Morgunblaðið - 03.05.2006, Síða 4

Morgunblaðið - 03.05.2006, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRAMKVÆMDIR við byggingu Háskólatorgs Háskóla Íslands eru komnar á fullt skrið og er um þessar mund- ir verið að grafa grunninn. Aðeins er tæpur mánuður síðan fyrsta skóflustungan að torginu var tekin með pomp og prakt. Háskólatorg er samheiti tveggja bygginga á há- skólasvæðinu, sem verða samtals um 8.500 fm að stærð með tengibyggingum. Ætlað er að Háskólatorg hýsi á þriðja hundrað starfsmenn og um 1.500 stúdenta á hverjum tíma, auk gesta. Byggingarreitir Há- skólatorgs eru tveir í miðju háskólasvæðisins. Há- skólatorg 1 rís á grasflötinni milli Aðalbyggingar og Íþróttahúss HÍ þar sem nú er verið að grafa. Há- skólatorg 2 rís á bílastæðinu milli Lögbergs, Nýja Garðs og Odda. Vafalaust bíða margir óþreyjufullir eftir þessu nýj- asta húsnæði HÍ, en reiknað er með að vígja Há- skólatorg 1. desember 2007. Morgunblaðið/Eyþór Grafið fyrir Háskólatorgi FIMM falsaðir 500 króna seðlar fund- ust á Akranesi fyrir helgi, en svo virð- ist sem seðlarnir hafi verið prentaðir út á tölvuprentara og þeir því fremur augljósar falsanir. Jón Ólason, yfir- lögregluþjónn hjá Lögreglunni á Akranesi, segir að seðlarnir hafi fund- ist í sjóðum verslana grunnskólanna tveggja í bæjarfélaginu. Fyrstu seðlarnir fundust þegar maður kom í útibú KB banka á fimmtudag til að leggja inn peninga sem komið höfðu inn í verslun í grunnskóla. Í ljós kom að innan um seðla sem hann var með voru tveir falsaðir 500 krónu seðlar. Nokkru síð- ar komu svo fram þrír 500 króna seðl- ar til viðbótar frá hinum grunnskól- anum í bænum. Jón segir málið í rannsókn, og telur ástæðu til að fólk sé á varðbergi gagn- vart fölsuðum seðlum af þessu tagi. Málið er litið afar alvarlegum augum, en samkvæmt almennum hegningar- lögum varðar peningafals allt að 12 ára fangelsi. Falsaðir seðlar í grunn- skólum á Akranesi ÍSLENSKA sendiráðið í Þýska- landi reyndi eftir megni að aðstoða aðstandendur ljósmyndasýningar- innar Einnota land, sem opnuð var í Berlín sl. fimmtudag, og sendi m.a. út kynningarefni til um 50 fjölmiðlamanna að beiðni aðstand- enda sýningarinnar, segir Ólafur Davíðsson, sendiherra Íslands í Þýskalandi. Sendi fjölmiðlamönnum upplýsingar Ólafur segir það því ekki rétt að sendiráðið hafi ekki sent upplýs- ingar um sýninguna eins og óskað var eftir, eins og fram kom í viðtali við Guðmund Pál Ólafsson, einn höfund ljósmynda á sýningunni, í Morgunblaðinu á mánudag. Ólafur segir sendiráðið hafa ver- ið beðið um að dreifa upplýsing- unum til þeirra sem áhuga gætu haft á málinu, og sendiráðið því sent þeim fjölmiðlamönnum sem hafi verið í sambandi við sendiráð- ið upplýsingarnar. Einnig hafi ver- ið óskað eftir því að sendiráðið sendi upplýsingarnar til áhuga- manna um Ísland, sem og Íslend- inga í Þýskalandi, en sendiráðið hafi ekki verið með tiltækan lista yfir netföng af því tagi og því hafi það ekki verið gert. Guðmundur gagnrýndi enn- fremur að hvorki sendi- herra né ein- hver annar úr sendiráðinu hafi verið viðstaddur opnun sýningar- innar. Ólafur segir það eiga sér eðlilegar skýringar, bæði hann sjálfur og staðgengill hans hafi verið búnir að lofa sér annað á sama tíma, fyr- irvarinn hafi einfaldlega ekki verið nægur. Ólafur Davíðsson, sendiherra Íslands í Þýskalandi Reynt að aðstoða sýn- endur eftir fremsta megni Ólafur Davíðsson TOLLGÆSLAN á Keflavíkurflug- velli stöðvaði litháskan karlmann um þrítugt í Flugstöð Leifs Eiríkssonar (FLE) á dögunum, og fundust á hon- um þrjár flöskur sem reyndust fullar af amfetamíni í vökvaformi og tvær flöskur af brennisteinssýru, sem er notuð til að fullvinna amfetamín- vökva. Maðurinn var að koma frá London 26. febrúar sl. þegar hann var stöðv- aður, en hann hefur setið í gæslu- varðhaldi síðan. Hæstiréttur stað- festi í gær framlengingu á gæsluvarðhaldsúrskurðinum sem Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp á föstudag, en þar var maðurinn úr- skurðaður í gæsluvarðhald til 9. júní nk. Fram kemur í dómi Hæstaréttar að í flöskunum fimm hafi verið rétt rúmlega 2 lítrar af afar sterkum am- fetamínvökva. Samanlögð þyngd efnisins í duftformi hefði orðið tæp 2,4 kg með 100% hreinleika. Algeng- ur styrkleiki amfetamíns hér á landi er 10%, og hefði því mátt þynna efn- ið sem maðurinn reyndi að smygla út svo það yrði 17,5 kg í neyslustyrk- leika. Maðurinn var einnig með rétt rúman 1 lítra af brennisteinssýru í tveimur flöskum, en sýruna má nota til að vinna amfetamínvökvann. Drakk Perrier í tollinum Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins var um þrjár áfengisflöskur að ræða og tvær flöskur frá vatns- framleiðandanum Perrier, og mun maðurinn hafa verið að drekka úr samskonar vatnsflösku þegar toll- verðir stöðvuðu hann. Rannsókn lög- reglu á málinu er á lokastigi, en við- urlög við smygli af þessu tagi eru allt að 12 ára fangelsi, að því er fram kemur í dómi Hæstaréttar frá því í gær. Við komuna til landsins sagðist maðurinn hafa keypt flöskurnar á markaði í Litháen í þeirri trú að þær innihéldu löglega drykki. Hann sagði tilgang ferðarinnar að heimsækja vinkonu sína, en hann gat aðeins greint frá skírnarnafni hennar, og að hann hefði ætlað að ferðast um landið í fjóra daga. Sami vitorðsmaður og í svipuðu máli? Fram kemur í dómi Hæstaréttar að maðurinn var með tvo farsíma meðferðis en hann hafi ekki sagst muna símanúmerin eða pin-númer á símunum. Lögregla meti framburð mannsins afar ótrúverðugan, og tal- ið sé að hann hafi átt að afhenda flöskurnar óþekktum viðtakanda hér á landi. Tilraun mannsins til að smygla amfetamínvökva hingað til lands er talin tengjast tilraun annars Litháa til að smygla tveimur flösk- um af amfetamínvökva hingað til lands 4. febrúar. Hörður Jóhannes- son, yfirlögregluþjónn hjá Lögregl- unni í Reykjavík, segir að í fram- haldinu hafi litháskur maður búsettur hér á landi verið handtek- inn vegna gruns um tengsl við fyrri smygltilraunina. Telur lögreglan nú að hann tengist báðum smygltil- raununum. Í gæsluvarðhaldsúrskurði héraðs- dóms, sem Hæstiréttur staðfesti í gær, segir að nauðsynlegt sé að maðurinn sæti gæsluvarðhaldi sök- um almannahagsmuna meðan mál hans sé til meðferðar. Telja verði að ef sakborningur sem hafi orðið upp- vís að jafn alvarlegu broti og mað- urinn gangi laus áður en máli ljúki með dómi valdi það „hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund al- mennings“. Lithái tekinn með 3 flöskur af amfetamínvökva og 2 flöskur af brennisteinssýru Hefði dugað til að vinna 17,5 kg af amfetamíni Reyndi að smygla efninu í Perrier- vatnsflöskum og áfengisflöskum Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is LÖGREGLAN í Kópavogi stöðvaði ökumann fólksbíls á 161 km hraða á Reykjanes- brautinni á áttunda tímanum í gærmorgun, en á þeim kafla sem Reykjanesbrautin liggur í gegnum Kópavog er há- markshraðinn 70 km, og mað- urinn því á vel ríflega tvöföld- um hámarkshraða Að sögn lögreglu stöðvaði ökumaðurinn, karlmaður á þrítugsaldri, bílinn þegar hann varð var við eftirför lög- reglu og reyndi ekki að kom- ast undan. Hann má eiga von á því að missa ökuréttindin, auk þess sem hans bíður ríf- leg sekt. Ekki gaf ökumaðurinn neinar skýringar á ofsaakstr- inum, en lögregla segir hann hafa lagt bæði sjálfan sig og aðra í stórhættu með tiltæki sínu. Á 161 km hraða á Reykja- nesbraut UM 1.000 manns hafa sótt um þau 60–70 störf sem þegar hafa verið auglýst laus til umsóknar í álveri Alcoa á Reyðarfirði. Þegar hefur verið ráðið í um 40 störf. Fyrirtækið hefur undanfarið auglýst eftir starfsfólki, m.a. raf- virkjum og vélvirkjum, og segir Erna Indriðadóttir, talsmaður Al- coa, viðbrögðin hafa verið góð og í samræmi við það sem vænst hafi verið. „Það er stefnan til framtíðar að konur verði um helmingur starfs- manna en það er kannski ekki víst að það takist alveg í byrjun. Það gæti tekið tíma.“ 1.000 sóttu um 60 til 70 störf MEÐALVERÐ á greiðslumarki (mjólkurkvóta) er komið niður í 313 kr fyrir lítrann. Þróun verðs á greiðslumarki hefur verið niður á við að und- anförnu, verðið náði hámarki í fyrrasumar, yfir 400 kr fyrir lítr- ann. Um síðustu verðlagsáramót var það 380 kr og hefur verið lækk- andi síðan. Verðið hefur þó lítið breyst á síðustu þremur mán- uðum. Verð á mjólkur- kvóta lækkar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.