Morgunblaðið - 03.05.2006, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 47
DAGBÓK
kirtli, verða með mánaðarlegan rabbfund
sinn í húsi Krabbameinsfélagsins í Skógar-
hlíð 8 í Reykjavík í dag, miðvikudaginn 3.
maí, kl. 17. Lilja Jónasdóttir, hjúkrunar-
fræðingur LSH, ætlar að kynna slökun.
Kaffi verður á könnunni.
Landakot | Fræðslufundur á vegum Rann-
sóknastofu í öldrunarfræðum RHLÖ verður
haldinn fimmtudaginn 4. maí kl. 15, í
kennslusalnum á 6. hæð á Landakoti. Sig-
urður Gunnsteinsson, áfengisráðgjafi SÁÁ,
fjallar um stöðuna í meðferðarmálum aldr-
aðra sem eru áfengissjúkir.
Maður lifandi | Hláturkætiklúbburinn verð-
ur með opinn hláturjógatíma í Maður lif-
andi, Borgartúni 24, miðvikudaginn 3. maí
kl. 17.30–18.30. Umsjón hefur Ásta Valdi-
marsdóttir hláturjógaleiðbeinandi. Allir vel-
komnir. Aðgangseyrir 1.000 kr.
Mosfellsbær | Aðalfundur Sögufélags Kjal-
arnesþings verður á Ásláki 4. maí kl.
20.30. Eftir fundinn sýnir Jón Sigurjóns-
son ljósmyndir úr Mosfellsbæ. Félagar eru
hvattir til að fjölmenna og nýir félagsmenn
boðnir velkomnir.
Svæðisvinnumiðlun Suðurlands | Heil-
brigðisstofnun Suðurlands stendur fyrir
fyrirlestri um „intervision“ hinn 5. maí nk.
Fyrirlesari er P. Spans frá Hollandi. „Int-
ervision“ hentar einkar vel við vinnuað-
stæður þar sem gagnkvæmur skilningur
milli samstarfsaðila er lykilatriði í sam-
skiptum. Aðgangur ókeypis. Skráning:
meyles@emax.is.
Fréttir og tilkynningar
Bandalag kvenna í Hafnarfirði | Aðalfund-
ur Bandalags kvenna í Hafnarfirði verður 3.
maí í sal eldri borgara, Sólvangi kl. 20. Á
dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður við
Ráðhúsið á Akranesi 3. maí kl. 10–17.
Ferðaklúbbur eldri borgara | Dagsferð um
Reykjanes hinn 24. maí. Ekið um Reykja-
nes. Verð 3.800 kr., innifalið kaffi og veit-
ingar. Uppl. um ferðina gefur Hannes Há-
konarson í síma 892 3011.
Ferðaklúbbur eldri borgara | Fjöll og firðir
12.–17. júní. Kjölur – Akureyri – Möðrudalur
– Egilsstaðir – Mjóifjörður – Kárahnjúkar –
Höfn. Skráning fyrir 8. maí. Uppl. gefur
Hannes Hákonarson í síma 892 3011.
Hús verzlunarinnar | Félag viðskiptafræð-
inga og hagfræðinga (FVH) heldur aðal-
fund sinn 3. maí kl. 16–18 í Húsi verzlunar-
innar, salnum Þjóðgarði, hæð 0. Venjuleg
aðalfundarstörf. Þátttaka tilkynnist á
fvh@fvh.is eða í síma: 551 1317.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar-
og fataúthlutun á miðvikudögum kl. 14–17 á
Sólvallagötu 48. Sími 551 4349.
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handa-
vinna kl. 9–16.30. Smíði/útskurður kl.
9–16.30. Heilsugæsla kl. 9.30–11.30.
Spil kl. 13.30.
Bandalag kvenna í Hafnarfirði |
Aðalfundur verður haldinn í sal heldri
borgara á Sólvangi og hefst kl. 20. Á
dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Hvetjum fulltrúa aðildarfélaganna til
að mæta og taka með sér gesti.
Stjórn Bandalags kvenna, Hafnarfirði.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, fótaað-
gerð, tískusýning kl. 14. Dansað við
harmonikkuleik kl. 14.30.
