Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.2006, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.2006, Blaðsíða 12
12 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 20. maí 2006 Íjúníhefti bandaríska kvikmyndatímaritsinsPremier gefur að líta athyglisverða greineftir Tom Roston, einn af ritstjórumblaðsins, en hann gerir stöðu kvikmynda- gagnrýni þar í landi að umfjöllunarefni. Eitt af því sem kemur fram í greininni er að bandarísku kvikmyndaframleiðslu- og dreififyrirtækin leitast nú í auknum mæli eftir að stýra umfjöllun fjölmiðla um kvikmyndir, en þetta er einkum gert með þeim hætti að gagnrýnendum er ekki boðið á forsýningar. Afleiðingin er sú að fjölmiðlum og kvikmynda- gagnrýnendum þeirra er ekki unnt að birta gagnrýni um viðkomandi myndir á sama tíma og þær eru frumsýndar, en slíkt hefur löngum tíðk- ast í bandarískum fjölmiðlum. Litið er á slíka umfjöllun sem mikilvæg þjónustu við lesendur. Það liggur svo í augum uppi að myndirnar sem þannig er haldið frá gagnrýnendum eru verk sem ekki er búist við að hljóti jákvæða um- fjöllun. Þannig getur það skipt máli, ímyndar maður sér að kvikmyndafyrirtækin hugsi, að of- urauglýst mettunardreifingin fái tækifæri til að breiða úr sér og blómstra, a.m.k. helgina sem myndin er frumsýnd, og ná til grunlausra áhorf- enda áður en gagnrýnendur hefja upp raust sína og fá tækifæri til að skemma stemmninguna. En hér má spyrja að minnsta kosti tveggja spurninga. Hversu áhrifamiklir eru gagnrýn- endur þegar að vinsældum kvikmynda kemur? Og, er ekki hætt við að raddir virðingarverðra og sérfróðra gagnrýnenda týnist í kakófóníu int- ernetsins og bloggsins? Hér má reyndar bæta þriðju spurningunni við, en hún myndi snúa að því hvort það sé ekki bara hið besta mál að um- ræðan um kvikmyndir sé lýðræðisvædd á þann hátt sem til að mynda bloggið bíður upp á. Hvað fyrstu spurninguna varðar, þá held ég að það hafi löngum þótt sannindi að kvikmynda- gagnrýnendur hafi lítið bolmagn andspænis inn- byggðu aðdráttarafli hinna ýmsu „stórsmella“, og þá sé mótstöðuafl orðræðu þeirra gagnvart risavöxnum auglýsingaherferðum harla lítið. Þannig kemur það málinu hreinlega ekkert við hvernig dóma Da Vinci Code fær, eða þá nýjasta Harry Potter-myndin; svona verk eru hafin yfir þyngdarsvið gagnrýnenda. Hins vegar hefur því verið haldið fram að umfjöllun fjölmiðla hafi heil- mikið að segja um gengi „minni“ og svokallaðra listrænna mynda. Hér á landi skiptir umfjöllun fjölmiðla til að mynda auknu máli fyrir gengi ís- lenskra mynda, en undanfarin ár og áratugi hafa þær smám saman færst úr flokki „stórmynda“ – þ.e. mynda sem fólk verður að sjá sama hvað tautar og raular – yfir í að teljast bara enn einn valmöguleikinn á markaðnum. En hefur þá ekkert breyst? Jú, fjölmiðlaum- hverfið er orðið víðfeðmara og með internetinu verða til nýir samskiptamöguleikar. Og vissulega er það rétt að óteljandi kvikmyndasíður eru til þar sem áhugamenn um kvikmyndir láta í ljós skoðanir sínar. Ég held þó að þetta fyrirbrigði eigi meira skylt við það sem áður fyrr var kall- aður almannarómur og beinist að því hvernig orðspor ákveðinna mynda verður til