Morgunblaðið - 03.05.2006, Qupperneq 50
50 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLENSKIR gamanþættir hafa allt frá upp-
hafi verið með vinsælasta efni í sjónvarpi og
flestir lukkast ásættanlega. Einkum þeir sem
byggjast á stuttum atriðum, eða „sketsum“.
Nægir að nefna Heilsubælið, Spaugstofuna,
Fóstbræður og Stelpurnar; það má jafnvel sjá
áhrif þeirra í auglýsingagerð (s.s. námsmaður
KB, Lottómaðurinn Lýður Oddsson, Heims-
borgari Iceland Express). Þeir hafa stytt
landanum marga stundina í útsynningsskotnu
svartnættisvíti skammdegisins og bjargað frá
örvinglun og hugarvíli.
Síðla vetrar bættist Sigtið með Frímanni
Gunnarssyni í flóruna og tókst að koma með
nýjan tón, sem er hreint ekki lítið afrek eitt
og sér. Innihaldið flokkast ekki undir sketsa-
formið því þremenningarnir halda sig við
ákveðið málefni hverju sinni. Formið er skop-
stæling á Opruh og hennar nótum, og frétta-
skýringa- og rabbþáttum íslensku ljós-
vakamiðlanna, sem eiga það til að einkennast
af lognmollu dvergríkisins þar sem reynst
getur vandfundið umræðuhæft efni og tjaldað
er því sem til er og umbúðirnar oft innihald-
inu ofursterkari.
Gunnar Hansson leikur Frímann hinn sjálf-
umglaða, djúpvitra (að eigin dómi) og tungu-
lipra froðusnakk sem veður á súðum en mælir
fátt af viti. Frímann tekur sig, líkt og fyr-
irrmyndirnar, afar hátíðlega, lætur sér ekkert
óviðkomandi, en viðmælendur hans leika þeir
Friðrik og Halldór, sem bregða sér léttilega í
allra kvikinda líki úr þjóðarsálinni.
Frímann tekur hús á listamönnum, ör-
yrkjum, alzheimersjúklingum, afkomendum
landsfrægra skemmtikrafta, tekur á mik-
ilvægustu málefnum líðandi stundar, svo sem
lífinu og dauðanum, einelti, glæpum og for-
dómum, en þátturinn um þá var óborg-
anlegur. Fullur vandlætingar á þeim ljóta
lesti tekst þáttastjórnandanum að móðga og
misskilja alla sína viðmælendur.
Sigtið er vitsmunalegra og meinháðskara
grín en aðrir þættir sem gengu í vetur og
hláturinn kemur ekki viðstöðulaust úr mag-
anum. Það tekur smástund að stilla sig inn á
húmor þeirra félaganna – svo fer maður að
hlæja …
Mest mæðir á Gunnari, sem lifir sig fyr-
irhafnarlaust inn í hlutverk besservissersins
Frímanns. Þeir Gunnar og Halldór eru fjöl-
hæfir og fyndnir og halda allir þrír fárán-
legum trúverðugleika í fasi og tali sem virðist
vera meira og minna spunnið á staðnum.
Það eru einmitt þættir á borð við Sigtið
sem ljá dagskrá vikt og skapa sérstöðu um
leið og stöðin sem þá býður verður áhuga-
verðari kostur en aðrir. Því er full ástæða til
að hvetja stjórnendur Skjás eins til að halda
framleiðslu þeirra ótrauðir áfram.
Svo fer maður að hlæja …
SJÓNVARP
Skjár einn
Leikstjórn: Ragnar Hansson. Handrit og aðalleik-
endur: Friðrik Friðriksson, Gunnar Hansson og Hall-
dór Gylfason. Sýningartími 8 x 30 mín. Skjár einn.
Mars/apríl 2006.
Sigtið með Frímanni Gunnarssyni
Sigtið kemur með nýjan tón inn í íslenska
gamanþáttaflóru, að mati gagnrýnanda. Sæbjörn Valdimarsson
FALLEGA og fræga fólkið lét sig ekki vanta á útgáfuteiti Silvíu
Nóttar í tilefni af útkomu ljóðabókarinnar Teardrops of Wisdom
(Vísdómstár) sem fram fór á Óliver á laugardaginn. Samkvæmt
heimildamanni úr hópi Silvíu mættu „Tenórarnir þrír“, þeir Ingvar
E. Sigurðsson, Björn Hlynur Haraldsson og Einar Örn Benediktsson, og
fluttu sín uppáhaldsljóð úr bókinni við mikla hrifningu gesta sem dreyptu á
freyðivíni og gæddu sér á jarðarberjum. Eftir það gekk Silvía um salinn og
heilsaði hverjum og einum en hvarf svo á braut eins og sannri stjörnu sæm-
ir.
Í dag heldur Silvía Nótt ásamt föruneyti til meginlands Evrópu. Þar
hyggst hún kynna sig og lagið sem hún flytur í Aþenu en á meðal þeirra
landa sem hún heimsækir eru Danmörk, Svíþjóð, Finnland, Lettland, Írland
og England.
Silvía kemur svo heim aftur hinn 9. maí til að veita eiginhandaráritanir
en flýgur svo beint til Aþenu hinn 11. maí.
Fólk | Silvía Nótt heldur til meginlands Evrópu í dag
Silvía
Nótt o
g ástm
aður h
ennar
Romar
io
fagna
Enari
Erni fy
rir upp
lesturi
nn.
Morgunblaðið/Eggert
Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Skjás eins, Björn Hlynur Haraldsson og
Ingvar E. voru mættir til að fagna með Silvíu.
Ingvar E.Sigurðs-son leik-
ari lasupp úr
nýrriljóðabók
Silvíu.
Vígalegar negl-
urnar á Silvíu
fóru ekki
framhjá nokkr-
um manni.
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Inside Man kl. 8 og 10.25
Rauðhetta m/íslensku tali kl. 6
The Hills Have Eyes kl. 10 B.i. 16 ára
Ice Age 2 m/ensku tali kl. 8
Hoodwinked/Rauðhetta m. ensku tali kl. 4, 6, 8 og 10
Rauðhetta/Hoodwinked m. ísl. tali kl. 4 og 6
Prime kl. 8 og 10.30
Prime Lúxus kl. 5.30, 8 og 10.30
The Hills have Eyes kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára
Ice Age 2 m. ensku tali kl. 4, 6 og 8
Ísöld 2 m. ísl. tali kl. 4 og 6
When a Stranger Calls kl. 10 B.i. 16 ára
Sýnd með
íslensku og
ensku tali
eee
V.J.V Topp5.is
eee
H.J. Mbl
eee
J.Þ.B. Blaðið
„Ég var ónýtur eftir
myndina hún var
svo fyndin.“
Svali á FM 957
„Rauðhetta
á sterum“
H.Þ.H. bio.is
Mannbætandi og þrælfyndin rómantísk
gamanmynd með með Uma Thurman
og Meryl Streep í fantaformi!
N ý t t í b í ó
Eins og þú hefur aldrei séð hana áður
Sýnd með íslensku og ensku tali
Birgitta Haukdal
fer á kostum
sem Rauðhetta
í íslensku
talsetningunni
Kynnir sig og lagið