Broadway | Aðalfundur Ísfirðinga-
félagsins verður haldinn á Broadway,
(Ásbyrgi) Ármúla 9, Reykjavík kl. 20.
Veitingar í boði félagsins. Fjölmennið
og takið með ykkur nýja félaga.
Dalbraut 18–20 | Fastir liðir eins og
venjulega! Tungubrjótar, Dalbraut,
Ljóðafljóð, Hæðargarði og Hana-nú,
Kópavogi flytja samfellda dagskrá í
Skálholti í kvöld kl. 20. Átta konur 12.
maí. Allir velkomnir. Uppl. í síma
588 9533.
FEBÁ, Álftanesi | Hópferð á ráð-
stefnu LEB og fleiri aðila um skatta
og skerðingar lífeyrisþega, í Öskju,
Náttúrufræðistofnun. Á bakaleið
verður litið inn á Handverkssýningu
aldraðra í Garðabæ. Auður og Lindi
annast akstur, sími 565 0952. At-
hugið að Grétudagur fellur niður.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Göngu-Hrólfar ganga frá Stangarhyl
kl. 10. Söngvaka kl. 14, undirleik ann-
ast Sigurður Jónsson. Söngfélag
FEB, æfing kl. 17. Skoðunarferð að
Gljúfrasteini 10. maí, farið verður með
rútu frá Stangarhyl 4. Uppl. og skrán-
ing í síma 588 2111.
Félagsheimilið Gjábakki | Boccia kl.
9.30. Glerlist kl. 9.30 og kl. 13.
Handavinna kl. 10. Félagsvist kl. 13.
Bobb kl. 17. Í dag er síðasti dagur
myndlistarsýningar.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9, 9.50 og 10.45 í
Kirkjuhvoli. Vorsýning félagsstarfsins
opnuð í Kirkjuhvoli kl. 14 og stendur
til kl. 19. Ýmis skemmtiatriði og
margt að sjá. Lokað í Garðabergi
vegna vorsýningarinnar.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 8.45
sund og leikfimiæfingar í Breiðholts-
laug. Kl. 10.30 gamlir leikir og dansar.
Frá hádegi spilasalur opinn. Kl. 13 lagt
af stað í heimsókn til eldri borgara í
Þorlákshöfn. Allar uppl. á staðnum og
í síma 575 7720. Strætisvagnar S4,
12 og 17 stansa við Gerðuberg.
wwwgerduberg.is
Garðasókn | Foreldramorgnar hvern
miðvikudag í sumar, kl. 10–12.30. Gott
tækifæri fyrir mömmur og börn að
hittast og kynnast. Allir velkomnir,
pabbar og mömmur, afar og ömmur.
Alltaf heitt á könnunni.
Hraunbær 105 | Kl. 9 útskurður,
postulínsmálun, kaffi, spjall, dag-
blöðin, fótaaðgerð. Kl. 11 banki 3. og
17. maí. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 13
brids. Kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–16 hjá Sigrúnu, silki- og gler-
málun, kortagerð. Jóga kl. 9–12. Sam-
verustund kl. 10.30 lestur og spjall. n
fyrir hádegi. Fótaaðgerðir, hársnyrt-
ing. Sími 535 2720.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og
venjulega! Tungubrjótar, Dalbraut,
Ljóðafljóð, Hæðargarði og Hana-nú,
Kópavogi flytja samfellda dagskrá í
Skálholti í kvöld kl. 20. Átta konur 12.
maí. Allir velkomnir. Uppl. í síma
568 3132. Átta konur 12. maí.
Korpúlfar, Grafarvogi | Á morgun,
fimmtudag, er keila í Mjódd hjá Korp-
úlfum kl. 10.
Kvenfélag Kópavogs | Óvissuferð og
léttur kvöldverður 17. maí. Mæting kl.
18 að Hamraborg 10. Nánari uppl. og
þátttaka tilkynnist til Helgu S. s.
