Lesbók Morgunblaðsins - 29.07.2006, Page 2
2 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 29. júlí 2006
!
Bandaríkjastjórn hefur boðað
fjárstyrki til Kúbu í framtíðinni,
eða nánar tiltekið þegar Fidel
Castro er allur, gríðarlegar
fjárhæðir sem eiga að fara í
uppbyggingu á lýðræði á Kúbu
og eru þeim skilmálum háðar að
þær renna aðeins til þeirra afla
sem vilja koma á fjölflokkakerfi – lýð-
ræði – og laga stjórnarhætti á Kúbu að
vestrænum siðum. Biðin eftir dauða leið-
toga eina kommúnistaríkisins sem eftir
er hefur tekið á sig nýja mynd með nýju
loforðunum frá Washington en eftir að
viðskipti við Sov-
étríkin liðu undir lok
hefur efnahags-
ástandið á Kúbu
versnað jafnt og þétt
þótt nýlega tilkominn túrismi hafi verið
honum lyftistöng.
Kúbanar hafa sumir hverjir lengi haft
á orði – í hálfkæringi – að þegar Fidel
dæi tæki Raúl bróðir hans við stöðu
hans. Raúl er nokkru eldri en Fidel. En
hvernig er hægt að forsmá tilboð um að
taka upp vestrænt lýðræði þegar miklir
peningar eru í boði? Af skiljanlegum
ástæðum vilja það tæpast margir. Ef til
vill er það ekki aðeins spursmál um af-
komu heldur líf eða dauða. Spurningin
er: Ef hægt er að koma á lýðræði með
peningum, væri þá ekki eins hægt að
borga fyrir einræði eða harðstjórn? Ef til
vill hefði það verið betri hugmynd að
hreinlega kaupa Saddam Hussein burt
úr Írak fremur en að ráðast inn í landið
með skelfilegum árangri en gildi pening-
anna er blint og kynni þá einhver að
þakka fyrir að enginn virðist hafa bol-
magn til að borga undir einræði í öðrum
löndum.
Það er einhver djúpstæð þversögn í til-
boði Bandaríkjastjórnar sem ekki verður
umflúin og kann að búa í sjálfri hug-
myndinni um lýðræði. Ef til vill er þver-
sögnin ekki ósvipuð stöðunni sem kom
upp í Alsír þegar flokkur sem vildi af-
nema lýðræði náði kosningu og kosning-
arnar voru ógiltar; með öðrum orðum:
Lýðræðið var afnumið til að koma í veg
fyrir að lýðræðið væri afnumið. Hvað ef
Kúbanar kjósa fremur kommúnisma
Castros en lýðræði? Nú er það allt á
huldu en spurning hvort lýðræðið sé ýkja
lýðræðislegt ef þegnarnir kjósa það sér
þvert um geð vegna augljósra hagsmuna
sem í því vali felast, ef valkostirnir eru í
raun engir valkostir. Sannarlega hefur
stjórn Castros orðið uppvís að grófum
mannréttindabrotum svo að ekki leikur
neinn vafi þar á, kúgun menntamanna,
skerðingu tjáningarfrelsis, ofsóknum á
rithöfundum og hugsuðum, það er löngu
staðfest af Amnesty International. Raun-
in er þó sú að verstu mannréttindabrotin
sem framin eru á Kúbu um þessar mund-
ir eiga sér stað í Guantánamo, í fangelsi
Bandaríkjamanna á eyjunni þar sem
pólitískum föngum er haldið utan laga og
réttar og látnir sæta ómannúðlegri með-
ferð og pyntingum. Sísta lýðræðið á
Kúbu er að finna þar innan veggja. Hvað
ætli föngum í Guantánamo fyndist um
lýðræðisáform Bandaríkjastjórnar?
