Morgunblaðið - 16.06.2006, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Getur verið að þú sért með ofnæmi?
Það er engin ástæða til að láta sér líða illa á besta tíma ársins.
Komdu og fáðu ráðgjöf hjá okkur.
Við hlustum!
Lóritín og Histasín
fást án lyfseðils
Byrjar þú að hnerra um leið og
allt fer að lifna við á vorin?
Þannig er um marga án þess að þeir
átti sig á því að um ofnæmi geti verið
að ræða.
Lóritín 10 mg töflur. Hver tafla inniheldur
10 mg Loratadin. Notkunarsvið: Lóritín
inniheldur virka efnið lóratadín sem hefur
kröftuga og langvarandi verkun við
algengustu tegundum ofnæmis. Lyfið
er ætlað við frjókorna- og dýraofnæmi,
sem og ofnæmi af völdum rykmaura.
Varúðarreglur: Gæta þarf sérstakrar
varúðar hjá börnummeð alvarlega nýrna-
og lifrarsjúkdóma. Sjúklingar með skerta
lifrarstarfsemi þurfa minni skammta.
Aukaverkanir: Lóritín þolist yfirleitt vel en
algengustu aukaverkanirnar eru
munnþurrkur og höfuðverkur. Svimi getur
einnig komið fyrir. Skömmtun: Ein tafla af
Lóritíni er tekin daglega. Börnum 2–14 ára
sem eru undir 30 kg að þyngd nægir hálf
tafla á dag. Lyfið er ekki ætlað börnum
yngri en 2ja ára. Lesið vandlega
leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. 13.07.04
Histasín 10 mg töflur. Hver tafla inniheldur
10 mg Cetirizín. Notkunarsvið: Histasín er
ofnæmislyf. Histasín virkar gegn öllum
algengustu tegundum ofnæmis, svo sem
frjóofnæmi og rykofnæmi. Histasín er líka
notað við ofnæmisbólgum í nefi og
ofnæmiseinkennum eins og útbrotum
og kláða. Varúðarreglur: Lyfið getur dregið
úr viðbragðsflýti og skal það haft í huga
við akstur og nákvæmnisvinnu.
Aukaverkanir: Einstaka sinnum veldur lyfið
munnþurrki og syfju. Skömmtun: 1 tafla
á dag fyrir fullorðna og börn frá 12 ára
aldri. Börnum 6–12 ára sem eru undir 30
kg að þyngd nægir hálf tafla á dag. Lyfið
er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára. Lesið
vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu.
13.07.04
GERÐ viðskiptaáætlana, greining
markaðar, fjárhagsáætlanir og raun-
ar allt sem lýtur að stofnun og
rekstri fyrirtækja er til umfjöllunar á
tveggja vikna námskeiði sem átta
Úgandabúar sækja í Háskólanum í
Reykjavík (HR) nú um mundir.
Úgandabúarnir komu til landsins
sl. mánudag en dvöl þeirra er kostuð
af Þróunarsamvinnustofnun Íslands.
Á næstu þremur árum er þeim ætlað
að kenna efni námskeiðsins fjörutíu
samlöndum sínum sem aftur er ætlað
að breiða boðskapinn um landið.
Hugmyndin að verkefninu kvikn-
aði í heimsókn fulltrúa fjárfesting-
arstofu Úganda hingað til lands árið
2003. Þeir óskuðu síðan formlega eft-
ir að verkefninu yrði komið á lagg-
irnar með það að markmiði að þjálfa
fólk upp í að ýta fyrirtækjum úr vör.
Þórunn Sigurðardóttir, verkefna-
fulltrúi Símenntar í HR, segir frum-
kvöðlastarfsemi rótgróna í Úganda
og að landið komi mjög vel út í al-
þjóðlegum samanburði. Hins vegar
sé líftími fyrirtækja oft frekar stutt-
ur. „Það eru lánastofnanir í landinu
sem eru tilbúnar að lána út peninga
en áhættan getur verið mikil. T.d.
tíðkast ekki að taka veð í landi, þar
sem margir eiga það oft saman, sem
þýðir að lánastofnunin hefur ekki
nægilega tryggingu fyrir pening-
unum sem hún leggur út,“ segir Þór-
unn og bætir við að oft vanti upp á að
fjárhagsáætlanir séu nógu vel unnar.
„Hugmyndin er því að styrkja stoðir
nýsköpunar í landinu með því að
kenna fólki að undirbúa fyrirtækj-
arekstur sinn vel.“
Sex konur og tveir karlar
Úgandabúarnir koma frá fjórum
ólíkum stofnunum, þ.á m. við-
skiptaháskóla og frumkvöðla-
samtökum kvenna. Sex af átta þátt-
takendum eru konur en að sögn
Þórunnar er það í samræmi við óskir
sem bárust frá Úganda.
Ástæðuna fyrir því að hópurinn
var fenginn til Íslands segir Þórunn
vera að oft sé talið betra að læra nýja
hluti í öðru umhverfi þar sem dag-
legar skyldur minnka ekki einbeit-
inguna. „Þau eru auðvitað öll ensku-
mælandi og sprengmenntuð, með
háskólapróf og jafnvel meistara-
gráður,“ segir Þórunn og bætir við
að ferliskrá eins þátttakendanna hafi
verið einar átta blaðsíður.
Hópurinn sækir tíma í HR frá níu
til 17 alla virka daga en í næstu viku
verða fyrirtækin Össur og Kaffitár
heimsótt til að kynnast frumkvöðla-
starfseminni þar.
Úgandabúar í frumkvöðlafræðslu
Morgunblaðið/Eyþór
Úgandabúarnir nutu leiðsagnar Jóns Hreinssonar frá frumkvöðlasetrinu Impru í gær.
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
„STÓLLINN hreyfðist ekki
og hún sat bara undrandi
frekar en skelkuð,“ segir
Halldór Halldórsson um dótt-
ur sína, Köru Sól, eftir um-
ferðaóhapp sem þau lentu í
með þeim afleiðingum að bif-
reið þeirra gjöreyðilagðist.
Talið er að barnabílstóllinn
sem Kara sat í hafi bjargað
henni og jafnvel verið lífgjöf,
en um er að ræða leigustól
frá Vátryggingafélagi Íslands
(VÍS).
Óhappið átti sér stað á
föstudegi fyrir hvítasunnu og
Kara Sól var á leið vestur til
Bolungarvíkur ásamt for-
eldrum sínum til að fara í
fermingarveislu. „Það var sól
og logn og bestu mögulegu
aðstæður. Við vorum að
keyra skammt frá Búðardal á
beinum og malbikuðum vegi
þegar skyndilega og án alls
fyrirvara sprakk hjólbarði á
bílnum. Bíllinn snerist á veg-
inum svo ekkert varð við
hann ráðið og við fórum út af
á öfugum helmingi, ultum og
enduðum ofan í skurði,“ út-
skýrir Halldór.
Smá skurður á þumalputta
Lögreglan kom á vettvang
og sjúkrabíll var kallaður út
til vonar og vara. Fjölskyldan
slapp hins vegar nánast alveg
ómeidd ef frá eru talin ba-
keymsli þeirra fullorðnu og
lítil sár. Allir voru á einu máli
um að bílstóllinn hefði svo
sannarlega gert sitt gagn.
„Kara fékk smáskurð á þum-
alputtann sem blæddi úr, sem
er ótrúlega lítið miðað við að
rúðan við hliðina á henni
brotnaði og bíllinn er alveg
ónýtur. Um leið og hún var
búin að fá plástur varð allt í
góðu lagi og klukkustund síð-
ar söng hún og trallaði,“ seg-
ir Halldór en fjölskyldan hélt
ferð sinni áfram að lokinni
aðhlynningu í heilsugæslu-
stöðinni í Búðardal. „Hún
saknaði reyndar bílsins og
hafði smá áhyggjur af því að
hann væri ónýtur. Við erum
afskaplega þakklát fyrir að
hafa verið með öryggisbún-
aðinn í lagi.“
Foreldrar Köru Sólar skil-
uðu stólnum til VÍS eins og
ráðlagt er eftir óhapp ásamt
kveðju með þakklæti. „Við
fengum strax annan stól til
leigu,“ segir Halldór og bætir
við að stólarnir séu leigðir út
á lágu verði og fólk fái nýja
stóla þegar barnið eldist.
Kara Sól slapp alveg ómeidd.
„Undrandi
frekar en
skelkuð“
Barnabílstóllinn
bjargaði Köru Sól
HEILBRIGÐISRÁÐHERRAR
Norðurlandanna eru sammála um
áframhaldandi könnun á mögulegu
samstarfi Norðurlanda um fram-
leiðslu bóluefnis gegn inflúensu, með
það í huga að vera undirbúin ef
heimsfaraldur kæmi upp. Þetta kom
fram á fundi heilbrigðisráðherra
Norðurlandanna sem fram fór í
Norður-Noregi dagana 11. til 13.
júní. Jafnframt eru ráðherrarnir
sammála um að kannaðar verði tvær
leiðir fyrir slíka framleiðslu. Annars
vegar opinbert líkan byggt á fram-
leiðslu með leyfi einkaleyfishafa og
hins vegar líkan sem byggir á sam-
starfi hins opinbera og einkaaðila.
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráð-
herra segir að hinn 1. nóvember
næstkomandi eigi greinargerðir
hvað þetta varðar að vera tilbúnar og
þá muni það væntanlega liggja fyrir
hvort ráðherrarnir sameinist um að
fara aðra hvora leiðina. Það hafi hins
vegar komið fram að Svíar vilji fara
fyrri leiðina en aðrar þjóðir, með
Dani í broddi fylkingar, kjósi síðari
leiðina.
„Ákvörðun um það hvort reist
verði sameiginleg verksmiðja verður
því tekin 1. nóvember,“ segir Siv og
bætir því við að ekki sé búið að taka
ákvörðun um það hvar verksmiðjan
yrði.
„Aðalatriðið er að Norðurlöndin
eru að skoða hvernig hægt sé að und-
irbúa okkar samfélög undir hugsan-
legan heimsfaraldur. […] Aðgerðirn-
ar miða að því að vera tilbúin með
áætlun og verksmiðju sem gæti mjög
hratt og örugglega farið að framleiða
bóluefni ef á þyrfti að halda.“
Haraldur Briem sóttvarnalæknir
segir að hér sé um að ræða mjög
mikilvægan þátt í okkar viðbrögðum
við hugsanlegum heimsfaraldri
inflúensu.
„Ef bóluefnið er framleitt ein-
hvers staðar annars staðar í heim-
inum er hætta á að það fari ekki út
fyrir þau landamæri. Það þekkjum
við af reynslunni að getur gerst,“
segir Haraldur.
Heilbrigðisráðherrar Norðurlanda kanna samstarf um framleiðslu bóluefnis
Sameiginleg verksmiðja hugsanleg
Eftir Þóri Júlíusson
thorirj@mbl.is
Frá vinstri: Liisa Hyssälä, heilbrigðismálaráðherra Finnlands, Sulvia
Brustad, heilbrigðismálaráðherra Noregs, Morgan Johannsson, heilbrigð-
ismálaráðherra Svíþjóðar, Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra Íslands
og Eva Kjer Hansen, félagsmálaráðherra Danmerkur.