554 4382/ Elísabetu s. 695 8222/
Helgu J. s. 554 1544
Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, opin
vinnustofa, kl. 10.45 bankinn fyrsta
miðvikudag í mánuði. Opin fótaað-
gerðastofa, sími 568 3838. Félags-
vist kl. 14, kaffi, verðlaun.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–16 mynd-
mennt. Kl. 10–12 sund (Hrafnistu-
laug). Kl. 11.45–12.45 hádegisverður.
Kl. 12.15–14 verslunarferð í Bónus,
Holtagörðum. Kl. 13–14 Spurt og
spjallað. Kl. 13–16 tréskurður. Kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9–12.30, handmennt almenn kl. 10–
16.30. Bókband kl. 10. Morgunstund
kl. 10. Verslunarferð kl. 12.30. | Kór-
æfing kl. 13, dans kl. 14.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn
kl. 9.30–11.30. Allir foreldrar vel-
komnir með börn sín.
Áskirkja | Hreyfing og bæn í neðri
safnaðarsal Áskirkju kl. 11. Félagsvist í
safnaðarheimili II, miðvikudaginn 3.
maí kl. 20. Kaffi og meðlæti. Allir vel-
komnir. Stjórn safnaðarfélagsins.
Bessastaðasókn | Dagur kirkjunnar í
Haukshúsum. Foreldramorgnar eru
frá kl. 10–12 og opið hús eldri borgara
er frá kl. 13–16.
Bústaðakirkja | Starf aldraðra í Bú-
staðakirkju! Samverur okkar eru á
miðvikudögum frá kl. 13. Við spilum,
föndrum og erum með handavinnu.
Um kl. 15 er kaffi. Gestur okkar í dag
er Þorvaldur Halldórsson. Öllum er
velkomið að taka þátt í þessu starfi.
Nánari uppl www.kirkja.is
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í
hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrir-
bænir. Boðið er upp á léttan hádegis-
verð á vægu verði að lokinni stund-
inni. Prestar safnaðarins þjóna fyrir
altari, orgelleikari Hörður Bragason
Allir velkomnir.
Hjallakirkja | Fjölskyldumorgnar eru í
Hjallakirkju kl. 10–12.
Hjálpræðisherinn á Akureyri |
Bænastund kl. 12. Allir velkomnir.
Kristniboðssalurinn | Samkoma í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut
58–60 miðvikudaginn 3. maí kl. 20.
Jóhannes Ólafsson talar. Kari Bö seg-
ir frá handavinnuverkefni í Suður-
Eþíópíu. Kaffi. Allir eru velkomnir.
Langholtskirkja | Kl. 12.10 Bæna-
stund með sálmasöng. Allir velkomn-
ir. Kl. 12.30 súpa og brauð (300 kr.).
Kl. 13–16 opið hús fyrir eldri borgara.
Söngur, tekið í spil, kaffisopi, föndur.
Laugarneskirkja | Kl. 10 Mömmu-
morgunn í umsjá sr. Hildar Eirar
Bolladóttur. Kl. 10.30 Gönguhópurinn
Sólarmegin. Allt fólk velkomið að
slást í för. Kl. 14.10 Kirkjuprakkarar
(1.–4. bekkur) Kl. 16 TTT (5.–6. bekk-
ur).
Neskirkja | Foreldramorgnar kl. 10.
Setjum foreldrana í forgang. Ásta H.
Garðarsdóttir hjá Verndum bernsk-
una. Fyrirbænamessa kl. 12.15. Sr.
Sigurður Árni Þórðarson. Opið hús kl.
15. Landráð! Bjarni Reynarsson, land-
fræðingur, gefur stofnunum og sveit-
arfélögum ráð þegar svæði eru skipu-
lögð. Veitingar á Torginu.
Selfosskirkja | Munið foreldramorg-
un kl. 11 í Selfosskirkju. Gestur okkar
verður Stefán Þorleifsson tónlistar-
kennari. Hann mun fjalla um tónlist
og við tökum kannski lagið. Allir for-
eldrar velkomnir.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
HÁRIÐ er sívinsælt verkefni fyrir
framhaldsskólaleikfélög og það er svo
sem ekkert skrítið. Kraftmikil og
grípandi tónlist, persónur á líku reki
og leikendurnir, nánast ótakmarkaðir
möguleikar á þátttakendafjölda, en
aðeins nokkur hlutverk sem gera
meira en lágmarkskröfur til leiks og
söngs. Og svo eru meira að segja gall-
ar verksins trúlega kostir fyrir
marga. Yfirborðskennd glansmynd
hans af hippalíferni er samsett af öll-
um helstu klisjunum sem gaman er
að velta sér upp úr í hæfilegri blöndu
af einlægni og skopstælingu.
