Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 35 MINNINGAR Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Skilafrestur Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Minningar- greinar ✝ Hrefna Elías-dóttir fæddist í Reykjavík 24. febr- úar 1920. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 3. júní síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Kristín Mensalders- dóttir, f. 7.7. 1877, d. 1.4. 1965 og Elías Nikulásson, f. 29.6. 1881, d. 25.2. 1959. Hrefna var yngst sex systkina sem öll eru látin. Þau voru: Sigríður, f. 4.8. 1907, d. 10.6. 1971, Elín, f. 7.11. 1909, d. 14.1. 1989, Nikolai, 24.6. 1912, d. 11.8. 1983, Kristín, f. 1.3. 1915, d. 16.6. 1947, Þórunn, f. 1.12. 1916, d. 29.7. 1990. Hrefna giftist Jóhanni Ingvari Gíslasyni frá Vestmannaeyjum 23. desember 1939. Jóhann er f. 27.8. 1917. Foreldrar hans voru Sigríð- ur Brandsdóttir, f. 25.8. 1887, d. 1.8. 1966 og Gísli Ingvarsson, f. 20.6.1887, d. 28.8. 1968. Börn þeirra Hrefnu og Jóhanns eru: 1) Ásta, f. 28.6. 1940, börn hennar, Arnþrúður Ösp, Hrefna Björk, Ólöf Eir og Helena. 2) Jóhanna, f. 11.10. 1943, d. 21.4. 2005, eftirlif- andi maki er Sigurður Rúnar Sím- onarson, f. 8.4. 1942, börn þeirra, Jóhann, Lovísa og Sigurður Hrafn. 3) Óskar, f. 25.10. 1947, maki Valgerður G. Sigurðardótt- ir, f. 31.7. 1951, börn þeirra, Val- geir (f. 2.5. 1980, d. 9.5. 1980), Sig- urður Valgeir og Jóna Björg. 4) Sig- urður Gísli, f. 18.9. 1950, maki Guðrún Björnsdóttir, f. 28.5. 1952, börn þeirra, Hrafnhildur Jóna, Sævar og Þóra Björk. 5) Kristín, f. 12.6. 1957, maki Jón Gunnar Borgþórs- son, f. 1.11. 1957, börn þeirra, Borg- þór og Hrafnhildur. Hrefna fæddist að Seljalandi í Reykja- vík og bjó þar til 7 ára aldurs. Fjöl- skyldan fluttist í Þykkvabæinn þar sem Hrefna hlaut hefðbundna skólagöngu og ólst hún upp við al- menn sveitastörf. Þar kynntist Hrefna eftirlifandi eiginmanni sínum, Jóhanni I. Gíslasyni frá Vestmannaeyjum. Þau hófu ung búskap í Vestmannaeyjum og bjuggu þar til ársins 1963 er þau fluttust til Reykjavíkur. Árið 1972 byggðu þau sér hús í Mosfellsbæ og bjuggu þar til ársins 1998. Auk húsmóðurstarfa sem Hrefna helg- aði sig vann hún ýmis hlutastörf m.a. á Álafossi og við Barnaskól- ann að Varmá. Um tíma bjuggu þau í þjónustuíbúð að Hæðargarði 35 í Reykjavík, en síðustu árin dvöldu þau saman á Hjúkrunar- heimilinu Skógarbæ. Útför Hrefnu verður gerð frá Lágafellskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Minningin um elskulega móður og tengdamóður lifir. Vertu ekki grátin við gröfina mína góða, ég sef ekki þar. Ég er í leikandi ljúfum vindum, ég leiftra sem snjórinn á tindum. Ég er haustsins regn sem fellur á fold og fræið í hlýrri mold. Í morgunsins kyrrð er vakna þú vilt, ég er vængjatak fuglanna hljótt og stillt. Ég er árblik dags um óttubil og alstirndur himinn að nóttu til. Gráttu ekki við gröfina hér – gáðu – ég dó ei – ég lifi í þér. (Höf. ókunnur.) Börn og tengdabörn. Hrefna Frænka með stóru F-i. Hún var Frænkan á stærri hátt og meiri en aðrar frænkur. Enda systir mömmu. Milli þessara kvenna var kærleiksríkt systrasamband. Á sama hátt myndaðist náið samband milli heimilanna. Leiðir þeirra systra lá til Vest- mannaeyja á fyrri hluta síðustu ald- ar. Þar eignuðust þær eiginmenn, börn og hús. Ekki var langt á milli, aðeins nokkurra mínútna gangur. Þær stóðu saman systurnar, studdu hvor aðra og ólu upp börnin sín. Faxastígur 11 varð okkar annað heimili. Stóð okkur opið hvenær sem var. Við fundum, að þarna áttum við líka heima. Snemma á 7. áratugnum flutti Hrefna frænka með fjölskyldu sína til Reykjavíkur. Faxastígurinn varð ekki samur aftur. Engin