Morgunblaðið - 16.06.2006, Page 32
32 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Sóley HildurOddsdóttir
Mangal fæddist í
Reykjavík hinn 11.
nóvember 1964. Hún
lést af slysförum í
París 4. júní síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar eru hjónin
Soffía Ágústsdóttir,
áður fulltrúi hjá
Reykjavíkurborg, og
Oddur Rúnar Hjart-
arson dýralæknir,
áður framkvæmda-
stjóri Heilbrigðiseft-
irlits Reykjavíkurborgar. Systkini
Sóleyjar eru Ágúst, læknir á
Hvammstanga, f. 1954, kvæntur
Elizabethu H. Einarsdóttur, sjúkra-
liða, Kristján, læknir á Kirkjubæj-
arklaustri, f. 1961, kvæntur Berg-
lindi Steffensen, lækni á
kvennadeild LSH, og Hjörtur,
læknir, f. 1962, d. 1990.
Sóley giftist 31. ágúst 1996 Lars
Nicolas Mangal, orkuverkfræðingi
frá Edinborg. Lars starfar nú sem
svæðisstjóri í Asíulöndum fjær fyr-
ir franska fyrirtækið Schlumberg-
er.
Foreldrar hans eru Jonna og
Keshav Mangal. Sóley og Lars eiga
tvær dætur, Soffiu
Jonnu, f. 1997, og
Sole Andreu, f. 1999.
Fyrir átti Sóley
Hjört, f. 1991, en fað-
ir hans er Einar Dal-
berg Einarsson,
húsasmíðameistari á
Eskifirði.
Sóley ólst upp á
Hvanneyri til 14 ára
aldurs en þá fluttist
fjölskyldan til
Reykjavíkur. Hún
stundaði nám m.a.
við Menntaskólann
við Hamrahlíð og Kennaraháskóla
Íslands þaðan sem hún lauk B.Ed.-
prófi 1987. Sama ár hóf hún
kennslu, fyrst við grunnskólann á
Eiðum í eitt ár, en síðan við Hjalla-
skóla í Kópavogi.
Á námsárum sínum æfði Sóley
og lék körfuknattleik með ÍR.
Árið 1996 stofnuðu Sóley og Lars
heimili í Skotlandi. Þar bjuggu þau
til 1999 en þá lá leiðin til Englands
og síðan Bandaríkjanna. Árið 2003
fluttust þau svo til Parísar þar sem
þau hafa búið síðan.
Útför Sóleyjar verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Í minningu okkar ástkæru Sóleyj-
ar:
Fótmál dauðans fljótt er stigið
fram að myrkum grafarreit,
mitt er hold til moldar hnigið
máske fyrr en af ég veit.
Heilsa, máttur, fegurð, fjör
flýgur burt sem elding snör.
Hvað er lífið? Logi veikur,
lítil bóla, hverfull reykur.
Margur einn í aldurs blóma
undi sæll við glaðan hag,
brátt þá fregnin heyrðist hljóma:
Heill í gær, en nár í dag. –
Ó, hve getur undraskjótt
yfir skyggt hin dimma nótt!
Fyrir dyrum dauðans voða
daglega þér ber að skoða.
(Björn Halldórsson.)
Mamma, pabbi, Ágúst,
Kristján og fjölskyldur.
Moldin syngur og moldin grætur:
að morgni rís heitur dagur á fætur
og kyssir bláfjöll á brún og vanga.
Og blómin anga.
Svo vaknar dauðinn og dapur grætur
og dagur sofnar í faðmi nætur
og sóley fölnar á svölu engi
og sefur lengi,
er moldin stynur og mjúkum fingrum
myrkrið leikur á klukkustrengi.
(Matthías Johannessen.)
Sigga, Soffía og Svava, þrjár syst-
ur fæddar á árunum 1933–36. Bróð-
irinn Ágúst bættist í hópinn 1940, en
árið eftir féll Ágúst faðir þeirra frá.
Sóley móðir þeirra hélt heimili með
Þórlaugu móður sinni og þær ólu
börnin upp saman.
Vorið 1954 gerðist sá hörmulegi at-
burður að Ágúst, afreksmaður í
sundi, drukknaði í Sundlaugunum.
Þrem dögum síðar fæddist fyrsta
systrabarnið, Ágúst, sonur Soffíu og
Odds Rúnars.