manna á milli, en er ekki það sama og fagleg kvikmynda- rýni. En það sem greinin í Premier fjallar einmitt um er hvernig fagleg kvikmyndarýni á undir högg að sækja. Fjölmiðlar hafa löngum notið ákveðinnar sérstöðu í menningarlífinu, bæði sem þrýstimælir fyrir sviptingar og vettvangur fyrir ritstýrð boðskipti (en sú staðreynd að hefð- bundnum fjölmiðlum er ritstýrt er hér lykilatriði sem skilur þá frá blogginu og ýmsum vefsíðum) en það að kvikmyndafyrirtæki kjósa í auknum mæli að fara í kringum fjölmiðla, forðast þá hreinlega, gefur hugsanlega til kynna að staða fjölmiðla í víðara samhengi sé að veikjast, enda þótt ég vilji forðast að gefa kvikmyndagagnrýni of mikið vægi í samhengi hlutanna. Það er síðan ekki óskylt mál að saga faglegrar umfjöllunar um kvikmyndir er ekki ýkja löng, enda um ungt listform að ræða, en í ljósi þess að kvikmyndin hefur löngum átt undir högg að sækja gagnvart ófaglegu snakki er vert að gefa þessari þróun gaum, og mikilvægt er að umræðan færist ekki afturábak í krafti tækninýjunga og í breyttu fjöl- miðlaumhverfi. Kvikmyndagagnrýni í krísu ’Þannig kemur það málinu hreinlega ekkert við hvernigdóma Da Vinci Code fær, eða þá nýjasta Harry Potter- myndin; svona verk eru hafin yfir þyngdarsvið gagn- rýnenda.‘Sjónarhorn Eftir Björn Þór Vilhjálmsson vilhjalmsson@wisc.edu E ndurgerð kvikmyndarinnar The Poseidon Adventure (1972) var frumsýnd um síðustu helgi í Bandaríkjunum. Upprunalega myndin tilheyrði svokölluðum hamfaramyndum sem nutu mik- illa vinsælda á fyrri hluta áttunda áratugarins. Þótt þær hafi í raun ekki verið ýkja margar skipa þær mikilvægan sess í kvikmyndasögunni enda gerðar á miklum tímamótum í Hollywood. Hamfaramyndirnar, sem flestar voru rándýrar í framleiðslu, gerðust allajafna á nokkrum svið- um þar sem persónur af öllum stigum samfélags- ins komu við sögu. Áhorfendur fengu að kynnast þeim við leik og störf jafn- framt því sem gefið var til kynna að miklar hamfarir eða stórslys væru í vænd- um. Meginviðfangsefni myndanna laut svo að sjálfum hamförunum og baráttu persónanna fyr- ir lífi sínu. Airport reið á vaðið árið 1970 þar sem sprengja jók ennfrekar á spennuþrungið and- rúmsloft flugvallar. The Poseidon Adventure fjallaði tveimur árum síðar um skemmtiferðaskip sem hvolfdi eftir árekstur við ægistóra flóðöldu. Að öðrum tveimur árum liðnum fylgdu svo í kjöl- farið Earthquake og The Towering Inferno en sú síðarnefnda hafði einfaldlega skipti á sökkvandi skemmtiferðaskipinu og brennandi skýjakljúf. Líkt og Sigurður Finnsson hefur bent á í grein sinni „Enn er heimurinn að farast“ sóttu hamfaramyndirnar æði margt til hinna epísku stórmynda 6. og 7. áratugarins og mætti taka sem dæmi Ben-Hur (1959), Spartacus (1960) og Cleopatra (1963). Báðar voru seríurnar mótspil Hollywood við síauknum vinsældum sjónvarpsins en gríðarlegur íburður, breiðmynd, litur og svakalegar fjöldasenur þess- ara mynda skópu upplifun sem sjónvarpið bjó ekki yfir. Hvað þetta varðar má segja að ham- faramyndirnar hafi verið nokkuð gamaldags, en fortíðarhyggju þeirra sjáum við ekki síður í leik- aravalinu. Burt Reynolds og Dean Martin í Air- port, Ernest