Morgunblaðið - 10.03.2006, Qupperneq 10
10 B FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
S
ki-doo er sem fyrr á fullri
ferð að þróa sleða sína en
ekki eru margar nýjar
gerðir af sleðum kynntar
til sögunnar. Nýjungarnar
og endurbæturnar eru engu að síð-
ur þó nokkrar á milli ára.
Þróaðar tvígengisvélar
Ski-doo veðjar áfram á tvígeng-
istæknina og hefur náð góðum ár-
angri, bæði með svokallaða SDI-
innsprautun og með endurbótum á
blöndungsvélum. Rafeindatæknin
hefur gerbreytt virkni vélsleðavéla
á tiltölulega fáum árum og er hún
nýtt með ýmsum hætti til að auka
afl og bæta eldsneytisnýtingu.
Markmið Ski-doo er að þróa tví-
gengisvélar sem eru sambærilegar í
eyðslu og mengun og fjórgengis-
vélar en nýta áfram kosti tvígeng-
isvélanna sem eru einfaldari og létt-
byggðari en fjórgengisvélar.
Reyndar er nú kynnt ný fjórgeng-
isvél, 65 hestafla V-800, ættuð úr
fjórhjóladeildinni og boðin í ferða-
og vinnusleðum.
REV-byltingin heldur áfram
Þetta er fimmta árið sem REV-
byggingarlagið er á markaði og tek-
ur sem fyrr til meginhluta fram-
leiðslulínunnar. Ski-doo hitti sann-
arlega í mark með þessu nýja
byggingarlagi á sínum tíma og hafa
aðrir framleiðendur meira og minna
tekið upp svipaða hugsun. Í stuttu
máli var setu ökumannsins breytt
og hún færð 20–30 cm framar en áð-
ur tíðkaðist. Þannig eru fæturnir
beygðir því sem næst í 90 gráður
um hnén þegar setið er og gert ráð
fyrir að ökumaðurinn standi talsvert
við aksturinn. Æskilegri þyngd-
ardreifing og betri aksturseig-
inlekar fengust einnig með því að
færa vélina aftar og neðar. Mark-
miðið var að koma sem mestu af
þunga sleðans fyrir sem næst drif-
öxlinum. REV-skammstöfunin
stendur fyrir „revolution“ eða bylt-
ing og má með sanni segja að það
hafi reynst réttnefni.
SDI-innsprautunin
Vert er að líta aðeins á SDI-
innsprautuna sem Ski-doo hefur
hlotið mikið lof fyrir. SDI stendur
fyrir Semi-Direct-Injection sem þá
mætti þýða „hálf-bein-innsprautun“.
Nafngiftin kemur til af því að bens-
ínblöndunni er hvorki sprautað inn í
sveifarhúsið (eins og algengast er á
tvígengisvélum sem kallaðar eru
EFI) né inn í sílenderinn (eins og í
fjórgengisvélum) heldur í milligöng-
in í sveifarhúsinu. Í hefðbundinni
tvígengisvél gegna milligöngin því
hlutverki að flytja bensínblönduna
úr sveifarhúsinu upp fyrir stimp-
ilinn inn í sílendirinn. Um leið þrýst-
ir nýja blandan brenndu gasinu sem
fyrir er út í pústið. Vinnsluhringur
vélarinnar er bara tvö slög í stað
fjögurra í fjórgengisvél og þaðan er
nafnið komið. Gallinn við þetta ann-
ars ágæta fyrirkomulag er að bæði
tapast talsvert af nýju blöndunni út
í pústið og einnig verður nokkuð af
brennda gasinu eftir. Þetta veldur
því að eldsneytið nýtist tiltölulega
illa og afköst vélarinnar verða minni
en ef hægt væri að nýta alla bens-
ínblönduna sem fæst með hverju
slagi vélarinnar. Með því að sprauta
beint inn í milligöngin á hárréttum
tíma nær Ski-doo að nýta bensín-
blönduna talsvert betur en í hefð-
bundinni tvígengisvél og þarf þann-
ig minna eldsneyti til að ná sama
afli, m.ö.o. minni eyðsla og minni
mengun. Tveir spíssar sprauta inn í
hvor milligöng. Þeir eru misstórir
og virkar sá minni á lágum snúningi
en þegar ræsa á alla hestana sem
leynast undir
húddinu þá bæt-
ist hinn við.
Mikið úrval
Ski-doo býður
mikið úrval af
sleðum. Vinsæl-
ustu vélarstærð-
irnar eru 600 og
1.000 rúmsenti-
metra vélar með
SDI-innspraut-
un og 800 rúm-
sentimetra
blöndungsvélar.
Kynnir Ski-doo
tvær nýjar út-
færslur af þeirri
vél í 2007 ár-
gerðinni.
Stuttu sportsleðarnir nefnast MX
Z og eru boðnir í mörgum útfærsl-
um með 600 og 800 rúmsentimetra
vélum, auk Mac Z sem er með 1.000
rúmsentimetra vélinni. Það sem
skilur á milli undirgerða er ýmis
búnaður, svo sem fjöðrun o.fl. Milli-
löngu sleðanir, sem heita Renegate,
koma á stærra belti, þ.e. 136x16
tommum og eru sem fyrr boðnir
með 600, 800 og 1.000 rúmsenti-
metra vélum. Mestu breytingarnar
eru á fjallasleðunum, þar sem nýju
800 vélarnar eru boðnar, auk 600 og
1.000 SDI. Tekist hefur að létta
sleðana um 7 kg á milli árgerða.
