Morgunblaðið - 30.04.2006, Qupperneq 19
30.4.2006 | 19
Haltu þínu striki með áætlanir og ráðagerðir; pen-
ingar, framrás og miðlun eru leiðirnar til þess. Hrút-
urinn á að hafa gætur á flæðinu og reyna að koma
auga á leyndar gildrur í þessu sambandi, í stað þess að
æða áfram á sinn venjulega máta. Ef þú gætir þess að
haga seglum eftir vindi, ganga hlutirnir betur heima
fyrir og í fjármálum. Hver veit, nema að draumarnir
rætist? Einbeittu þér að bókhaldinu, fjárhagsáætl-
unum og forgangsröðinni. Gakktu hreint til verks og
hafðu skynsemina að leiðarljósi. Á fullu tungli í sporð-
dreka 13. maí gæti eitthvað óvænt komið upp, ekki
láta fljótfærni eða gremju ná tökum á þér.
Hrútur 21. mars – 20. apríl
Til hamingju með afmælið, naut! Flýttu þér hægt og
ekki taka áhættu í ástar- og peningamálum á næst-
unni. Einhver þarf hugsanlega á hjálp þinni að halda
og kannski þarftu að taka ákvörðun sem tengist
vinnunni eða samskiptum við yfirmann. Er togstreita
milli þín og einhvers nákomins um þau skref sem rétt
væri að taka næst? Maki eða náinn vinnufélagi gæti
verið í þónokkru uppnámi. Einhver tíðindi eða at-
burðarás hjálpar nautinu við að taka stefnu í fyrstu
viku nýs mánaðar. Kannski rennur upp fyrir því ljós
þegar tungl verður fullt í sporðdreka 13. maí. Ekki
bregðast harkalega við eða bæla niður hugsanir þínar.
Naut 20. apríl – 21. maí
Taktu það rólega á næstunni ef þú getur. Einbeittu þér
að smáatriðum og því sem gerist bak við tjöldin.
Gerðu áætlanir og spáðu í framtíðardraumana. Pen-
ingamálin eru í brennidepli og kannski þarftu að glíma
við uppistand eða hávær mótmæli í tengslum við
vinnu eða heilsu þessi mánaðamót. Vinna og heilsa eru
undir smásjánni núna. Gríptu tækifæri sem þú færð
til þess að komast áleiðis, eða mennta þig á einhvern
hátt. Spáðu í aðstæður þínar og mundu eftir að hugsa
áður en þú opnar munninn. Leitaðu eftir sérfræðiráð-
gjöf ef þú þarft að fást við eitthvað sem þú þekkir ekki
eða ef þér finnst þú hafa færst of mikið í fang.
Tvíburi 21. maí – 20. júní
Mánuðurinn byrjar í hringiðu framandi samskipta.
Gættu þess að þreyta þig ekki um of. Það er ekki víst
að ljónið hafi orku til þess að sinna félagslífinu af
kappi. Óvænt framvinda eða breytingar á heimili og í
fjármálum gætu blasað við. Einhver gæti látið freist-
ast af daðri eða leynilegu sambandi. Einbeittu þér að
vinnu þinni og skyldum næstu vikur. Samskipti við yf-
irboðara koma við sögu og kannski þarftu að taka við
stjórnartaumunum á einhverju sviði. Hugsanlega
mætast stálin stinn vegna togstreitu við vinnufélaga
út af yfirráðum og vinnu og þú þarft líka að huga að
jafnvæginu milli starfsframa og einkalífs.
Ljón 23. júlí – 23. ágúst
Nóg er á döfinni í peningamálum vogarinnar í upphafi
nýs mánaðar. Sameiginlegar eigur, lánstraust og veð-
lán eru undir smásjá. Leitaðu leiða til þess að láta
peningana vinna fyrir þig. Óvænt útgjöld gætu komið
upp og stilltu þig um eftirlátssemi. Breytingar blasa
við og tengjast fjárhagnum, atvinnuhorfum og innstu
vonum þínum og þrám. Kannski þarftu að tjá ástvini
þínar innstu hugrenningar, eða þá að þú kemst á snoð-
ir um leyndarmál. Aðstæður skýrast hugsanlega á
fullu tungli í sporðdreka 13. maí. Taktu ákvörðun í
framhaldi af því en gættu þess að hlaupa ekki á þig.
Lokaútkoman gæti blasað við í þriðju viku maí.
Vog 23. september – 22. október
Þú átt spennandi og viðburðaríkan mánuð í vændum.
Örvunin kemur frá maka eða nánum aðstandendum
sem hrinda atburðarásinni af stað. Aukinn þroski og
skilningur er tímabær. Farðu vel yfir stöðuna og vertu
vakandi fyrir vísbendingum og fyrirboðum. Spennandi
átök eða kynni koma við sögu í fyrstu viku mánaðar-
ins, vinna og dagleg rútína eru vettvangur þeirra en
maki og nánir félagar eiga líka hlut að máli. Ágrein-
ingur eða munur á grundvallarviðhorfi gæti blasað
við. Of auðvelt væri að einblína á það sem skilur að.
Þess í stað skaltu hlusta vel á þau orð sem látin eru
falla. Á fullu tungli 13. maí blasir lausnin e.t.v. við.
Sporðdreki 23. október – 21. nóvember
Ferðalög, nám, menntun, kunningjar úr fjarlægum
heimshluta eða stóra samhengið í lífinu eru í brenni-
depli þessa dagana. Kannski á fiskurinn í samninga-
viðræðum um peninga, eða í samskiptum við fólk sem
sýslar með fé. Eða þá að hann ákveður að fjárfesta í
einhverju. Ferðalög eða stefna í lífinu gæti komið til
athugunar. Einhverjar fréttir virðast bíða þín, hefur
þú talað við alla sem þú þarft að ræða við? Frestaðu
endurskoðun og ákvörðunum þar til tungl verður fullt
í sporðdreka 13. maí. Línur gætu skýrst þá, en líka
hægt að gera ráð fyrir óvissu og ótta. Gættu þín í
samskiptum og ekki bregðast of harkalega við.
Fiskar 20. febrúar – 20. mars
Breytingar tengdar vinnu og heilsu gætu verið á döf-
inni í þessum mánuði. Nýir valkostir eða atburðarás
blasir hugsanlega við í fyrstu viku maí. Nýjar persón-
ur gætu komið við sögu. Sviptingar tengjast heimili
og innri manni. Hafðu gætur á heilsunni og orkunni
þegar tungl verður fullt í sporðdreka 13. maí. Þreyta
eða niðursveifla gæti blasað við bogmanninum. Vertu
á varðbergi gagnvart vinnutengdum ferðalögum eða
bilunum af einhverju tagi. Samskipti við einhvern ein-
kennast kannski af ruglingi og misskilningi. Bogmað-
urinn þarf að taka þýðingarmikla ákvörðun en á að
fresta henni þar til síga fer á seinni hluta mánaðar.
Bogmaður 22. nóvember – 21. desember
Vatnsberinn má eiga von á annríki og athafnasemi, en
þarf að gæta sín á hlykkjum og bugðum á leið sinni á
næstunni. Málefni sem tengjast vinnu og heilsu eru í
forgrunni fyrstu dagana og kannski þarftu að hreinsa
til og taka þýðingarmikla ákvörðun. Yfirráð, vinna og
jafnvægið á milli starfs og einkalífs þarfnast athug-
unar. Miklar umræður eru líka á döfinni og líklegt að
atburðarásin nái hámarki þegar tungl verður fullt í
sporðdreka 13. maí. Breytingar verða hugsanlega á
uppbyggingu, skyldum eða samskiptum sem tengjast
maka eða nánum félögum. Áttaðu þig á stöðunni en
spáðu líka í hvernig og hvenær rétt er að bregðast við.
Vatnsberi 21. janúar – 19. febrúar
Þeir sem eiga afmæli um þessar mundir fæddust þegar sólin skein í merki nautsins,
öðru stjörnumerki dýrahringsins. Sólin táknar grunneðlið í stjörnuspeki, okkar innri
mann. Nautið er undir áhrifum ástarplánetunnar Venusar og telst stöðugt og hefur skynsemi og öryggi
að leiðarljósi. Nautið getur verið mjög segulmagnað og hefur oft dálæti á nautnum ýmiss konar.
M a í
RÝNT Í STJÖRNURNAR
Fjármálin eru í brennidepli núna. Þýðingarmikil verk-
efni og samningar virðast á næsta leiti. Ekki missa
sjónar á stóra samhenginu; nám, ferðalög, víkkandi
sjóndeildarhringur og framandi kunningjar eiga eftir
að koma við sögu. Reyndu að beina sjónum þínum að
lokaáfanganum, þú átt eftir að komast þangað sem þú
ætlar þér. Meyjan gæti fengið góðar fréttir í byrjun
mánaðarins eða nýtt verkefni. Breytingar virðast
blasa við og líklegt að dragi verulega til tíðinda á fullu
tungli í sporðdreka 13. maí. Að því loknu veit meyjan
hvert hún á að stefna. Settu markið hátt og farðu rétt
að. Glufur opnast skyndilega, vertu viðbúin(n).
Meyja 23. ágúst – 23. september
Nýr mánuður byrjar með talsverðu tilfinningaflóði.
Viðfangsefni tengd börnum, peningum, rómantík og
lífsmáta koma við sögu. Leyfðu línunum að skýrast
áður en þú tekur þýðingarmikla ákvörðun. Vinir og
hópvinna að sameiginlegu markmiði eru í brennidepli.
Árangur eða draumur sem rætist gæti verið innan
seilingar. Kannski þarftu að taka áhættu af einhverju
tagi. Fullt tungl verður í sporðdreka 13. maí og beinir
orkunni að prívatlífinu. Hægðu á þér og farðu vel yfir
stöðuna í síðustu viku maí, gættu þess að þér yfirsjáist
ekki eitthvað og vertu á varðbergi fyrir mótstöðu af
einhverju tagi. Reyndu að haga seglum eftir vindi.
Krabbi 21. júní – 22. júlí
Farðu vel yfir allt sem tengist vinum og vonum og
þrám sem blunda innra með þér. Hverju eða hverjum
viltu tilheyra? Þú kemst hugsanlega á snoðir um það
innan tíðar en áður en það verður þarftu að líta til-
baka og gaumgæfa hversu miklum árangri þú hefur
náð með það sem er þér mikilvægt. Á fullu tungli í
sporðdreka 13. maí gefst kjörið tækifæri til þess að
líta yfir farinn veg. Fjármálin gætu verið knýjandi og
þarfnast yfirferðar og endurskoðunar. Rómantíkin
liggur líka hugsanlega í loftinu. Einnig þarf stein-
geitin að huga að einhverju sem tengist börnum eða
möguleikum af einhverju tagi. Hvernig er ástandið?
Steingeit 22. desember – 20. janúar