Morgunblaðið - 03.05.2006, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 03.05.2006, Blaðsíða 56
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. BANDARÍSKI tónlistarmaðurinn Iggy Pop kom til landsins í gærmorgun. Með honum í för var hljómsveit hans Stooges en tónleikarnir fara fram í kvöld í Hafnarhúsinu við Tryggva- götu. Miðasala er enn í gangi en fáir miðar eru eftir í stæði. Iggy og félagar hugðust í gær skoða sig um í bænum og þá bjuggust sumir við að þeir myndu láta sjá sig á skemmtistaðnum Sirkus sem blés til sérstaks kvölds í tilefni af komu tónlistarmannanna. Dyr Hafnarhússins verða opnaðar kl 19.30 en hin íslenska Dr. Spock fer á svið um 20.30. Morgunblaðið/Árni Sæberg Iggy Pop heilsar ljósmyndurum við komuna. Iggy Pop mættur endurskoðun reikningsskil skattar / ráðgjöf www.ey.is ÁRSHLUTAREIKNINGAR Glitnis og Landsbankans fyrir fyrsta ársfjórðung 2006 voru birtir í gær og skiluðu báðir bankarnir methagnaði á fjórðungnum. Hagnaður Lands- bankans nam 14,3 milljörðum eftir skatta og hagnaður Glitnis var 9,1 milljarður króna. Að viðbættum hagnaði KB banka og Straums – Burðaráss hafa bankarnir fjórir skilað 61,3 milljarða króna hagnaði á fyrstu þremur mán- uðum ársins. Þetta er þrefalt meiri hagnaður hjá Glitni en á fyrsta ársfjórðungi 2005 en hagnaður Landsbankans hefur aukist um 135% miðað við sama tímabil á síðasta ári. Uppgjör beggja bankanna voru talsvert yfir væntingum grein- ingardeildanna. Arðsemi eigin fjár eftir skatta hjá Lands- bankanum var 63% á fjórðungnum, en grunn- arðsemi eigin fjár, þ.e. að frátöldum gengis- ársfjórðung í fyrra. Hreinar rekstrartekjur Landsbankans erlendis námu 13,3 milljörðum króna samanborið við 1,9 milljarða króna fyrir ári. Tekjur af erlendri starfsemi eru nú 49% af heildartekjum samstæðunnar en voru 15% á síðasta ári. Hagnaður Glitnis fyrir skatta nam 11,2 milljörðum króna, en um 60% hans urðu til vegna starfsemi hans í útlöndum, eða um 6,6 milljarðar. Þetta er í fyrsta sinn sem erlenda starfsemin skilar meira en helmingi af hagn- aði Glitnis. Allir viðskiptabankarnir hafa þannig skilað methagnaði á fjórðungnum, en KB banki birti uppgjör fyrsta ársfjórðungs fyrir helgi og nam hagnaður bankans 18,8 milljörðum króna. Samanlagður hagnaður viðskiptabankanna er því 42,2 milljarðar króna. Hagnaður Straums – Burðaráss Fjárfestingabanka var 19,1 millj- arður á fjórðungnum og að honum meðtöldum nemur hagnaður bankanna 61,3 milljörðum króna. | 13 hagnaði, var 30% fyrir skatta. Glitnir skilaði arðsemi eigin fjár upp á 42%, en án geng- ishagnaðar nam arðsemin 32% á ársgrund- velli. Tekjur bæði Glitnis og Landsbankans utan Íslands hafa vaxið umtalsvert miðað við sama Bankarnir hagnast um 61,3 milljarða króna Methagnaður hjá Landsbanka og Glitni og talsvert yfir væntingum Eftir Kristján Torfa Einarsson kte@mbl.is            ?  <   $    +? * =B&=< '@@A '@@9 ? 8 %   0040 94@ 64@ :49 ':41 E FEC GE GE HEC 93C 06(C '@6C 60AC 0:(C ÞAÐ er búið að vera ævintýralegt fiskirí að und- anförnu hjá bátum sem róa frá Skagaströnd. Fínn fiskur, megnið af þorskinum 5 kíló plús,“ sagði Teitur, skipstjóri á snurvoðarbátnum Hjalteyrinni EA 310, þar sem hann var að landa 11 tonnum eftir daginn í síðustu viku. Mjög mikið hefur verið að gera við höfn- ina á Skagaströnd undanfarna daga því snurvoðarbátarnir leggja þar upp daglega og hafa þeir allir verið að mokfiska. Auk þeirra róa nokkrir minni bátar með línu og hafa þeir fiskað mjög vel líka. Þannig landaði Aldan frá Skagaströnd 9,6 tonnum af góðum línufiski á fimmtudags- kvöldið í síðustu viku sem verður að teljast gott á 15 tonna báti. Uni Pétursson, skipstjóri á Strák, var ánægð- ur með daginn „Þetta er ágætt, 12 tonn í dag. Þessi fiskur fer allur beint í útflutning. Hugsaðu þér, skipið sem átti að taka hann er farið frá Reykjavík þannig að þessir tittir verða að fara fyrst suður og síðan elta skipið alla leið til Eski- fjarðar þar sem þeir fara um borð. Meiri vitleys- an þetta allt saman.“ | B1 Moka upp fiski við Skagaströnd Uni Pétursson, skipstjóri á Strák, stendur hér við hluta af afla dagsins. Uni segir það tóma vitleysu að fiskurinn skuli fara óunninn úr landi. ÞAÐ VAR enginn æsing- ur í drengjunum sem sátu á bryggjunni í Hafnarfjarðarhöfn og dorguðu í blíðskap- arveðri í gær. Einbeit- ingin var algjör á meðan beðið var eftir því að sá stóri biti á agnið. Veiði- mennirnir ungu heita Máni Hrafn, Egill Örn og Ívar Már Sigurpáls- synir. Á spegilsléttum sjón- um biðu svo bátarnir þess að komast á miðin, eða í skemmtisiglingu rétt út fyrir landstein- ana.Morgunblaðið/ÞÖK Dorgað í róleg- heitunum „ÉG Á von á því að mun fleiri nem- endur sæki um skólavist í fram- haldsskólum landsins í haust en nokkru sinni áður og höfum við verulegar áhyggjur af því hvernig við leysum farsællega úr því fyrir alla,“ segir Þorsteinn Þorsteins- son, formaður Skólameistara- félags Íslands og skólameistari í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, en í vor útskrifast stærsti árgang- ur Íslandssögunnar úr grunnskól- um landsins. Þorgerður Katrín Gunnarsdótt- ir, menntamálaráðherra, segir það hversu stór árgangur útskrifast úr grunnskóla í vor ekki ófyrirséð og að sjálfsögðu verði tryggt að allir sókn í skólana núna heldur en áð- ur,“ segir Þorsteinn og vísar í því samhengi annars vegar til þess hversu stór árgangur útskrifist úr grunnskólanum í vor og hins vegar til þess að sífellt fleiri eldri nem- endur velja að snúa sér aftur að námi m.a. sökum þess hvernig horfur eru í atvinnulífinu. Aðspurður segir Þorsteinn menntamálaráðuneytið hafa staðið sig afar vel varðandi innritun ný- nema úr 10. bekk í framhalds- skólana þar sem öllum nýnemum hefur verið tryggð skólavist. Hins vegar sé brýnt að huga líka að mál- um eldri nema sem snúa vilji sér aftur að námi eftir eitthvert hlé. Í dag hefjast samræmd próf í 10. bekk grunnskólans og standa fram til 10. maí nk. um, frekar frá því sem nú er. Að sögn Þorsteins hefur það verið ár- legt áhyggjuefni mörg undanfarin ár hvernig fara eigi að því að tryggja öllum sem eftir því sækja skólavist í framhaldsskólum lands- ins á hverju hausti. „Það tókst að leysa málin í fyrra, en nú höfum við verulegar áhyggjur. Mín til- finning er sú að það verði meiri að- nýnemar fái pláss í framhaldsskól- um í haust líkt og verið hafi und- anfarin ár. Rifjar hún upp að raf- ræn innritun hafi verið tekin upp í fyrsta sinn á síðasta ári og hafi gef- ist mjög vel. Segir hún að unnið verði að því í vetur að þróa það kerfi enn frekar til þess að hægt sé að bæta þjónustu við nemendur, sem sæki um vist í framhaldsskól- Verulegar áhyggjur af að- sókn að framhaldsskólum Menntamálaráðherra segir tryggt að allir nýnemar fái pláss Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is FJÖGURRA sæta eins hreyfils Cessna-flugvél hlekktist á í lendingu á flugvellinum á Stóra- Kroppi í Borgarfirði í gær. Flugmanninn sak- aði ekki en hann var einn um borð, að sögn Braga Baldurssonar, aðstoðarframkvæmda- stjóra hjá Rannsóknanefnd flugslysa. Atvikið átti sér stað um hádegisbilið en vélin var á leið til Stykkishólms. Flugmaðurinn ákvað að snúa við vegna veðurs og taka snertilendingu á Stóra-Kroppi, en hlekktist á í lendingu og hafnaði rétt utan brautar. Að sögn Braga er vélin líklega lítillega skemmd, en hann segir að enn sé eftir að skoða hana betur. Vélin er í eigu Flugskóla Íslands. Hlekktist á í lendingu NÝNEMUM hefur fjölgað mjög milli ára. Þannig skráðu alls 4.566 ný- nemar sig í framhaldsskóla haustið 2004 og höfðu þá aldrei verið fleiri. Í árganginum sem fæddur er 1989 og gat sest á framhalds- skólabekk sl. haust voru samtals 4.498 einstaklingar og sóttu um 95% þeirra um skólavist í framhaldsskólum landsins. Samkvæmt upplýs- ingum frá Hagstofu Íslands eru samtals 4.810 einstaklingar í árgang- inum sem lýkur grunnskólanum í vor. Metárgangur í vor♦♦♦ ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.