Lesbók Morgunblaðsins - 10.06.2006, Side 13

Lesbók Morgunblaðsins - 10.06.2006, Side 13
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 10. júní 2006 | 13 Tom Waits hefur gefið út þrjár plötur meðtónlist við leiksýningar eftir bandarískaleikstjórann Robert Wilson, The BlackRider (1993) við Galdraskyttuna sem William Burroughs skrifaði leikgerðina að, Blood Money (2002) við Woyzeck eftir Georg Büchner og Alice (2002) við samnefnda útgáfu Wilsons af sögu Lewis Carrolls um Lísu í Undralandi. Tónlistin á þessum þremur plötum spannar tíunda áratuginn hjá Waits, The Black Rider var frumsýnd 1990, Alice 1992 og Woyzeck 2000. Þrátt fyrir að vera að semja fyrir aðra er Waits sjálfum sér trúr. The Black Rider myndi kannski einna síst geta talist hefðbundin Waits-plata, til þess er hún ekki nægilega heildstæð og ber þess of skýr merki að Waits var að myndast við að skapa einhvers konar Kurt Weill-stemningu. Rétt eins og Night on Earth losnar aldrei við kvikmyndateng- inguna losnar The Black Rider aldrei við leik- húshljóminn. Þetta á síður við um Blood Money og alls ekki Alice sem er heilsteyptasta platan af þess- um þremur, áheyrilegust og tvímælalaust waits- ískust. Sjálfur sagði Waits í viðtali að samanborið við karnivalíska stemninguna á The Black Rider væri Alice eins og pilla sem maður gleypti: „Hún er svolítið draumkenndari. Hún er svolítið meira … ég veit ekki … dópuð, myndi ég segja, meira eins og ópíum. Og draumkennd. Meiri söngvaflokkur.“ Blood Money stendur á milli þessara platna, stendur líka nær Swordfishtrombones en elstu verkunum. Á henni eru lög sem telja má með þeim bestu sem Waits hefur gert eins og Misery is the River of the World, All the World is Green og God’s Away on Business. Alice byrjar með titillaginu sem er djössuð saxó- fónballaða með frábærum texta Waits þar sem þráhyggja Carrolls fyrir sköpunarverki sínu, Alice, er kynnt til sögunnar en leikrit Wilsons fjallaði einmitt um sérstakt samband höfundarins við stúlkuna sem hann bjó til. Það sem lyftir plöt- unni upp á annað og æðra plan en til dæmis The Black Rider er að bæði tónlist hennar og textar vísa langt út fyrir leiksýninguna. Lagið Alice er þannig líka mögnuð lýsing á þráhyggjukenndri ást. Annars eru ballöðurnar á þessari plötu miklu fleiri og margar hverjar meðal fallegustu laga Wa- its, sumar eins og blæðandi undir, ekki síst þar sem fiðlan grætur undir hrjúfri og tregafullri rödd Waits (No One Knows I’m Gone) en píanóið leikur líka stórt hlutverk eins og tuttugu árum fyrr (I’m Still Here). En platan er ekki bara ballöður, á henni eru líka ágengari lög eins og Everything You Can Think og Kommienezuspadt, sem er sungið á tilbúnu tungu- máli Waits en hljómar á köflum eins og einhvers konar þýska, og Reeperbahn, sem minnir nokkuð á Weill-andann sem einkenndi svo The Black Rider. Og svo má ekki gleyma tveimur af skemmtilegustu lögum plötunnar, Poor Edward, sem fjallar um mann með tvö andlit, annað af konu sem vaxið hef- ur út úr hnakka hans, og Table Top Joe, sem fjallar um mann sem hefur bara höfuð en engan búk. Í þessum lögum nýtur sérstæð frásagnargáfa Waits sín en þegar hér var komið sögu voru textar hans farnir að slá flestu við sem þekkist í heimi rokks- ins. Waits og Wilson Poppklassík Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is N ýverið gaf Scott Walker út plötuna The Drift undir merkjum hins virta merkis 4AD. Sú útgáfa hefur reynd- ar mátt muna sinn fífil feg- urri en undanfarið hefur þó örlað á lífsmarki, t.a.m. gerði Jóhann Jó- hannsson samning við hana á dögunum og vefsíða fyrirtækisins er nú spriklandi fjörug (www.4ad.com). Scott Walker hefur fyrir löngu öðlast þann vafasama heiður að vera álitinn sturlaður snillingur, sem þýðir að tiltölulega fámennur hópur aðdáenda fylgist grannt með hverju skrefi meistarans. Walker hefur ábyggilega sett óopinbert met í nafntogi í gegnum tíðina, þeir sem vilja gefa þá mynd af sér að vera með á nótunum og búa yfir fáguðum dæg- urtónlistarsmekk henda gjarnan inn