Morgunblaðið - 30.04.2006, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 30.04.2006, Qupperneq 4
4 | 30.4.2006 SÝNINGIN Það gisti óður í minningu Snorra Hjartarsonar var opnuð í bókasal Þjóð- menningar- hússins. R ithöfundasamband Íslands sá um dagskrá sýningar sem haldin var til heiðurs minningu Snorra Hjartarsonar, undir nafninu Það gisti óður. Hin glæsilega sýning á lífsstarfi skáldsins var haldin af því til- efni að nú um mundir eru 100 ár liðin frá fæðingu þess en að henni standa ættingjar Snorra í samvinnu við Þjóðmenningarhúsið okkar á Hverfisgötu. Hjörtur Pálsson rithöfundur og ljóðskáld flutti erindi og hélt öruggum höndum utan um dagskrána og Þorleifur Hauksson og Ragnheiður Stein- dórsdóttir leikkona lásu kvæði eftir Snorra. Gunnar Guðbjörnsson óp- erusöngvari og Jónas Ingimundarson píanóleikari fluttu sönglög við kvæðin. Menningarflugan sveimaði á milli ánægðra gesta eins og Sigurðar A. Magnússonar rithöfundar, Vigdísar Finnbogadóttur og Vilborgar Dagbjartsdóttur skálds og Karls Guðmundssonar leik- ara, sem er duglegur að mæta á menningarviðburði. Var spekúlerað í handritum, teikningum og uppstilltum Silfurhestinum. Með freyðivín í æðum var svo flögrað um borgina og fluguföruneyti kom sér vel fyrir á borði við stóru gluggana á veitingahúsinu Apótekinu, fékk sér snarl í gogginn og fylgdist með fólki í sumarskapi strekkjast í vorvindunum í Austurstræti. Meðal gönguglaðra var meðal annars Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og var vígalegi vísindamaðurinn sportí í gallabuxum, brúnum leðurfrakka og rauð- um og hvítum æfingaskóm. Fyrir utan Hótel Borg voru hjónin Kristján Jóhannsson óperusöngvari og frú hans, Sigurjóna Sverr- isdóttir, en þau voru galaklædd og stórtenórinn með risastóran app- elsínugulan trefil um hálsinn. Það verður jú að hlúa vel að dýrmætri röddinni. Kaffi París fór í andlitslyftingu og var opnað á dögunum eftir gagngerar breytingar og var þá tilvalið að skella sér í „bröns“ í laugardagshádeginu sem samanstóð af eggjahræru, beikoni, hreinum appelsínusafa, osti og míní-lummum með sýrópi. Nokkuð smekklegt var um að litast og fasta- gestir í karlaklíkum staðarins, eins og Örn Clausen lögmaður, sátu sem fastast á sínum stöðum í salnum. Annars var margt fyrirmenna að dunda sér í bænum; sjarmörinn og óperusöngvarinn Garðar Cortes senior sat á Ömmukaffi í Austurstræti og Þórarinn Eldjárn skáld rölti um með hundinn sinn. Flugustelpa skellti sér líka á sölusýningu á vatnslitamynd- um eftir Louisu Matthíasdóttur sem var hleypt af stokkunum í Gallery Kolbrún S. Kjarval. Í litlu rýminu á Skólavörðustíg var samankominn mikill mannfjöldi og það var ansi pirruð Fluga sem reyndi árangurs- laust að komast í réttu stellingarnar til að skoða myndirnar. Það var verulega pirrandi að þurfa að troðast um á litlu sýningarsvæðinu en Fluga hafði verið sérlega spennt fyrir þessum myndum Louisu þar sem þær eru allar götu- og hafnarmyndir frá okkar ástkæru Reykjavík, sem auð- vitað er uppáhaldsmyndefni ykkar dætra Austurstrætis. Boðið var upp á hvítvín í pappakössum sem hver og einn þurfti að skenkja sér sjálfur í plastglös, harla óvenjulegt. Í troðningnum tókst þó að spotta Tryggva Ólafsson málara og varð það til að bjarga þessum vordegi. | flugan@mbl.is Sigríður Þorvarðardóttir, Anna Kristín Einarsson, Edda Jónas- dóttir og Guðbjörg Þorvarðardóttir. L jó sm yn di r: E gg er t Tryggvi Ólafsson og Kolbrún Kjarval. Una Sigurðardóttir og Erla Svava Sigurðardóttir. Með freyðivín í æðum . . . en þau voru galaklædd og stórtenórinn með risastóran appelsínugulan trefil um hálsinn . . . FLUGAN Í GALLERY Kolbrún S. Kjarval var sýning á vatnslitamyndum eftir Louisu Matthíasdóttur. Vilborg Dagbjartsdóttir og Haraldur Ólafsson. L jó sm yn di r: E gg er t Kristján E. Karlsson og Steingrímur Eyfjörð. Torfi Hjartarson og Svandís Svavarsdóttir. Hörður Bergmann og Árni Bergmann. Sebastian Frey og Andr- ea Maack. Una Margrét Reynis- dóttir og Kristín Gunnarsdóttir. Í 101 GALLERY var sýning á verkum Stein- gríms Eyfjörðs. L jó sm yn di r: E gg er t Kristín Jóhannesdóttir, Sigurður Pálsson og Ragnheiður Ásgeirsdóttir. Birgir Guðjónsson, Helga Torfadóttir og Guðrún Þórhallsdóttir. Ragnheiður Torfadótt- ir, Jónas Ingimund- arsson og Gunnar Guðbjörnsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.