Lesbók Morgunblaðsins - 10.06.2006, Síða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 10.06.2006, Síða 15
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 10. júní 2006 | 15 NÚ STENDUR yfir yfirlitssýning á ferli Guð- mundar Einarssonar frá Miðdal (1895–1963) í Listasafni Kópavogs, þ.e. Gerðarsafni og í Náttúrufræðistofu Kópavogs og ber hún yfir- skriftina Maðurinn í náttúrunni – Náttúran í manninum. Guðmundur var mikill náttúru- unnandi og víðförull; sjá má verk frá öræfum Íslands, Finnlandi, Grænlandi, Grikklandi, þýsku Ölpunum og evrópskum borgum. Hann var fjölhæfur listamaður en er hvað þekkt- astur fyrir leirmuni sína. Sjálfur leit hann fyrst og fremst á sig sem myndhöggvara – skúlptúrar, lágmyndir og innanhússskreyt- ingar hans eru víða um landið – en á sýning- unni getur að líta málverk, grafíkverk og leir- muni og telst hann brautryðjandi hérlendis á tveimur síðast töldu sviðunum. Í austursalnum í Gerðarsafni má sjá úrval stórra olíumálverka auk leirmuna á stöplum. Guðmundur var áhugamaður um þjóðmenn- ingu og hafa verk hans verið kennd við þjóð- ernisrómantík. Í málverkunum birtist íslenskt landslag okkur á upphafinn hátt í hetjulegum karlmennskuanda: pensilstrokur eru ákveðn- ar, snarpar og mynda gjarnan skáfleti. Stíllinn er natúralískur. Honum tókst oft vel upp í myndbyggingu; að draga fram hið stórbrotna í náttúrunni svo sem eldgos og veðraham á öræfum. Hann bjó yfir talsverðri leikni með pensilinn en segja má að litameðferð hafi verið hans veikasta hlið: litir eru stundum „óhrein- ir“ líkt og yfir myndinni liggi þunglamaleg slikja og af þeim sökum skortir myndirnar þá útgeislun sem þær þarfnast. Stundum er ein- faldlega of mikið að gerast á myndfletinum. Í byggingu verka sem lýsa dýra- og sveitalífi og sjómennsku upphefur Guðmundur einnig myndefnið; góð dæmi eru Í vörinni og Hrafna- þing. Málverk og leirmunir mynda samspil en í leirnum nýtur tilfinning Guðmundar fyrir lit- um og áferð sín vel og í þeim endurspeglast hrjúf náttúra landsins. Jarðarlitir, strýtur og ávöl form kallast á, svo sem rauður litur í könnu frá 1933 sem á samsvörun í hraun- taumum í myndinni Heklugos frá 1947. Gildi málverkanna felst á vissan hátt í „konseptinu“ eða hugmyndinni; þau eru vitn- isburður um ákveðna afstöðu til staðbund- innar menningar og umhverfis, sem jafnframt speglast í sýningunni allri. Guðmundur var á yngri árum virkur í Ungmennafélagshreyfing- unni og alla tíð talsmaður líkamshreysti, fjalla- ferða og göfgandi áhrifa beinna tengsla við náttúruöflin. Efling innlends listiðnaðar á grunni þjóðlegrar hefðar var honum kapps- mál. Val hans á viðfangsefnum og framsetning mótast af slíkum hugmyndum; málverkin eru nokkurs konar vísindalegar – en þó innblásnar – skrásetningar á staðháttum, veðurfari og jarðmyndunum. Þá ber að hafa í huga að Guð- mundur ljósmyndaði, kvikmyndaði og skrifaði jafnframt um ferðalög sín um ólík lönd. Í vestursal safnsins og í kjallara eru grafík- verk, vatnslitamyndir, leirmunir og olíumál- verk. Árið 1925 sýndi Guðmundur fyrstur manna grafík hérlendis en verkin á sýningunni eru ætingar frá því snemma á ferlinum þar sem hann hefur tileinkað sér tækni gömlu meistaranna. Þar birtist skrásetningin einkum í formi þéttbýlismynda, m.a. af torfbæjum í Reykjavík. Þarna má sjá lipurð í teikningu og aðferðir sem enduróma í olíumálverkunum.