Kúbanska byltingin átti afmæli í vik-
unni og nálgast fimmtugt. Lýðræði ætlar
að reynast dýrt á eyjunni og jafnvel dýr-
ara Bandaríkjastjórn en byltingin; hvert
skyldi annars gangverðið á lénskerfi,
stjórnleysi, menntuðu einveldi, sjálfstæði
ríkis? Kúba var lengi draumaland vest-
rænna menntamanna, fyrirmynd í Suð-
ur-Ameríku, pólitískt viðmið – þar var
menntakerfi og heilbrigðiskerfi efst á
forgangslista og framar öllu öðru (þar
með talið tjáningarfrelsi og mannréttindi
og fleira). Bandaríkjamönnum hefur alla
tíð verið Kúba þyrnir í augum. Óvinurinn
var við bæjargaflinn í kalda stríðinu, inn-
rás misheppnaðist, sjónvarpsstöð með
áróðri var rugluð af Castro, sögusagnir
eru um ótal morðtilraunir, viðskiptabann
er seinvirkt tæki. Nú hefur George Bush
ákveðið að best sé að kaupa lýðræði á
Kúbu með peningum. Sniðugt, eða hvað.
Tæpast stendur neitt í vegi þess að veita
veita einstaklingum fjárstyrki til að kjósa
þann stjórnmálaflokk sem lýðræðisleg-
astur reynist. Stundum dettur manni í
hug að gjald lýðræðisins séu leiðindin
sem stjórnmálum geta fylgt í daglegu
pexi en gjaldið er eitthvað allt annað.
Gjald lýð-
ræðisins
Eftir Hermann
Stefánsson
hermannstefansson-
@yahoo.com
Áundanförnum vikum hafa for-vitnilegar greinar um kalda stríðiðbirst á síðum Lesbókarinnar. Nú síð-ast spurði Björn Bjarnason í grein
sinni, „Undan köldu stríði“: „Hvernig við kom-
um undan kalda stríðinu? Umræðuhefðin – hef-
ur hún breyst?“ Björn segir átakamálin önnur
en á tímum kalda stríðs-
ins, nú sé „deilt um mis-
munandi útfærslur á
kapítalisma. Á hinn bóg-
inn skiptast menn enn í
fylkingar, hart er deilt og ekki alltaf vandað til
vopnaburðar“. Þar sem deilurnar snúast nú um
mismunandi útfærslur á kapítalisma mætti
ætla að aðgreiningin í vinstri og hægri sem um
árabil sligaði alla þjóðfélagsumræðu á Íslandi
væri loks úr sögunni. Því fer fjarri.
Björn segir að á tímum kalda stríðsins hafi
vinstri sinnaðir menntamenn talið sig hafa und-
irtökin í umræðunni, ekki hafi spillt að sjálfur
nóbelsverðlaunahafinn Halldór Laxness var í
þeirra liði: „Enn eimir eftir af slíku yfirlæti í op-
inberum umræðum hér og tilraunum til að
beita frekar stílbrögðum og ofsa en málefna-
legum rökum, þegar öryggismál þjóðarinnar
ber á góma“. Svo bendir Björn á fimm atriði úr
samtímanum þar sem vinstri sinnuð sjónarmið
ríki ofar hverri kröfu.
1) Orðaleppum er enn beitt. Björn var kall-
aður „laumufasisti“ og „hægriöfgamaður“ af
tveimur dálkahöfundum Fréttablaðsins, eftir
að hann kynnti matsskýrslu um hryðjuverka-
varnir. Ég sé illa hvað umræða um hryðju-
verkavarnir segir okkur um vinstri stefnu í
samtímanum. Kommúnistar voru mjög upp-
teknir af öryggismálum og rök með eða á móti
leynilegri eftirlitsmiðstöð má auðveldlega hefja
yfir pólitíska flokkadrætti. Og varla telur Björn
dónaskap sérstakt einkenni á tungutaki svo-
kallaðra vinstri manna? Eitt sinn skrifaði ég
pistil í Lesbók Morgunblaðsins þar sem ég
gagnrýndi Jakob F. Ásgeirsson fyrir skort á
mannasiðum og þá túlkuðu Jakob og Björn orð
mín sem pólitíska árás vinstri manns.