Borgnine og Shelley Winters í The Poseidon Adventure, Charlton Heston og Ava Gardner í Earthquake, og loks William Holden, Jennifer Jones og sjálfur Fred Astaire í The Towering Inferno. Samtímis þessu blómaskeiði hamfaramynd- anna átti sér einnig stað í kvikmyndum leikstjóra sem Robert Altman, Sam Peckinpah, Mike Nichols, Arthur Penn, Dennis Hooper og Stanley Kubrick uppgjör við hefðbundin framleiðslugildi Hollywood. Í því ljósi eru hamfaramyndirnar vissulega hálfgerðar tímaskekkjur. En það sem gerir þær ekki síst áhugaverðar er að þær horfa ekki aðeins aftur til hins sígilda skeiðs Holly- wood heldur einnig fram til hinnar svokölluðu nýju Hollywood og stórsmellsins sem hún inn- leiddi. Hamfaramyndirnar eru nefnilega að mörgi leyti forverar mynda á borð við Jaws (1975), Star Wars (1977) og Superman (1978), sem oftar en ekki eru taldar hafa innleitt stór- smellinn upp á eigin spýtur, þar sem tæknibrell- ur og hasar ráða ríkjum. Þessi tengsl koma bein- línis fram í tónlistinni en hinn afkastamikli John Williams samdi ekki aðeins tónlistina fyrir Jaws, Star Wars og Superman heldur einnig The Poseidon Adventure, Earthquake og The Tower- ing Inferno. Hamfaramyndin er kannski eig- inlegur forveri hasarmyndarinnar sem tók end- anlega öll völd í Hollywood á níunda áratugnum og heldur henni enn í heljargreipum. Í víðfeðmri úttekt á Hollywood-myndum átt- unda og níunda áratugarins í Camera Politica greina Michael Ryan og Douglas Kellner heil- mikla hægrisveiflu þar sem gildi ’68-kynslóð- arinnar og mannréttindabarátta kvenna og blökkumanna eru fótum troðin. Á meðal dæma þeirra eru hamfaramyndirnar en bjargvætturinn sem birtist í þeim var undantekningalaust hvít karlhetja sem tók málin í eigin hendar. Í The Towering Inferno voru það Paul Newman og Steve McQueen sem björguðu þeim sem bjargað varð úr kljúfnum á meðan framakonan Faye Dunaway var fullkomlega ósjálfbjarga og til einskis nýt rétt eins og kynsystur hennar. Newman og McQueen eru reyndar brjóst- umkennanlegir í hlutverkum sínum enda betur þekktir fyrir að leika andhetjur hverskonar. Gene Hackman túlkaði aftur á móti af mikilli sannfæringu bjargvættinn úr The Poseidon Ad- venture sem í fullkominni holdgervingu aftur- haldsgilda Nixon-stjórnarinnar var prestur í þokkabót. Kannski hefur það haft áhrif á það að hún skyldi verða fyrir valinu þegar kom að end- urgerð hamfaramyndar. Kannski útilokaði ellefti september hinar lykilmyndirnar, en í bæði Earthquake og The Towering Inferno (sem er reyndar tileinkuð föllnum slökkviliðsmönnum) má sjá persónur falla út um glugga skýjakljúfra og í Airport sprengir hryðjuverkamaður sprengju um borð í flugvél – þótt Hollywood sé reyndar hikandi byrjuð að fjalla um atburði dagsins. Líklega eru það þó líkindin við Titanic sem skipt hafa mestu enda var í titli endurgerð- arinnar látið duga nafn skipsins Poseidon. Það er þó varla út í hött að velta því fyrir sér hvort endurkoma Poseidon standi í einhverju sambandi við þá öfgafullu hægrisveiflu sem átt hefur sér stað í Bandaríkjunum á undanförnum árum – Bush yngri verandi enginn eftirbátur Nixon. Ef rétt er til getið er skútan sú þó full- seint á ferð. Forseti Bandaríkjanna sekkur dýpra og dýpra í skoðanakönnunum og nú um síðustu helgi sökk Poseidon til botns í jómfrúar- ferð sinni um miðasölur bandarískra kvikmynda- húsa. Poseidon sekkur á ný Poseidon nefnist endurgerð hamfaramyndar- innar The Poseidon Adventure frá 1972 en sú nýja var frumsýnd um síðustu helgi og sökk til botns í miðasöluslagnum vestra. Hér eru rifjaðar upp þekktar hamfaramyndir frá upphafstímum stórmyndanna. Eftir Björn Norðfjörð bn@hi.is The Poseidon Adventure Myndin fjallaði um skemmtiferðaskip sem hvolfdi eftir árekstur við ægistóra flóðöldu. Gene Hackman var í aðalhlutverki. Naomi Watts mun leika aðal-kvenhlutverkið í nýjustu kvik- mynd kanadíska leikstjórans David Cronenberg, en myndin heitir Eastern Prom- ises. Watts, sem tilnefnd var til Ósk- arsverðlauna fyrir frammi- stöðu sína í kvikmyndinni Mullholland Drive leikur Önnu, hjúkr- unarkonu á sjúkrahúsi í Lundúnum sem dregst inn í undirheima borgarinnar þegar hún fer að rannsaka mál látins sjúk- lings. Viggo Mortensen mun leika aðalkarl- hlutverkið í myndinni, en hann hefur áður leikið í kvikmynd í leikstjórn Cronen- bergs, hinni margrómuðu A History of Violence. Tökur á myndinni hefjast í nóv- ember en þá mun Watts hafa nýlok- ið við að vinna að kvikmyndinni Funny Games sem er í leikstjórn Michael Haneke. Um er að ræða endurgerð á hans eigin kvikmynd frá árinu 1997, en myndin var á þýsku og verður nú gerð á ensku. Hún fjallar um fjölskyldu sem lendir í klónum á tveimur geðsjúkum mönnum í sumarfríi.    Kvikmyndin Da Vinci-lykillinn erfrumsýnd í 3.735 kvikmynda- húsum í Bandaríkjunum um helgina, auk 12.213 kvikmyndahúsa í 79 öðr- um löndum. Þrátt fyrir að myndin sé afar umdeild og hafi fengið slæma dóma á kvikmyndahátíðinni í Cann- es er búist við því að henni muni vegna vel um helgina, og er gert ráð fyrir því að hún muni hala inn á bilinu 50 til 80 milljónir dollara. Myndin er bönnuð innan 13 ára í Bandaríkjunum og höfðar til eldra fólks sem ekki er vant að fara á kvik- myndir fyrstu sýningarhelgina, en það er hins vegar ekki talið hafa áhrif í þessu tilfelli. Talið er að það muni verða til þess að aðsókn að myndinni muni haldast góð næstu vikurnar.    Bandaríski leikarinn Sidney Poitier var heiðraður á kvik- myndahátíðinni í Cannes á fimmtu- daginn fyrir að hafa brotið múra fyr- ir svarta leikara í Hollywood. Poitier, sem er 79 ára gamall, varð fyrsti svarti leik- arinn til þess að fá Ósk- arsverðlaun fyrir bestan leik í aðal- hlutverki, en það var fyrir kvikmyndinar Lilies of the Field ár- ið 1964. Í ávarpi þakkaði Poitier for- eldrum sínum, sem voru verkamenn á Bahama-eyjum, en hann þakkaði einnig þeim leikstjórum sem fengu hann í hlutverkin á sínum tíma. Hann kallaði þá „menn sem breyttu út af venjunni sem var ekki lýðræð- isleg, ekki við hæfi Bandaríkjanna, og ekki manneskjuleg.“ Poitier hef- ur meðal annars leikið í myndunum In the Heat of the Night, The Defiant Ones, A Patch of Blue og A Raisin in the Sun. Erlendar kvikmyndir Sidney Poitier Tom Hanks og Audrey Tautou í Da Vinci-lyklinum. Naomi Watts

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.