Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.2006, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.2006, Blaðsíða 13
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 20. maí 2006 | 13 Tónlistaráhugamenn hafa fylgstspenntir með hverju skrefi Kevins Shields, fyrrum leiðtoga My Bloody Valentine, allt síðan að sú gæðasveit gafst upp fyrir um fimm- tán árum eða svo. Hvert skref er reyndar of- mælt, því að spennan hefur snúist um hvort að Shields væri að fara að gera eitthvað yfir höfuð. Það síð- asta markverða sem hann kom nálægt var að semja nokkur ósungin lög fyrir kvikmyndina Lost in Translation en alltaf bíða menn eftir plötu, hvort heldur frá honum sem sólólistamanni eða My Bloody Valentie. Nú berast fregnir af því að hann sé búinn að endur- hljóðblanda lög eftir Bow Wow Wow, sveit þá er Malcolm McLar- en setti saman eftir Sex Pistols- ævintýrið. Lögin eru tvö og munu birtast í næstu mynd Sofiu Coppola (leikstjóra Lost in Translation) sem ber heitið Marie Antoinette og byggist á ævi keisaraynjunnar frönsku. Þannig að … við bíðum enn eftir alvöru efni!    Hinn 6. maí síðastliðinn léstGrant McLennan, annar af forvígismönnum áströlsku sveit- arinnar The Go-Betweens. Hann var aðeins fjörutíu og átta ára. Með brotthvarfi McLennans er óhætt að segja að ein af helstu kanónum ástralskrar dægurtónlistar sé horfin af braut og var Go-Betweens ein af merk- ustu sveitum Ástralíu og reyndist einkar áhrifamikil þegar fram í sótti. Sveit sú gaf út fyrstu breiðskífu sína árið 1981 en fór í tíu ára frí árið 1989. Sveitin sneri hins vegar aftur árið 2000 og gaf út þrjár plötur, sú síð- asta, Oceans Apart, kom út í fyrra og þykir af mörgum vera það besta sem sveitin gaf út nokkru sinni. Eftir McLennan liggja þá fjórar sólóplötur. Dánarorsökin er talin vera hjartaslag en McLennan lagð- ist til svefns í heimabæ sínum, Brisbane, og kvartaði yfir því að vera eitthvað slappur. Félagi hans í Go-Betweens, Robert Forster, hef- ur lýst því yfir að með brotthvarfi McLennans sé Go-Betweens einnig úr sögunni.    Breski tónlistarmaðurinn CatStevens stakk af frá við- sjárverðum popplendum árið 1979 en tveimur árum fyrr hafði hann tekið sér ísl- amstrú. Tók hann sér þá nafnið Yusuf Islam og hefur hann ekki sinnt tónlist síðan. Í haust verður þögnin hins veg- ar rofin, því þá er væntanleg flunkuný plata með listamanninum. Nákvæmara væri þó að segja að poppþögnin verður rofin, því að út hafa komið plötur með Islam, en hafa þær allar verið af trúarlegum toga. Með þessari nýju plötu, sem gefin verður út af Polydor, vonast Islam til að brúa bil á milli íslams og vestursins, en spenna á milli þessara menningarheima hefur ver- ið að aukast reglubundið að und- anförnu. Upptökustjórnandi plöt- unnar er Rick Nowels, sem hefur unnið með Dido og Madonnu á meðal annarra. „Ég er í þeirri stöðu í dag að geta verið einskonar túlkur á milli þessara heima,“ hefur Islam sagt. „Það er mikilvægt að ég reyni að beita mér fyrir því að brúa bilið á milli þeirra.“ Erlend tónlist Grant McLennan Kevin Shields Yusuf Islam Kathleen átti heima í klaustri og var aðlæra að verða nunna. Ég kynntisthenni í gamlárspartíi sem henni varleyft að fara í. Hún yfirgaf Drottin fyr- ir mig.“ Þannig sagði Tom Waits frá fyrstu kynnunum af eiginkonu sinni Kathleen Brennan í viðtali stuttu eftir að hann kvæntist henni í ágúst 1980. Auðvitað er þetta haugalygi eins og margt sem Waits lætur hafa eftir sér í viðtölum – einhvern tímann laug hann því að blaða- manni að hann væri læknir! Hið sanna er (sennilega) að þau kynntust þegar Waits var að vinna að tónlist- inni við kvikmyndina One From the Heart eftir Francis Ford Coppola en Kathleen var hand- ritalesari hjá 20th Century Fox. Hún átti eftir að breyta miklu í lífi og tónlist Waits, allt frá því þau kynntust hefur hún starfað með honum að tónlist- inni. Hún er líka eins konar akkeri í lífi hans, eftir að þau kynntust hætti hann fljótlega ruglinu og gerðist