einni eða tveimur Scott Walker-plötum þegar þeir eru spurðir út í slíkt. Walker á fyllilega innstæðu fyrir öllu þessu hampi, en tímabilið eftir gull- öldina, undanfarin þrjátíu og sjö ár eða svo, hefur ekki síður verið athyglisvert þótt jafnan hafi langur tími liðið á milli útgáfna. Tvær síðustu plötur, The Drift og Tilt sem út kom árið 1995 (tónlistin við kvikmyndina Pola X, sem út kom 1999, er undanskilin), sigla á sinn hátt fast upp að því besta sem Walker gerði á hinum margumræddu sólóplötum sínum, þ.e. Scott, Scott 2, Scott 3 og Scott 4, sem út komu á tímabilinu 1967 til 1969. Myrkur Walker hóf að brjótast frá hinu tiltölulega hefðbundna poppformi á þriðju plötu hinnar endurreistu sveitar Walker-bræðra, Nite Flites, sem út kom árið 1977. Ferill Scotts (sem var gefið nafnið Noel Scott Engel við fæðingu) hófst fyrir alvöru er hann stofnaði tríóið The Walker Brothers, og líkt og með The Ramones voru þeir hvorki bræður né báru eftirnafnið Walker (John Walker heitir réttu nafni John Maus og Gary Walker heitir réttu nafni Gary Leeds). Þeir spiluðu þá sjaldnast sjálfir inn á plöturnar sínar en náðu þónokkrum vinsældum, sérstaklega í Bretlandi. Scott klauf sig úr tríóinu með sinni fyrstu sólóplötu árið 1967 sem var einfaldlega titluð Scott (að vísu kom út plata árið á undan, I only came to dance with you, en bæði er deilt um lögmæti hennar og hvort Scott sé hreinlega á þeirri plötu yfirhöf- uð). Á þessari fyrstu plötu mátti heyra djúp- spaka texta um angist og örlög, sveipaða dramatísku, strengjalegnu kammerpoppi (allt undir sterkum áhrifum frá Jacques Brel, en mörg laga hans prýddu þrjár fyrstu sólóplöt- urnar). Eftir fyrstu fjórar plöturnar dró Walker nokkuð úr dramatíkinni og næstu plötur voru meinlausar poppplötur sem lítið er rætt um og ritað. Hlutirnir fóru hins vegar að verða áhuga- verðir á nýjan leik árið 1978, er áðurnefnd Nite Flites kom út. Platan þykir ein undarlegasta útgáfa dægurtónlistarsögunnar en meðlimirnir þrír skiptu með sér lagasmíðunum. Þeir John og Gary eiga tiltölulega þunnar smíðar en Scott var kominn langleiðina út í geim. Lög hans þykja byltingarkenndar smíðar, á undan sinni samtíð og settu tóninn fyrir komandi nýróm- antík og tölvupopp ásamt Low Davids Bowies. Þessi útspil Scotts komu hlustendum algerlega í opna skjöldu, sérstaklega eftir miður skemmtilegt dafl hans í kjölfar „fernunnar“ frægu. Næsta plata Scotts var svo Climate of Hun- ter (1984) sem enginn botnaði í á þeim tíma en í ljósi Tilt og The Drift eru poppfræðingar farnir að rannsaka hana nánar og þar má greinilega heyra að Scott er að sá þeim fræjum sem áttu eftir að blómstra síðar meir. Tilt kom svo ellefu árum síðar (eftir jafnlangan tíma og það tók að koma The Drift út) og lýtur nokkurn veginn sömu lögmálum og The Drift. Lærðar, djúpþenkjandi greinar um Walker og The Drift hafa birst í talsverðu magni undanfarið hjá þeim miðlum sem fjalla alvarlega um dægurtónlist. Sumar til- gerðarlegar vissulega, aðrar klóra sér í hausnum og enn aðrar ausa lofsorðum til hægri og vinstri. The Drift er mögnuð plata svo ekki sé nú meira sagt, hrollvekjandi og martrað- arkennd tónlistin er bundin í kolniðamyrkur en svo brestur skyndilega á með birtu, yl og fegurð. Walker syngur í þess- um „krúnustíl“ sínum (e. „crooner“) þannig að platan hljómar eins og I am a Bird Now með Antony and the Johnsons hafi verið snúið á rönguna. Myrk kabar- etttónlist The Associates, með Billy McKenzie í fararbroddi, hljómar eins og Milli Vanilli í samanburði við The Drift. Holdsveikisjúklingur Scott Walker varð sextíu og þriggja ára hinn 9. janúar síð- astliðinn og er nú að gera tónlist sem er „lengst þarna úti“, nokkuð sem enginn hefði fyrir sitt litla líf getað ímynd- að sér sem sá Walker hoppa og hlæja með „bræðrunum“ á sínum tíma. Ráðgátan og mít- an í kringum manninn er orð- in það fyrirferðarmikil í dag að fólk trúir því ekki að hugsanlega sé Walker kannski bara maður sem gerir tónlist. Hökustroks-biblían The Wire átti viðtal við hann vegna The Drift, og birtist það í síðasta mánuði. Höfundurinn, Rob Young, byrjar á því að hrósa Walker fyrir nýju plötuna og svarið er furðu einlægt: „Ja … þakka þér fyrir. Það er svo óvenjulegt að heyra svona lagað frá fólki. Mér líður stund- um eins og ég sé holdsveikisjúklingur. Ef fólk kæmi upp að mér og segði þetta svona hreint út myndi mér líða miklu betur (hlær).