Alls urðum við ellefu á ellefu árum,
við Ágúst „stóru krakkarnir“ svo
„krakkarnir“ Þórhallur, Kristleifur,
Sóley, Kristján, Sigurður, Þorsteinn,
Hjörtur og „litlu stelpurnar“ Sóley
Hildur og Katrín. Við vorum alin upp
sem einn stór hópur, enginn grein-
armunur var gerður á hver ætti
hvaða barn, sumir foreldrar höfðu
hátt en aðrir réðu. Amma Sóley var
höfuð fjölskyldunnar, hún rak versl-
un í Reykjavík og því ólík flestum
ömmum á þessum tíma. Hún fór í
verslunarferðir til útlanda, kom alltaf
heim með gjafir handa öllum barna-
börnunum, fatnað og framandi sæl-
gæti. Við deildum líka með okkur
hinum ömmunum, ömmu Jórunni,
ömmu Guðmundínu og ömmu Unni
og eina afanum, afa Hirti. Þannig
kom stórfjölskyldan okkur öllum til
manns með ást og alúð.
Sorgin hefur líka drepið á okkar
dyr, sjaldan en þeim mun harkaleg-
ar. Hjörtur, sonur Soffíu og Rúnars,
lést úr hvítblæði 1990. Nú er höggvið
aftur í sama knérunn, Sóley Hildur
systir hans deyr af slysförum á heim-
ili sínu í París.
Sóley Hildur lærði snemma að
standa á sínu. Hjörtur og Kristján
bræður hennar voru tveggja og
þriggja ára þegar hún fæddist,
fjörháir vel. Mér er í barnsminni að
Soffía lét litlu stelpuna sitja í barna-
vagninum inni í eldhúsi svo bræðurn-
ir næðu ekki til hennar. Eftir að hún
komst upp úr vagninum hafði hún í
fullu tré við bræðurna, já og flesta
sem á vegi hennar urðu.
Sóley Hildur tók kennaramennt-
unina fram yfir hefðbundna læknis-
fræði bræðra sinna. Hún kenndi um
tíma á Austurlandi, þar kynntist hún
fyrri manni sínum, Einari Dalberg
Einarssyni, þau eignuðust soninn
Hjört. Seinni maður hennar var Lars
Mangal, orkuverkfræðingur. Hann
hefur unnið í olíuiðnaðinum í ýmsum
heimsálfum, því fluttu þau á milli
staða og höfðu verið heimilisföst í
París nú um skeið. Saman áttu þau
dæturnar Soffíu Jonnu og Sole And-
reu, hún fæddist á afmælisdegi föður
míns og heitir í höfuðið á honum.
Samband Sóleyjar Hildar við fjöl-
skylduna hér heima var náið og hún
rækti frændskapinn vel. Lengi var ég
búin að ætla mér að fara með börnin
mín í heimsókn til Parísar, en alltaf
kom eitthvað upp á, nógur var tíminn
héldum við. Nú lifir minningin ein um
kæra frænku.
Sóleyjarnar, sjáðu til
sitja í gula kjólnum
og una sér við sólaryl
sunnan til í hólnum.
Ég sit hjá þeim og sakna þín,
sárt var nú að skilja
hjartans sálar sóley mín
og söknuðinn að dylja.
(Páll Ólafsson.)
Katrín Andrésdóttir (Dedda).
Að morgni hvítasunnudags barst
okkur hin hörmulega fregn að Sóley
Hildur hefði látist af slysförum. Það
var eins og jörðin hætti að snúast.
Aftur var skarð höggvið í okkar
samheldna hóp frændsystkina.
Við vorum ellefu systrabörnin
fædd á ellefu árum sem skiptumst í
stóru krakkana, litlu krakkana og svo
stelpurnar yngstar Sóleyju Hildi og
Katrínu sem stundum töldust ekki
með.
Alltaf hefur verið mikill samgang-
ur milli heimila systranna Siggu,
Soffíu og Svövu. Við nutum sumr-
anna saman í sveitinni hjá Siggu og
oft fögnuðum við saman nýju ári á
Hvanneyri.
Sóley stundaði alltaf íþróttir og
tókst henni að draga Katrínu á körfu-
boltaæfingar hjá ÍR heilan vetur.
Sóley keppti með tveimur flokkum og
var einnig dyggur stuðningsmaður
bræðra sinna sem spiluðu í meistara-
flokki.
Sóley reyndist bróður sínum vel í
langvinnum veikindum hans og
heiðraði minningu hans er hún skírði
son sinn Hjört í höfuðið á honum.