Í vatnslitamyndum frá 6. og 7. áratugnum, býr léttleiki og birta sem olíuverkin skortir – og hin hetjulega sýn á landið víkur þar fyrir draumkenndri mýkt og innileika. Sumar myndanna leika jafnvel á mörkum hins óhlut- bundna, sem er merkilegt í ljósi þess hversu eindregna afstöðu Guðmundur tók gegn afstraktmálverkinu. Í skrautmunum og ýmsum nytjahlutum úr leir birtist fáguð formkennd – gjarnan upphaf- in – auk markvissrar einföldunar og stíliser- ingar á myndefni sem vísar m.a. til víkinga- aldar, atvinnulífs og náttúru á Íslandi og víðar. Dýrastyttur Guðmundar frá Miðdal þekkja margir – þær eru nú eftirsóttir safngripir. Munirnir voru framleiddir í Listvinahúsinu á Skólavörðuholti sem Guðmundur stofnaði 1930 og var þá mikil nýsköpun. Þar var fjöldi manns í vinnu og notast var við íslenskan leir til um 1960. Sýning á dýrastyttum Guðmundar í Nátt- úrufræðistofu Kópavogs, sem er til húsa við hlið Gerðarsafns, er vel við hæfi. Þar sjást þær í nýju samhengi sem jafnframt vísar til áhuga hans á fjölbreytileika lífríkisins og jarðfræði. Gengið er inn um nokkurs konar hlið þar sem standa vörð ábúðarmiklir fálkar, sem skipa orðið sérstakan sess í menningarminni þjóð- arinnar. Sjá má mófugla- og sjófuglastyttur auk annarra dýra innan um steina og í námunda við uppstoppuð dýr safnsins. Athygli vekur að fuglastytturnar eru merktar lat- neskum heitum líkt og aðrir safngripir (sem þær vissulega eru). Þannig er skírskotað til sjónræns skyldleika við fugla en í eðli sínu eru þær umbreyting á bergi. Ef til vill leynist hér tenging milli fjalla og fugla. Sýningin veitir greinargott yfirlit yfir óvenjulegan og ævintýralegan feril. Vönduð og oft hugvitsamleg uppsetning verka varpar ljósi á ólíka þætti í listsköpun hans og inn- byrðis samspil þeirra. Sýningarskráin er afar eiguleg en hún geymir m.a. skrá yfir helstu greinar um listamanninn. Hin ævisögulega nálgun á vel við í greiningu á ferli þessa fjöl- hæfa og atorkusama manns; allt sem eftir hann liggur – myndverk, skrif hans og frá- sagnir af honum, „mýtan“ sem umlykur per- sónu hans – gefur vísbendingar um líf og starf listamannsins í stærra samhengi. Fuglalíf og fjallamenn MYNDLIST Listasafn Kópavogs – Gerðarsafn Náttúrufræðistofa Kópavogs Yfirlitssýning á verkum Guðmundar Einarsson frá Miðdal. Til 2. júlí 2006. Maðurinn í náttúrunni – Náttúran í manninum Anna Jóa Grímsvatnagos Málverk eftir Guðmund frá Miðdal frá árinu 1934. Lesbók mælir með… Kvikmyndir Að þessu sinni mælir Lesbókin með kvik-myndinni 16 Blocks eða Sextán húsa- lengjur. Heiða Jóhannsdóttir, kvikmynda- gagnrýnandi Morgunblaðsins, gefur myndinni þrjár stjörnur og í dómi hennar um myndina segir meðal annars: „Samvinna leikstjórans reynda Richards Donners og klipparans Stevens Mirkovich skilar sterkri tilfinningu fyrir spennu og lífsháska, en leik- stjórinn knýr framvinduna linnulaust áfram, enda gerist myndin hér um bil í rauntíma. Mikið mæðir á leikurunum í þessum aðstæð- um, en þeim tekst að túlka ekki aðeins spennuhlaðinn eltingaleik, heldur einnig þá tilfinningu lífsháska og miskunnarleysis sem svífur yfir vötnum.