Hér eru ótaldir sport- og vinnusleð-
arnir en þar er einnig úr mörgu að
velja, að ógleymdum Freestile leiks-
leðanum. Því má segja að það sé
vandlátur sleðamaður sem ekki get-
ur fundið eitthvað við sitt hæfi hjá
Ski-doo.
Vélsleðar
Ski-doo á sömu braut með 2007 árgerðinni
Ski-doo hefur nú kynnt hvað
þeir munu bjóða sleðamönn-
um næsta vetur, þ.e. með
2007 árgerðinni. E.t.v. má
segja að Ski-doo gæti notast
við slagorðið „gerum gott
betra“. Halldór Arinbjarn-
arson kynnti sér hvað Ski-doo
býður upp á í 2007 árgerð-
unum.
Væntanlega standa fáar brekkur fyrir Summit 1.000 fjallasleðanum.
Ný útgáfa af MX Z fær hið gamalkunna undirheiti Blizzard og kemur með nýrri
800 rúmsentímetra vél.
Flottur ferðasleði með kraftmikilli 800 rúmsentímetra vél.
TOYOTO Motor Corporation
(TMC) hélt ekki alls fyrir löngu
málþing um öryggismál í Tíanjin í
Kína þar sem fyrirtækið kynnti
kínverskum fjölmiðlum umferðar-
öryggisverkefni Toyota, en kynn-
ingin fólst einkum í fyrirlestrum,
tæknisýningum og árekstrarpróf-
unum á staðnum.
Toyota hélt málþingið í ljósi
vaxandi áherslu sem lögð er á um-
ferðaröryggismál í Kína. Við fyr-
irlestrana og tæknisýningar not-
aði Toyota raunverulegar
bifreiðar og aðrar útstillingar til
þess að kynna, m.a. verkefna, hina
háþróuðu GOA-yfirbyggingu
(Global Outstanding Assessment)
sem hönnuð er til að standast
árekstra og valda sem minnstum
meiðslum á gangandi vegfarend-
um. Til að sýna fram á hversu
öruggar Toyota-bifreiðar eru
gerði Toyota árekstrarprófanir á
staðnum á bifreið af Reiz-gerð
(borið fram „reis“) sem framleidd
er á staðnum af China Automotive
Technology & Research Center
(CATARC) í Tíanjin.
Framkvæmdastjóri TMC,
Tetsuo Hattori, yfirmaður Toyota
Vehicle Engineering Group, vís-
aði á málþinginu til sífellt fleiri
umferðarslysa og dauðsfalla sem
þeim tengjast í Kína, og sagði að
„Toyota telur sig bera töluverða
félagslega ábyrgð á því að taka
þátt í öryggisverkefnum“. Auk
þess að bjóða örugg farartæki í
Kína vill Toyota einnig stuðla eins
og hægt er að aukinni meðvitund
um umferðaröryggismál, slysa-
rannsóknum og greiningum með
aðstoð gagna frá Japan og öðrum
löndum ásamt ýmsum sameigin-
legum rannsóknarverkefnum.
Auk þess að bæta öryggi far-
artækja hefur Toyota tekið virkan
þátt í fækkun umferðarslysa í
Kína með því m.a. að bjóða upp á
námskeið í öruggum akstri sem
haldin voru í Peking í október síð-
astliðnum. Með það að markmiði
að verða gott og ábyrgt fyrirtæki í
Kína er það ætlun Toyota að
leggja áherslu á umhverfisvernd,
umferðaröryggi og starfs-
mannaþróun og leggja þannig sitt
af mörkum til kínversks sam-
félags.
Toyota um öryggi í Kína
Yfir 40 milljónir lesenda 24 evr-ópskra bílablaða AutoBild-Gruppe tóku þátt í vali á
besta bílnum í Evrópu nýlega. Í lok-
in stóð valið á milli 13 bíla og valdi
40 manna dómnefnd, sem skipuð var
aðalritstjórum, tækni- og mótorsér-
fræðingum tímaritanna, Passat sem
sigurvegara með nokkrum yfirburð-
um.
Stjórnarformaður Volkswagen
samsteypunnar, Wolfgang Bern-
hard, tók við verðlaununum á bíla-
sýningunni í Genf síðastliðið mið-
vikudagskvöld. „Auto 1 verðlaunin
eru punkturinn yfir i-ið á samfelldri
sigurgöngu,“ sagði Bernhard. Hann
þakkaði lesendum og dómnefnd fyr-
ir þennan mikla heiður og minntist á
hin fjölmörgu verðlaun sem Passat
hefur sópað að sér að undanförnu-
.Bernhard sagði ennfremur: „Frægð
og frami er góð undirstaða, en
ánægðir viðskiptavinir og góður við-
skiptalegur árangur eru þeir þættir
sem við viljum láta dæma okkur af.“
Passat hefur áður hlotið hin virtu
Auto1 verðlaun, en það var árið
1997. Nýr Passat kom á markað í
mars á síðasta ári, auk þess sem
skutbílsútgáfan, Passat Variant, var
kynnt í ágúst 2005. Helstu verðlaun,
sem nýr Passat hefur unnið að und-
anförnu, eru „Gelber Engel“ (gullni
engillinn), sem samtök þýskra bif-
reiðaeigenda ADAC veita, „Gullna
stýrið“ auk þess sem Passat var val-
inn bíll ársins í fjölmörgum löndum
Evrópu. Hér á Íslandi var hann efst-
ur í kjörin Bandalags íslenskra bíla-
blaðamanna í flokknum fjölskyldu-
og lúxusbíll ársins.
Enn bætir Passat rós í hnappagatið.
Passat
hlýtur Auto
1 verðlaunin