Morgunblaðið - 03.05.2006, Síða 23

Morgunblaðið - 03.05.2006, Síða 23
Natasa hefur náð mjög góðum tökum á íslensk- unni á þeim sjö árum sem hún hefur búið hér. Það er æðislegt fólk ogmjög fallegt landið,“ seg-ir Natasa Desnica, líf-efnafræðingur í erfða- rannsóknum hjá Íslenskri erfðagreiningu. Í kjölfar þessara orða skellihlær hún og bætir því við að svo gaman sé að segja þetta því nákvæmlega þetta vilji allir Ís- lendingar heyra. Athygli vekur að hún talar afskaplega góða ís- lensku. „Í júlí er ég búin að búa á Ís- landi í sjö ár,“ segir Natasa. „Ég hef verið mjög heppin með fólkið sem ég hef kynnst hérna, bæði í vinnu og utan,“ bætir hún við. Natasa kom hingað ásamt serbn- eskum eiginmanni sínum og börn- in þeirra tvö eru fædd á Íslandi. „Við sem hér vinnum spjöllum saman um alla heima og geima,“ segir hún þegar hún er spurð hvort hún leggi sig fram við að kynna landið sitt, Serbíu, fyrir samstarfsfólkinu. „Ég fer mjög oft til Serbíu, þar eru foreldrar mínir og mannsins míns. Við viljum líka að börnin okkar kynnist landinu okkar. Við segjum svo frá ferð- unum og landinu í vinnunni.“ Matarmenningin í Serbíu er talsvert ólík íslenskri. „Ég er mjög sátt við matarmenninguna hérna,“ segir Natasa prakk- aralega, „það er allt svo fljótlegt. Serbnesk matargerð tekur svo langan tíma.“ Að þessu sögðu skellir hún upp úr. „Jú, ég er mjög sátt.“ Einhverjar hefðir hefur hún þó haldið í. „Við gerum stundum eitt- hvað týpískt serbneskt en dags daglega er þetta einhver blanda af serbnesku og íslensku.“ Kökuklúbbur og matarklúbbur Þar sem Natasa er með tvö lítil börn hefur hún verið heimavinn- andi að miklu leyti undanfarin ár. „Ég gerði talsvert meira utan vinnu áður en ég eignaðist börnin. Þá voru líka fleiri erlendir starfs- menn hérna hjá deCode,“ segir hún. „Þá var fólkið duglegra að hittast og halda veislu.“ Natasa er þrátt fyrir það í matarklúbbi með starfsmönnum deildarinnar sem hún vinnur á. „Já, við erum með matarklúbb, við hittumst í heima- húsi og eldum saman. Við erum líka með kökuklúbb í vinnunni. Í honum eru kona frá Frakklandi og Íslendingar, líka ein kona frá Bandaríkjunum, önnur serbnesk og Breti. Einu sinni í viku kemur einhver með köku eða eitthvað annað gott. Það er reyndar ekki bara í deildinni, heldur erum við tíu í kökuklúbbnum úr öllum deildum.“ Natasa segir að sér finnist mjög skemmtilegt að vera í matar- og kökuklúbbunum og slíkt verði til þess að fólk hittist á öðr- um forsendum en bara tengt vinnunni. Natasa starfaði á sjúkrahúsi í Serbíu áður en hún kom til starfa hjá Íslenskri erfðagreiningu. Í lokin gefur hún upp tvær upp- skriftir að einföldum serbneskum réttum sem hún segir að hafi gef- ist vel að bjóða upp á í köku- klúbbnum annars vegar og mat- arklúbbnum hins vegar. Bajadera 200 g sykur 2 dl vatn 200 g valhnetur (helst úr dós), smátt saxaðar 200 g kex, t.d. matarkex, mulið 200 g smjör 100 g suðusúkkulaði Hitið vatn, bætið í sykri og smjöri og látið bráðna. Bætið kexi og valhnetum saman við. Hellið deiginu í form og kælið í ísskáp. Bræðið súkkulaði og þekið kökuna þegar hún hefur kólnað. Fylltar paprikur 1 stk laukur 500 g nauta- eða svínahakk 6 rauðar paprikur 1 dós niðursoðnir tómatar salt og pipar eftir smekk 1 tsk paprikuduft hnefafylli af hrísgrjónum Saxið lauk og steikið á pönnu þar til hann verður glær. Bætið við hakki og kryddi og steikið áfram í u.þ.b. 15 mín. Bætið hrís- grjónum við og hrærið vel. Skolið paprikur, skerið toppinn af þeim og hreinsið fræ innan úr. Fyllið paprikurnar með hakkblöndunni og raðið í eldfast mót. Hellið tómötunum yfir paprikurnar og bætið svo dálitlu vatni út í mótið. Eldist við 180°C í 2–2½ klst. Eru með köku- klúbb og matar- klúbb í vinnunni Morgunblaðið/Eyþór Natasa Desnica MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 23 DAGLEGT LÍF Í MAÍ Sheer Driving Pleasure BMW X5 www.bmw.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.