. mars 2009
Áhugaverð og gagnleg
starfsemi í Rauðakrosshúsinu
Ókeypis
ráðgjöf
námskeið og
Allir velkomnir í Rauðakrosshúsið
Rauðakrosshúsið er miðstöð fyrir alla landsmenn þar sem einstaklingar og
fjölskyldur geta leitað stuðnings við að takast á við breyttar aðstæður, fengið
ráðgjöf um margvísleg úrræði sem bjóðast í samfélaginu - eða nýtt krafta sína
öðrum til gagns. Öll þjónusta og viðburðir eru gestum að kostnaðarlausu.
Kynning og umræður: Sálrænn stuðningur
Mánudagur 16. mars kl. 14:30 - 16:00. Fjallað er um áhrif alvarlegra atburða á
andlega líðan fólks og viðbrögð þess í kjölfar slíkra atburða. Bent verður á hvað er
mikilvægt fyrir fólk að gera í þessu sambandi. Umræður í lokin.
Fagaðilar veita ráðgjöf
Í Rauðakrosshúsinu getur fólk sótt sér sálrænan stuðning hjá fagaðilum úr
áfallateymi Rauða krossins, prestum og djáknum sér að kostnaðarlausu.
Sérþjálfaðir sjálfboðaliðar taka á móti fólki og aðstoða það við að finna úrræði
við hæfi. Ýmsir aðrir sérfræðingar veita ráðgjöf.
Félagsstarf og fræðsla
Rauðakrosshúsið er vettvangur fyrir ýmis konar félagsstarf og fræðslu (sjá
nánari dagskrá á heimasíðunni raudakrosshusid.is). Þar er aðstaða fyrir börn,
kaffihorn þar sem lesa má blöð og bækur, tölvuver, námskeið og ýmislegt fleira.
Gestir eru hvattir til að nýta sér aðstöðuna og félagsskap annarra til að halda
uppi lifandi starfi í Rauðakrosshúsinu. Dagleg starfsemi er í höndum sjálfboðaliða.
Dagskrá vikuna 16. - 20. mars
Námskeið: Sáttamiðlun
Þriðjudagur 17. mars kl. 14:30 - 16:00. Kynnt grundvallaratiði í að sætta deiluaðila
í einka- og fjölskyldumálum. Í lok námskeiðs eru léttar verklegar æfingar og umræður.
Kynning: Aðstæður ungmenna í Palestínu
Þriðjudagur 17. mars kl. 17:00 - 18:00. Myndasýning og létt spjall um ferðalag
íslenskra ungmenna til Palestínu.
Kynning: Matarkarfan
Miðvikudagur 18. mars kl. 14:30 - 15:30. Nú skiptir hagsýni í matarinnkaupum
höfuðmáli. Kynning á vefnum matarkarfan.is, besta vini buddunnar.
Kynning: Verkefni Rauða kross Íslands
Miðvikudagur 18. mars kl. 15:30 - 16:30. Stutt kynning og umræður um helstu
verkefni félagsins hér á landi. Gætir þú lagt eitthvað að mörkum?
Námskeið: Ísgerð heima
Fimmtudagur 19. mars kl. 14:30 - 16:30. Ís er sú fæða sem kemur fólki helst til að
brosa og kætir umfram annan mat. Fjallað er um ís og ísgerð og kynntar nýstárlegar
aðferðir við að búa til gómsætan rjómaís, mjólkurís og jógúrtís á fljótlegan og
einfaldan hátt. Bragðgott og hressandi námskeið.
Borgartún 25 Sími: 5704000 www.raudakrosshusid.is Opið alla virka daga kl. 12-18
Kynning: Hjálparsíminn 1717 og Vinanet
Fimmtudagur 19. mars kl. 16:30 - 17:30. Vinanetið er netspjall fyrir ungt fólk.
Hjálparsíminn veitir ráðgjöf til fólks á öllum aldri.
Verkleg æfing: Endurlífgun og hjartarafstuðstæki
Föstudagur 20. mars kl. 14:30 - 15:30. Stutt verklegt námskeið sem getur gert þér
kleift að bjarga mannslífi þegar mínútur skipta máli.
Kynning: Rauðakrosshúsið
Föstudagur 20. mars kl. 15:30 - 16:30. Allir sem hafa áhuga á að kynnast
starfseminni eða vilja leggja sitt af mörkum eru velkomnir.
FLUGMÁL Engin áminning var veitt
vegna brota flugfélagsins Jet-X
á reglum um hvíldartíma flug-
manna þegar þota félagsins end-
aði utan brautar á Keflavíkur-
flugvelli haustið 2007. Þetta kemur
fram í svörum Flugmálastjórnar
til Fréttablaðsins.
Alls voru 188 farþegar og átta
manna áhöfn um borð í þotu Jet-X
þegar hún rann út af braut í lend-
ingu í Keflavík aðfaranótt 28. okt-
óber 2007. Vélin var að koma úr
leiguflugi til Tyrklands. Vakt flug-
mannanna var orðin lengri en regl-
ur leyfðu, meðal annars vegna tafa
við brottför og vegna millilending-
ar til eldsneytistöku í Skotlandi.
Ísing var á brautinni.
Eins og komið hefur fram í
Fréttablaðinu telur rannsóknar-
nefnd flugslysa að þreyta hafi
þjakað flugmennina enda hafi
þeir sjálfir kvartað undan mikilli
þreytu 40 mínútum fyrir lendingu
í Keflavík. Vaktin hjá þeim varð á
endanum 17 klukkustundir og 20
mínútur.
„Ekki var talin ástæða til þess
að gefa út formlega áminningu
til Jet-X vegna þessa atviks, en
félagið ákvað að nýta ekki áfram
ákvæði um lengda flugvakt með
aukinni áhöfn í kjölfar málsins,“
upplýsir Flugmálastjórn sem
kveðst hafa farið ítarlega yfir
málið með forsvarsmönnum Jet-
X og skoðað framkvæmd þessara
mála hjá fyrirtækinu. „Í kjölfar
þessa atviks gaf Flugmálastjórn
út skýringarefni til íslenskra flug-
rekenda í flutningaflugi um með
hvaða hætti flugrekendur skuli
uppfylla ákvæði reglugerðar um
flug- og vinnutímamörk og hvíld-
artíma flugáhafna sem var í gildi
á þeim tíma sem óhappið átti sér
stað.“
Rannsóknarnefnd flugslysa
gerði einnig athugasemdir við
viðbúnað á jörðu niðri, meðal ann-
ars vegna hreinsunar flugbrauta
og viðnámsmælinga. Aðspurð
segist Flugmálastjórn ekki hafa
gert athugasemdir við vinnulag
og búnað á Keflavíkurflugvelli í
kjölfar atviksins með Jet-X þot-
una. Vetrarhreinsun og viðnáms-
mælingar á flugvöllum séu teknar
út reglulega og búast megi við að
nýjar rannsóknir á viðnámsmæl-
ingum leiði til þess að nýjar kröf-
ur og leiðbeiningar komi fljótlega
fram.
Spurð um hversu algengt það sé
að hvíldartími flugmanna sé ekki
virtur svarar Flugmálastjórn að
það heyri til undantekninga. Í
reglugerð sem gilt hafi þegar Jet-
X þotunni hlekktist á komi fram
að hægt sé að lengja flugvakt upp
að ákveðnum mörkum eigi sér stað
ófyrirséðar aðstæður í flugstarfi.
Reglulegar úttektir séu á rekstri
íslenskra flugfélaga, meðal ann-
ars á flug- og vinnutímamörkum
og hvíldartíma flugáhafna.
gar@frettabladid.is
Áminna ekki
vegna úrvinda
flugmanna
Flugmálastjórn segir ekki ástæðu til að áminna
Jet-X eftir að þota endaði utan brautar á Keflavíkur-
flugvelli með flugmennina úrvinda við stýrið og 188
farþega um borð. Hvíldarreglur voru ekki virtar.
FLUGVÉL JET-X FLUGFÉLAGSINS Flugmenn þotu sem var að koma úr sólarlandaferð
til Tyrklands voru örþreyttir eftir sautján tíma vakt þegar lent var við vond skilyrði að
næturlagi á Keflavíkurflugvelli í lok október 2007.
SAMFÉLAGSMÁL Undirrituð hefur
verið viljayfirlýsing um flutning
þjónustu við fatlaða frá ríki til
sveitarfélaga. Sveitarfélögin munu
taka að sér ábyrgð á þjónustu við
fatlaða í sambýlum og á áfanga-
stöðum fatlaðra. Stefnt er að því að
þetta taki gildi árið 2011.
Sveitarfélögin munu sinna frekari
liðveislu í þjónustu og íbúðakjörn-
um og dagþjónustu við fatlaða sem
ekki fellur undir vinnumál. Einnig
verða heimili fyrir fötluð börn og
skammtímavistun á ábyrgð sveit-
arfélaganna ásamt ábyrgð á stuðn-
ingsfjölskyldum fatlaðra barna.
Markmiðið er að bæta þjónustu
við notendur, einfalda og skýra
verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga og leggja áherslu á að verk-
efni skarist sem minnst þannig að
eitt stjórnsýslustig beri að mestu
leyti ábyrgð á almennri þjónustu
við fatlaða.
Halldór Halldórsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
býst við að sveitarfélögin fái 10-12
milljarða frá ríkinu í verkefnið.
„Aðgerðin er tvíþætt, annars
vegar er hægt að lækka tekju-
skattinn um 1-2 prósent og hækka
útsvarið á móti og hins vegar þarf
að grípa til jöfnunaraðgerða því að
sveitarfélögin eru misjafnlega stór
og fjöldi fatlaðra misjafn,“ segir
hann. - ghs
Flutningur þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga:
Tekur gildi eftir tvö ár