Morgunblaðið - 03.05.2006, Síða 11

Morgunblaðið - 03.05.2006, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 11 FRÉTTIR 8.15 - 9.00 Skráning og afhending gagna. 9.00 - 9.15 Setning: Jón Kristjánsson, félagsmálaráðherra. 9.15 - 9.50 Hegðun og heili – líffræði hegðunar. Pétur Lúðvíksson, barnalæknir Barnaspítala Hringsins. 9.50 - 10.25 Hegðun og umhverfi – áhrif uppeldis. Birna María Svanbjörnsdóttir, sérfræðingur HA. Kaffihlé 10.45 - 11.10 Hegðun ung- og smábarna. Gyða Haraldsdóttir, sálfræðingur MHB. 11.10 - 11.35 Eðlileg hegðun barna á leikskólaaldri. Hrönn Pálmadóttir, lektor KHÍ. 11.35 - 12.00 Eðlileg hegðun barna á grunnskólaaldri. Wilhelm Norðfjörð, sálfræðingur. Matarhlé 13.15 - 13.50 Helstu geðraskanir barna. Ólafur Ó. Guðmundsson, yfirlæknir BUGL. 13.50 - 14.25 Mat á hegðunarvanda – gildi taugasálfræðilegra prófa. Málfríður Lorange, sálfræðingur BUGL. 14.25 - 15.00 Hegðunar- og tilfinningavandi hjá börnum með fötlun. Solveig Sigurðardóttir, barnalæknir Greiningarstöð. Kaffihlé 15.20 - 16.00 Þjónusta við börn með geðraskanir – forvarnir til framtíðar. Geir Gunnlaugsson, barnalæknir og forstöðumaður MHB. Fundarstjóri: Pétrína Ó. Þorsteinsdóttir, aðstoðarmaður forstöðumanns á Greiningarstöð. 9.10 - 9.45 Atferlisgreining - áhrifaríkar leiðir til að hjálpa börnum að aðlagast námsumhverfi sínu. Dr. Zuilma Gabríela Sigurðardóttir, dósent HÍ. 9.45 - 10.20 Hugræn atferlismeðferð – hvenær, hvernig og fyrir hvern? Dr. Urður Njarðvík, sálfræðingur BUGL. Kaffihlé 10.50 - 11.25 PBS – stuðningur við jákvæða hegðun hjá börnum með fötlun. Hrund Sigurðardóttir og Þuríður Pétursdóttir, sálfræðingar Greiningarstöð. 11.25 - 12.00 Lyfjameðferð - stuðningur við aðra meðferð. Bertrand Lauth, barnageðlæknir BUGL. Matarhlé 13.15 - 13.50 Fræðsla og þjálfun fyrir foreldra. Gylfi Jón Gylfason, sálfræðingur Fræðsluskr. Reykjanesbæjar. 13.50 - 14.25 PMT – foreldraverkfærakassinn. Margrét Sigmarsdóttir, sálfræðingur Skólaskr. Hafnarfjarðar. - Stutt hlé - 14.30 - 15.00 Börn og samfélag. Stefán J. Hreiðarsson, forstöðumaður Greiningarstöðvar. 15.00 - 17.00 Móttaka og samvera námskeiðsgesta og fyrirlesara – léttar veitingar. Fundarstjóri: Ingibjörg Karlsdóttir, formaður ADHD samtakanna. Fimmtudagur 11. maí XXI. vornámskeið Grand Hóteli 11. og 12. maí 2006 Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins Hegðun – Erfðir og umhverfi Upplýsingar og skráning á www.greining.is eða í síma 510 8400. Skráningu lýkur 5. maí. Föstudagur 12. maí BROTTFALL starfsmanna í leik- skólum á milli áranna 2004 og 2005 var 25,8%. Mest ber á brottfalli meðal ófaglærðra starfsmanna. Alls hættu 839 ófaglærðir starfsmenn við uppeldi og menntun störfum á milli þessara tveggja ára eða þriðj- ungur af ófaglærðum starfsmönn- um við uppeldi og menntun í des- ember 2004. Hlutfallslega er mest brottfall meðal starfsmanna við ræstingar, en þar hefur meira en helmingur (50,9%) starfsmanna í desember 2004 hætt störfum í desember 2005. Brottfallið er hlutfallslega minnst meðal leikskólakennara, að- stoðarleikskólastjóra og deildar- stjóra. Það skal tekið fram, að hér er um tvær punktmælingar að ræða. Því koma starfsmenn, sem hófu störf árið 2005 og hættu störf- um fyrstu 11 mánuði ársins, ekki fram í tölunum, að því er segir í frétt á vef Hagstofu Íslands. Þar kemur fram að í desember 2005 störfuðu 4.735 starfsmenn í 3.935 stöðugildum við leikskóla á Íslandi. Árið áður störfuðu 4.703 starfsmenn í 3.872 stöðugildum og hefur því starfsmönnum fjölgað um 32 milli ára. Körlum fækkaði um fjóra, en konum fjölgaði um 36. Stöðugildum hefur fjölgað meira en starfsmönnum eða um 63, og hafa því starfsmenn bætt við sig vinnu frá síðasta ári. Þegar litið er til árs- ins 1998 voru 41,5% starfsfólks í leikskólum í fullu starfi eða meira. Í desember sl. var þetta hlutfall orðið tæp 50% (49,6%). Starfsmönnum í fullu starfi hefur því fjölgað nokkuð hlutfallslega á þessu árabili. Starfsfólki við uppeldi og mennt- un barna sem lokið hafa uppeldis- menntun fjölgar frá árinu 2004 og ófaglærðu fólki fækkar. Menntaðir leikskólakennarar eru hlutfallslega fleiri nú en nokkru sinni áður síðan Hagstofan hóf að safna þessum upplýsingum árið 1998. Nú eru 33,0% allra starfsmanna, sem sinna uppeldi og menntun barna í leik- skólum, með leikskólakennarapróf. Auk þess hafa 0,8% starfsfólks við uppeldi og menntun lokið diplóm- anámi í leikskólakennarafræðum og 5,6% hafa aðra uppeldismenntun. Alls hafa því 39,4% starfsfólks lokið námi á sviði uppeldisfræða. Fjölgun í elstu og yngstu aldurshópum starfsmanna Þegar litið er á aldurskiptingu starfsmanna kemur fram að fjöl- mennasti aldurshópurinn er 30-39 ára. Frá árinu 1998 til 2004 var ald- urshópurinn 20-29 ára fjölmennast- ur meðal leikskólastarfsmanna. Alls voru 168 starfsmenn yngri en 20 ára í desember 2005, en sam- svarandi tala árið á undan var 105 starfsmenn. Hefur því starfsmönn- um í þessum aldurshópi fjölgað um 63 eða um 60,0%. Starfsmenn, sem eru sextugir eða eldri, eru 230 eða 4,9% starfs- manna. Ekki hafa áður verið svo margir starfsmenn í þessum ald- urshópi og hefur þeim fjölgað um 6,5% frá desember 2004. Starfs- menn, sem eru sextugir eða eldri við uppeldi og menntun á leikskól- um, eru 3,9% starfsmanna á þessu sviði, en sambærilegar tölur frá grunnskólum sýna að 7,1% starfs- manna við kennslu eru sextugir eða eldri. Rúmur fjórðung- ur starfsmanna hætti í fyrra Morgunblaðið/Ómar Vinkonurnar Hekla, Halla Marta og Freyja á leikskólanum Sæborg blása sápukúlur. Samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar voru tæplega 17 þúsund börn á leikskólum í lok seinasta árs og hafa leikskólabörn aldrei verið fleiri. ALLS sóttu 16.864 börn leikskóla á Íslandi í desember sl. og hafa leikskólabörn aldrei verið fleiri. Leik- skólabörnum hefur fjölgað um 109 börn frá desember 2004 eða um 0,65%. Þetta er nokkru meiri fjölgun en á milli áranna 2003 og 2004 þegar fjölgunin var 0,4%. Í frétt frá Hagstofu Íslands kemur fram að börnum, sem hafa annað móðurmál en íslensku, fjölgar ár frá ári og eru nú 1.250 talsins, eða 7,4% allra leikskóla- barna. Algengasta erlenda móðurmál leikskólabarna er pólska (189 börn) og í öðru sæti er enska (159 börn). Í grunnskólum landsins er hlutfall barna, sem hafa annað móðurmál en íslensku, haustið 2005 3,6%. Í des- ember 2005 eru 275 leikskólabörn skráð með erlent ríkisfang og eru flestir erlendir ríkisborgar frá Austur- Evrópu, 51,6%. Í desember 2005 nutu 907 börn sérstaks stuðnings vegna fötlunar, félagslegra eða tilfinningalegra erf- iðleika. Þetta eru 5,4% allra leikskólabarna. Börnum, sem njóta sérstaks stuðnings, fækkaði á milli ára annað árið í röð og er fækkunin 77 börn frá desember 2004. Á síðastliðnum tveimur árum hefur börnum, sem njóta sérstaks stuðnings, fækkað um 174 eða um 16,1%. Starfandi leikskólar voru 262 talsins og er það sami fjöldi og í desember 2004. Stofnaðir voru 4 leikskólar á árinu og 4 leikskólar voru sameinaðir öðrum eða lagðir niður. Alls sóttu 1.542 börn nám í 28 einkareknum leik- skólum og hefur þeim fjölgað úr 1.492 árið áður, eða um 3,35%. Alls voru 20 leikskólar opnir allt árið 2005 sem er svipaður fjöldi og árið á undan. Algengast er nú að leikskólar séu lokaðir í 1–2 vikur yfir sumarið vegna sumarleyfa. Er það breyting frá síðastliðnu skólaári þegar flestir leikskólar voru lokaðir í 3–4 vikur. Al- menna reglan á leikskólum er sú að barn taki 4 vikur samfellt í sumarfrí. Því hafa foreldrar nokkru meira val um það hvenær börnin fara í sumarleyfi en árið áð- ur. Í fámennasta leikskólanum eru 5 börn Leikskólar eru mjög misfjölmennir og eru aðeins nokkur börn í fámennustu leikskólunum. Sá fámenn- asti er Glaumbær á Borgarfirði eystra með 5 börn. Í 24 leikskólum eru færri en 20 börn. Í fjölmennustu leik- skólunum eru á annað hundrað nemendur. Fjölmenn- ustu leikskólar landsins eru Stekkjarás í Hafnarfirði og Krakkakot í Bessastaðahreppi en 167 börn sækja hvorn leikskóla fyrir sig. Í 37 leikskólum á landinu eru 100 börn eða fleiri. Aldrei fleiri börn í leikskólum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.