Morgunblaðið - 03.05.2006, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
NÝ heimasíða Spes samtakanna,
www.spes.is, var opnuð formlega í
gær, en samtökin vinna að því að
byggja upp barnaþorp í Afríkurík-
inu Tógó fyrir foreldralaus börn. Á
heimasíðunni verður að finna allar
upplýsingar um samtökin meðal
annars hvernig hægt er að verða fé-
lagi eða styrktarforeldri og hvernig
menn geta tekið þátt í starfsemi
samtakanna.
Það var Halldór Ásgrímsson, for-
sætisráðherra, sem opnaði vefinn
formlega í gær á leikskólanum
Grandaborg að viðstöddum börn-
unum þar og fleiri gestum. Við
sama tækifæri afhenti Magnús
Ólafsson, forstjóri Osta- og smjör-
sölunnar, stofnanda samtakanna
Nirði P. Njarðvík, samtökunum
einnar milljónar króna styrk.
Össur Skarphéðinsson, formaður
Spes samtakanna, sagði að nýi vef-
urinn væri gjöf til Spes samtakanna
frá margmiðlunar- og hönnunarfyr-
irtækinu Birtingarholti. Þar væri að
finna allar upplýsingar um það
hvernig hægt væri að ganga í sam-
tökin, gerast styrktarforeldri eða
láta fé af hendi rakna. Þar væri
einnig hægt að fá allar upplýsingar
um starfsemina í Tógó og skoða
myndbönd þaðan.
Engin yfirbygging
„Það er ákaflega mikilvægt fyrir
samtökin að njóta allrar þessarar
góðvildar og það er sannarlega
guðsþakkarvert að íslensk fyrirtæki
sem vel gengur sem betur fer flest-
um hafa sýnt okkur mikið örlæti og
taka okkur opnum örmum,“ sagði
Össur.
Hann sagði að í því sambandi
skipti ekki minnstu máli sú stað-
reynd að það væri engin yfirbygg-
ing hjá Spes samtökunum og nánast
hver einasti eyrir sem safnað væri
færi til að byggja hús yfir börnin í
þorpinu og til þess að reka heimilið
og mennta börnin.
„Starfið hefur gengið mjög vel.
Við erum búin að byggja þrjú hús
af átta. Það eru komin 50 börn og
við stefnum að því að ljúka fjórða
húsinu á þessu ári og þegar upp
verður staðið verða þarna tæplega
150 börn, sem eru að verulegu leyti
kostuð af örlátum Íslendingum og
hjartagóðum,“ sagði Össur enn-
fremur.
Forsætisráðherra opnaði heimasíðu Spes samtakanna í gær
Byggja upp barnaþorp í Tógó í Afríku
Össur Skarphéðinsson og Njörður P. Njarðvík ásamt börnum í Afríkuríkinu Tógó.
RÍKISSKATTSTJÓRI telur að leggja eigi niður
núverandi skattumdæmi í landinu og sameina
landið í eitt umdæmi. Umdæmaskipting sé óþörf
og úrelt þegar litið sé til starfshátta dagsins í
dag. Þá eigi að athuga með flutning á innheimtu
opinberra gjalda til skattkerfisins, en sú skipan
tíðkist víða og til álita komi að færa þann hluta
starfsemi Þjóðskrár sem lúti að íbúaskráningu
og rekstri og framfærslu skrárinnar frá Hag-
stofu og til skattkerfisins, þar sem það sé líklega
stærsti notandi skrárinnar og hafi haldið sam-
bærilegar skrár.
Þetta kemur fram í grein eftir Indriða H. Þor-
láksson, ríkisskattstjóra sem birt er í Tíund,
fréttablaði embættisins, en greinin er byggð á
erindi sem áður var flutt á vettvangi Félags ís-
lenskra endurskoðenda.
Óbreytt í nær 50 ár
Í greininni kemur fram að skipulag skatta-
stjórnsýslu hér á landi hefur verið óbreytt í nær-
fellt hálfa öld. Skipting landsins í skattaumdæmi
hafi að mörgu leyti reynst vel, en alltaf hafi öðru
hverju komið fram hugmyndir um að sameina
landið í eitt umdæmi, en þær ekki náð fram að
ganga. „Á vettvangi stjórnmála hafa slíkar til-
lögur eða skref í sameiningarátt af og til komið
fram í tengslum við sparnað og hagræðingu í
ríkisrekstri en aldrei fengið verulegan hljóm-
grunn hjá stjórnmálamönnum. Ekki þarf að efa
að byggðasjónarmið hafa haft mikið að segja í
þessu efni sem eðlilegt er. Vitað er að lítill póli-
tískur vilji er fyrir því að leggja niður starfsemi
á landsbyggðinni en hinu er ósvarað hvort nú-
verandi skipulag sé í raun og veru gott innlegg í
byggðastefnu,“ segir meðal annars.
Indriði rekur að tvö Norðurlandanna, Svíþjóð
og Danmörk, sem hafi búið við svipaða stjórn-
sýslu og hér, þ.e. skattumdæmi og miðlægt rík-
isskattstjóraembætti, hafi nýlega gert breyting-
ar í þessa veru. Skattstofunnar í umdæmunum
og hið miðlæga embætti hafi verið gert að einni
stofnun og landið að einu skattumdæmi. Þetta sé
þó gert án þess að sameina alla starfsemina á
einum stað, því í báðum löndunum hafi verið
ákveðið að halda uppi dreifðri starfsemi, á níu
stöðum í Svíþjóð og á um 30 stöðum í Dan-
mörku.