frænka. En við eignuðumst nýjan samastað í borginni. Frænka og Jói settust að í Bólstaðarhlíðinni. Ekki langt frá þeim stað, þar sem systurnar áttu rætur. Og við eignuðumst annað heimili. Gátum leitað þangað hvenær sem var á ferðum okkar milli lands og Eyja. Eitt símtal og við urðum ekki lengur ein í borginni. Gisting, matur og bílstjóri. Allt á sama stað. Og svo kona, sem geymdi einhvern hluta af henni mömmu! Árið 1973 kom eldgosið. Allt breyttist í einni svipan. Foreldrar okkar fluttu í Hafnarfjörðinn með yngstu börnin. Nú varð aftur styttra á milli systr- anna. Reyndar var frænka flutt í Mosfellssveitina. Og þangað fór mamma auðvitað líka. Fjarlægðin á milli varð svipuð og í Eyjum forðum. Þær urðu nú aftur samferða systurn- ar á efri árum. Þegar mamma féll frá, áttum við áfram hana Hrefnu frænku. Þótt samskiptin minnkuðu, var notaleg tilfinning að eiga ennþá systur hennar mömmu. Við kveðjum Hrefnu frænku með trega. Á tímabilum í okkar lífi var hún konan, sem stóð mömmu okkar næst. Við kveðjum frænku sem átti með okkur unaðsstundir æskunnar og þökkum fyrir ljúfa samfylgd. Kæru frændsystkin. Okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Tótubörn. HREFNA ELÍASDÓTTIR ✝ Kristján N.Mikaelsson fæddist á Akureyri 4. júní 1920. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 7. júní síðastliðinn. For- eldrar hans voru Gunnlaug Kristjáns- dóttir, húsfreyja á Akureyri, f. 18. mars 1894, d. 7. ágúst 1957, og Mika- el Guðmundsson skipstjóri, Hrísey Eyjafirði, f. 29. október 1886, d. 25. mars 1922. Seinni maður Gunnlaugar og upp- eldisfaðir Kristjáns var Jóhannes Jónasson, yfirfiskimatsmaður, f. 8. nóvember 1885, d. 13. septem- ber 1964. Systkini Kristjáns: 1) Kristín Mikaelsdóttir, f. 27. ágúst 1918, d. 28. apríl 1984, 2) Guð- mundur J. Mikaelsson, f. 10. ágúst 1921, 3) Mikael Jóhannesson, f. 16. júlí 1927, d. 28. júlí 2001. Uppeld- isbróðir, Magnús Kristinsson, f. 15. október 1920, d. 24. október 1990. Kristján kvæntist 31. desem- ber 1954 Ingu Hreindal Sigurðar- dóttur, f. 3. febrúar 1932, d. 5. október 2002. Börn þeirra eru Róbert, f. 19. febrúar 1950, Gunn- laug, f. 3. júní 1955, Sigrún, f. 15. júní 1963 og Ragnhildur, f. 18. júlí 1966. Barnabörnin eru sex og eitt barna- barnabarn. Kristján lauk sveinsprófi í múraraiðn 1942 og meistaraprófi í múrsmíði 1946 á Ak- ureyri. Lærði svifflug hjá Svif- flugfélagi Akureyrar 1937–1943 og lauk atvinnuflugmannsprófi frá flugskólum í Bandaríkjunum og Kanada. Starfaði sem flugmað- ur og flugkennari til 1968 m.a. við Flugskóla Akureyrar og einnig í flugskólum í Reykjavík og Kefla- vík. Kristján var síðan starfsmað- ur hjá ÍSAL til ársins 1990. Síð- ustu æviárin dvaldist hann á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útför Kristjáns verður gerð frá Garðakirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 11. Móðurbróðir minn Kristján Mikaelsson, eða Diddi eins og hann var ávallt kallaður af fjöl- skyldu, er látinn. Þeir voru fjórir bræðurnir sem móðir mín átti; auk Didda þeir Mummi, Mikki og fóst- urbróðirinn Maggi, og lifir Mummi systkini sín. Fyrir ungan dreng var spennandi að eiga alla þessa móðurbræður. Þeir tengdust meira og minna æskuheimili mínu að Eyrarlandsvegi 20 á Akureyri, bjuggu þar á fyrstu árum mínum, ýmist sem einhleypir eða fjöl- skyldumenn. Það var mannmargt á Eyrarlandsveginum í þá daga, enda húsið stórt og jafnframt búið þrengra. Kynni mín af Didda urðu þó minnst á þessum fyrstu æviár- um mínum þar sem hann var fjarri – í fluginu. Diddi flutti með Ingu sinni og tveimur börnum þeirra til Ameríku um miðjan sjötta áratuginn. Er þau komu aftur til landsins snemma á sjöunda áratugnum og settust að í Reykjavík hófust kynn- in smátt og smátt. Ýmis minning- arbrot koma upp í hugann sem tengjast þessum kæra frænda. Þegar hann bauð mér sem unglingi í flugferð í 2ja sæta kennsluflugvél yfir Eyjafjörð, eða þegar hann lán- aði mér, ég þá nýkominn með bíl- próf, ameríska kaggann sinn og ég gat montað mig á rúntinum í Reykjavík. Er ég var í námi í Kaupmannahöfn heimsótti Diddi mig og fjölskyldu mína eitt sinn er hann átti þar leið um. Það voru ánægjulegar samverustundir. Þegar ég réðist í það að byggja var gott að leita ráða hjá Didda, enda var hann lærður múrara- meistari. Reyndar var það sonur hans Róbert, einnig múrarameist- ari, sem tók að sér mitt hús sem meistari og urðu tengslin meiri á þeim tíma milli fjölskyldnanna. Oft var ég gestur á heimili Ingu og Didda – þar var gott að koma. Það var ekki hægt annað en að taka eftir því hversu miklir kærleikar voru með þeim hjónum. Er þau voru rétt byrjuð að njóta efri ár- anna eftir starfsævina kom áfallið þegar Diddi fékk heilablóðfall og varð rúmliggjandi og bundinn hjólastól eftir það. Síðustu ár Ingu áttu þau þess kost að búa saman á Hrafnistu, eftir að hafa verið að- skilin um tíma, og var það ómet- anlegt fyrir þau bæði. Það var því þungbært fyrir Didda þegar Inga lést fyrir tæpum fjórum árum síð- an, hún þá búin að berjast við krabbamein um nokkurra ára skeið. Á veggnum á móti höfða- gaflinum í herbergi sínu hafði Diddi mynd af konu sinni. Í einni heimsókn minni til hans sýndi hann mér hvernig hann bauð Ingu sinni góða nótt á hverju kvöldi með því að lýsa með vasaljósi á mynd- ina. Ég ákvað að heimsækja frænda á nýliðnum afmælisdegi hans. Þá sá ég að það var verulega af honum dregið, hann var hættur að geta boðið Ingu sinni góða nótt með vasaljósinu. Þremur dögum síðar kvaddi hann þennan heim og þá var komið að Ingu að taka á móti honum með sínu ljósi. Ég og fjölskylda mín sendum Róberti, Gunnlaugu, Sigrúnu og Ragnhildi, svo og öðrum aðstand- endum, innilegar samúðarkveðjur. Emil Ragnarsson. Mig langar að minnast föður- bróður míns með fáeinum orðum. Aðeins eins árs aldursmunur var á Didda frænda og Mumma föður mínum, og er óhætt að segja að þeir hafi verið afskaplega sam- rýndir bræður alla tíð. Nú við kveðjustund koma upp í huga mér nokkur ljúf minninga- brot um frænda minn. Mér er efst í huga jóladagsboðin á fallega heimilinu þeirra Ingu og Didda í Asparlundi. Þá var oft glatt á hjalla hjá okkur krökkunum og spenningur mikill hjá okkur systr- unum að fá þau aftur til okkar á nýársdag í Álftamýrina til að halda áfram að syngja, dansa og sýna brúðuleikhús. Inga og Diddi voru mér mjög kær því þau sýndu mér alltaf svo mikla hlýju og það var gott að vera með þeim. Þau höfðu stóran faðm og ríkar tilfinningar sem ég sem stelpa var fljót að finna og því tengdist ég þeim sterkum böndum. Ég sé Didda frænda fyrir mér í fínu, gráu jakkafötunum með grá- sprengt hárið, alltaf svo glaður með brosið í augunum. Ég vil geyma þessa minningu vel í hjarta mér og einnig minninguna þegar að hann kom stoltur og ánægður inn í stofuna í Asparlundi til að sýna okkur fjölskyldunni stjúpurn- ar sínar og jarðarberin sem hann sáði fyrir sjálfur. Því elska eg þig, gleði, með andlitið bjarta sem áhugann kveikir og þor. Þinn bústað sem oftast mér hafðu í hjarta, þú, huga míns syngjandi vor. (Ólöf Sigurðard. frá Hlöðum.) Þegar ég horfi til baka þá sé ég þig, frændi, sem sigurvegara því það var aðdáunarvert hversu vel þú tókst veikindum þínum sem hófust 26. júlí 1993, sama dag og Einar yngri sonur minn fæddist. Þá fékkst þú heilaáfall og lamaðist og eftir það varst þú bundinn hjólastól. Öll þessi