Morgunblaðið - 03.05.2006, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÞYNGD OG ÞRÝSTINGUR
Konur sem eru of þungar við upp-
haf meðgöngu og fá háþrýsting eru í
tvöfaldri hættu á að fá háþrýsting á
næstu meðgöngu. Þá eru konur sem
þyngjast á milli meðgangna og
fengu háþrýsting á fyrstu meðgöngu
í meira en tvöfaldri hættu á að fá
sjúkdóminn einnig á næstu með-
göngu. Þetta er niðurstaða rann-
sóknar sem Sigrún Hjartardóttir,
Björn Geir Leifsson, Valgerður
Steinþórsdóttir og Reynir Tómas
Geirsson unnu.
Börnin deyja
Meira en fimm milljónir barna
undir fimm ára aldri deyja ár hvert
vegna vannæringar. Kemur það
fram í nýrri skýrslu frá Barnahjálp-
arsjóði Sameinuðu þjóðanna. Sagt er
að í þróunarríkjunum sé aðeins eitt
af hverjum þremur börnum haft á
brjósti fyrstu sex mánuðina og komi
það verulega niður á þroska þeirra.
Verst er ástandið í Suður-Asíu, Ind-
landi, Bangladesh og Pakistan. Í
Mið-Austurlöndum og í Norður-
Afríku er um afturför að ræða frá
1990.
Methagnaður bankanna
Allir viðskiptabankarnir hafa skil-
að methagnaði á fyrsta ársfjórðungi.
Samanlagður hagnaður viðskipta-
bankanna er 42,2 milljarðar króna.
Hagnaður Straums – Burðaráss
Fjárfestingabanka var 19,1 millj-
arður á fjórðungnum og að honum
meðtöldum nemur hagnaður bank-
anna 61,3 milljörðum króna.
Aldrei fleiri nemendur
Í vor útskrifast úr grunnskólum
stærsti árangur Íslandssögunnar og
því munu fleiri nemendur sækja um
skólavist í framhaldsskólum lands-
ins í haust en nokkru sinni áður. Af
því hafa skólastjórnendur áhyggjur.
Menntamálaráðherra segir tryggt
að allir nýnemar fái inni í skóla.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 28
Fréttaskýring 8 Bréf 31
Viðskipti 13/14 Minningar 33/42
Erlent 15/16 Brids 43
Minn staður 18 Myndasögur 44
Höfuðborgin 20 Dagbók 44/46
Akureyri 20 Staður og stund 46
Suðurnes 21 Leikhús 48
Landið 21 Bíó 50/53
Daglegt líf 22 Ljósvakamiðlar 55
Menning 24/25 Veður 55
Umræðan 26/32 Staksteinar 55
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
JÓNATAN Helgi Rafnsson, 18 ára
gamall Íslendingur, lést á sjúkrahúsi
á Kanaríeyjum á mánudag. Jónatan
slasaðist alvarlega 3. apríl síðast lið-
inn þegar hann féll niður af hótel-
svölum á fjórðu hæð þar sem hann
var staddur í fríi á Kanaríeyjum
ásamt unnustu og fjölskyldu. Bæna-
stund var haldin í Landakirkju í
Vestmannaeyjum, og í Bessastaða-
kirkju í gærkvöldi fyrir Jónatan
Helga og fjölskyldu hans.
Jónatan Helgi Rafnsson
Lést eftir
slys á
Kanaríeyjum
EMBÆTTI ríkisskattstjóra hefur
sett sér það markmið að meirihluti
framteljenda þurfi ekki annað en að
staðfesta forskráðar upplýsingar á
framtali sínu eftir fjögur ár, þ.e.a.s.
árið 2010. Raunar væri hægt að ná
þessu markmiði strax í dag væri vilji
hjá bankastofnunum landsins til að
veita nauðsynlegar og lögboðnar upp-
lýsingar.