ábyrgur fjölskyldufaðir. Heartattack and Vine kom út um svipað leyti og þau Waits og Kathlenn giftu sig. Hún er síðasta platan sem hægt er að telja til hins einstaklega frjóa upphafstímabils á ferli Waits. Þar er að finna frábær lög í sama anda og á fyrstu plötunum, nema hvað strengjaútsetningarnar sem höfðu verið nokkuð áberandi fram að þessu eru horfnar. Nefna má titillagið, Jersey Girl, og Ruby’s Arms. En það var One From the Heart sem breytti ferli Waits. Hann vann tónlistina undir sterkum áhrifum frá krafti og áhuga Coppolas. Crystal Gayle söng lögin ásamt Waits. Fyrirfram myndi maður halda að það gengi engan veginn upp en út- koman er ótrúlega flott. Á plötunni eru nokkur af bestu lögum Waits, Old Boyfriends, Take Me Home og Broken Bicycles. Textarnir í Little Boy Blue og You Can’t Unring a Bell eru mjög vand- aðir. Myndin fékk ekki góðar viðtökur en tónlist Waits var tilnefnd til Óskarsverðlauna. Hann mætti í samkvæmið en Leslie nokkur Bricusse og Henry Mancini hrepptu styttuna fyrir tónlistina við Victor/Victoria sem enginn man lengur. En meginefni þessa pistils er áttunda platan sem Waits sendi frá sér árið 1983, Swordfish- trombones, fyrsta platan sem hann gaf út undir merkjum Island Records en Asylum-útgáfan sagði honum upp þegar hún heyrði efnið sem hann vildi setja á þessa plötu, það var einum of til- raunakennt og skrýtið. En þetta var í raun bara eðlilegt framhald af því sem hann hafði verið að gera, ekki síst á One From the Heart. Hér hefjast tilraunir hans með notkun ólíklegustu hljóðfæra eins og marimbu, sekkjarpípu, sagar, harmonikku og högga á stóla og yfirleitt á alla hluti, „það er hægt að berja í alla hluti“ lét hann hafa eftir sér. Og útkoman? Ef útgefandi hefur einhvern tím- ann haft rangt fyrir sér þá er það Asylum í þessu tilfelli. Frá og með þessari plötu tók aðdáenda- hópur Waits nefnilega að vaxa meira og meira; eftir því sem tónlist hans varð furðulegri því fleiri hlustuðu á hana. Þetta virtist ganga þvert gegn öllum kenningum um popptónlist en tónlist Waits tókst kannski að yfirstíga lögmál poppsins. Þegar hlustað er á Swordfishtrombones verður manni reyndar ljóst að maðurinn er hreint út sagt snill- ingur. Lög eins og Underground, 16 Shells From A 30.6, In the Neighbourhood, titillagið, Down, Down, Down og Gin Soaked Boy … ha! ég er orð- laus. Allt saman lög sem munu aldrei gleymast. Og svo hyllingin til ástarinnar og Kathleen í Johnsburg, Illinois: „She’s my only true love/she’s all that I think of“. Og hlustið á textann í orða- djassinum Frank’s Wild Years en Waits átti stuttu síðar eftir að gefa út frábæra plötu með sama heiti sem söngleikur var reyndar gerður við. Sverðfiskabásúnur Poppklassík Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is L angt hefur liðið á milli sólóskífna Donalds Fagens. The Nightfly kom út árið 1982, tveimur árum eftir að Steely Dan hafði lokið sér af með Gaucho. Kamakiriad kom þá út árið 1993 og nú, þrettán ár- um síðar, Morph the Cat. Á plötunni hagnýtir Fagen sér krafta þeirra sem hafa spilað inn á síðustu tvær plötur Dan en sveitin sneri úr útlegð árið 2000 með plötunni Two Against Nature, plata sem er fyllilega sam- bærileg við fyrri afrek tvíeyk- isins, þ.e. Donalds Fagens og Walters Beckers. Everything Must Go, sem út kom 2003, er einnig afbragð og eiga þeir félagar því enn eftir að gera slaka plötu. Eftir endalok Dan áttu Beck- er og Fagen báðir í basli, Fagen glímdi við alvar- lega ritstíflu árin ellefu sem liðu á milli The Nightfly og Kamakiriad á meðan Becker glímdi við öllu alvarlegra vandamál, heróínfíkn. Í dag virðast þeir í miklu stuði hins vegar og það hillir undir að þeir skelli sér í hljóðver á þessu ári til að hljóðrita nýja Steely Dan-plötu. Fullkomnun Tónlistin á Morph the Cat kemur engan veginn í opna skjöldu, hljómurinn liggur mjög nálægt Everything Must Go, þrátt fyrir að þetta sé sóló- plata frá Fagen. En þannig hefur Steely Dan lagt upp með tónlist sína á