2) Björn segir andúð á Bandaríkjunum merki
um vinstri sinnuð sjónarmið. Í sumum tilvikum
er það eflaust rétt en varast ber að að leggja
gagnrýni sem beinist að framferði ríkisstjórnar
George W. Bush að jöfnu við almenna andúð á
Bandaríkjunum. Einnig má ekki gleyma að
ýmsar ákvarðanir Bandaríkjastjórnar á und-
anförnum árum í baráttunni við hryðjuverka-
ógnina vega að frelsishugmyndum hægri sinn-
aðra einstaklinga. Við stöndum ekki vörð um
vestrænt frelsi með því að horfa framhjá mann-
réttindabrotum pólitískra samherja.
3) Björn segir að leitast sé „við að grafa und-
an trausti í garð stjórnvalda með ómaklegum
árásum á ríkislögreglustjóra og starfsmenn
embættis hans.“ Hér er ég sammála Birni en
get sem fyrr ekki séð hvað þetta hefur með
vinstri sinnuð sjónarmið að gera. Fulltrúar
nýja auðvaldsins aðhyllast ekki sósíalíska hug-
myndafræði, ekki frekar en lögfræðingarnir
sem reka mál þeirra. Ef í orðum Björns býr sá
skilningur að íslenskir milljarðamæringar mis-
beiti fjölmiðlum í eigu sinni er vandamálið einn-
ig af öðrum toga en svo að hægt sé að rekja það
til arfleifðar kalda stríðsins.
4) Næsta fullyrðing Björns er illskiljanleg:
„Fámennur hópur forystumanna sætir árásum
þeirra, sem þola illa ríkjandi ástand. Í stað þess
að verja hagsmuni stórveldis gætir þess helst,
að menn telji sig þurfa að halda fram málstað
stórfyrirtækja til að bæta mannlífið á Íslandi.“
Telur Björn forystusveit Sjálfstæðisflokksins
sæta árásum þeirra svokölluðu vinstri manna
sem áður studdu Sovétríkin en styðja nú
Baugsveldið? Ætti það ekki fremur að vera
markmið slíkra manna að þjóðnýta Baug í al-
mannaþágu? Hversu djúpt ristir líka sú hugsun
að sá sem græði pening fyrir Baug sé vinstri
maður en sá sem græði pening fyrir Bakkavör,
KB-banka eða Íslandsbanka sé hægri maður?
Væri ekki nærtækara að greina þessi fyrirtæki
sem ólíkar valdablokkir í kapítalísku hagkerfi
samtímans?
5) Að lokum segir Björn „ofsafengin og
ósanngjörn viðbrögð við ævisögu Halldórs Lax-
ness eftir Hannes Hólmstein Gissurarson“
dæmi um sósíalisma í verki. Vinstri sinnaðir
menntamenn í samtímanum líti á Hannes sem
„boðflennu“ í „menningarlegu samfélagi“.
Björn telur pólitískar ástæður búa að baki
gagnrýninni á ævisögu Hannesar og neitar með
því að ræða þau rök sem koma fram í 70 síðna
grein prófessors Helgu Kress í tímaritinu Sögu
árið 2004 og enn fremur 270 síðna skýrslu
hennar, „Eftir hvern? Skýrsla um meðferð
texta og tilvitnana í bók Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar, Halldór. Ævisaga Halldórs Kilj-
ans Laxness 1902-1932“ (http://www.hi.is/
~helga/skyrsla.htm). Nú ætla eflaust ein-
hverjir að 270 síðna skýrsla um heimilda-
meðferð Hannesar sanni pólitískan ofsa
andmælenda hans. En hvernig má skera úr um
meðferð Hannesar á heimildum málefnalega og
af heilindum án þess að rekja nákvæmlega
hvernig sú vinna fer fram? Ef lesendur sækja
sér skýrslu Helgu geta þeir sjálfir gert upp við
sig hvort viðbrögðin hafi verið á rökum reist
eða pólitískt áróðursstríð svokallaðra vinstri
manna.
Björn Bjarnason segir að í skrifum vinstri
sinnaðra menntamanna eimi enn eftir af yf-
irlæti, stílbrögðum og ofsa, fremur en málefna-
legum rökum. Ég hefði haldið að slíkar lynd-
iseinkunnir væru persónubundnar og get illa
fellt mig við þá hugmynd að þær stjórnmála-
skoðanir sem viðurkenndar eru í lýðræð-
isríkjum stýri hátterni fólks á þann djúpstæða
hátt sem Björn gefur til kynna. Með því að of-
urselja mannlega hugsun hinu pólitíska múl-
bindur Björn umræðuna á gamalkunnum nót-
um. Öll gagnrýni verður marklaus vegna þess
að í henni búa pólitísk sjónarmið þegar nánar
er skoðað. Slíkar forsendur koma stjórn-
málamönnum eflaust vel, en samfélags-
umræðan skaðast fyrir vikið. Svo telja menn
hægri, vinstri, hægri, vinstri. Er ekki kominn
tími til að ýta þessari pólitísku bókhaldshugsun
út úr almennri umræðu?
Undan köldu stríði. Orðalagið er forvitnilegt.
Höfum við skriðið undan kalda stríðinu? Eða
liggur það enn á okkur eins og mara?
Heptú vinstri snú
Fjölmiðlar
Eftir Guðna Elísson
gudnieli@hi.is
’Með því að ofurselja mannlega hugsun hinu pólitískamúlbindur Björn umræðuna á gamalkunnum nótum.‘
I Það fer furðuhljótt um þá frétt úr menning-arlífinu sem spurðist í vikunni, að ríkið,
Reykjavíkurborg og Portus, sem sér um fram-
kvæmd byggingar tónlistar- og ráðstefnuhúss
við Austurhöfn hafi átt í
óformlegum viðræðum um
að hægja á framkvæmdunum við bygging-
arnar í þeim tilgangi að „hægja á þenslunni“ í
samfélaginu og gera „stöðugleikann var-
anlegan“ eins og það var orðað. Tónlistarfólk
hefur nefnilega alla jafna verið fljótt að orða
hugsanir sínar hátt þegar tal hefur borist að
langþráðu Tónlistarhúsi.
II Ef til vill má skrifa þögnina á almennadeyfð í menningarlífinu þessa dagana. Á
landsbyggðinni verða þó nokkrir stórir tónlist-
arviðburðir um helgina; í Reykholti, Skálholti,
á Borgarfirði eystra og víðar, og vera má að
tónlistarfólk hafi einfaldlega nóg fyrir stafni
að leika á sumartónleikum á landsbyggðinni.
III Sumarhátíðirnar taka nú við hver afannarri, meðal annars á Ólafsfirði – þar
sem Berjadagar eru haldnir árlega og á
Kirkjubæjarklaustri þar sem Guðrún Jóhanna
Ólafsdóttir söngkona hefur tekið við keflinu
sem listrænn stjórnandi af Eddu Erlends-
dóttur, stofnanda hátíðarinnar. Á hátíðinni á
Klaustri í ár verður flutt uppáhaldsverk Atla
Heimis Sveinssonar tónskálds, en það er
Horntríó eftir Györgi Ligeti, að sögn Atla.
Þetta kemur fram í grein hans í Lesbók í dag,
en þar fjallar hann um þennan nýlátna meist-
ara tónlistarinnar.
