Morgunblaðið - 10.03.2006, Side 8
8 B FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
EIN af þeim skilaboðum sem mátti
lesa út úr bílasýningunni í Genf í
síðustu viku eru þau að bílafram-
leiðendur leggja stöðugt meiri
áherslu á að gera sig gildandi í
framleiðslu á vistvænni bílum. Hver
einasti evrópski bílaframleiðandi
sýndi a.m.k. einn bíl með áherslu á
sparneytni eða vistvænni notkun.
Margir þessara bíla eru nú þegar
komnir á markað í Evrópu og aðrir
koma á markað áður en þessi ára-
tugur er liðinn.
Volkswagen sýndi svonefnda
BlueMotion-bíla. Þarna gat að líta
Polo BlueMotion sem kemst 100
km á 3,9 lítrum af dísilolíu. Í fram-
haldinu mun Volkswagen einnig
kynna Golf-, Passat- og Touran-
útfærslur sem koma á markað á
næstu tveimur árum.
Bernd Pischetsrieder, stjórn-
arformaður VW-samstæðunnar, lét
hafa eftir sér að verðgildi stórfyr-
irtækja sem láti hjá líða að fjár-
festa í vistvænum framleiðsluferl-
um og framleiðsluvörum rýrni til
lengri tíma litið.
Vetnisknúinn BMW 7
Aðrir framleiðendur notuðu sýn-
inguna til þess að minna á stað-
festu sína í þessum málum. Sér-
stök áhersla verður t.a.m. lögð á
það hjá GM í Evrópu á þessu ári að
kynna Opel- og Chevrolet-bíla sem
ganga fyrir jarðgasi. Volvo hefur
nýlega opnað nýja vefsíðu þar sem
áhersla er lögð á hreinan skjöld
Volvo í umhverfismálum og Lewis
Booth, stjórnarformaður Ford í
Evrópu, gaf fyrirheit um að meiri
áhersla yrði lögð á vistvæn öku-
tæki á næstu eina til tveimur ár-
um.
BMW hefur lýst því yfir að í ráði
sé að setja vetnisútgáfu af flagg-
skipinu BMW 7 á markað á næsta
ári. Citroën hefur þegar sett á
markað C3 með svonefndu stopp-
start-kerfi, sem felur í sér að bíllinn
drepur á sér t.d. á rauðu ljósi, en
fer sjálfkrafa í gang aftur þegar
stigið er á eldsneytisgjöfina. Citro-
ën ætlar að gera enn betur og
kynna dísiltvinnbíl árið 2010. Kerfið
var sýnt á bílasýningunni í Genf og
Citroën segir að hægt sé að skila
bílnum áfram um 100 km á 3,4
lítrum af dísilolíu.
Sama kerfi verður þróað fyrir
Peugeot 307.
Evrópskir bílaframleiðendur hafa
átt misjöfnu gengi að fagna með
sölu á vistvænni bílum.
Citroën seldi t.a.m. ekki nema
um 1.000 C3 með stopp-start-
kerfinu á síðasta ári og það þótt
bíllinn hafi ekki kostað mikið meira
en hefðbundinn C3. Citroën-menn
hafa komist að þeirri niðurstöðu að
bílkaupendur séu ekki reiðubúnir að
greiða neitt aukalega fyrir elds-
neytissparandi búnað af þessu tagi.
25% Lexus-sölunnar tvinnbílar
Hins vegar eru fleiri tilbúnir að
greiða hærra verð fyrir tvinnbíla.
Þeir eru að jafnaði 2.000 til 3.000
evrum dýrari en hefðbundnar gerð-
ir samsvarandi bíla.
Lexus ráðgerir að selja 45.000
bíla í Evrópu á þessu ári og býst
við að fjórðungur þess verði tvinn-
bílar. Lexus sýndi einmitt í Genf í
fyrsta sinn GS450h-tvinnbílinn
sem kemur á markað samhliða
RX400h í maí.
Sá síðarnefndi hefur einmitt skil-
að Lexus miklum vexti í Evrópu
síðan hann kom á markað í Evrópu
síðastliðið sumar.
Á seinni helmingi síðasta árs
seldust 9.317 Lexus RX í Evrópu
og þar af voru 4.610 með tvinnvél-
arkerfi.
Engin bílasýning er fullkomin nema með a.m.k. einum nýjum Ferrari. Að þessu sinni var frum-
kynntur 599 GTB sem leysir Maranello af hólmi. Hann er með 6 lítra, V12, 620 hestöfl.
Litli rafmagnsbíllinn Nissan Pivo var með stöðuga sýningu í gangi
þar sem hann sneri við á punktinum.
Ford S-Max er fimm manna fjölnotabíll, lítið eitt stærri en C-Max
en minni en Galaxy.
Þessi rennilegi bíll sem minnir mest á McLaren heitir Honda FCX og vetnisbíll. Honda
kynnti ennfremur litla vetnisstöð, Home Energy Station, sem eigendur vetnisbíla geta
komið upp heima hjá sér.
Kia Ceed-hugmyndabíllinn kom flestum á óvart enda hafði hann
ekki verið kynntur af hálfu Kia.
Daihatsu Terios hefur ekki verið á markaði hérlendis lengi en nú
er hann kominn stærri og með aflmeiri 1,5 lítra vél.
Renault sýnir jafnan spennandi hugmyndabíla í Genf. Hér er sá nýjasti, Altica, sem er hugmynd Ren-
ault um sportlegan hlaðbak.
Ný og aflmeiri gerð Renault Clio Sport var frumsýnd í Genf. Hann
vegur 1.240 kg og 2ja lítra vélin skilar 197 hestöflum.
Einna mest bar á alls kyns hugmyndabílum í Genf. Hér er einn nýstár-
legur frá Toyota með „sjálfsmorðsdyrum“ og óvenjulegu innanrými.
Framleiðendur sjá vöxt í vistvænni bílum
Lexus sýndi auk LS460 tvinnútfærsluna GS450h sem skilar
340 hestöflum og kemur á markað í maí.
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson