Morgunblaðið - 03.05.2006, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 03.05.2006, Qupperneq 18
Akureyri | Gaman var á fjöl- mennu fimleikamóti í íþróttahúsi Glerárskóla um síðustu helgi. Það var Fimleikafélag Akureyr- ar sem gekkst fyrir samkom- unni, sem kölluð var Akureyr- arfjör 2006, en keppendur voru frá Björk í Hafnarfirði og Gerplu í Kópavogi auk stelpna frá Fim- leikafélagi Akureyrar. Þessi unga stúlka á jafnvægisslánni heitir Aldís María Antonsdóttir úr Fimleikafélagi Akureyrar. Þjálfari hennar, Erla Ormarrs- dóttir, stendur við slána. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Vel heppnað Akureyrarfjör Fimleikar Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Syngja fyrir Grindvíkinga | Tónleika- hald Karlakórs Keflavíkur á þessu vori hefst í Grindavíkurkirkju í kvöld. Á morgun verða tónleikar í safnaðarheimili Keflavík- urkirkju, Kirkjulundi, og aftur þriðjudag- inn 9. maí. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30. Farið verður í vorferð til Vest- mannaeyja og sungið í samkomuhúsinu Betel 6. maí. Stjórnandi kórsins er Guðlaugur Vikt- orsson en þetta er annað starfsár hans með kórnum. Undirleikari á píanó er Sigurður Marteinsson og Þórólfur Ingi Þórsson leik- ur á bassa. Á harmoniku leikur Rússinn German Hlopin. Gestasöngvari með kórn- um verður Davíð Ólafsson bassi. Úr bæjarlífinu Kristján heiðraður | Verkalýðsfélag Húsavíkur gerði Kristján Ásgeirsson, fyrr- verandi formann félagsins, að heiðursfélaga við dagskrá stéttarfélaganna í Suður- Þingeyjarsýslu sem fram fór á Fosshót- eli Húsavík um leið og minnst var 95 ára afmælis félagsins. Grétar Þor- steinsson, forseti ASÍ, var heiðraður við sama tækifæri. Kristján Ásgeirs- son sat í stjórn Verkalýðsfélags Húsavíkur frá árinu 1964 til ársins 1991, lengst af sem formaður eða varaformaður. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, var sérstakur gestur við hátíðahöldin ásamt Sævari Gunnarssyni, formanni Sjómanna- sambands Íslands. Hátíðahöldin voru fjölmenn og var tón- listarflutningur áberandi í dagskránni. Ungmennaráð stofnað | Samfés, sam- tök félagsmiðstöðva á Íslandi, hafa ákveðið að stofna ungmennaráð Samfés. Tillaga þess efnis var samþykkt á aðalfundi sam- takanna sem haldinn var í Ólafsvík. Fulltrúar undirbúningshóps ungmenna á aldrinum 13 til 16 ára sem skipaður var á Landsþingi ungs fólks í apríl flutti tillög- una. Fram kemur í tilkynningu frá Samfés að ungmennaráðið mun taka til starfa á komandi hausti. Á aðalfundinum var Ólafur Þór Ólafsson endurkjörinn formaður Samfés. Sú nýbreytni verðurtekin upp hér álandi að hægt verð- ur að flokka lífrænan úr- gang frá tjaldsvæðum og jarðgera á staðnum í tveimur þjóðgörðum, Jök- ulsárgljúfrum og Skafta- felli. Það er Byko sem gefur Umhverfisstofnun ílátin 6 og afhenti á al- þjóðlega degi umhverf- isins þann 25. apríl. Sett verða upp þrjú jarðgerð- arílát á þessum stöðum. Þar geta tjaldsvæðagestir lagt sitt af mörkum í um- hverfismálum og hjálpað til við sjálfbæra nýtingu úrgangs með því að flokka matarleifar sínar í stað þess að setja allt í ruslatunnu. Með jarðgerð er hægt að búa til moltu sem má nota við upp- Jarðgerðar- tunnur á tjald- svæðum í þjóðgörðum Prestaþing ályktaði,að Knattspyrnu-sambandið skyldi beita sér gegn vændi á heimsmeistaramótinu í Berlín í sumar. Í viðtali við ríkisútvarpið svaraði Eggert Magnússon, for- maður KSÍ, því til, að prestunum væri nær að líta í eigin barm. Karl af Laugaveginum kvað: Fótboltans um víðan völl vilja hórur allar. Prestahirðin hneykslast öll. Hræðist Eggert veisluspjöll: „Þeir ættu að líta í eigin barm þeir kallar.“ Einn mann skorti á að hreppur í Skagafirði hefði rétt á að vera sjálf- stætt sveitarfélag en gamall maður í hreppn- um hafði þá nýlega dáið. Um svipað leyti eignaðist oddvitinn barn og voru þá eftir sem áður 50 í hreppnum. Jón Eiríksson Drangeyjarjarl orti: Lífs og dauða skörp eru skil, skreipt er á valdasvelli. Barn í nauð skal búa til svo byggðin haldi velli. Skil lífs og dauða pebl@mbl.is Bolungarvík | Ákveðið hefur verið að Líf- eyrissjóður Bolungarvíkur sameinist Frjálsa lífeyrissjóðnum sem KB banki rekur. Var þetta ákveðið á ársfundi Lífeyr- issjóðsins sem haldinn var sl. föstudag og þá undirritaði stjórn sjóðsins og fram- kvæmdastjóri Frjálsa lífeyris- sjóðsins samn- inga þar um. Markmiðið með sameiningunni er að auka áhættudreifingu, ná frekari hagræð- ingu í rekstri, efla eignastýringu sjóð- anna, bæta þjónustu við sjóðfélaga og há- marka lífeyrisréttindi þeirra, segir í fréttatilkynningu frá Lífeyrissjóði Bol- ungarvíkur. Við sameininguna munu eignir 4 þúsund sjóðfélaga Lífeyrissjóðs Bolungarvíkur, sem nema um 2,9 millj- örðum króna, flytjast í tryggingadeild Frjálsa lífeyrissjóðsins. Samhliða undirritun samnings um sam- eininguna var undirritaður þjónustusamn- ingur á milli Frjálsa lífeyrissjóðsins og Sparisjóðs Bolungarvíkur um starfandi fulltrúa sem mun þjónusta sjóðfélaga og launagreiðendur í Bolungarvík og ná- grenni. Sameinast Frjálsa lífeyr- issjóðnum Sameining Arnaldur Lofts- son og Elías Jónatansson staðfesta samninga. Þingeyjarsýsla | Íbúar nýs sveitarfélags í Þingeyjarsýslum velja á milli þriggja nafna samhliða kosningu til sveitarstjórnar í maí. Nöfnin eru Gljúfrabyggð, Norðaustur- byggð og Norðurþing. Vegna sameiningar Húsavíkurbæjar, Kelduneshrepps, Öxarfjarðarhrepps og Raufarhafnarhrepps, var skipuð verkefn- isstjórn til að fjalla um heiti sveitarfé- lagsins. Í tilkynningu frá nefndinni kemur fram að hún hafi sent örnefnanefnd fjórtán tillögur til umsagnar. Örnefndanefnd mælti með þeim þremur sem greint er frá hér að framan og verða greidd atkvæði um þau 27. maí, um leið og íbúarnir kjósa fyrstu sveitarstjórn hins nýja sveitarfé- lags. Gljúfrabyggð, Norðausturbyggð eða Norðurþing ♦♦♦ græðslustörf enda eft- irsóttur jarðvegsbætir sem víða er mikil þörf á í íslenskum jarðvegi. Leiðbeiningar um flokkun og jarðgerð á tjaldsvæðum í Jökulsárgljúfrum og Skaftafelli verður hægt að fá í afgreiðslum tjald- svæðanna í sumar. Íslensk stjórnvöld hafa með aðild sinni að EES undirgengist tilskipun frá Evrópusambandinu sem inniheldur stífar skuld- bindingar um að minnka þann lífræna úrgang sem fer til urðunar á næsta áratug. Hér er dæmi um samevrópska löggjöf sem í æ ríkari mæli freistar þess að gera efnabúskap í álfunni vistvænni. Líf- rænum úrgangi skal ekki lengur sópað undir teppið heldur ráðstafað inn í góðkynja ferli í mannlegu samfélagi, segir í frétta- tilkynningu. HÉÐAN OG ÞAÐAN      

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.