„Eitt stjórnvald og eitt stjórnsýsluumdæmi
felur í sér að einn aðili fer með skattastjórnsýslu
í öllu landinu. Engin svæðaskipting eða stiga-
skipting stjórnvalda er við lýði. Það kemur hins
vegar ekki í veg fyrir að starfseminni sé dreift
eftir því sem æskilegt þykir hvort sem það er
gert á grundvelli hagkvæmni í rekstri eða taki
mið af byggðastefnu. Meginhugsun þessara
skipulagshugmynda er að líta á skattafram-
kvæmd í víðtækum skilningi sem eina heild og
skipuleggja hana með almenn og heildstæð sjón-
armið í huga en láta ekki formleg eða land-
fræðileg sjónarmið ráða ferðinni. Markmið skatt-
yfirvalda er að tryggja rétta og samræmda
skattheimtu óháð búsetu og óháð því hver fram-
kvæmir hana. Markmið skattyfirvalda er að
veita sem besta þjónustu og þá skiptir ekki máli
hver veitir hana. Markmið skattyfirvalda er
einnig skilvirkni sem ekki næst nema með
sveigjanleika í dreifingu verkefna á starfsfólk og
nýtingu á aðföngum.“
Innheimta gjalda og íbúaskráning Þjóðskrár ætti að vera á hendi
skattayfirvalda sem stærsta notandans að mati ríkisskattstjórans
Landið verði eitt skattaumdæmi
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
ÍGOR Ívanov, framkvæmdastjóri
rússneska þjóðaröryggisráðsins,
kom til Íslands í fyrradag og dvald-
ist hér þar til í gær. Ívanov kom
hingað ásamt 30 manna fylgdarliði
en hann gisti á Hótel Keflavík. Ív-
anov, sem er fyrrverandi utanrík-
isráðherra Rússlands, var á leið
vestur um haf til fundar.
Samkvæmt upplýsingum frá
rússneska sendiráðinu í Reykjavík
þurfti vél Ívanovs að lenda hér af
tæknilegum ástæðum og ákvað
hann að dvelja hér á landi eina nótt.
Ívanov brá sér m.a. í Bláa lónið í
gærmorgun. Að sögn blaðafulltrúa
sendiráðsins lét hann vel af dvöl-
inni í Keflavík. og talaði um hve
gott væri að anda að sér hreina
loftinu hér á landi. Ívanov hefur
komið nokkrum sinnum áður til Ís-
lands.
Ígor Ívanov
heimsótti
Ísland
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Ígor Ívanov ásamt Steinþóri Jónssyni, hótelstjóra Hótels Keflavíkur.
FANGI á Litla Hrauni var sýkn-
aður af ákæru um fíkniefnabrot í
Héraðsdómi Suðurlands fyrir
helgi, en lítilræði af hassi hafði
fundist við leit í klefa hans. Taldi
dómari að þar sem fangar sjái
sjálfir um að læsa eigin klefum sé
ekki útilokað að einhver annar hafi
getað komið fíkinefnunum fyrir í
klefa mannsins.
Fangaverðir fundu 0,35 grömm
af hassi undir rúmdýnu mannsins,
auk þess sem lítilræði af hassi
fannst til viðbótar í lampa í klefa
mannsins, en aðeins var ákært
vegna efnana sem fundust í rúm-
inu. Maðurinn fékk ekki að vera
viðstaddur leitina, þar sem hann
var í einangrun á þessum tíma
vegna óláta.
Fram kom í framburði fanga-
varðar að síðan þetta tilvik kom
upp hafi verklagsreglum verið
breytt þannig, að fangar fái alltaf
að vera viðstaddir leit í klefum
þeirra, óski þeir þess.
Fanginn neitaði að eiga fíkniefn-
in, og við mælingar á þvagprufu
fundust engin merki um fíkniefni.
Hann sagðist telja að einhver ann-
ar fangi hafi komið hassinu fyrir í
klefa sínum, en fangarnir hafa
sjálfir lyklavöld að eigin klefum og
ráða því hvort þeir hafa þá læsta
eða ólæsta.
Ekki lögfull
sönnun á sekt
„Þó svo að ekkert þyki komið
fram sem styðji beinlínis við þá
fullyrðingu ákærða að fíkniefnum
hafi verið komið fyrir í klefa hans
án hans vitundar, annað en að
nokkur órói hafi verið og fíkni-
efnaneysla meðal fanga á deild-
inni, þykir ekki fyllilega verða loku
fyrir það skotið að fíkniefnunum
hafi verið komið fyrir undir rúm-
dýnu í klefa ákærða af öðrum en
ákærða sjálfum og þykir því ekki
vera komin fram alveg lögfull
sönnun fyrir sekt hans,“ segir í
dómi héraðsdóms.
Fanginn var því sýknaður af
ákæru um fíkniefnabrot og sak-
arkostnaður dæmdur á ríkissjóð.
Dóm héraðsdóms kvað upp Ásta
Stefánsdóttir, settur héraðsdóm-
ari. Sækjandi í málinu var Gunnar
Örn Jónsson, en verjandi ákærða
var Hilmar Ingimundarson hrl.
Fangi á Litla Hrauni
sýknaður af því
að eiga hass sem
fannst í klefa hans
Fékk ekki
að vera
viðstadd-
ur leitina