Morgunblaðið - 16.06.2006, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 19
ERLENT
Nú er að taka undir sig stökk út í sumarið. Við bjóðum fjölbreytt úrval
af flottum barnafatnaði handa stelpum og strákum 0-14 ára fyrir
skrúðgönguna, í ferðalagið, á róló eða út að leika. Spariföt, létt
sumarföt, útvistarfatnaður. tryggðu þér flottustu barnamerkin
á markaðnum; esprit, 660norður, jasper conran, matthew williamson,
john rocha og st. george by duffer - á mun betra verði.
Í Debenhams finnurðu mikið úrval af fatnaði og gjafavöru á verði sem
kemur þér í gott skap.
Í LOFTINUINU
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
3
31
14
0
6/
20
06
SUMARdebenhams
Nýtt
kor
ta-
tíma
bil
Flóttamönn-
um fjölgar
Ástandið í Írak
meðal orsakanna
Washington. AFP. | Flóttamönnum í
heiminum fjölgaði í fyrra, en það er í
fyrsta sinn í fjögur ár sem slík fjölg-
un á sér stað, að sögn óháðra banda-
rískra samtaka sem sinna málefnum
flóttamanna og innflytjenda á heims-
vísu (USCRI). Þau segja að einkum
megi rekja fjölgunina til hins óstöð-
uga ástands sem ríkt hafi í Írak.
Í könnun samtakanna fyrir árið
2006 kemur fram að í fyrra hafi
flóttamenn og hælisleitendur í heim-
inum verið um 12 milljónir talsins, en
árið áður hafi þeir verið um 11,5
milljónir. Þar segir einnig að flótta-
menn njóti nú minni verndar en fyrr.
Segja USCRI að íröskum flótta-
mönnum sem dveljast í Jórdaníu og
Sýrlandi hafi fjölgað um 644.500
manns í fyrra og svo virðist sem um-
talsverður fjöldi til viðbótar eigi eftir
að flýja frá Írak á næstunni. Sam-
tökin benda á að frá því að innrásin í
Írak hófst árið 2003 hafi meira en
40% íraskra menntamanna flúið
landið.
Fram kemur í könnuninni að fjöldi
flóttamanna í heiminum hafi náð há-
marki árið 2001, en þá hafi þeir verið
um 14,9 milljónir talsins. Þeim hafi
fækkað næstu árin, en byrjað að
fjölga að nýju í fyrra.
Shanghai. AFP. |Vladímír Pútín, for-
seti Rússlands, sagði eftir fund sinn
með Mahmoud Ahmadinejad Írans-
forseta í Shanghai í gær að stjórn-
völd í Teheran hefðu tekið vel í til-
lögur stórveldanna í deilunni um
kjarnorkuáætlun Írana, sem lagðar
voru fram af fulltrúum fimm fasta-
ríkja öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna auk Þýskalands 31. maí.
„Íranar eru tilbúnir að hefja við-
ræður fljótlega og ég vona að þeir
muni gera afstöðu sína ljósa þegar
þær hefjast,“ sagði Pútín í gær.
„Þeir þurfa þó að gera það með
þeim hætti að það valdi ekki
áhyggjum alþjóðasamfélagsins.“
Ahmadinejad tjáði sig einnig um
málið í Shanghai í gær.
„Hvað snertir áherslur í öryggis-
málum mun samvinna okkar hafa
mikil áhrif á frið og öryggi á svæð-
inu,“ sagði Ahmadinejad í gær.
„Samvinna okkar mun verða í þágu
alþjóðlegs friðar og öryggis.“
Íransforseti ræddi einnig um
samband Írana og Rússa og sagði
að ríkin gætu náð „verulegum ár-
angi“ ef þau ynnu saman í orku-
málum.
Khamenei gagnrýninn
Ajatollah Ali Khamenei, æðsti
klerkur Írans, sagði í gær að þjóð
sín myndi ekki láta undan þrýstingi
og falla frá kjarnorkuáætlun sinni.
„Áframhald þessara vísindarann-
sókna eru grundvallarréttindi,“
sagði Khamenei í gær. „Það er
sögulegur áfangi að Íranar skuli
hafa komið sér upp kjarnorku-
tækni.“
Segir Írana hafa tekið
tillögum stórveldanna vel
Reuters
Vel fór á með Ahmadinejad og Pútín á fundi þeirra í Shanghai í gær.
Moskvu. AFP. | Rússneska rétttrún-
aðarkirkjan tilkynnti á þriðjudag að
hún hefði stofnað sérstaka nefnd til
að rannsaka „grátandi“ helgimyndir
og önnur atvik sem talin eru krafta-
verk. Trúarlegar athafnir voru bann-
aðar undir stjórn kommúnista og
hefur þeim stórfjölgað frá árinu 1991
þegar Sovétríkin liðu undir lok.
„Í samtíma okkar eru kraftaverk
einkar tíð, en þeim er eflaust ætlað
að efla trúarsannfæringu Rússa við
trúarathafnir þeirra,“ sagði Pavel
Florensky, forseti nefndarinnar, í
gær.
Rannsaka
kraftaverk
VÍSINDAMENN við Flórens-há-
skóla á Ítalíu segjast hafa fundið leið
til að framleiða einstaklega sterkt
gler sem gæti komið að góðum not-
um á ýmsum sviðum. Vísindamenn-
irnir gerðu þessa uppgötvun þegar
þeir gerðu tilraun með að beita kol-
díoxíð gríðarlegum þrýstingi, en það
varð að hörðu efni er það var kælt
niður í stofuhita undir þrýstingi.
Fréttavefur breska ríkisútvarps-
ins, BBC, greindi frá þessu í gær en
þar kemur fram að tilraunin geti gef-
ið vísbendingar um hvað gerist í
kjörnum gasrisa á borð við Júpíter.
Þurrís að
hörðu gleri?
♦♦♦
♦♦♦