Morgunblaðið - 10.03.2006, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 10.03.2006, Blaðsíða 6
6 B FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ bílar F ord Explorer 2006 fellur kannski ekki undir þá skil- greiningu að vera af nýrri kynslóð en engu að síður er um að ræða stórlega breyttan og bættan bíl og án þess að hann hækki í verði þegar tillit er tekið til aukins staðalbúnaðar. Útlit bíls- ins er talsvert annað en þess bíls sem síðast kom í nýrri kynslóð ár- ið 2002. Einkum er framsvipurinn orðinn voldugri með stóru grilli sem í vissum gerðum er krómlagt. Hann er lítið eitt stærri í málum en það sem meira máli skiptir er að hann fékk við breytinguna 2002 nýjan undirvagn með sjálfstæðri fjöðrun á öllum hjólum sem skilar sér í betri akstri. Hljóðeinangrun og frágangur að utan sem innan er sömuleiðis betri. Þá er komin ný V8-vél og ný sjálfskipting sem stuðlar að minni eyðslu. Allt hlutir sem skipta máli og gera Explorer að enn fýsilegri kosti en áður í huga þeirra sem hallast að bens- índrifnum og aflmiklum borgar- jeppa af ameríska skólanum. Próf- að var flaggskipið í Explor- er-flotanum, Limited með V8vél- inni. 292 hestafla V8-vél Ísland er fyrsta landið í Evrópu sem fær nýjan Explorer til sölu. Viðtökurnar hafa verið góðar það sem af er og hátt í 40 bílar seldir í febrúarmánuði. Þar sem Explorer er lítið eitt stærri og þyngri en áð- ur þurfti hann á meira afli að halda og þar skilar nýja V8-vélin sínu. Vélin er 4,6 lítrar að slagrými og hestaflafjöldinn 292. Þetta er mikið afl og gerir bílinn talsvert viðbragðsfljótan um leið og hið eft- irsóknarverða V8-hljóð fylgir með. Togið er uppgefið 406 Nm og dráttargeta bílsins er hvorki meiri né minni en 3,3 tonn og er þá mið- að við aftanívagn með hemlum. Miðað við þessar tölur og stærð á vél hefði mátt búast við hárri eyðslu en það kom á óvart eftir reynsluaksturinn, sem fór að mestu leyti fram innanbæjar, að sjá töluna 17,2 lítrar á hundraðið í aksturstölvunni. Eins og V8-vélin í Mustang GT er þessi með þremur ventlum á hvern strokk. Þetta er því tæknileg og nútímaleg vél sem er tengd við nýja sex þrepa sjálf- skiptingu sem á sinn þátt í að eyðslan er ekki meiri en raun ber vitni. Hún er samt ekki með hand- skiptivali eins og margar nýjar sjálfskiptingar. Stífari og „evrópskari“ fjöðrun Explorer er með sjálfstæðri fjöðrun á öllum hjólum en sú breyting sem undirritaður finnur hvað mest fyrir í nýja bílnum er hve aksturseiginleikarnir í borg- inni eru orðnir „evrópskari“. Mað- ur finnur meira fyrir fjöðruninni andstætt því sem oft á við í amer- ískum bílum sem oftast eru á mjúkri og mjög slaglangri fjöðrun. Bíllinn leggur sig þar af leiðandi minna í beygjum en áður og er stöðugri í öllum akstri. Upptakið er kröftugt og bílinn virðist aldrei skorta afl. Sjálfskiptingin er eins og fyrr segir sex þrepa og vinnur Morgunblaðið/RAX Talsvert breyttur og ögn stærri en forverinn – 2006 Explorer. Mikið farangursrými er í bílnum og aukasætisbekkur er aukabúnaður. 4,6 lítra V8 vélin er 292 hestafla og eyðslan er nálægt 17 lítrum. Gott pláss og vel búið að farþegum í aftursætum. Króm, leður og viður er efniviðurinn í Limited. 17" krómfelgur er staðalbúnaður í Limited-útfærslunni. REYNSLUAKSTUR Ford Explorer eftir Guðjón Guðmundsson Enn aflmeiri og betur búinn Explorer Vél: V8, 4.601 rúmsentímetri. Afl: 292 hestöfl við 5.750 snúninga á mínútu. Tog: 406 Nm við 3.950 snúninga á mínútu. Gírskipting: Sex þrepa sjálfskipting. Drif: Fjórhjóladrif, lágt drif. Hröðun: 7,7 sekúndur úr kyrrstöðu í 60 mílna hraða. Lengd: 4.912 mm. Breidd: 1.872 mm. Hæð: 1.849 mm. Veghæð: 20,8 cm. Eigin þyngd: 2.215 kg. Dráttargeta: 3.300 kg. Hemlar: Diskar, ABS, EBD. Fjöðrun: Sjálfstæð fjöðrun. Hjólbarðar og felgur: 245/65 R, 17" krómfelgur. Verð: 4.620.000 kr. Umboð: Brimborg. Ford Explorer Limited V8

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.