Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.2006, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.2006, Blaðsíða 4
4 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 20. maí 2006 É g sit á flottasta hótelinu í Aþenu og bíð eftir Silvíu Nótt. Hún kemur á hverri stundu heim af æfingu í Oaka- ólympíuhöllinni. Umbinn hennar, Þórólfur Beck, er bú- inn að lofa mér tíu mínútum með dívunni, hún er umsetin. Gott að hún skuli vera orðin hress, eftir að hafa verið hálf lumpin. „I’m waiting for miss Night,“ segi ég við einkennisklæddan lobbíistann sem vill henda reiður á ferðum ókunnugra um salarkynni hótelsins. Loksins, loksins, það er eitthvað um að vera – og allt í einu er þetta galtóma lobbí orðið fullt af ljós- myndurum og kvikmyndatökumönnum – fjöl- miðlarnir eru ára Silvíu, huliðshjúpur, og í miðjum hjúpnum skín hún – perlan í ostruskel- inni. Hún gengur tígulega inn í lobbíið og breiðir út faðminn – hún elskar okkur öll – hún syngur, og hún daðrar við myndavélarnar. Úff … hvernig talar maður eiginlega við Sil- víu Nótt? Hirðin eltir hana inn á barinn og þá upphefst gamanið. „I want the best of the best,“ segir Silvía við þjóninn, um leið og hún vindur sér inn í VIP stofuna á barnum og breiðir úr sér eins og yndisleg kisulóra í mýksta sófanum. „I want to be in the VIP room. Please clean it up!“ Þjónn- inn er hvumsa, og ætlar ekki að láta þetta eftir miss Night, segir hvass að viðtal í VIP stofunni muni trufla aðra gesti þar. „Please clean it up!“ svarar Silvía á móti og þjónninn er ráðalaus. Romario skerst í leikinn og þeir þrasa eitthvað um þetta þjónninn og hann. Skæðadrífan af leiftrum ljósmyndarans er eins og silfurregn yf- ir Silvíu Nótt og hún bendir mér að setjast hjá sér. Ég geri það. Romario er ennþá styggur og segir þóttafullur að þetta verði hámark 10 mín- útur – hann er semsagt með stæla og ég reyni að heyra ekki, þegar hann segist munu fylgjast með tímanum og telja niður … and you can begin now. First question please! Kæra Silvía, hvernig meturðu stöðu þína fyr- ir aðalkeppnina á laugardagskvöld? „Ég vinn, að sjálfsögðu,“ segir hún og það er útrætt. Hverjir eru þínir skæðustu andstæðingar í keppninn? „Engir, allir elska mig og ég elska alla.“ Silvía segist ekki hafa hlustað á öll lögin í keppninni, og þegar ég spyr hana hvort hún eigi sér ekki eitthvert uppáhaldslag í keppninni í ár, hugsar hún sig lengi um. „........hmmmm..... mmmm......hmmmm“ „Seven minutes!“ .... jarmar Romario „Seven minutes,“ segir Silvía Nótt að bragði … „hehe, eins og ég trúi því, er það gott lag?“ Romario er að reyna að rústa þessu viðtali og þegar ég spyr Silvíu Nótt hvort þátttakan í Evróvisjón hafi ekki verið henni góð reynsla heldur hann áfram að tuða eitthvað um góða og slæma reynslu og hvort öll reynsla sé ekki bara reynsla. Ég þykist ekki heyra í þessum plebba, en Silvía Nótt reisir sig með þokka í VIP sóf- anum og svarar: „Það hefur verið stórkostleg reynsla fyrir alla í veröldinni að ég skuli vera hér. Ég finn að fólk er farið að sjá ljósið við enda ganganna – mig – Silvíu Nótt. Það eru myndir af mér úti um allt til að gleðja fólk og ég er alltaf í sjónvarp- inu, og fólkið á götunum vill fá myndir með mér.“ „Five,“ gellur í Romario, – ég er viss um að það hljóta að vera minnsta kosti sjö mínútur eftir. Hefur þetta þá ekki verið gott fyrir frama þinn sem stjarna? „Þetta er upphafið að glæstum ferli mínum.“ „Three, two, one, – it’s over,“ þrusar Rom- ario – ég passa mig að horfa ekki á hann – í hvaða tímatali er þessi smjörgreiddi tannstöng- ull eiginlega? En Silvía vill halda áfram og segir við elsku Romario að hún vilji alveg vera aðeins lengur og svara tveimur spurningum í viðbót. Rosalega er ég fegin að hún skuli halda með mér. Þessi Romario er lúði – og mér finnst að Silvía Nótt ætti frekar að vera með hinum gæj- anum, – honum þarna … Hvað tekur við hjá þér eftir Evróvisjón? „Það er í höndum guðs – hann er sko stílist- inn minn. Hann er búinn að leggja brautina og vísar mér veginn.“ Að síðustu læt ég freistast til að spyrja Silvíu Nótt um Ágústu Evu sem ég hélt að Silvía þekkti. „Hver er það? Er það einhver drusla sem er að reyna að hössla kærastann minn? Ég hef lamið margar svoleiðis gellur. Ef ég á að þekkja þessa Ágústu þá er hún örugglega á spítala núna. Sko – ég þekki bara frægt fólk, og ég get útvegað þér viðtöl við allt fræga fólkið hér, nefndu bara hvern sem er. Ég þekki ekki ein- hver nobody.“ Silvía Nótt svífur á brott inn í nóttina á þessu hóteli sem klæðir hana svo vel – hún sagðist elska mig, og með þá notalegu vitneskju held ég heim – árulaus. „Það er í höndum guðs, – hann er sko stílistinn minn“ Morgunblaðið/Eggert Ágústa Eva? „Hver er það? Er það einhver drusla sem er að reyna að hössla kærastann minn?“ Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Kann að virðast „Unreal“ Eitt ljóðanna í ljóðabók Silvíu Nætur, Teardrops of Wisdom, hljómar svona: You look At this picture It might seem unreal That’s because it’s me I am not like The rest of you I’m Silvia Night One star One life One love Me

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.