“ Myndlist Verðlaunin sem kennd eru við Carnegie vekja alltaf töluverða athygli – vænt-anlega vegna þess hversu óvenjulega há verðlaunaupphæðin er fyrir fólk er vinnur í listum. Því má þó ekki gleyma að Carnegie snýst ekki bara um verð- laun og vinningshafa heldur einnig eina veglegustu myndlistarsýningu ársins. Sýningin ferðast á milli Norðurlandanna og fer þar að auki til Englands og nú Frakklands. Hún var opnuð í Hafnarhúsinu í gær, en þar gefur að líta úrval þess sem er á seyði í málverki á Norðurlöndunum. Hugtakið málverk hefur að vísu verið túlkað frjálslega og langt út fyrir hefðbundinn ramma, en sú stað- reynd gefur sýningunni sem heild þann tilraunakennda blæ sem ef til vill stuðl- ar að því að halda málverkinu fersku. 16 Blocks Kvikmyndagagnrýnandi Morgunblaðsins gefur myndinni þrjár stjörnur. Tónlist Um þessar mundir stendur yfir kórastefnavið Mývatn með þátttöku fjölda kóra bæði íslenskra og erlendra og er óhætt að full- yrða að verkefnið er afar jákvætt fyrir íslenskt sönglíf. Að þessu sinni verður sjónum beint að íslenskri kórtónlist og mun Þorgerður Ingólfs- dóttir, stjórnandi Hamrahlíðarkóranna, leiða þá vinnu, auk þess sem æft verður og flutt eitt þekktasta verk tónbókmenntanna, Requiem eftir W.A. Mozart. Verkið verður flutt á morgun kl. 15 í íþrótta- húsinu í Reykjahlíð, með þátttöku um 250 manna hátíðarkórs, einsöngvara og Sinfóníu- hljómsveitar Norðurlands. Stjórnandi á tón- leikunum er Guðmundur Óli Gunnarsson. Lesarinn Dauðinn og mörgæsin eftir Andrej Kúrkov í þýðingu Áslaugar Agnarsdóttur. Bjartur. 2005. Allt í einu uppgötvaði ég að þung-lynd mörgæs með hjartagalla sem segir ekki neitt er orðin höfuðpersóna í heimsbókmenntunum. Ég beið eftir því að höfundur bókarinnar myndi gleyma mörgæsinni við lýsingar sínar á fólki og atburðum en svo varð ekki. Mör- gæsin hefur hlutverk frá upphafi til enda og er lykilorð sögunnar. Dauðinn og mörgæsin er ein af þeim bókum sem nautn er af að lesa. Slíkar bækur les ég hægt og reyni að vera eins lengi og ég get með þær. Eftir að þannig sögu er lokið sakna ég hennar um skeið. Kúr- kov skapar andrúmsloft sem er undarlegt fyrir mig þótt það sé ef til ekki eins undarlegt fyrir hann. Í miðjum lestri sá ég sjón- varpsþátt í Sjónvarpinu á skírdag þar sem Árni Bergmann tók viðtal við höfund bókarinnar, Andrej Kúrkov. Þátturinn heitir Fimm rithöfundar og hann gerði Jón Egil Bergþórsson, og náði hámarki í viðtali Melkorku Teklu Ólafsdóttur við Erik- Emmanuel Schmitt. Mörgæsir hafa enn ekki yfirgefið mig, því nýlega sá ég frönsku kvikmyndina Ferðalag keisaramörgæs- anna sem hefur unnið hug og hjarta fólks um heim. Loks má geta þess að fyrir stuttu kom í ljós að einn vinnufélagi minn er doktor í mörgæsum – ég lánaði honum umsvifalaust þessa bók. Gunnar Hersveinn Gunnar Hersveinn Dagbókarbrot Brot úr dagbókum J.W. Goethe í Ítalíuferð hans 1786–1788 (Italian Journey, 1962). Brotið er frá 16. júní 1787. Bara nokkur orð, kæru vinir, til þess að láta ykkur vita aðmér líður vel og kemst æ betur að því hver ég er, læri að greina á milli þess hvað í raun er ég og hvað ekki. Ég vinn hörð- um höndum og reyni að gleypa allt sem berst til mín úr ýmsum áttum þannig að ég megi þroskast meira. Síðustu daga hef ég farið til Tivoli. Flókið landslag hennar með öllum smáatrið- unum, útsýni, fossa, er reynsla sem gerir mann ríkari.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.