“ Ellefu árum fyrr, í viðtali við The Independ- ent vegna Tilt, sagði hann hins vegar þessi þungu orð: „Ég er orðinn Orson Welles dægurtónlist- arinnar … fólk vill snæða með mér hádegisverð en enginn vill fjármagna myndina. Ég er að vonast eftir því, að þegar ég kem frá mér plötu þá verði ég beðinn að gera aðra. Það er nefni- lega fjandi erfitt að rífa sig svona upp á tíu ára fresti.“ Bak við veggi martraðar Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Scott Walker „Ég er orðinn Orson Welles dægurtónlistarinnar ... fólk vill snæða með mér hádegisverð en enginn vill fjármagna myndina.“ Scott Walker hóf ferilinn með hálfgerðu tyggjókúlupoppi, færði sig svo yfir í fágað, ofurrómantískt barokkpopp en stundar nú gallsúra tilraunatónlist sem nær að skjóta þeim allra vönustu í þeim efnum skelk í bringu. Endurkomu Guns N’ Roses tilBretlands hefur lengi verið beðið af þarlendum aðdáendum sveitarinnar. Síðastliðinn mið- vikudag var bið- in loks á enda. Hljómsveitin steig þá á svið í Hammersmith Apollo í fyrsta sinn í ríflega tuttugu ár en tónleikarnir voru liður í upp- hitun sveitarinnar fyrir Download- tónlistarhátíðina. Eins og alvöru rokk- ara er von og vísa mætti Axl Rose, eini upp- runalegi meðlimur bandsins, klukkutíma of seint á svæðið. En áhorfendur voru fljótir að fyrirgefa honum. Við tóku rúm- lega tveggja tíma tónleikar þar sem Axl og félagar fluttu fyrst og fremst gamla slagara en einnig nokkur ný lög af plötunni Chinese Democracy. Meðal þeirra laga sem hljómsveitin tók voru Welcome To The Jungle, Sweet Child O’Mine og að sjálfsögðu lag Bob Dylans, Knockin’ On Hea- ven’s Door. Undir lokin tók fyrrum aðalsprauta Skid Row, Sebastian Bach, lagið My Michelle með Axl áð- ur en tónleikunum var slitið með laginu Paradise City.    Í gær var tilkynnt hverjir koma tilmeð að leika á T On The Fringe- tónlistarhátíðinni í Edinborg sem fram fer í ágúst. Hljómsveitirnar Muse og Snow Patrol höfðu reyndar þegar tilkynnt að þær myndu vera meðal þeirra sem fram kæmu á há- tíðinni. Nú hefur hins vegar allur listinn verið gerður opinber. Meðal frægustu sveitanna er hin skoska sveit Belle & Sebastian, sem heldur tónleika hérlendis á næst- unni ásamt Emilíönu Torrini. Einnig verða Snow Patrol og Elbow meðal hljómsveita, auk Simple Minds, Ka- sabian og Keane. Nálgast má lista yfir hljómsveitir hátíðarinnar á heimasíðu hennar, www.tonthefr- inge.com, en engir íslenskir tónlist- armenn virðast vera meðal flytjenda í ár.    Tónlistarmennirnir David Bowieog Chris Martin, söngvari Coldplay, eru meðal þeirra stjarna sem koma til með að leika í nýrri þáttaröð Extras. Meðal annarra stjarna má nefna Orlando Bloom, Sir Ian McKellen og Stephen Fry. Þættirnir eru skrifaðir af Stephen Merchant og leikaranum Ricky Gervais sem sló fyrst í gegn í Office- þáttunum. Eins og í þeim þáttum leikur Gervais aðalhlutverkið. Þættirnir fjalla um aukaleikarann Andy Millman sem þráir ekkert heitar en að slá í gegn og fléttast inn í ævintýri hans margir af frægari listamönnum samtímans. Kate Winslet var til að mynda meðal þeirra sem lögðu þáttunum lið fyrsta tímabilið. Sú þáttaröð hirti tvö verðlaun á hinni virtu Rose d’Ore-sjónvarpsverðlaunaafhend- ingu, fyrir bestu gamanþættina og fyrir bestu gamanleikkonuna. Nú er að sjá hvernig Bowie og Martin standa sig. Aðalleikari þáttaraðarinnar Extras, Ricky Gervais. Í nýjustu þáttunum munu David Bowie og Chris Martin leggja Gervais lið. Hljómsveitin Elbow sem heimsótti Íslend- inga nú fyrir stuttu verður meðal hljómsveita í Edinborg. Axl Rose er kominn á fljúgandi ferð aftur. Erlend tónlist

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.