Morgunblaðið - 30.04.2006, Qupperneq 17
Það fer ekki á milli mála hverjir ganga íHooha-bolum, því þeir skera sig úrfjöldanum. Þeir Kim Michael Nielsen
og Henrik Knudsen þykja hanna einhverja
flottustu stuttermaboli í Kaupmannahöfn.
Bækistöðvar þeirra eru á hinni notalegu Elme-
gade þar sem þeir reka verslun, vinnustofu og
skrifstofu. Strákarnir kynntust í gegnum sam-
eiginlegan vin þegar þeir voru í
listaskóla og úr varð hönnunar-
fyrirtækið Hooha. Þetta var árið
2003 en í dag er fyrirtækið vel
þekkt meðal áhugamanna um
góða hönnun.
Hönnun þeirra félaga fæst
ekki aðeins í verslun þeirra
heldur líka í fjölda sérverslana í
Danmörku, Noregi og í Belgíu.
Aðalsöluvaran eru sérhannaðir
og handunnir stuttermabolir
með grafísku þrykki. „Við byrj-
uðum að selja í gegnum Netið og bolirnir voru
fáanlegir á heimasíðunni okkar. Fljótlega spurð-
ist þetta út, eftirspurnin jókst og fólk fór að
hringja í okkur til að fá bolina keypta,“ segja
þeir. Eitt leiddi af öðru og einn daginn duttu
Danirnir niður á litlu skonsuna í Elmegade, sem
er eftirsóttur staður fyrir verslun, enda í hverfi
sem iðar af lífi og fjöri og svipar í raun svolítið til
101 Reykjavíkur. Allir þekkja
alla og veifa inn um gluggana
er þeir renna framhjá á hjól-
unum. Það er eins og fólkið
tilheyri risastórri klíku þar
sem nýjungagirnin er allsráð-
andi. Í hverfinu ægir saman
ólíkum áhrifum og hverskyns
rekstri; indverskum, spænsk-
um, japönskum og ítölskum
veitingastöðum, kaffihúsum,
börum, tehúsum, fatabúðum
og síðast en ekki síst allra
þjóða kvikindum. Til að
mynda er hið íslenska
Laundromat Café beint á
móti Hooha versluninni og
því er stutt að kíkja í kaffi og
henda af sér fötum í þvotta-
vélar sem eru á staðnum.
Stundum er valið næstum kvöl | Reksturinn er í blóma, en Kim og Henrik segja að í
fyrstu hafi verið erfitt að fá hönnuði til liðs við Hooha. Núna sé merkið þekktara og
því allt auðveldara. Daglega berst þeim fjöldinn allur af fyrirspurnum og hugmynd-
um frá hönnuðum sem vilja vinna fyrir þá. „Valið er einfalt,“ segir Kim: „Ef hönn-
unin er góð þá kemst hún að! Ef þú þekkir einhverja góða hönnuði, láttu okkur endi-
lega vita,“ bætir hann brosandi við.
Árlega ráða þeir til sín um 15 hönnuði og fólk til að sníða í verktakavinnu. „Þannig
fáum við fjölda tilbrigða fyrir hverja línu. Oft eru lausnirnar það góðar að valið nálg-
ast það að vera kvöl! Þó er þetta skemmtilegt og gefandi og við endurtökum okkur
aldrei.“ Eftir að hugmyndin hefur verið valin tekur við vinnan við að þrykkja á bolina.
Kim og Henrik vaka þá jafnan heilu og hálfu næturnar við að handþrykkja hverja ein-
ustu flík. Eins og gefur að skilja er vinnuvikan óhemju löng en þeir segja það í lagi,
enda sé vinnan aðaláhugamálið. „Við eyðum í raun meiri tíma hér heldur en heima
hjá okkur, sem betur fer er allt í sátt og samlyndi á milli okkar.“
Eitt af boðorðum Hooha er að setja aðeins takmarkað magn af hverri flík í sölu. Að
sögn félaganna hefur tiltækið slegið í gegn. „Það er allt í lagi þótt við höfum aðeins
20-30 flíkur til sölu, kúnninn skynjar að hann er að kaupa handgerða og sérstaka
flík.“
Stuttermabolirnir kosta 300-350 krónur danskar og seljast á augabragði. Ekki er
óalgengt að viðskiptavinir bíti í það súra epli að varan sem þeir komu gagngert til að
kaupa sé uppseld. „Jú, við töpum auðvitað peningum á því að eiga ekki til nóg af selj-
anlegum vörum á lager en við höldum þessu engu að síður til streitu. Menn finna sér
bara eitthvað annað í staðinn og um leið vita þeir að hver flík er einstök. Um daginn
pöntuðum við til dæmis inn fjögur pör af herraskóm og þau seldust öll sama daginn –
svona vinnum við bara.“
Draumur Dananna í framtíðinni er að opna „boutique“ þar sem allar uppáhalds-
vörurnar þeirra væru á boðstólnum; besta tónlistin, fallegustu listaverkin, skemmti-
legustu bækurnar, fötin og svo auðvitað úrval af stuttermabolum.
| osiris0904@hotmail.com
HOOHA, Elmegade 14, kld., 2200 Köbenhavn N., Tel.: +3537 6037, www.hooha.dk
KAUPMANNAHÖFN | GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
11. BOÐORÐIÐ VAR HOOHA
Michael Nielsen og
Henrik Knudsen.
Tveir Danir hanna vinsæla stuttermaboli og fylgihluti undir merkinu HOOHA
Öll almenn snyrting
Göt í eyru • Húðslípun • Nudd • Förðun • Dekurdagar