Morgunblaðið - 10.03.2006, Síða 4
4 B FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
EMR 310 C
17"/18"
EMR 429AM
18"/19"
347C
16"/17"/18"
415C
16"/18"
635BM
18"/20"
22
70
/
T
ak
tik
0
1.
03
.0
6
EIN gerð bíla sem höfðar mjög til
þeirra sem hafa gaman af akstri eru
svokallaðir GTI-bílar en hjá Skoda,
sem hefur að baki ríka hefð í keppn-
isbílum, heitir þessi gerð RS. Fyrir
tæpum fjórum árum prófaði undir-
ritaður Octavia RS, þá með eldra út-
litinu að sjálfsögðu og 1,8 lítra, 180
hestafla túrbóvélinni. Nú er komið
nýtt útlit, bíllinn orðinn stærri og
betur búinn en áður og RS-útfærslan
komin með hina mögnuðu 2,0 TFSI-
vél frá Volkswagen, sem er bæði 20
hestöflum kraftmeiri og þar að auki
mun togmeiri. Skemmra er síðan
Golf GTI og Passat var reynsluekið
með 2,0 l TFSI-vélinni en nú er röðin
komin að Octavia RS.
Beinskiptur sex gíra
Það er nokkuð um liðið síðan menn
hættu að fitja upp á trýnið þegar þeir
heyra á Skoda minnst. Bíllinn er bú-
inn að sanna sig á markaði. Þetta er
sterkbyggður og tæknilega útfærður
bíll sem byggður er að stórum hluta
á tækni frá VW. Ennþá hefur Skoda
þann kost að vera á fremur hag-
stæðu verði miðað við keppinauta en
líklega selst hann ekki eingöngu út á
það lengur heldur ekki síður orð-
sporið sem fer af honum. Það er síð-
an til marks um keppnisbílahefð
Skoda að Octavia skuli boðin með
200 hestafla vél.
Í þessari gerð er Octavia ekki fá-
anleg með sjálfskiptingu eða DSG-
gírkassanum magnaða; eingöngu sex
gíra handskiptum kassa en það er
engin goðgá því RS-gerðin er þess
háttar að menn vilja hana bein-
skipta. Gírkassinn er líka lipur og
stutt er á milli gíra sem gerir hann
sportlegan. Ekki er einu sinni víst að
menn noti sjötta gírinn að marki
nema þá í þjóðvegaakstri sem að
sjálfsögðu stuðlar að minni eyðslu
með lægri vélarsnúningi. Bíllinn er
gefinn upp með 7,8 lítra eyðslu sem
er fjarri raunveruleikanum. Miðað
við fremur villtan (en ábyrgan) akst-
ur í prófuninni eyddi bíllinn sam-
kvæmt aksturstölvunni tæpum tólf
Morgunblaið/RAX
Fjölskyldusportbíllinn Octavia sem er með sportlegu taktana.
Octavia RS
upp í 200 hestöfl
Morgunblaið/RAX
Sóllúga, leðurklætt stýri og álpedalar en annað fremur hefðbundið.
REYNSLUAKSTUR
Skoda Octavia RS
eftir Guðjón Guðmundsson
Farangursrýmið er eins og
það gerist í stærstu fólksbílum.
Vél: 4 strokkar, 1.984
rúmsentimetrar, 16 ventl-
ar, forþjappa og millikælir.
Afl: 200 hestöfl við 5.100
snúninga á mínútu.
Tog: 280 Nm við 1.800
snúninga á mínútu.
Gírskipting: Sex gíra
handskiptur.
Hröðun: 7,3 sekúndur úr
kyrrstöðu í 100 km.
Hámarkshraði: 240 km/
klst.
Lengd: 4.578 mm.
Breidd: 1.769 mm.
Hæð: 1.447 mm.
Eigin þyngd: 1.475 kg.
Hemlar: Diskahemlar,
kældir að framan.
Verð: 2.860.000 kr.
Umboð: Hekla.
Skoda Octavia RS