Morgunblaðið - 10.03.2006, Side 7
eins og hugur manns. Það er lítið
flökt á henni en um leið og gefið er
inn er hún snögg að skipta niður.
Annað sem maður verður var við
í akstri er hve vel hljóðeinangr-
aður bíllinn er sem eykur mjög á
lúxustilfinninguna.
Pláss er mikið í þessum bíl og
vel er búið að aftursætisfarþegum
með viðbótarmiðstöð þar.
Það er reyndar allt nýtt að inn-
an í Explorer.
Það sem einna mest fór í taug-
arnar á undirrituðum er staðsetn-
ing á hurðarhandfangi bílsins sem
er fyrir neðan armhvíluna í hurð-
inni þar sem gluggarofarnir eru
staðsettir. Þessi ankannalega stað-
setning á hurðarhandfanginu gerir
það að verkum að erfitt er að
halda í hurðina þegar mest er þörf
á því í hávaðaroki eða hviðum.
Afturhlerinn er tvískiptur og
hægt að opna annaðhvort ein-
göngu rúðuhlutann eða allan hler-
ann.
Farangursrýmið er feiknarmik-
ið, eða 1.320 lítrar og stækkanlegt
í 2.486 lítra með því að fella niður
aftursætisbökin, 60/40. Hægt er að
fá þriðju sætaröðina sem aukabún-
að í bílinn og kostar bekkurinn
182.000 kr. í handstýrðu útfærsl-
unni en 289.000 ef hún er rafdrifin.
Explorer kemur með svokölluðu
Control Trac-fjórhjóladrifskerfi.
Bílstjóri getur valið um þrjár still-
ingar í kerfinu. Í fyrsta lagi 4x4
Auto, en þá er bíllinn í raun aft-
urhjóladrifinn en deilir togaflinu
til framhjólanna um leið og skynj-
arar verða varir við að afturhjólin
missa grip.
Í 4x4 High er mismunadrifinu
læst og togaflið skiptist jafnt, 50/
50, á milli fram- og afturása. 4x4
Low er síðan lága drifið sem menn
grípa til við verstu mögulegu að-
stæður.
Mikill búnaður – hagstætt verð
Explorer er boðinn í fjórum út-
færslum og með V6- eða V8-vélum.
Limited-útfærslan er best búin og
útlitslega aðgreinir hún sig frá
öðrum með 17" krómfelgum, króm-
uðum útispeglum og þakbogum
auk þess sem stuðarar og gang-
bretti eru samlit bílnum. Krómið
heldur áfram þegar inn er komið.
Þar blasir fyrst við stór gírstöngin
sem er skreytt krómi og í kringum
stóra og auðlesanlega mælana eru
krómhringir.
Limited og Eddie Bauer-út-
færslurnar eru með leðursætum
og eru framsætin með rafstilling-
um og með minni fyrir ökumann.
Þægindabúnaðurinn er sem sagt
ekki skorinn við nögl og upplifunin
er eins og í dýrari gerðum lúxusj-
eppa.
Í stýrinu eru hnappar sem
stjórna hljómtækjum og skriðstilli
en líka miðstöðinni, sem er mikill
kostur. Annar staðalbúnaður í
Limited er stöðugleikastýring,
loftþrýstingsmælir fyrir hjólbarða,
loftkæling, aksturstölva með hita-
mæli og áttavita, aðkomuljós í hlið-
arspeglum, krómað grill, 17" króm-
felgur, bakkskynjari, gangbretti,
leðursæti með rafstýringum, hiti í
framsætum og margt fleira.
Verðið á Limited V8 er 4.620.000
kr. sem verður að teljast verulega
hagstætt þegar litið er til vélar,
búnaðar og stærðar bílsins. Þess
má geta að fyrir tveimur árum
kostaði eldri gerð Explorer með
V6-bensínvélinni í XLT-útfærslu
4.500.000 kr. en þá var öðruvísi um
að litast í gengismálum hérlendis.
gugu@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 B 7
bílar
Mesta úrval landsins af
rafgeymum!
TUDOR
fyrir framtíðina!