Leikhópur Menntaskólans á Egils-
stöðum er ágætlega skipaður og seint
verður gert of mikið úr þeirri miklu
skólun sem þátttaka í svona sýningu
skilar þátttakendum til viðbótar við
aðra menntun, og kannski að ein-
hverju leyti í staðinn fyrir hana þegar
kröfur leikhússins ýta námsbókunum
til hliðar í aðdraganda frumsýning-
arinnar.
Fremstir í flokki þeir Pétur Ár-
mannsson og Theódór Sigurðsson
sem skila bæði leik, söng og persónu-
töfrum prýðilega í hlutverkum erki-
hippanna Bergers og Hud. Hákon
Unnar Seljan Jóhannsson er sann-
færandi mótvægi við þá í hlutverki
sveitapiltsins Claude, þótt honum
hafi ekki frekar en öðrum sem ég hef
séð glíma við hlutverkið tekist að
sýna nokkra persónuþróun í rýrt
skrifuðum karakternum.
Allir syngja bara nokkuð vel.
Hljómsveit vel spilandi þótt kannski
hafi bæði hljómur og útsetningar ver-
ið í hrárra lagi, smá pönkkeimur
kominn af mjúku reykelsismettuðu
hippamúsíkinni. Og það er alltaf í
sjálfu sér hrósvert þegar mennta-
skólarnir sjá sjálfir um undirleik stór-
sjóa sinna en kaupa hann ekki nið-
ursoðinn á geisladisk af fagmönnum
með tilheyrandi gerilsneyddri fágun.
Reynsluleysi leikstjórans af svið-
setningum birtist einna helst í dálítið
daufri nærveru kórsins sem ekki er
nýttur sem skyldi til að gefa allt-
umlykjandi tilfinningu fyrir tíðarand-
anum. Búninga á skarann hefur ekki
verið neitt áhlaupaverk að útvega en
samtíningurinn er auðvitað hvergi
jafn viðeigandi og í þessum heimi.
Hárið á Egilsstöðum er allvel lukk-
uð uppfærsla á verki sem hefur aug-
ljósa kosti og skírskotun til þátttak-
enda og gleður vafalaust stóran hluta
áhorfenda sinna ýmist með skír-
skotun til þekktrar fortíðar eða í það
minnsta litríkri tónlist.
Þorgeir Tryggvason
Sveitapiltsins
draumur
LEIKLIST
Leikfélag Menntaskólans
á Egilsstöðum
Leikgerð Baltasars Kormáks og Davíðs
Þórs Jónssonar á söngleik Geromes
Ragnis og James Rados og kvikmynda-
handriti Michaels Wellers. Tónlist: Galt
MacDermot, þýðing: Davíð Þór Jónsson.
Leikstjóri: Þórunn Sigþórsdóttir.
Valaskjálf 31. mars 2006
Hárið
LJÓÐABÓKIN Hæðir Machu
Picchu eftir Pablo Neruda í þýð-
ingu Guðrúnar H. Tulinius fékk
sérstaka viðurkenningu á degi bók-
arinnar í Barcelona 23. apríl sl.
Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk
bók hlýtur titilinn bók ársins hjá
menningarmiðstöðinni Fundación
Antonio Hervas Amezcua og var
haldin kynning á bókinni sem Guð-
rún H. Tulinius og útgefandi henn-
ar Gréta Hlöðversdóttir hjá forlag-
inu Proxima tóku þátt í.
Bókin er liður í því að koma á
samstarfi milli spænskra og ís-
lenskra listamanna, en menningar-
miðstöðin stefnir að því að bjóða ís-
lenskum listamönnum að sýna eða
halda námskeið í Barcelona.
