Morgunblaðið - 03.05.2006, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 25
MENNING
TONO.IS
Innritun
2006–2007
í
Tónlistarskólann
í Reykjavík
Grandagarði 2, sími 580 8500
Aliner eða A-hús eru afar þægileg og vönduð að allri
gerð. Þau eru einangruð í hliðum og þaki og það tekur
innan við mínútu að reisa vagninn og gera hann kláran.
Smá að utan, rúm að innan.
A-liner
Fremst meðal jafningja
Tryggðu þér A-hús
á gamla genginu
til 9. maí
Opið
virka daga 10 – 18
laugardaga 10 – 16
sunnudaga 12 – 16
JÚLÍA Mogensen sellóleikari
heldur útskriftartónleika sína í
Salnum í kvöld kl. 20.
Á efnisskránni eru verk eftir
Bach, Max Bruch, Beethoven og
Hans Werner Henze. Gerrit
Schuil píanóleikari leikur með
henni á tónleikunum.
„Þetta er fjölbreytt efnisskrá
með verkum frá ólíkum tímabil-
um. Fyrir hlé verð ég með bar-
okk og rómantík, og eftir hlé er
það 20. aldar tónlist og klassík,“
sagði Júlía í samtali við Morg-
unblaðið. Meðal verka á efnis-
skránni eru tvö stór einleiksverk,
fyrsta sellósvíta Bachs í heild, og
serenaða í níu köflum eftir Hans
Werner Henze, sem sjaldan er
flutt.
Í febrúar síðastliðnum flutti
Júlía sellókonsert Saint-Saëns
með Sinfóníuhljómsveit Íslands
undir stjórn Rumon Gamba.
Hvernig upplifun var það?
„Það var mjög skemmtilegt, og
mikil reynsla sem maður fékk,“
svarar hún og bætir við að tón-
leikarnir nú séu aðeins öðruvísi.
„Nú þarf maður einn að halda
áhuga áheyrenda í klukkutíma.
Það er næstum meira krefjandi,
að minnsta kosti öðruvísi.“
Júlía heldur til London í haust
og hefur framhaldsnám við
Guildhall School of Music and
Drama. Þar var hún skiptinemi
síðasta haust og veit því að
hverju hún gengur, en segist
engu að síður hlakka mjög til
brottfararinnar.
„Þetta er mjög góður skóli
með frábærum kennurum, þannig
að ég hlakka vissulega mjög til.“
Útskriftartónleikar LHÍ | Júlía Mogensen
Á leið í framhaldsnám í Guildhall
Morgunblaðið/Eyþór
Júlía Mogensen
NÝJAR íslenskar óperur eru ekki
daglegt brauð og því var kærkom-
in tilbreyting að sjá uppfærsluna á
óperunni Mærþöll eftir Þórunni
Guðmundsdóttur á laugardags-
kvöldið.
Óperan er hugsuð fyrir nem-
endur Tónlistarskólans í Reykja-
vík og er eftir því minni í sniðum
en hefðbundnar óperur, t.d. er
enginn kór og hljómsveitin er
smágerð. Söguþráðurinn byggist á
Mærþallar sögu, sem er íslenskt
ævintýri, en þar er fjöldi kvenper-
sóna. Sagan hentar því prýðilega
nemendaóperu; talsvert fleiri
stúlkur stunda söngnám en piltar.
Það fyrsta sem maður tók eftir
á sýningunni var hve tónlistin var
einföld. Ekkert í henni kom á
óvart; tónmálið var hefðbundið og
laglínurnar söngvænar. Þrátt fyrir
það voru melódíurnar aldrei sér-
lega grípandi og því er ekki hægt
að segja að músíkin ein og sér hafi
rist djúpt. En hún átti varla að
gera það; fyrst og fremst var hún
sniðin að getu mislangt kominna
söngnemenda og varð ekki annað
heyrt en það hefði tekist ágæt-
lega, a.m.k. stóðu nemendurnir sig
vel.
Og ópera er meira en tónlist;
hún er líka leikrit og það var þar
sem verkið hitti beint í mark. Sag-
an um hertogadótturina Mærþöll,
sem er í álögum vegna illsku karl-
mannslausrar álfkonu, var það
fyndin og leikin af svo kostulegum
tilþrifum af söngnemendum skól-
ans, að áheyrendur veltust um af
hlátri.
Var leikgleðin slík að takmörk-
uð söngkunnátta nemendanna
varð bara sjarmerandi, og er
greinilegt að leikstjórinn, Hrefna
Friðriksdóttir, hefur náð góðum
tökum á krökkunum.
Auk þess voru búningar ein-
staklega smekklegir og féllu
prýðilega að fallegri sviðsmynd-
inni. Ekki er því annað hægt en
að gefa sýningunni hæstu ein-
kunn.
Mærþöll hentar fullkomlega
takmörkuðu rými Íslensku óp-
erunnar.
Væri ekki tilvalið fyrir atvinnu-
söngvara og hljóðfæraleikara að
setja verkið upp þarna næsta vet-
ur?
Fyndin
ópera
TÓNLIST
Íslenska óperan
Mærþöll eftir Þórunni Guðmundsdóttur.
Flytjendur voru nemendur Tónlistarskól-
ans í Reykjavík undir stjórn Kjartans Ósk-
arssonar. Leikstjórn: Hrefna Friðriks-
dóttir. Laugardagur 22. apríl.
Nemendaópera
Jónas Sen
Á MORGUN verður frumsýnt á Litla sviði Þjóð-
leikhússins nýtt leikverk fyrir börn sem ber heitið
Nú skyldi ég hlæja, væri ég ekki dauður. Sýningin
er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Nemenda-
leikhússins og jafnframt síðasta sýningaverkefni
lokaársnema við leiklistardeild LHÍ sem munu út-
skrifast í vor. Verkið er unnið úr fjölmörgum
þekktum og minna þekktum íslenskum þjóðsögum
en leikstjórn er í höndum Ágústu Skúladóttur sem
jafnframt vann verkið í samvinnu við Völu Þórs-
dóttur og leikhópinn. Áður hefur leikhópurinn sýnt
verkin Forðist okkur og Þrjár systur og hlotið mik-
ið lof fyrir. Leikendur eru Birgitta Birgisdóttir,
Dóra Jóhannsdóttir, Halldóra Malín Pétursdóttir,
Jörundur Ragnarsson, Magnea Björk Valdimars-
dóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Sveinn Ólafur
Gunnarsson og Víðir Guðmundsson.
Fjölþætt þjóðsagnasyrpa
„Við erum búin að búa til mjög fallegan æv-
intýraheim úr íslenskum þjóðsögum og tveimur
þulum,“ segir Ágústa leikstjóri en meðal sagna sem
verða í verkinu eru Nú skyldi ég hlæja, væri ég
ekki dauður, Bakkabræður, Gilitrutt, Búkolla,
Neyttu á meðan á nefinu stendur, Púkinn og fjósa-
maðurinn, Sagan af Helgu og systrum hennar og
Bláskelin. Hvert atriðið er borið fram á fætur öðru
í syrpu sem endist í rúman klukkutíma. Einnig
koma fyrir þulurnar „Tunglið, tunglið taktu mig“
og „Fuglinn í fjörunni“.
„Við erum mjög trú sögunum og erum lítið að
róta í þeim,“ segir Ágústa en vill þó meina að þau
notist við fjölbreyttar og nútímalegar frásagn-
araðferðir við að miðla þessum sögum til áhorf-
enda. Þannig gætir t.d. sterkra áhrifa úr heimi
teiknimyndasagna í einhverjum sögunum og í öðr-
um má sjá áhrif kvikmynda og goðsagna. Þarna
mætast tröll, draugar, huldufólk og hvers kyns
þorparar í sögum sem ýmist eru bráðfyndnar,
draumkenndar eða eilítið óhugnanlegar. Útlit
verksins er að mestu unnið af Þórunni Elísabetu
Sveinsdóttur, búningshönnuði, og Frosta Friðriks-
syni sem hannar leikmyndina. Ragnhildur Gísla-
dóttir semur tónlistina í sýningunni en leikhóp-
urinn sjálfur sér um að flytja hana.
Þar sem allt getur gerst
„Okkur datt eiginlega fyrst í hug að vinna verk
út frá íslenskum þjóðsögum þegar við fórum að
huga að barnasýningu fyrir leikhópinn. Þar er líka
hægt að nálgast ógrynni af efni sem hentar börnum
jafnt sem fullorðnum,“ segir Ágústa og ítrekar að
sýningin hæfi öllum aldurshópum. „Þetta er mikið
sprell en líka ljóðrænt og fallegt. Fyndið og líka
óhugnanlegt. Í þessum galdraheimi getur allt
gerst,“ segir hún kímin. Áður en hún tók að sér
þetta verkefni hafði hún leikstýrt barnaverkinu
Grimms hjá Leikfélagi Kópavogs sem byggist á
Grimms ævintýrum og auk þess leikstýrði hún
verki sem byggist á ævintýrum HC Andersen í
Þjóðleikhúsinu sem heitir Kóngar og klaufsdætur.
Ágústa kveðst hafa talið það upplagt að henda sér
því næst í íslensku þjóðsögurnar. „Öll höfum við
gaman af því að láta segja okkur sögur og rifja upp
töfra þess,“ segir Ágústa.
Góður liðsauki
„Þau skína skært,“ segir Ágústa um leikhópinn
sem senn lýkur fjögurra ára námi við leiklistardeild
LHÍ.
„Þetta er afskaplega sterkur og fallegur hópur
og það er búið að vera ofboðslega gaman að vinna
með þeim. Ég legg mikið upp úr því að hópurinn
glansi allur saman; einn fyrir alla og allir fyrir einn.
Það er svo mikilvægt að samvinnan sé sterk við
sýningar og það er alveg til staðar í þessum hópi.
Ég tel að íslenskt leikhúslíf sé afar heppið að hljóta
þennan liðsauka.“
Leikverkið verður sem fyrr segir frumsýnt á
morgun en sýningafjöldi er takmarkaður og því um
að gera að tryggja sér sæti sem fyrst.
Leikhús | Nemendaleikhúsið frumsýnir nýtt leikverk
Ævintýraheimur þjóðsagnanna
Birgitta Birgisdóttir í einu hlutverkanna.
Stefán Hallur Stefánsson klæddur í litríkan bún-
ing sem Þórunn Elísabet Sveinsdóttir hannaði.
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is