Lesbók Morgunblaðsins - 07.10.2006, Síða 1
Laugardagur 7. 10. 2006
81. árg.
lesbók
AÐ GRAFA SÉR GRÖF
ÍSLENDINGAR UMGENGUST EKKI ÞAU AUÐÆVI SEM FÓLUST
Í FRJÓSÖMUM JARÐVEGI AF ÁBYRGÐARTILFINNINGU
Án titils Í dag verður opnuð sýning á Listasafni Íslands um málverkið eftir 1980. Verkið á myndinni er eftir Jón Axel Björnsson (1984). » 9
Finnski hönnuður-inn og gler-listamaðurinnTimo Sarp-
aneva lést í gærmorgun, 6.
október. Sarpaneva var
einn af þeim sem komu
finnsku hönnunarbylgj-
unni af stað um og eftir
miðja síðustu öld. Hann
hannaði bæði undir merkj-
um Iittala frá 1950 en árið 1962 stofnaði hann
eigið hönnunarfyrirtæki og tók að vinna fyrir
fleiri merki svo sem Rosenthal, Venini og
fleiri. Hann var margverðlaunaður en vakti
fyrst heimsathygli á hönnunarþríæringnum í
Mílanó á sjötta áratugnum.
Sarpaneva var gríðarlega fjölhæfur, hann
fékkst við grafíska hönnun (er til dæmis höf-
undur að vörumerki Iittala sem er stafurinn i í
rauðum hring), hannaði leirmuni, stál-, textíl-
og plastmuni, jafnvel föt, en umfram allt var
hann þekktur fyrir glerlist sína og gler-
hönnun.
Sarpaneva lagði mikið upp úr því að skilja
allt ferlið á bak við hinn hannaða hlut, allt frá
hönnun til framleiðslu. Verkin sem hann
hannaði, einkum þó hinir hversdagslegu hlutir
sem ætlaðir voru heimilinu, þóttu end-
urspegla vel þá metnaðarfullu hugmynda-
fræði módernismans að góð hönnun sem seld
væri við vægu verði gæti bætt lífsgæði fólks
almennt og siðgæði.
Sarpaneva var fæddur árið 1926.
Hönnuðurinn
Sarpaneva
látinn
Timo Sarpaneva
Eftir Jón Ólafsson
jonolafs@bifrost.is
Þór Whitehead segir frá því ígrein sinni „Smáríki ogheimsbyltingin“ sem birt-ist í nýjasta hefti tímarits-
ins Þjóðmál, að hér á Íslandi hafi
starfað öryggisþjónusta á kald-
astríðsárunum og rekur þær ógnir
sem knúðu stjórnvöld til að standa
að þessari leynilegu starfsemi. Eins
og titill greinarinnar gefur til kynna,
telur Þór að þessi hætta hafi einkum
stafað af róttækum flokkum og hóp-
um hér á landi, það er að segja af
kommúnistum og sósíalistum.
Grein Þórs er merkileg fyrir þær
sakir að í henni segir hann sögu rót-
tækra afla á Íslandi í ljósi ofbeldis og
heldur því fram að ástæða hafi verið
til þess fyrir íslensk yfirvöld strax á
kreppuárunum og alla tíð eftir það
að óttast ofbeldi og jafnvel bylting-
artilraunir af hálfu íslenskra komm-
únista og sósíalista. Þór rekur í gróf-
um dráttum þekktar staðreyndir um
sovétsamskipti sósíalista og tengir
slík samskipti við áhyggjur íslenskra
og bandarískra yfirvalda af mögu-
legri njósna- og hryðjuverka-
starfsemi hér á landi. Þannig tekst
honum að gefa í skyn, að vegna sov-
éttengsla sinna hafi íslenskir sósíal-
istar í raun verið líklegir til að skipu-
leggja og fremja alvarleg
ofbeldisverk, jafnvel hryðjuverk og
manndráp.
Með grein sinni stígur Þór nýtt
skref í túlkun á stjórnmálasögu 20.
aldar á Íslandi þar sem hann tengir
eina meginhreyfingu íslenskra
stjórnmála beint við njósnir, und-
irróður og ofbeldi. Enginn hefur áð-
ur gert svo mikið úr þessum þætti
stjórnmálabaráttunnar, þó að margt
hafi komið fram á síðustu árum um
pólitísk og viðskiptaleg samskipti ís-
lenskra sósíalista við Sovéska
kommúnistaflokkinn og Alþjóða-
samband kommúnista. Þór gerir
engan sérstakan greinarmun á mis-
munandi gerðum ofbeldis og leggur
ólíkar tegundir átaka að jöfnu.
Þannig virðist hann gera ráð fyrir að
hætta á að íslenskir vinstrimenn
beiti hverskyns ofbeldi sé til staðar á
meðan þeir útiloka ekki allt ofbeldi
hvort sem um er að ræða minnihátt-
ar spellvirki (ata málningu á herskip
(81)) eða meiriháttar hryðjuverk og
bein landráð (hjálpa erlendum her
við að ganga hér á land (83)). Yf-
irvöld öryggismála hér á landi virð-
ast hafa gert ráð fyrir að fólk sem
væri fært um hið fyrrnefnda kynni
af þeim sökum einnig að vera líklegt
til hins síðarnefnda, ef aðstæður
leyfðu. Þó að Þór falli að sjálfsögðu
ekki í þá gryfju að réttlæta aðgerðir
stjórnvalda, bendir málflutningur
hans ekki til annars en að hann telji
viðbrögð stjórnvalda við meintri ógn
af kommúnistum eðlilega. Hann
virðist jafnvel líta svo á að viðbrögð
stjórnvalda við hættunni sem þau
töldu stafa af kommúnistum sýni að
þessi hætta hafi verið raunveruleg.
En var hún jafnraunveruleg og
hann lætur? Eða sýnir íslenska ör-
yggisþjónustan fyrst og fremst að ís-
lensk stjórnvöld voru enn helteknari
af móðursýki kaldastríðsáranna en
áður hefur komið fram? » 3
Voru íslenskir kommúnistar hættulegir?
Hernámsandstæðingar Var hættan af kommúnistum raunveruleg?
Hver nennir að brasa við bókaskrif án þess að fá nokkurt persónulegt kredit fyrir? » 11