Það var gott að leita til Sóleyjar
Hildar og hún lá ekki á skoðunum
sínum, var ávallt hrein og bein. Sóley
Hildur var bóngóð og það var sönn
ánægja að fá að taka þátt í undirbún-
ingi brúðkaups hennar og Lars og sjá
brúðgumann, hann sem hún hafði
þekkt svo lengi og leynt svo vel.
Þau ljómuðu svo yndislega innan
um sólblómin og auðvitað voru sól-
eyjar í brúðarvendinum.
Vinnu Lars hjá Schlumberger
fylgdu tíðir flutningar milli landa og
heimsálfa en ávallt bjó Sóley til hlý-
legt heimili handa fjölskyldu sinni.
Hún var ótrúlega fljót að kynnast
fólki og mynda tengsl við fólkið í
kringum sig.
Sú staðreynd að við eigum rætur á
Íslandi en búum sitt í hverju landi
fækkaði mikið samverustundum. Við
hittumst þó alltaf þegar þau komu
heim til Íslands og náðum að fylgjast
með uppvexti Hjartar, Soffíu og Sole.
Elsku Soffía og Rúnar, Ágúst,
Kristján og fjölskyldur. Enn er miss-
ir ykkar mikill.
Kæri Lars, Hjörtur, Soffía Jonna
SÓLEY HILDUR
ODDSDÓTTIR
STEFÁN ÞORLEIFSSON
bóndi
frá Hofi í Norðfirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað
þriðjudaginn 13. júní.
Aðstandendur.
Ástkær faðir, bróðir, mágur og frændi,
ÖRN ÓLAFSSON,
Austurströnd 10,
er látinn.
Jarðarför hans verður auglýst síðar.
Ívar Jóhann Arnarson,
Snjólaug Guðrún Ólafsdóttir, Haraldur Briem,
Jón Hjaltalín Ólafsson, Þórunn Þórhallsdóttir,
Arnþrúður Jónsdóttir, Gunnar Haukur Stefánsson,
Ólafur Andri Briem,
Þórhalla Sólveig Jónsdóttir, Ármann Einarsson.
Ástkær bróðir minn og fósturbróðir,
GUÐJÓN HELGASON,
andaðist á elliheimilinu Grund fimmtudaginn
15. júní.
Útför hans verður gerð frá Grensáskirkju þriðju-
daginn 20. júní kl. 13.00.
Ingibjörg Helgadóttir,
Valgerður Bjarnadóttir.
Elskuleg móðir mín,
HANSÍNA VIGDÍS JÓNSDÓTTIR,
Bollagötu 16,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ sunnudaginn
11. júní.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn
19. júní kl. 11.00.
Inga Dóra Karlsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR INGI GUÐMUNDSSON
skipstjóri og útgerðarmaður,
Bessahrauni 11b,
Vestmannaeyjum,
sem lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja miðviku-
daginn 14. júní, verður jarðsunginn frá Landa-
kirkju, Vestmannaeyjum, laugardaginn 24. júní kl. 14.00.
Kristín Pálsdóttir,
Guðmundur Huginn Guðmundsson, Þórunn Gísladóttir,
Bryndís Anna Guðmundsdóttir,
Páll Þór Guðmundsson, Rut Haraldsdóttir,
Gylfi Viðar Guðmundsson, Sólrún Erla Gunnarsdóttir,
afabörn og langafabarn.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
HALLDÓRA SIGFÚSDÓTTIR,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund þriðju-
daginn 6. júní.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Sigfús Guðbrandsson, Þórarna Jónasdóttir,
María Anna Guðbrandsdóttir,
Jenný Ásgerður Guðbrandsdóttir,
Jón Sigfússon,
Bjarni Sigfússon,
Halldóra María H. Skowronski.
Móðir okkar og tengdamóðir,
SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR,
Reynivöllum 6,
Selfossi,
lést á Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn 15. júní.
Útförin verður auglýst síðar.
Pétur Kristjánsson, Guðrún V. Árnadóttir,
Ragnheiður Kristjánsdóttir, Páll Imsland,
Guðlaug E. Bóasdóttir.
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug vegna
fráfalls
STEINGRÍMS SIGVALDASONAR
vélstjóra.
Starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Grund eru færðar
bestu þakkir fyrir góða umönnun.
Ásta Sigvaldadóttir,
Sigvaldi Hólm Pétursson, Ragnheiður Pálsdóttir,
Sigurður Pétursson, Jónína Pálsdóttir.