Morgunblaðið - 03.05.2006, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 15
ERLENT
JAMES D. Wolfensohn, sem verið hefur
sérstakur sendimaður kvartettsins svo-
kallaða í málefnum Ísraela og Palest-
ínumanna undanfar-
ið ár, hefur sagt af
sér, þar sem hann
segir valdatöku Ha-
mas-samtakanna á
palestínsku sjálf-
stjórnarsvæðunum
standa í vegi fyrir
öllum tilraunum til
lausnar á deilum Ísr-
aela og Palestínu-
manna.
„Palestínumenn verða að skilja það að
það er ekki hægt að halda áfram eins og
ekkert hafi í skorist,“ sagði Wolfensohn
skv. ísraelska dagblaðinu Haaretz er
hann tilkynnti ákvörðun sína, en Wolf-
ensohn var áður forstjóri Alþjóðabank-
ans.
„Við stöndum frammi fyrir hópi Pal-
estínumanna sem vilja eyða nágrönnum
sínum. Væri viðhorf Kanada til Banda-
ríkjanna slíkt eða viðhorf Nýja-Sjálands
til Ástralíu, geri ég ekki ráð fyrir að við-
brögðin yrðu jákvæð,“ sagði Wolfen-
sohn ennfremur. Kvartettinn svonefndi
samanstendur af Sameinuðu þjóðunum,
Bandaríkjunum, Evrópusambandinu og
Rússlandi.
Wolfensohn sagði töluverðan árangur
hafa náðst í fjárhagslegri uppbyggingu
Gasasvæðisins eftir brotthvarf Ísraela
þaðan í september, en eftir valdatöku
Hamas á sjálfstjórnarsvæðunum sé
ástandið þannig, að æðstu ráðamenn, en
ekki sendimaður eins og hann, verði að
taka ákvarðanir um framhaldið.
Wolfensohn
segir af sér
Sendir leiðtogum
Hamas tóninn
James Wolfensohn
SILVIO Berlusconi (t.v.), forsætisráðherra Ítal-
íu, sagði af sér embætti í gær og mun Romano
Prodi, leiðtogi vinstri- og miðjumanna, geta haf-
ið myndun nýrrar stjórnar. Mun Berlusconi,
sem er 69 ára og auðugasti maður landsins,
gegna starfinu áfram þar til ný stjórn kemst á
koppinn en Berlusconi hefur gegnt embættinu í
fimm ár, lengur en nokkur forsætisráðherra
Ítalíu frá 1945. Berlusconi er forystumaður í
bandalagi mið- og hægrimanna, hann afhenti
forseta Ítalíu, Carlo Azeglio Ciampi (t.h.), upp-
sagnarbeiðni sína.
Sjálfur er Ciampi 85 ára og er að hætta sem
forseti, hann mun helst vilja að eftirmaður hans
hafa umsjón með stjórnarskiptunum en þingið
kýs forseta Ítalíu.
Ciampi er hins vegar undir miklum þrýstingi
um að fela Prodi þegar stjórnarmyndun.
Berlusconi afhendir
lausnarbeiðnina
Reuters
París. AP, AFP. | Dominique de Villepin, for-
sætisráðherra Frakklands, segist ekki
munu segja af sér embætti þótt staða hans
sé nú veikari en nokkurs fyrirrennara í
fjóra áratugi, ef marka má kannanir. „Ekk-
ert réttlætir að ég hætti núna,“ sagði ráð-
herrann í útvarpsviðtali í gær.
Hann liggur meðal annars undir ásök-
unum um að hann hafi fyrirskipað rann-
sókn á meintri spillingu Nicolas Sarkozy
innanríkisráðherra til að koma á hann
höggi. Sarkozy er helsti keppinautur de
Villepin um útnefningu sem forsetaefni
hægrimanna í kosningunum sem verða á
næsta ári. Ásakanirnar reyndust ekki eiga
við nein rök að styðjast.
Forsætisráðherrann beið auk þess
hnekki fyrir skömmu þegar hann varð að
gefa upp á bátinn breytingar á frönsku
vinnumálalöggjöfinni í kjölfar hatrammra
fjöldamótmæla. Hann sagði á franska
þinginu í gær að hann hefði verið fórnar-
lamb rógsherferðar.
„Ég hef þjónað mínu landi í 30 ár,“ sagði
de Villepin. „Undanfarna daga hef ég verið
fórnarlamb ægilegrar herferðar rógburðar
og lyga, herferðar sem hefur bæði hneyksl-
að og skaðað mig. Nú er nóg komið,“ sagði
hann. De Villepin hefur sagt að hann hafi
sem utanríkisráðherra árið 2004 fyrirskip-
að rannsókn á fullyrðingum sem var beint
gegn embættismönnum í innanríkisráðu-
neytinu, en hann segist ekki hafa beint
þessu sérstaklega gegn Sarkozy. Málið
snerist um mútur í tengslum við sölu á her-
skipum til Taívans.
Sarkozy hefur á hinn bóginn verið sak-
aður um útlendingahatur og mismunun, en
í nýju innflytjendalagafrumvarpi er tekin
harðari afstaða gagnvart ólöglegum inn-
flytjendum. Sarkozy segir eins og de
Villepin að hann sé fórnarlamb rógbera.
Segjast vera
fórnarlömb
rógbera