Bíldshöfða 12 • 110 Reykjavík • Sími: 577 1515 • www.skorri.is
• Mælum rafgeyma.
• Skiptum um rafgeyma.
B&L atvinnubílar kynna um þessar
mundir sendibíllinn Trafic í nýrri
pallbílaútgáfu.
Innanmál pallsins eru 195 cm á
breidd og 276 sm á lengd, en burð-
argeta pallbílsins er með því mesta
sem gerist í þessum stærðarflokki
eða 1.260 kg. Þá er hann með 40
sm niðurfellanleg hliðarborð, læst
innbyggt geymsluhólf á annarri
hliðinni og innbyggða geymslu fyr-
ir varadekk í aftanverðum pallin-
um.
Hljóðlátur vinnustaðir
Hvað staðalbúnaðinn varðar þá
er bíllinn m.a. með geislaspilara,
rafmagn í rúðum og hliðarspeglum,
ABS-aflhemla, hæðarstillanlegt
ökumannssæti og fjarstýrðar sam-
læsingar.
Annar stór kostur við pallbílinn
er að mati Bjarna Þ. Sigurðssonar,
sölustjóra, sá, hversu hljóðlátur
hann sé og á það við bílinn í heild
sinni, að hans sögn. „Ekki er óal-
gengt að pöllum fylgi ískur eða
skrölthljóð, ekki síður hjá smærri
pallbílum en vörubílum.
Allur frágangur Trafic-pallbílsins
ásamt festingum er af þessum sök-
um afar vandaður, þannig að hann
gefur engin leiðinda hljóð frá sér.
Þá er 1,9 lítra dCI, 100 hestafladís-
ilvélin, hljóðlát auk þess sem hann
státar af afar góðri hljóðeinangrun
líkt og Trafic-sendibíllinn gerir.
Þetta er því ekki bara vel útbú-
inn heldur einnig afar hljóðlátur
vinnustaður ef svo má að orði kom-
ast.“
B&L hefur hafið sölu á Renault Trafic með palli.
Nýr Trafic-pallbíll frá Renault
TOYOTA Motor Europe fagnar
góðri byrjun á árinu 2006 en
fjöldi pantana á öllum nýjustu
gerðum Yaris, RAV4 og Aygo
hafa streymt inn frá áramótum.
Þessar niðurstöður þýða að
Toyota er á réttri braut við að
ná þeim markmiðum sínum að
selja eina milljón bifreiða á árinu
2006.
Mikil eftirspurn er eftir nýjum
Yaris. Þrátt fyrir að hann hafi
fyrst komið á markað í desem-
ber 2005 hafa um 60.000 við-
skiptavinir þegar lagt inn pönt-
un fyrir nýja bílnum, en Toyota
ráðgerir að selja 260.000 ein-
tök á árinu.
Frá byrjun janúar hafa borist
um 20.000 pantanir á nýjum
og betri RAV4, jafnvel þótt hann
hafi ekki verið settur í sölu fyrr
en um miðjan febrúar. Vonir
standa til að sala á RAV4 á
árinu nái um 100.000 eintök-
um.
Ný gerð Aygo, sem kynnt var
á seinni hluta ársins 2005, hef-
ur þegar sett mark sitt á nýjum
markaðshluta fyrir Toyota-bíla.
Nú þegar hafa 40.000 við-
skiptavinir pantað Aygo og eru
flestir þeirra nýir viðskiptavinir
Toyota.
„Þetta er mjög góð byrjun á
árinu hjá Toyota Europe og sýnir
að viðskiptavinir eru mjög
áhugasamir um allar nýjungar
frá okkur.
Við gerum ráð fyrir að nýr
Yaris verði söluhæstur hjá okk-
ur í ár og erum við sérstaklega
ánægð að sjá hversu góðar við-
tökur 1,3 VVT-i-vélin hefur feng-
ið en hún nær til næstum því
50% af allri sölu.
Árangur Aygo sýnir að Toyota
getur náð vel til yngri kynslóð-
arinnar,“ segir Andrea Formica,
framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs Toyota Motor
Europe.
Toyota byrj-
ar árið vel
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn