Fréttablaðið - 16.03.2009, Síða 25

Fréttablaðið - 16.03.2009, Síða 25
MÁNUDAGUR 16. mars 2009 „Ég persónulega óttast lögregl- una ekki. Henni er velkomið að fylgjast með þeirri löglegu starf- semi sem þarna fer fram,“ segir Davíð Rúnarsson, fótboltakappi og pókerspilari. Davíð, sem ávallt er kallaður DabbiRú, stendur fyrir reglu- legum pókermótum og á fimmtu- dagskvöld hófst fyrsta umferð í annarri mótaröð ISOP – Iceland- ic Series Of Poker. DabbiRú merk- ir mikinn áhuga á mótinu og bjóst við hátt í 70 spilurum. Spilað er í Casa, klúbbi sem er við Aðal- stræti 9. DabbiRú segir svo frá að fólk úr öllum áttum komi til að spila póker. Og í hann hafi hringt maður sem bundinn er við raf- magnshjólastól til að grennslast fyrir um aðstöðu fyrir fatlaða. „Hjólastólaaðgengi í klúbbnum er því miður skelfilegt. En við, þess- ir „meintu glæpamenn“ ætlum að sjálfsögðu að bera hjólastólinn upp svo hann geti spilað.“ Um er að ræða stigamót en spil- aðar eru tíu umferðir. Fimm bestu kvöldin reiknast svo hverjum um sig til stiga. Þátttökugjald er fjög- ur þúsund krónur. - jbg Kjaftfullt á pókermóti DABBIRÚ FÓTBOLTA- OG PÓKERMAÐUR Fyrsta umferð í annarri mótaröð ISOP fór fram fyrir helgi. Norðmenn hafa stolið sen- unni þá fimm mánuði sem liðnir eru frá íslenska efna- hagshruninu. Guðna Ág- ústssyni, fyrrum formanni Framsóknarflokksins, þykir lítið til norsku innrásarinn- ar koma. „Ég held að þetta sé norskt sam særi sem minnir mjög á Gamla sáttmála, Stoltenberg er Hákon konungur og Ingibjörg Sólrún Gissur Þorvaldsson. Allt ber þetta að sama brunni, að renna Íslandi inn í ESB en Stoltenberg er mikill Evrópusinni,“ segir Guðni Ágústs- son, fyrrum formaður Framsókn- arflokksins. Guðni hefur sjálfur hrundið norskri innrás þegar hann kom í veg fyrir sem landbúnaðar- ráðherra að norskar kýr fengju að leggjast uppá þær íslensku í kynbótaskyni. „Þetta er heil vegferð sem hefur verið plönuð síðan í haust og hún er þaulhugs- uð atrenna inn í ESB fyrir báða aðila,“ bætir Guðni við. En hverjar skyldu vera þess- ar norsku stórstjörnur sem stolið hafa senunni þetta tæpa hálfa ár? Fyrstan ber að nefna Björn Richard Johansen, norska hern- aðarráðgjafann sem vakti mikla athygli á fyrstu dögum hrunsins. Upphaflega var talið að hann væri hérna fyrst og fremst til að aðstoða Geir H. Haarde, þáverandi forsæt- isráðherra, í stríðinu við erlenda blaðamenn. Seinna kom uppúr kaf- inu að Johansen ráðlagði gömlu ríkisstjórninni að vinna eftir sér- stakri aðgerðaráætlun hernaðar- bandalagsins Nato þegar upp koma ámóta krísur og kerfishrun. Næsti Norðmaður kom eins og riddarinn á hvíta hestinum og var víða fagnað. Þetta var Trond Sand- ven, norski bílasalinn frá Berg- en, sem keypti nokkra tugi bíla af lánlausum Íslendingum. Sand- ven lét hafa eftir sér í Fréttablað- inu að lúxusbílaeign landsmanna væri fáránleg og margir tóku honum fegins hendi enda hafði fall krónunnar sett myntkörfulán- in í fimmta gír. Ekki má gleyma tveimur norskum fréttamönnum sem slógu í gegn. Annars vegar var að það norski sjónvarpsmaður- inn sem gerði Má Másson, upplýs- ingafulltrúa Glitnis, kjaftstopp og hins vegar Brennepunkt-maðurinn Peter Svaar, hann flaug frá Osló til Flórída og þaðan til Reykjavíkur. Þátturinn vakti það mikla athygli að RÚV sýndi hann textaðan eitt kvöldið. Og þegar norskættaði forsætis- ráðherrann fór frá völdum í byrj- un árs reiknuðu margir með að Norðmannafarsanum væri lokið. Öðru nær. Davíð Oddsson var sett- ur af sem seðlabankastjóri þegar Samfylkingin og Vinstri græn samþykktu nýtt seðlabankafrum- varp. Svein Harald Öygard kom útúr fylgsni sínu á hóteli í miðbæ Reykjavíkur og gekk inní Seðla- bankann. Fyrsti gesturinn þar var áðurnefndur Stoltenberg. Og loks þekktist hinn norski saksókn- ari með franska ríkisfangið, Eva Joly, boð Háskólans í Reykjavík og flutti hálfgert uppistand um fámenni í starfsmannahaldi hins sérlega saksóknara efnahags- hrunsins. Henni var að sjálfsögðu boðin ráðgjafastaða hjá ríkisstjórn Íslands og Íslendingar flykkt- ust í bókabúðir og keyptu bókina hennar ef marka má metsölulista Eymundsson. freyrgigja@frettabladid.is NORSKA INNRÁSIN NORSKAR KREPPUSTJÖRNUR Norðmennirnir Svein Harald, Björn Richard og Eva Joly og (frá vinstri til hægri) hafa stolið senunni undanfarið hálft ár. Guðna Ágústssyni, fyrrum formanni Framsóknarflokksins, þykir þetta minna um margt á aðdragandann að Gamla sáttmála sem Norðmenn þrýstu á Íslendinga að skrifa undir með fulltingi nokkurra herskipa. Ekki má heldur gleyma norska bílasalanum Trond Sandven sem losaði þjóðina við nokkra lúxuskagga og selur þá nú á bílasölu sinni í Bergen. GRÆNNI SKÓGAR I Grænni skógar I er heiti öflugs skógræktarnáms sem að þessu sinni er boðið fróðleiksfúsum skógræktendum á Suður- og Vesturlandi, sem vilja ná hámarksárangri í skógrækt. Námið er í raun 16 námskeið og þar af eru 13 skyldunámskeið. Fyrstu námskeiðin verða kennd á vorönn 2009 og þau síðustu haustið 2011. Að meðaltali eru 2,5 námskeið á önn. Hvert námskeið stendur í tvo daga. Kennsla hefst kl. 16 á föstudögum og lýkur kl. 19. Á laugardögum er byrjað kl. 9 og kennt til kl. 16. Fjallað verður um mörg af grunnatriðum skógræktar m.a. um val á trjátegundum, undirbúning lands fyrir skógrækt, uppeldi og gróðursetningu skógarplantna, skógarumhirðu, skjólbelti, svo eitthvað sé nefnt. Björgvin Örn Eggertsson verkefnisstjóri Grænni skóga gefur einnig upplýsingar í síma 433-5305 bjorgvin@lbhi.is Landbúnaðarháskóli Íslands sér um skipulag námsins í samstarfi við Suðurlandsskóga, Vesturlandsskóga, félög skógarbænda á Suðurlandi og Vesturlandi, Skógrækt ríkisins og Landgræðslu ríkisins. Aðeins er hægt að taka 30 þátttakendur í Grænni skóga I. Þeir, sem ljúka 80 % af skyldunámskeiðunum, fá námið metið til eininga á framhaldsskólastigi. Skráningarfrestur er til 20. mars. Öflugt skógræktarnám - fyrir skógarbændur og fróðleiksfúsa skógræktendur Það borgar sig að bóka sem fyrst! Þrjátíu pláss eru fljót að fyllast! SUÐURLAND Nánari upplýsingar og skráning hjá Suðurlandsskógum í síma 480 1824 (Hrönn) hronn@sudskogur.is VESTURLAND Nánari upplýsingar og skráning hjá Vesturlandsskógum í síma 433 7054 (Guðmundur). gudmundur@vestskogar.is MasterCard Mundu ferðaávísunina!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.