þessu seinna skeiði sínu og Fagen fylgir þeirri nálgun. Two Against Nature hljómar þannig eins og hún hafi verið hljóðrituð ári eftir að Gaucho kom út, nokkurn veginn frosin í tíma. Hljómur og stíll Steely Dan er hins vegar það einstakur að orð eins og „gamaldags“ eða „hallærislegt“ eiga ekki við í þeirra tilfelli. Hryggjarstykkið í ferli Dan, Aja, er kennslubók- ardæmi um hvernig á að gera fullkomlega út- hugsaða plötu þar sem legið er yfir hverju smáat- riði án þess að sálinni í tónlistinni sé fórnað um leið. Fullkomnunarárátta Fagens og Beckers í hljóðverinu er alþekkt og nútíma goðsögur hafa sprottið upp um þessa hegðun þeirra, þar sem heilu vikunum er eytt í að ná rétta sneril- hljómnum fyrir tiltekinn lagakafla. Einhvern tíma á Becker eða Fagen að hafa sagt við upp- tökumann: „blástu á sleðann“ eða „blow the fader“. Sleðar á upptökuborðum eru notaðir til að hækka eða lækka í ákveðnum hljóðfærum og eftir að hafa fært sleðann annaðhvort aðeins of hátt eða aðeins of lágt í lengri tíma var gerð tilraun til þess að blása á hann til að jugga honum upp í hina réttu stöðu. Fagen hefur sagt að umgjörð og inntak Morph the Cat hafi verið of persónulegt og því hafi hann ekki viljað blanda Becker í málin. Móðir Fagens dó t.d. árið 2003 og hafði sá atburður talsverð áhrif á þróun plötunnar. Hann viðurkennir þó að á stundum hafi það verið erfitt að vera án sálu- félagans Beckers. Stundum hafi hann spurt út í loftið: „Hvað finnst þér Walter?“ en ekkert var svarið eðlilega. Þeir hafa hins vegar ekki rætt saman um Morph the Cat enn. „Við tölum ekki svo mikið saman um tónlist,“ segir Fagen í sam- tali við The Times. „Steely Dan er svona stráka- hljómsveit, lítið talað en því meira unnið.“ Á Morph the Cat lokar Fagen þríleik sem hann hóf með The Nightfly. „Sú plata var óður til æskuáranna,“ er haft eftir honum. „Kamakiriad snerist nokkurn veginn um það að vera kominn á miðjan aldur og þessi plata snýst um endalok.“ Fagen og Becker eru þekktir fyrir eitraðan, hárbeittan húmor og kaldhæðna, jafnvel napra, lífssýn og endurspeglast þetta í textum þeirra. Morph the Cat er engin undantekning, eða eins og segir á vefsíðu Fagens: „Morph the Cat er fremur hefðbundið […] meistaraverk sem tekst á við ástina, dauðann og varnir heimalandsins …“ Á alvarlegri nótum hefur Fagen staðfest að þar sem sólóplötur hans tengjast það mikið standi til að gefa þær allar saman út í boxi. Fóstbræður Walter Becker ku þá vera að vinna að sólóplötu um þessar mundir (hans fyrsta og eina á þeim vettvangi er 11 Tracks of Whack, frá 1994). Fagen túraði Morph the Cat í mars, og er það í fyrsta skipti sem hann gerir slíkt. Þá hefur verið tilkynnt um sumartúr Steely Dan og með í för er enginn annar en Michael McDonald, fyrrum Doobie-bróðir en hann söng bakraddir á nokkr- um af fyrstu plötum Dan. Fyrir þá sem aldrei fá nóg af kaldhæðnu fóst- bræðrunum er rétt að benda á plötuna Piano Jazz: McPartland/Steely Dan. Þar kíkja þeir Fagen og Becker í heimsókn í útvarpsþátt Marian McPartland og renna í gegnum nokkra djassstandarda og svo líka Dan-lög. Skemmtilegu spjalli er skotið inn í, og byrja þeir á að snupra stjórnandann með því að leika lag eftir Duke Ell- ington sem hún vissi ekki að var til! („Limbo Jazz“). Mjög fín sunnudagsplata, þar sem hægt er að sameina tvær nautnir; að hlusta á talað mál í útvarpi og að hlusta á ljúfa djasshljóma. Blástu á sleðann Menn hafa að undanförnu verið að lýsa þriðju sólóplötu Donalds Fagens, Morph the Cat, sem hliðstæðu við Aja, hið „fullkomna“ meistaraverk Steely Dan. Þó að slíkur samanburður sé lang- sóttur dylst engum að Fagen – og félagi hans í Dan, Walter Becker – eru á blússandi stími um þessar mundir. Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is xxxxxxxxxxxxxxxxxxDonald Fagen Á Morph the Cat lokar Fagen þríleik sem hann hóf með The Nightfly. „Sú plata var óður til æskuáranna,“ er haft eftir honum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.