Morgunblaðið - 03.05.2006, Page 32

Morgunblaðið - 03.05.2006, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN SAMKVÆMT gögnum Vinnumálastofnunar voru alls 265 manns á atvinnu- leysisskrá á Akureyri um mánaðamótin mars-apríl sl., 161 kona og 104 karlar. Frá árinu 2000 hafa verið um hver mánaðamót að meðaltali 243 á atvinnuleys- isskrá en hæst hefur talan farið í 353 í desember 2004. Allan þennan tíma, og mikið lengur, hefur atvinnuleysi í þessum mæli verið viðvarandi á Akureyri. Enda þótt þessar hlutfalls- tölur atvinnulausra þættu e.t.v. ekki háar víða úti í hinum stóra heimi eru þeir með öllu óviðunandi. Því samfélagi er stórlega ábótavant þar sem svo mörgum vinnufúsum höndum er mein- að að afla sér og sínum lífsviðurværis með atvinnuþátttöku. Okkar brýnasta verkefni nú um stundir er að reyna að blása svo að glóðum atvinnulífsins að hér verði breyting á. En hvernig verður það best gert? Örugglega ekki með þeim vinnubrögðum sem tíðkast hafa hingað til. Allir hljóta að geta orðið sammála um það í ljósi þess árangursleysis sem ofangreindar tölur sýna. Endurskoða verður alla að- komu bæjaryfirvalda að stuðningi við nýsköpun og þróun atvinnulífsins, svo gjörsamlega gagnslaust sem það apparat hefur reynst á undanförnum árum. Hvað mörg störf hafa orðið til og haldist til framtíðar fyrir atorku At- vinnuþróunarfélags Eyjafjarðar? Hvaða gagn hefur orðið hér á Akureyri af fjárfestingarsjóðnum Tækifæri hf., sem bærinn lagði verulegt fjármagn á sín- um tíma? Hvað svo sem segja má um Atvinnuþróunarfélagið er næsta víst að hvorutveggja hitt hefur reynst alveg gagnslaust. Er hugsanlegt að árangursleysið stafi af því að alltaf er einblínt á hinar stóru skyndilausnir í atvinnumálum? Alltaf er verið að reyna að laða eitthvað eða ein- hvern að til að reisa einn stóran vinnustað til að bjarga málunum í eitt skipti fyrir öll. Fáum ætti að vera ljósari fallvaltleiki slíkra risa í atvinnulífinu en ein- mitt Akureyringum. Mundum við ekki strax ná betri árangri ef við við- urkenndum þá augljósu staðreynd að margt smátt gerir eitt stórt og hvert nýtt starf sem skapast er jafn mikilvægt þó ekki sé til þess stofnað með ofboðslegum hamagangi? Nýtilegustu hugmyndirnar um nýsköpun og þróun atvinnulífsins eru líklegastar til að kvikna meðal þess eigin frumkvöðla og hjá hugmyndaríku fólki út um allan bæ. Í stað þess að leggja dauða hönd kerfisins fyrir vit hverrar nýrrar hugmyndar og kæfa hana í fæðingu með óraunhæfum arðsemiskröfum og íþyngjandi skilyrðum af ýmsu tagi, ættu bæjaryfirvöld að einbeita sér með fullu afli að samvinnu við íbúana að þessu leyti en ekki einlægt að láta slíkt mæta afgangi. Kjaftæði um álver á Dysnesi skilaði okkur engu nýju starfi. Við Vinstri græn teljum stórkostleg sóknarfæri til aukinnar atvinnusköp- unar liggja á sviðum ferðaþjónustu, heilbrigðismála, menningar- og skólamála og hefðbundinna framleiðslugreina í bænum og viljum í bæjarstjórn taka hönd- um saman við frumkvöðla og sókndjarfa einstaklinga á ýmsum sviðum til fram- kvæmda. Sóknarfæri til aukinnar atvinnusköpunar Eftir Jón Erlendsson Höfundur er starfsmaður Vegagerðarinnar og skipar 4. sæti á V-lista Vinstri grænna á Akureyri. SKIPULAGS- og byggingarlög, um gerð skipulags. Í 1. grein segir að markmið laganna sé m.a. að stuðla að skynsamlegri og hag- kvæmri nýtingu lands með sjálfbæra þróun að leiðarljósi, að tryggja réttarör- yggi þannig að réttur einstaklinga og lög- aðila verði ekki fyrir borð borinn þótt hag- ur heildarinnar sé hafður að leið- arljósi, og tryggja faglegan undirbún- ing mannvirkjagerðar. Sveitarfélög vinna og staðfesta skipulag ásamt umhverfisráðherra. Einstaklingar hafa rétt þótt hagur heildarinnar sé hafður að leiðarljósi. Það er stóra hugmyndin með skipu- lagi. Þegar við ákveðum til hvers á að nota takmarkað landrými þarf að skoða skipulagið í heild, það þarf að láta hagsmuni heildarinnar ráða. Ef þetta er gert með réttum hætti skap- ast ekki hætta á því að brotið sé á ein- staklingum. Við Vinstri græn viljum láta heild- ina ráða, en að sjálfsögðu skapa ein- staklingum svigrúm til athafna. Hvað kemur það skipulagsmálum við? Upp- bygging og þróun byggðar er að öllu leyti háð því að heildarsýnin ráði. Ef VG fær til þess liðsinni kjósenda þá munum við bjóða atvinnulífinu og íbúum bæjarins nægar lóðir til að byggja á innan heildarmyndar af svæðinu. Sem betur fer er að komast meiri heildarsýn á aðalskipulag Akureyrar nú þegar endurskoðun þess stendur yfir. Þar er deilt um ýmislegt en það besta er að þar fæst staðfesting á stefnu sem var til en þurfti að endur- skoða. Bæjarfulltrúi okkar Vinstri grænna hefur margoft kallað eftir því að þétting byggðar yrði skoðuð í heild. Að sumu leyti má segja að núver- andi meirihluti hafi látið einstaklinga og fyrirtæki ráða í skipulagsmálum. Opin svæði hafa verið tekin undir í grónum hverfum vegna óska verk- taka og klasi fyrirtækja sá um að ýta af stað umræðu um miðbæ á Ak- ureyri. Gott og vel, það er gott að einkaað- ilar hafa áhuga á skipulagi en horfa þeir á heildarmyndina? Já, ef hags- munir þeirra fara saman við þá mynd. Hvað ef fyrirtæki setur fram hugmyndir sem stangast á við heild- armyndina? Vinstrihreyfingin – grænt framboð mun ekki hlaupa til eftir því hvaðan vindurinn blæs í skipulagsmálum og VG mun leitast við að finna óskum fyrirtækja og ein- staklinga stað í heildarmyndinni. Sameiginleg sýn í Eyjafirði. Við Vinstri græn viljum fá öll sveit- arfélögin til samstarfs um skipulags- mál og skipulega uppbyggingu. Það þarf að fást heildarmynd á byggðina á Akureyri og nágrenni til að hún verði sterkari og í samhengi, það verður best gert í samstarfi og með sameiginlegri framtíðarsýn. Skipulag – sveitar- stjórn og einkaaðilar Eftir Jóhannes Árnason Höfundur er framhaldsskóla- kennari og skipar 7. sæti á V-lista Vinstri grænna á Akureyri. KJÓSENDUR á landinu eru um 220.000. Þegar um 80% kjósa 63 þingmenn hefur hver þeirra um 3.000 at- kvæði bak við sig. Þingmenn Reykvíkinga ættu að vera 30, en eru 22. Reykvíkingar eru minnst metnu þegnar landsins. Við erum svo léttvæg að Vilhjálmur gaf Þingeyingum Laxárvirkjun, sem við Reykvíkingar átt- um, og bauð sig svo fram sem borg- arstjóra. Hvar voru þingmenn okkar? Völd okkar á þingi eru í alröngu hlutfalli við fjölda okkar. Þess vegna setur al- þingi sömu upphæð í Sundabraut og Héðinsfjarðargöng. Það er vilji þeirra flokka sem nú stjórna landinu og vilja líka stjórna Reykjavík. Margir kenna ráðherrum um hve litla peninga við Reykvíkingar fáum til vegagerðar og gangagerðar en það er ekki rétt því valdið er hjá þingmönnum en ekki ráðherrunum. Við kjósendur erum hluthafar ríkisins, þingmenn eru fulltrúar okkar og ráðherrarnir framkvæmdastjórar. Reykjavíkurþingmennirnir 22 þurfa bara að gera banda- lag við 10 aðra þingmenn til að ná fram okkar málum, gera samning. „Við samþykktum göng handa ykkar kjósendum, nú samþykkið þið Sundabraut handa Reykvíkingum. Alla leið, ekki hálfa leið. Engum dettur í hug hálf göng“. Eða ,,Þjónusta við aldraða er flókið verkefni í Reykjavík og best að færa alla framkvæmdina til borgarinnar. Hjálpið okkur að samþykkja til þess lög.“ Þingmenn eru miklu valdameiri en ráðherrar, ef þeir standa saman. Tuttugu og átta greinar stjórnarskrárinnar fjalla um þing og þingmenn. Bara ein grein í stjórnarskránni fjallar um rétt ráðherra, þeir eru ekki eins mikilvægir og þingmenn. Stjórnarskráin leyfir til dæmis að skipt sé um ráðherra, að vild, en ekki þingmenn. Þingmenn verða að beita þessu valdi sínu og hætta að skríða fyrir ráðherr- um. Það myndi afla þeim þeirrar virðingar sem þeir svo oft sakna. Stjórnarskráin minnist hvergi á stjórnmálaflokka eða flokksstjórnir. Ráðherrar segja of oft: „við vorum kosnir til að taka ákvarðanir“. Það er ekki rétt. Það var flokks- stjórnin sem ákvað að tefla þeim fram sem ráðherra. Flokksstjórn er kosin á mjög fámennum fundum og ráð- herrarnir gjarnan í forystu. Þeir hafa alls ekki umboð til ákvarðana um eitt eða neitt annað en það sem þingmenn ákveða. Þeir voru bara kosnir á þing með 3.000 atkvæð- um eins og hinir. Þingmenn eru kosnir til að setja lög. Ráðherrar eiga bara að framfylgja lögum. Völd þing- manna og ráðherra eiga að vera sýnileg, aðgreind og skiljanleg. Þingmenn eru óheppilegir ráðherrar. Það er freistandi að nýta aðstöðu sína og skattpeninga til vin- sældakaupa og því liggja þeir alltaf undir grun um mis- gjörðir, sama hvað þeir gera. Ráðherra sem ekki er þingmaður þarf ekki að kaupa sér kjósendahylli. Einföld breyting á stjórnarskránni er sú að banna að þingmenn séu ráðherrar. Þar með eru völdin komin þangað sem kjósendur vilja og bara eftir að fjölga þing- mönnum Reykvíkinga í 30 svo hlutskipti okkar sé rétt. Reykvíkingar eru mikilvægir, þeir eru helmingur hag- kerfisins. Reykjavík rokkar! Mannréttindi handa Reykvíkingum Eftir Stefán Benediktsson Höfundur er arkitekt. REYKJAVÍK státar af menningarframboði sem ekki á sér margar hliðstæður í heiminum miðað við stærð. Á undanförnum árum hefur verið unnið markvisst að því að tryggja menningarstofnunum borg- arinnar framtíðarhúsnæði. Listasafn Reykjavíkur er í glæsibyggingunum Hafnarhúsi, Kjarvalstöðum og Ásmund- arsafni. Menningarráð veitir styrki til reyk- vískra listamanna og gerir samstarfs- samninga við einstaklinga og hópa sem vinna að listviðburðum í borginni. Einn- ig hefur ráðið komið á ferða- og dvalarstyrkjum sem hafa stóraukið möguleika íslenskra listamanna til að taka þátt í listastarfsemi erlendis. Það verkefni var unnið í samvinnu við Flugleiðir og fagfélög listamanna. Korpúlfsstaðir verða sjónlistamiðstöð með verkstæðum fyrir myndlistamenn og hönnuði, vinnustofum og íbúð- um fyrir erlenda gesti. Þar verður einnig boðið upp á námskeið og fræðslu fyrir alla borgarbúa. Þetta eru dæmi um nýnæmi sem hafa heppnast einstaklega vel, en af mörgu er að taka. Í heimi örra breytinga þarf að vera vakandi fyrir öll- um blæbrigðum sem lita hvunndaginn. Það er hlutverk stjórnvalda á hverjum tíma að móta hagstætt umhverfi fyrir alla hina fjölbreytilegu þætti mannlífsins að vaxa í. Stundum sofna menn á verðinum á afmörkuðum svið- um og þegar það uppgötvast þarf að bregðast fljótt við. Þrátt fyrir að margt sé vel gert í reykvísku menningar- lífi hefur eitt svið orðið verulega útundan. Fjármunir til kaupa á myndlist íslenskra samtíma- listamanna hafa um margra ára skeið verið í hálfgerðu skötulíki. Þau fáu verk sem hægt hefur verið að kaupa á ári hverju eru iðulega prúttuð niður og oft ekki hægt að kaupa nema hluta af stórum verkum. Það er höfuðskylda stórra opinberra safna að eiga góð eintök af samtímalist. Ekki er þarna einungis verið að skrá listasöguna heldur skipta innkaup stóru safn- anna víða um lönd sköpum fyrir afkomu listamann- anna. Erlendis eru víða stór einkasöfn sem sinna sam- tímalist og fjárfesta í henni, en hér á landi er engu slíku til að dreifa. Ef íslensk listasöfn fá ekki fé til þess að standa undir þessum meginþætti í starfsemi sinni verð- ur gat í menningararfleiðinni. Það er alvarlegt mál. B-listinn vill stórauka kaup á samtímamyndlist og stuðla að því að til viðbótar 13,5 milljónum sem nú er varið til listaverkakaupa hjá Reykjavíkurborg verði bætt við 50 milljónum króna, eða 63,5 milljónir árlega. B-listinn í Reykjavík hefur kynnt tillögur sínar fyrir listafólki í borginni og hefur þetta hvarvetna mælst vel fyrir þeirra á meðal, meðan fulltrúar annarra fram- boða hafa rekið upp stór augu og telja að hér sé um yf- irboð að ræða. Stóraukið framlag til listaverkakaupa er, fyrir utan það sem áður er talið upp, verðmæta- skapandi og hefur í för með sér að verslun með listir gæti orðið eins og hjá þeim þjóðum sem við berum okk- ur saman við, með þeim margfeldisáhrifum sem það hefur, öllum til hagsbóta. Ef B-listinn kemst til áhrifa í borgarstjórn er þetta eitt af því sem hann mun leggja mikla áherslu á, enda eðlilegt forgangsmál þegar heildarmyndin er skoðuð. Kaupum meiri myndlist Eftir Ásrúnu Kristjánsdóttur Höfundur er hönnuður og skipar 4. sæti B-listans í Reykjavík. UNDANFARIN ár hefur mikil bylting orðið í samein- ingarmálum sveitarfélaga. Má segja að í mörgum til- fellum hafi það verið hrein og klár nauðsyn vegna smæðar eða jafnvel legu. Margt gott vannst við þessar sameiningar og má þar til dæmis nefna einföldun í stjórn- sýslu, sparnað í yfirstjórn o.fl. sem hægt væri að telja upp í þeim dúr. Eðlilega kom síðan í framhaldinu umræðan um hvar annars staðar mætti spara og þar sem grunnskólinn er víða einn allra stærsti útgjaldaliðurinn beindust spjót- in fyrst að honum. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum var það loforð beggja lista í Bláskógabyggð að láta skólann að mestu vera fyrsta kjörtímabilið. Einbeita sér frekar að öðrum málum en skoða í rólegheitum hvort og þá hvernig mætti hagræða í grunnskólanum. Heldur fór lítið fyrir þeim rólegheitum þegar til kom og strax farið í að finna leiðir til niðurskurðar og heyrðust jafnvel raddir um að leggja annan alveg niður en það stóð nú stutt sem betur fer. Á endanum var sú ágæta leið valin að styrkja og styðja við bæði skólann í Reykholti og á Laugarvatni. Þeir voru þó sameinaðir undir eina stjórn og teljast ein og sama stofnunin þar sem kenndar eru sömu greinar og jafnt skal yfir alla ganga. Byggt var við þá báða og einnig byggður nýr leikskóli á Laug- arvatni og eiga þeir hrós skilið fyrir það sem að því stóðu. Enginn getur réttlætt það að keyra krakka marga tugi kílómetra hvora leið hvort sem við erum að tala um Reykholt eða Laugarvatn. Þar að auki eru staðirnir í eðli sínu ákaflega ólíkir og verður einnig að líta á það í þessu samhengi. Reykholt er landbúnaðarhverfi þar sem milli 80 og 90% nemenda koma í skólann með skólabíl en hlutfallið er öfugt á Laugarvatni. Þar er verið að byggja upp skólaþorp þar sem geysilega mik- ilvægt er að grunnskóli sé á staðnum sem liður í ferlinu frá leikskóla upp í háskóla. Ef við eigum að vera sam- keppnisfær um að laða fjölskyldufólk að Laugarvatni til starfa og náms við skólana er þetta eitt hið fyrsta sem fólk spyr um. T-listi Tímamóta hefur það á stefnu- skrá sinni að styðja enn frekar við skólana í Reykholti og á Laugarvatni og að þeir hafi það að leiðarljósi að bjóða upp á kennslu frá 1.–10. bekk á báðum stöðum. Þó verður að skoða það hverju sinni ef mjög fámennir árgangar koma upp á öðrum hvorum staðnum hvort samkennsla kæmi sér jafnvel betur bæði félagslega og faglega með því að keyra nemendur á annan hvorn staðinn. Talsvert hefur verið byggt í Reykholti undanfarin ár en minna á Laugarvatni þar sem lítið hefur verið um eftirsóknarverðar lóðir. Á þessu kann að verða breyt- ing á næstu árum eftir makaskipti á landi milli ríkis og sveitarfélagsins. Má því búast við að hingað komi fjöl- skyldufólk í auknum mæli og þá þurfum við að standa klár að því með öflugum skóla. Það er því mjög mik- ilvægt fyrir Menntaskólann og Kennaraháskólann að grunnskólinn festist í sessi á staðnum. Styrkjum báða grunn- skólana í Bláskógabyggð Eftir Pálma Hilmarsson Höfundur er húsbóndi á heimavist ML og 10. á T-lista í Bláskógabyggð. Þorsteinn Gestsson fjallar um vímuefni. KOSNINGAR 2006 Guðvarður Jónsson: „Kosn- ingaloforð.“ Kári Páll Óskarsson: „Enginn vill búa við mengun.“ Toshiki Toma: „Þátttaka og við- horf í borgarstjórn.“ Magnús Helgi Björgvinsson: „Kópavogsbúar, við látum ekki plata okkur.“ Halldór Jónsson verkfræðing- ur: „Beitum blýantinum.“ Hjörtur Hjartarson kynningar- stjóri: „exbé = leifar Framsókn- arflokksins í Reykjavík.“ Hlynur Sæmundsson: „Kom- andi borgarstjórnarkosningar.“ Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.