Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.2006, Blaðsíða 1
Laugardagur 3.6. | 2006
[ ]Marilyn Monroe | Ljóskan sem var þó engin ljóska | 2 og 4Pétur Gunnarsson | Til hvers fer maður í bókabúð? | 5Kambódía | Eru afbrotin gegn kambódísku þjóðinni gleymd? | 8–10
Lesbók Morgunblaðsins
Eftir Árna Matthíasson | arnim.blog.is
Tvíeykið
Rankin
og Rebus
Metsöluhöfundurinn Ian Rankin er nú staddur hér á
landi að kynna verk sín. Bækur hans um John Rebus,
lögreglumann í Edinborg, eru metsölubækur víða
um heim, en nú sér fyrir endann á þeim.
S
koski rithöfundurinn Ian Rankin,
sem er af flestum talinn með
helstu og bestu glæpasagnahöf-
undum heims, er staddur hér á
landi og fjallar um verk sín og les
upp í Súfistanum við Laugaveg kl.
13:00 í dag. Að því loknu áritar
hann síðan bækur í bókabúð Máls
og menningar.
Ian Rankin er þekktur fyrir bækur sínar um
skoska rannsóknarlögreglumanninn John Rebus,
en alls hefur hann skrifað átján bækur þar sem
Rebus er í aðalhlutverki. Einnig hefur Rankin
skrifað nokkrar bækur aðrar, þar á meðal þrjár
undir listamannsnafninu Jack Harvey en síðasta
bók hans er Rebus’s Scotland, ríkulega mynd-
skreytt bók þar sem hann segir frá Skotlandi æsku
Rebus sem er um leið Skotland æsku Rankins.
Bækur Rankins eru mest seldu glæpasögur í
Bretlandi nú um stundir og hafa verið það und-
anfarin ár, en hann nýtur einnig vinsælda víða um
heim, þar á meðal vaxandi vinsælda vestan hafs.
Hann er og margverðlaunaður, hefur hlotið
Chandler-Fulbright verðlaunin, Gullrýtinginn og
Demantsrýtinginn, en hvort tveggja er verðlaun
samtaka breskra glæpasagnahöfunda, Edgar verð-
launin, Þýsku glæpasagnaverðlaunin, smásagna-
verðlaun CWA tvívegis, bresku bókaverðlaunin og
frönsku verðlaunin Grand Prix du Roman Policier.
Hann er heiðursdoktor við þrjá háskóla.
Skrudda hefur gefið út fjórar bækur Rankins á
íslensku.
Teiknimyndir, ljóð og pönk
Ian Rankin er fæddur í Cardenden í Fife í sunn-
anverðu Skotlandi 1960. Cardenden er kolanámu-
bær og var á fallandi fæti þegar Rankin var að
vaxa úr grasi, námurnar að syngja sitt síðasta og
lítið annað við að vera. Hann var með ríkulegt
ímyndunarafl sem barn, teiknaði teiknimyndasög-
ur, skrifað ljóð og söngtexta fyrir ímyndaða hljóm-
sveit, en hann var líka í pönkhljómsveit um tíma.
Að loknu grunnnámi hélt hann til Edinborgar að
nema bókmenntafræði sem hann náði reyndar
aldrei að ljúka við; í stað þess að ljúka við dokt-
orsritgerð sína um Muriel Spark tók hann til við
aðrar skriftir. Um tíma bjó Rankin í Lund-
únum og svo í Frakklandi í nokkur ár, en síð- 3