IV Talandi um landið og tónlistina og stöð-ugt vaxandi áhuga fólks á að njóta tón-
listar sem næst mold og móum. Eitt mesta
verk Þorsteins Haukssonar tónskálds, er Bells
of Earth, Klukkur jarðar. Hluti af því er í raun
leikinn af náttúrunni, og með virkjanafram-
kvæmdum á Austurlandi gæti einmitt verið
runninn upp rétti tíminn fyrir frumflutning
þess. Verkið er fyrir umhverfi, tölvu, manns-
rödd og hljóðnema, sem stillt er upp úti í nátt-
úrunni. Hljóðin fara eftir ákveðnum reglum
tónskáldsins í gegnum tölvuforrit og eru svo
aftur mögnuð upp út í umhverfið. Þar með er
náttúran orðin virkur þátttakandi í flutningi
tónlistarinnar.
Þorsteinn sá fyrir sér einn möguleika í
flutningi verksins, að það yrði flutt þegar land-
ið fyrir austan færi undir vatn, og að manns-
röddin færi þá um leið með þau örnefni sem
hverfa í lónið. Þar sem hljóðnemum og hátöl-
urum væri komið fyrir í landinu sjálfu myndi
verkið sjálft sökkva með landinu.
V Verk Þorsteins er fullkomlega í anda um-hverfisumræðunnar sem heldur áfram í
Lesbók í dag. Í tónlistinni má bæði njóta og
trega og upplifun hennar er jafn einstaklings-
bundin og tilfinningar fólks til náttúrunnar.
Neðanmáls
Ef fyrirbærið fegurðarsamkeppni er ekki raunveruleg keppni, hvað er það þá? Líkistþetta frekar fórnarathöfn? Því það er áreiðanlega bara hægt að fórna lambi einusinni. Það er samt aðeins of dramatískt að líkja þessu við fórnarathöfn, þessar stúlkur
deyja ekki þótt þær verði fegurðardrottningar. En það er samt eitthvað sorglegt við að vera
fyrrverandi fegurðardrottning. Þetta hafa margir sagt á undan mér. Það væri reyndar alls
ekkert sorglegt ef einhver væri fyrrverandi fegurðardrottning og núverandi seðlabanka-
stjóri!
En talandi um valdamiklar stöður og vald fegurðarinnar, þá koma upp í hugann orð ís-
lensks kvenbrautryðjanda sem ég kynntist nýlega. Þegar ég hitti hana í fyrsta skipti spurði
ég hana hvort hún hefði alltaf verið svona mikil skvísa (hún er gasalega lekker og það geislar
af henni) í þessu valdamikla embætti. Hún sagðist sko ekki hafa verið það til að byrja með,
heldur var hún vísvitandi þéttari í holdum og púkalegri í klæðnaði. Ég spurði hana hvers
vegna hún hefði verið að leggja það á sig og hún svaraði svo eftirminnilega: „Þú getur ekki
bæði verið object og subject!“
Hér er gott að rifja upp dálitla setningarfræði: Objectið (andlagið) ræðst af subjectinu
(frumlaginu). Og hvort skyldu nú stúlkurnar í fegurðarsamkeppnunum vera frumlag eða and-
lag? Við fyrstu sýn gæti manni virst þær vera einmitt aðalmálið í fegurðarsamkeppninni, það
sem allt snýst um. En þegar formið er steingelt, þegar vegið er og metið út frá einhverjum til-
búnum fegurðarstöðlum, þegar allar eru steyptar í sama mótið með brjálaðri líkamsrækt og
vaxmeðferð og þegar bannað er að vera fegurst allra í meira en eitt ár, þá fer mann að renna í
grun um að keppnin sjálf sé aðalatriðið, en stúlkurnar lagi sig svo að hennar lögmálum. Þetta
frestar því að konan sjálf sé gerandi og því skil ég ekki hvað ungar og hæfileikaríkar konur
eru tilbúnar að gerast object og fresta því glæsilega lífi sem þær gætu átt sem subject.
Eva María Jónsdóttir
www.tikin.is
Frumlag og fegurð
Spegill, spegill...
Lesbók Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Ritstjórnarfulltrúi Þröstur Helgason, throstur@mbl.is Auglýsingar
sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins