Morgunblaðið - 03.05.2006, Síða 42

Morgunblaðið - 03.05.2006, Síða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Atvinna Raðauglýsingar 569 1100 Fundir/Mannfagnaðir Aðalsafnaðarfundur Dagskrá: Aðalsafnaðarfundur Háteigssóknar verður haldinn strax að lokinni messu sem hefst klukk- an 11:00 nk. sunnudag, 7. maí. Venjuleg aðalfundarstörf. Fundurinn verður í safnaðarheimili kirkjunnar. Sóknarfólk hvatt til að mæta. Sóknarnefnd Háteigssóknar. Óska eftir Málverk Óska eftir að kaupa málverk eftir eftirtalda lista- menn: Gunnlaug Scheving, Þorvald Skúlason, Júlíönu Sveinsdóttur, Nínu Tryggvadóttur, Louisu Matthíasdóttur, Svavar Guðnason og Guð- mundu Andrésdóttur. Upplýsingar í síma 864 3700. Félagslíf I.O.O.F. 9  18705038½  I.O.O.F. 18  187358  XX* Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn ✝ Helga Jónsdóttirfæddist á Pat- reksfirði 6. apríl 1919. Hún lést á Hrafnistu í Reykja- vík 23. apríl síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Jórunn Guðrún Guð- mundsdóttir, f. á Kröggólfsstöðum í Ölfusi 8. október 1895, d. 6. október 1981, og Sigurður Jón Guðmundsson, f. á Hvallátrum í Rauðasandshreppi 28. júlí 1893, d. 1. maí 1977, gjarna kenndur við Belgjagerðina í Reykjavík. Systkini Helgu voru Guðni, f. 13. október 1920, d. 23. júlí 1995, kvæntur Hall- dóru Þorgilsdóttur, f. 31. desember 1923, Ingólfur, f. 23. desember 1921, d. 22. júní 1941, Sigurður Jón, Helga giftist 28. maí 1938 Einari Karli Gíslasyni, f. 27. apríl 1917, d. 30. ágúst 1998. Börn þeirra eru: 1) Sigurður Jón, f. 9. okt. 1938. Fyrsta kona hans var Borghildur Emils- dóttir og eiga þau þrjú börn, Emil, f. 21. júní 1959, Helgu, f. 29. desem- ber 1960 og Sigrúnu, f. 28. október 1967, önnur kona Þorbjörg Þórar- insdóttir, látin og átti hún eina dótt- ur, Þórunni, þriðja kona Árný Run- ólfsdóttir. 2) Stúlkubarn sem fæddist andvana. 3) Anna, f. 26. apríl 1947. Fyrri maki hennar var Jón Guðmundsson og eiga þau tvö börn, Helgu, f. 18. desember 1967, og Einar Sigurð, f. 22. nóvember 1973. Seinni maki Guðmundur Jak- obsson, f. 30. september 1948 og eiga þau tvær dætur, Dagnýju, f. 2. nóvember 1984, og Díönu, f. 20. maí 1987. 4) Einar, f. 17. júlí 1952, kvæntur Margréti Lillian Skúla- dóttur, f. 15. nóvember 1954, börn þeirra Skúli Magnús, f. 23. septem- ber 1974, Guðrún Erla, f. 29. apríl 1978 og Einar Örn, f. 9. ágúst 1982. Útför Helgu verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. f. 31. október 1923, d. 30. nóvember 1923, Árni, f. 21. febrúar 1925, d. 19. febrúar 2006, kvæntur Sól- veigu Eggertz Pét- ursdóttur, f. 29. maí 1925, Valdimar, f. 3. mars 1927, d. 20. nóv- ember 2000, kvæntur Rannveigu Sigurðs- son, f. 29. maí 1932, d. 28. júní 1970, Sólveig, f. 3. ágúst 1929, d. 4. ágúst 1997, gift Flemming Hólm, f. 16. júní 1928, Guðmundur, f. 26. janúar 1937, d. 6. febrúar 2006, kvæntur Margréti Sigurjónsdóttur, f. 9. mars 1939. Guðmundur og Margrét skildu. Uppeldisbróðir Helgu er Guðmundur Gíslason, f. 12. júlí 1932, kvæntur Ingibjörgu Friðriks- dóttur f. 22. desember 1929. Elsku amma mín. Loksins ertu bú- in að fá hvíldina og komin til afa. Mik- ið held ég að þið hafið verið ánægð að sameinast á nýjan leik. Frá því ég man eftir mér hefur þú verið stór þáttur í lífi mínu. Ég á svo margar góðar og skemmtilegar minn- ingar um þig. Þú varst mikill fag- urkeri. Heimilið ykkar afa var snyrti- legt og búið fallegum munum sem við barnabörnin bárum ómælda virðingu fyrir. Það var samt alltaf hægt að fara upp í endaherbergi og gramsa í dótinu þar. Garðurinn ykkar afa var með þeim fallegri í bænum enda vor- uð þið dugleg að vera í honum. Þar voru margar fallegar plöntur og gróðurhúsið fullt af rósum. Það var alveg sama hvenær maður kom í heimsókn, alltaf áttir þú nóg af kök- um og góðgæti til að bjóða og hafðir gaman af því. Það þurftu helst allir að borða á sig gat. Þú varst líka svo snið- ug að prófa nýja hluti í eldhúsinu. Einu sinni man ég að þú bjóst til ind- verska rétti, langt áður en austur- lensk matarlist ruddi sér til rúms hér á landi. Þú varst búin að koma þér upp alls konar kryddi og auðvitað smakkaðist þetta mjög vel, eins og allt sem úr eldhúsi þínu kom. Enda fannst þér gaman að halda veislur og undir þér vel þegar öll stórfjölskyld- an var saman komin í Grundó. Þú varst mikið jólabarn og varst alltaf búin að föndra eitthvað fallegt fyrir jólin. Það var rík hefð fyrir því að allir kæmu saman heima hjá ykk- ur afa og bökuðu laufabrauð og þá varst þú í essinu þínu. Mér fannst alltaf svo hátíðlegt og gaman að halda jólin heima hjá ykkur afa og þú stóðst í þessu fram á áttræðisaldur. Þú varst líka svo flink í höndunum. Þú galdraðir mikið af útsaumuðum hlutum fram úr erminni, kenndir skermasaum og föndraðir af mikilli list. Þú unnir allri tónlist og ég á alltaf eftir að muna eftir því að það varst þú sem kenndir mér að hlusta á ABBA. Í dag er sú hljómsveit í miklum met- um á mínu heimili og mun ég alltaf minnast þín þegar ég hlusta á hana. Þú varst alltaf svo glæsileg og vel til höfð bæði um hárið og í klæðaburði. Þannig mun ég alltaf muna eftir þér, elsku amma mín, brosmildri, ákveð- inni og stórglæsilegri. Blessuð sé minning þín. Helga Jónsdóttir. Elsku mamma mín. Það koma svo margar minningar upp í hugann, að erfitt er að koma öllu á blað. Alltaf varstu til staðar og varst reiðubúin að hjálpa ef eitthvað bjátaði á. Alltaf var gott að koma í Grundó til ykkar pabba hvenær sem var, alltaf sama gestrisnin og góðmennskan. Það var yndislegt að fá að vera með þér til hinstu stundar. Ég veit að þér líður vel núna. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Þín dóttir Anna. HELGA JÓNSDÓTTIR Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Skilafrestur Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef út- för hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birt- ingardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virð- ingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandend- ur senda inn. Þar koma fram upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl- ast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.