Bókin vakti sérstaka athygli í
fjölmiðlum fyrir að vera á báðum
tungumálunum, spænsku og ís-
lensku, og fyrir að vera margt í
senn, ljóðabók með fallegum teikn-
ingum, kvikmynd og kennsluefni,
en Proxima mun á næstu dögum
gefa út verkefnahefti með bókinni.
Guðrún Túliníus er þýðandi bókar-
innar, er vakti athygli í Barcelona.
Hæðir Machu
Picchu hlýtur
viðurkenningu
DAGSKRÁ Gröndalssystkina á
djasshátíð var að mestu helguð ís-
lenskum þjóðlögum og segja má að
hún hafi verið í útjaðri djassins þótt
spuni hafi komið nokkuð við sögu.
Fyrsta lagið, Gefðu að móðurmálið
mitt, var skemmtilega flutt, rödd
Ragnheiðar og bassaklarínett
Hauks smullu saman. Aftur á móti
var humm Ragnheiðar í snilldarlagi
Þorkels Sigurbjörnssonar, Heyr
himna smiður, of veikburða áður en
hún vatt sér í sálm Kolbeins unga,
en eftir það var orðlaus söngur
hennar lýtalaus. Þá kom eitthvert
bassasampl undir Skjótt hefur sól
brugðið sumri og skemmdi það
nokkuð fyrir flutningnum í mínum
eyrum, svo og allt samplið m.a. regn-
ið í Sofðu unga ástin mín – en á ein-
um stað virkaði það. Þá er fjallað var
um sauðablóðþyrst tröll: Fram á
regin fjallaslóð. Kannski var bara
eitthvað að græjunum.
Ljósið kemur langt og mjótt
kunna ansi mörg íslensk börn að
blása í blokkflautu enda það að finna
í ,,galdrakennslubók Guðmundar
Norðdahls, sem kenndi Hauki ýmis-
legt. Haukur var þó ekki frónskur í
spuna sínum heldur leitaði til aust-
ur-evrópskra gyðinga, enda stjórnar
hann einu skemmtilegasta kletzmer-
bandi Norðurálfu: Schpilkas. Fleiri
þjóðlög voru á efnisskránni og
Haukur enn á austrænum nótum í
Vísum Vatnsenda-Rósu. Krummi
svaf í klettagjá var einna skemmti-
legast þjóðlaganna. Þar lét Haukur
klassískt frjálsdjasslikk vaða er
systirin söng: …á sér krummi ýfði
stél. Svona einsog
fjaðraþyturinn væri
ættaður frá Dolphy.
Þjóðlögin voru fleiri
og þar af eitt
sænskt og svo voru
Magnús Þór og
Megas á dagskrá.
Það er yndislegt
hvernig Tvær
stjörnur breytist í
hættulausan óð til
fegurðarinnar þeg-
ar raddfagrar gyðj-
ur einsog Ragnheið-
ur Gröndal túlka.
Svo fluttu systkinin
tvö lög eftir Ragn-
heiði. Annað er lík-
lega tveggja ára,
Landgangur við ljóð
Hallgríms Helga-
sonar, en hitt
splunkunýtt við hið
yndisfagra ljóð Kilj-
ans: Vor hinsti dag-
ur er hniginn. Það
var ansi gott lag í
leikhússtíl einsog
Atli Heimir og fleiri
semja stundum í.
Þetta kvæði hefur
fylgt mér lengi og
ég er vel sáttur við
að raula það í huganum við lag
Ragnheiðar.
Það verður spennandi að heyra
hvernig þessi tónlist þeirra Grön-
dalssystkina þróast, en henni er ætl-
að að koma út á geisla í haust.
Þjóðlög og síglaðir söngvar
DJASS
Tónlistarskóli Garðabæjar
Gröndalssystkini.
Ragnheiður Gröndal, rödd og píanó;
Haukur Gröndal klarínett og bassakl-
arínett. Auk þess rafhljóð.
Fimmtudagskvöldið 20. apríl.
Djasshátíð Garðabæjar
Vernharður Linnet
Morgunblaðið/Sverrir
Ragnheiður Gröndal tróð upp á djasshátíð í Garða-
bæ ásamt bróður sínum, Hauki klarinettuleikara.