Þetta kemur meðal annars fram í
leiðara Indriða H. Þorlákssonar, rík-
isskattstjóra, í nýju tölublaði af Tí-
und, fréttablaði ríkisskattstjóra. „Ef
þær sinntu skyldum sínum myndu
þær stórbæta þjónustu við viðskipta-
vini sína og gera það kleift að auka
þjónustu skattkerfisins við borgar-
ana,“ segir ríkisskattstjóri meðal
annars í leiðaranum.
Aðeins hluti með vefbanka
Hann bætir við að nokkur breyting
hafi þó orðið til batnaðar með því að æ
fleiri fjármálastofnanir hafa sýnt
þessu skilning og sent frá sér upplýs-
ingar til forskráningar. „Þá hefur Ís-
landsbanki fyrrverandi í samvinnu
við embætti ríkisskattstjóra gert
þeim viðskiptavinum sínum, sem nota
vefbanka, mögulegt að senda upplýs-
ingar rafrænt til skattyfirvalda. Þótt
það sé vissulega bót er þessi lausn alls
ófullnægjandi því aðeins hluti af við-
skiptavinum bankanna er með vef-
banka. Þeir sem helst þurfa þjónustu
í þessum efnum, svo sem þeir sem eru
með takmarkað tölvulæsi, eru síður
með vefbanka en aðrir framteljendur.
Með tilliti til jafnræðis í skattfram-
kvæmd verður upplýsingaöflun af
þessum toga að vera heildstæð og ná
til allra með sama hætti. Skattyfir-
völd hafa ekki farið fram á að fá frá
fjármálastofnunum aðrar upplýsing-
ar en framteljendum ber að greina
frá á framtali sínu líkt og t.d. gildir
um launagreiðslur o.fl.“
Þurfi eingöngu að undirrita
skattframtöl árið 2010
MIKIL eftirspurn er eftir þyrlu-
flugnámi um þessar mundir í kjölfar
þess að Landhelgisgæslan auglýsti
eftir þyrluflugmönnum. Sigurður
Pálmason, framkvæmdastjóri Þyrlu-
þjónustunnar, sem m.a. sinnir verk-
legri þyrluflugkennslu, segir að yf-
irleitt sé eftirspurnin nokkuð jöfn en
eftir auglýsingu Gæslunnar hafi orð-
ið kippur og margir sýnt náminu
áhuga. „Þá eru þeir sem hafa lært
fyrir einhverjum árum að dusta ryk-
ið af skírteinunum sínum og vilja
endurnýja þekkingu sína.“
Þyrluþjónustan tók í gær á móti
nýrri þyrlu sem hún keypti frá Okla-
homa í Bandaríkjunum. Um er að
ræða þyrlu af gerðinni Hughes
300C, 2005 árgerð. Þyrlan er sama
sem ný, aðeins er búið að fljúga
henni í 38 tíma. Hún er þriggja
manna og verður m.a. notuð við
verklega kennslu í þyrluflugi í sam-
starfi við flugskóla á höfuðborg-
arsvæðinu. Að auki á Þyrluþjón-
ustan eina stærri vél, Bell 206 Long
Ranger en meðal verkefna fyrirtæk-
isins er að þjónusta kvikmyndagerð-
armenn og ljósmyndara sem og
ferðamenn og er nokkur vaxt-
arbroddur í þeim geira.
Sigurður segir að þyrlunámið sé
bæði bóklegt og verklegt. Hægt er
að taka þessa tvo þætti námsins
samhliða og bæði hægt að taka próf
til einkaflugmanns og atvinnuflug-
manns hér á landi. Sigurður telur að
þyrluflugnám til atvinnuflugmanns
kosti á bilinu 5–7 milljónir króna.
Hann segir mjög misjafnt hversu
margir stundi þyrlunám hverju
sinni. Þegar mest var hafi 6–8
manns stundað námið.
Þyrluþjónustan er um þessar
mundir að flytja í nýtt húsnæði í
Fluggörðum 23 við Reykjavík-
urflugvöll. Nýja þyrlan verður von-
andi tekin í notkun á næstu dögum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hin nýja þyrla Þyrluþjónustunnar komin alla leið frá Oklahoma í Bandaríkjunum.
Mikill áhugi á þyrluflugnámi
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
Á HVERJU vori deyr talsvert af
unglömbum.Tjónið er mikið á
landsvísu og umtalsvert á einstaka
bæjum. Þetta segir Sigurður Sig-
urðarson, dýralæknir á Keldum, og
bendir á að nákvæmar og ítarlegar
upplýsingar um
orsakir þessa
hafi vantað.
Bendir hann á að
það sé einkum
vegna þess
hversu lítið hafi
verið sent til
rannsóknar og
að ekki hafa ver-
ið aðstæður til að
gera athuganir
heima á bæj-
unum, sem verði fyrir tjóni, bera
saman aðstæður, fóðrun, fóðurefni
og aðbúnað við mismunandi mikið
tjón.
Á þessu vori er, að sögn Sigurðar,
hins vegar fyrirhugað að reyna að
bæta úr þessum þekkingarskorti og
gera sem ítarlegasta könnun á
lambadauða á bæjum þar sem tjón
er áberandi. Að sögn Sigurðar er
hér um að ræða samvinnuverkefni
milli Landbúnaðarstofnunar, Land-
búnaðarháskólans á Hvanneyri, Til-
raunastöðvarinnar á Keldum og
Bændasamtaka Íslands. „Sérstök
áhersla verður lögð á að leita or-
saka þess að lömb fæðast fullburða
en andvana eða líflítil og drepast á
fyrsta sólarhring. Einnig á að leita
orsaka fósturláts á síðasta hluta
meðgöngu eftir því sem unnt er,“
segir Sigurður og skorar á bændur
og fjáreigendur sem varir verði við
óeðlileg vanhöld af fyrrnefndum
toga að setja sig í samband við
Hjalta Viðarsson, dýralækni, sem
hefur umsjón með athuguninni, en
Hjalti er með aðsetur við Landbún-
aðarháskólannn á Hvanneyri.
Lambadauði
til ítarlegrar
rannsóknar
Sigurður
Sigurðarson
OLÍUFÉLAGIÐ hækkaði í gær
verð á eldsneyti. Lítrinn af bensíni
hækkaði um 1,80 krónur, lítrinn af
dísil- og gasolíu hækkar um 1,70
krónur, lítrinn af flota- og flotadís-
ilolíu hækkar um 1,80 krónur og
lítrinn af svartolíu IFO 30 hækkar
um 1 krónu. Eftir breytinguna
verður sjálfsafgreiðsluverð á stöð
með fullri þjónustu á höfuðborg-
arsvæðinu 127,90 krónur á bensíni
og 122,90 krónur á dísilolíu. Lítri af
95 oktana bensíni kostar með fullri
þjónustu 132,9 krónur. Önnur olíu-
félög höfðu ekki hækkað verð á
bensíni hjá sér í gærkvöldi. Skv.
upplýsingum Olíufélagsins er
hækkunin til komin vegna hækk-
unar á heimsmarkaðsverði á elds-
neyti og spáð sé frekari hækk-
unum.
Fjármálaráðherra, mælti í gær
fyrir frumvarpi á Alþingi sem gerir
ráð fyrir því að tímabundin lækkun
á olíugjaldi á dísilolíu um 4 krónur
verði framlengd til áramóta.
Esso hækkaði
verð á eldsneyti
KONA á fertugsaldri fótbrotnaði
illa er hún lenti undir hesti á
sveitabæ skammt fyrir utan Egils-
staði um kvöldmatarleytið í gær.
Var hún flutt með sjúkrabíl til Eg-
ilsstaða til aðhlynningar og var eft-
ir rannsókn send á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri. Er líðan
hennar eftir atvikum.
Hestakona hlaut
slæmt fótbrot