ár dvaldir þú á Hrafnistu í Hafnarfirði; fyrst einn en svo kom hún Inga þín til þín, þá orðin mikið veik af sínum sjúk- dómi. Ég man samt að alltaf gat Inga hlegið með okkur þótt oft væri þjáð. Í einni heimsókninni bað hún mig um að fara með sér á árlega basarinn á Hrafnistu til að skoða handavinnumunina. Allt í einu hafði hún fallegar bjöllur unn- ar úr örfínum perlum í höndunum, rauðar og hvítar og sagðist ætla að kaupa þær handa mér og gefa. Ég mun alltaf geyma þær vel og einn- ig tautöskuna sem þú, Diddi, hand- málaðir Stikilsberja-Finn á og gafst Einari syni mínum og merkt- ir með hans nafni. Þú hafðir alltaf svo gaman af því að teikna og mál- aðir einnig margar fallegar mynd- ir. Fallegasta myndin sem ég hef séð eftir þig er í stofunni hjá Gullý frænku í Danmörku. Einnig hafðir þú alltaf gaman af tónlist og söng og sáum við frænkurnar hversu vel þú naust stundarinnar þegar við heimsóttum þig síðastliðinn páska- dag og fengum tækifæri til þess að syngja fyrir þig nokkra söngva með gítarspilið hennar Gullýjar frænku í bakgrunni. Þá ljómaðir þú allur og fékkst blik í fallegu augun þín og raulaðir af veikum mætti með okkur nokkur lög sem þú þekktir. Miðvikudagar voru þínir uppá- haldsdagar og fórum við pabbi gjarnan til þín þá eftir að Ragga fór til Spánar í listaskólann en hún hafði haft það fyrir venju að heim- sækja þig á þessum dögum. Fjór- tándi desember 2005 líður mér seint úr minni en það var síðasta heimsóknin hans bróður þíns til þín en þá bauðstu okkur að borða með þér lúðu í setustofunni. Ánægjan skein úr andlitum ykkar bræðranna og fannst mér sem þið væruð orðnir litlir drengir á ný í eldhúsinu hjá Gunnlaugu ömmu á Eyrarlandsvegi 20 á Akureyri. Þar var dásamlegt útsýni bæði fram Eyjafjörðinn og út fjörðinn og einnig blasti Vaðlaheiðin við. Á þínum æskuárum flugu fyrstu flug- vélarnar yfir Akureyri, Veiðibjall- an og Súlan, og þar fékkstu flug- áhugann. Þegar ég fyrir nokkrum dögum var að bera saman bækur mínar við föður minn í sambandi við minningargrein þessa þá lagði hann áherslu á það að bjartsýni og jákvæðni væru mikilvægir eigin- leikar. Hann sagði að þeir bræður hefðu markvisst stefnt að því að hugsa jákvætt og oft rætt saman um gildi þess seinni árin þegar þeir hittust á Hrafnistu. Mér finnst vel við hæfi að enda þessa grein á ljóði, Vornóttinni, eftir Davíð Stefánsson. Í nótt er gott að gista Eyjafjörð og guðafriður yfir strönd og vogum. Í skini sólar skarta haf og jörð og skýjabólstrar slegnir rauðum logum. Það veit hver sál, að sumar fer í hönd, en samt er þögn og kyrrð um mó og dranga, og hvorki brotnar bára upp við strönd né bærist strá í grænum hlíðarvanga. Svo ljúft er allt í þessum heiða hyl, svo hátt til lofts og mjúkur barmur jarðar, að víst er engin veröld fegri til en vornótt björt í hlíðum Eyjafjarðar. (Davíð Stefánsson.) Við kveðjum þig, Diddi minn, með miklum söknuði og sendum ykkur, kæra fjölskylda, okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Soffía S. Guðmundsdóttir. KRISTJÁN MIKAELSSON Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ást- kærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, PÁLÍNU SIGURRÓSU GUÐJÓNSDÓTTUR frá Munaðarnesi, Strandasýslu. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Hafnar- firði. Guðlaug Jónsdóttir, Guðmundur G. Jónsson, Sólveig Jónsdóttir, Guðjón Jónsson, Sigríður Jakobsdóttir, Samúel Jónsson, Bjarney Georgsdóttir, Erla Jónsdóttir, Ágúst Skarphéðinsson, Ragnar Jónsson, Þórey Guðmundsdóttir, Anna Jónsdóttir, Kristján Kristjánsson, Jón E. Jónsson, Antonia Rodrigues, Ólöf B. Jónsdóttir, Reynir Stefánsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.