Morgunblaðið - 16.06.2006, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 39
Atvinnuauglýsingar
IKEA Holtagörðum, 104 Reykjavík
Sími: 520 2500 │Netfang: ikea@ikea.is│Vefsíða: www.IKEA.is
Viltu vera í okkar liði?
IKEA er ein stærsta húsgagnakeðja í heiminum og rekur 235 verslanir í 34 löndum. Síðan IKEA var stofnað í Svíþjóð
árið 1943 hefur fyrirtækið mótað árangursríka hugmyndafræði sem grundvallast á tengslum við sænskan uppruna
IKEA og hugsjónir stofnandans, Ingvar Kamprad. Í dag er IKEA vörumerkið eitt af stærstu og þekktustu vörumerkjum
á heimsvísu.
Hugmyndafræði IKEA er að gera daglegt líf fólks þægilegra. Það er gert með því að bjóða upp á breitt úrval af vel
hönnuðum og hagnýtum húsbúnaði á svo lágu verði að allir hafi efni á að kaupa hann.
IKEA á Íslandi hefur starfað frá árinu 1981 og vaxið síðan þá í að vera ein stærsta húsgagnaverslun á landinu.
Fyrirtækið er enn að vaxa og í haust flytjum við í nýtt og stærra húsnæði við Urriðaholt í Garðabæ. Þess vegna
þurfum við að bæta við okkur starfsfólki í framtíðarstörf.
Hjá IKEA vinna nú yfir 200 manns í fjölbreyttum störfum og býður fyrirtækið upp á starfsumhverfi fyrir skapandi fólk,
þar sem möguleiki er til að þróast og vaxa. Hvort sem unnið er sjálfstætt eða saman, þá er tekist á við ábyrgð og
starfsfólki gefið tækifæri á að vaxa með IKEA í góðu starfsumhverfi.
Umsóknum skal skila á þar til gerðu umsóknareyðublaði á vefsíðu, á netfangið magnus@ikea.is eða á þjónustuborð
IKEA. Umsækjendur þurfa að vera eldri en 18 ára. Sé sótt um ákveðið starf skal tilgreina það í umsókninni.
Nánari upplýsingar veita Magnús Auðunsson í starfsmannahaldi og Róbert Valtýsson, starfsmannastjóri IKEA.
Fjölbreytt störf í boði og sveigjanlegur vinnutími:
• Sölufulltrúar í Smávörudeild/Húsgagnadeild
starfið felst meðal annars í ráðgjöf, almennri sölu og
aðstoð við viðskiptavini
• Ræstingafólk
starfið felst meðal annars í þrifum í verslun og
skrifstofum, vaktavinna
• Umsjón barna í Smálandi
starfið felst meðal annars í umsjón, skráningu
og móttöku barna ásamt eftirliti og gæslu,
aðeins 25 ára og eldri koma til greina
Góður smiður óskast
Óskum eftir duglegum smið á sveitabæ, ca
10 mín. akstur frá Selfossi. Ýmis smíðavinna,
s.s húsaklæðningar og fleira.
Upplýsingar í síma 820 8096.
Ef þú ert að leita að kennarastarfi í þægilega stórum skóla í fallegu
og rólegu umhverfi í hæfilegri fjarlægð frá höfuðborginni, þá er
skólinn okkar einmitt staðurinn fyrir þig.
Grunnskóli
Borgarfjarðarsveitar
Kleppjárnsreykjum og Hvanneyri
Kennarar
Að Kleppjárnsreykjum leitum við að kennurum
m.a. í sérkennslu, smíðakennslu, tón- mennta-
kennslu og almenna bekkjarkennslu. Að Hvanneyri
leitum við að kennara m.a. til almennrar bekkja-
kennslu og sérkennslu.
Deildarstjóri
Okkur vantar deildarstjóra á Hvanneyri. Deildarstjóri
starfar með skólastjóra og aðstoðarskólastjóra sem
eru á Kleppjárnsreykjum.
Skólaliði
Skólaliða vantar í skólasel á Hvanneyri.
Andakílsskóli og Kleppjárnsreykjaskóli voru sam-
einaðir fyrir ári. Framundan er að vinna af alefli að
því að nýta sér sterka þætti beggja gömlu skólanna
til að styrkja enn frekar starfið í sameinuðum fram-
sæknum skóla sem í eru um 160 nemendur. Við
státum m.a. af Lesið í skóginn - með skólum, lýð-
heilsuverkefninu Allt hefur áhrif - einkum við sjálf,
Grænfána á Hvanneyri, öflugri íþrótta- og dansiðk-
un og sterku skólasafni. Á báðum stöðunum er
boðið upp á hollt og gott fæði. Samstarfið við tón-
listarskóla og leikskóla er gott.
Nánari upplýsingar veitir Guðlaugur Óskarsson
skólastjóri í símum 435 1171 - 435 1170 - 861 5971.
Einnig er unnt að spyrjast fyrir um störfin á
goskars@ismennt.is. Heimasíður skólans eru enn
tvær: http://kleppjarnsreykir.ismennt.is og http://
andakill.is
Í Borgarfirði eru þrjár háskólastofnanir á Bifröst,
Hvanneyri og í Reykholti auk nýstofnaðs mennta-
skóla í Borgarnesi. Héraðið býr yfir sögufrægð sem
ræktuð er af ákafa og metnaði. Menningar- og listalíf
er öflugt, borið uppi af heimamönnum og gestum.
Umsóknir berist til skólastjóra sem allra fyrst hafi
menn hug á að taka þátt í ögrandi uppbyggingu.
Bílstjórar
Bílar og fólk ehf. óska eftir bílstjórum sem allra
fyrst. Um er að ræða akstur sérleyfis- og
hópbifreiða út frá Reykjavík og Akureyri.
Umsækjendur þurfa að hafa rútupróf.
Skemmtileg vinna hjá traustu fyrirtæki. Nánari
upplýsingar gefur Óskar í síma 840 6520.
„Au pair“ í Þýskalandi
Fjölskylda í Dortmund með 4 börn óskar eftir
„au pair“. Þarf að vera reyklaus. Húsmóðirin
er heimavinnandi. Uppl. veitir Andrés í síma
699 2522 eða á ap@hi.is. Einnig gefur fjölskyld-
an uppl. í síma +49 231 430500, Frau Gülde.
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins í Stillholti 16-18,
Akranesi, sem hér segir á eftirfarandi eign:
Kirkjubraut 11, fastanr. 210-1910, Akranesi, þingl. eig. Fasteignafé-
lagið Smiðshöfði ehf., gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., miðvikudag-
inn 21. júní 2006 kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Akranesi,
13. júní 2006.
Esther Hermannsdóttir, ftr.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Presthúsabraut 25, fnr. 210-0148, Akranesi, þingl. eig. Bjarni Þórðarson,
gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður, Íslandsbanki hf., Kaupþing
banki hf. og Lífeyrissjóður sjómanna, föstudaginn 23. júní 2006 kl.
14:00.
Skólabraut 28, mhl. 01-0201 og 04-0101, fastanr. 210-2170, Akranesi,
þingl. eig. Berglind Guðmundsdóttir, gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar
tryggingar hf., föstudaginn 23. júní 2006 kl. 14:30.
Sýslumaðurinn á Akranesi,
13. júní 2006.
Esther Hermannsdóttir, ftr.
Uppboð á
lausafjármunum
Eftirtaldir lausafjármunir eru óskilamunir í vörslu lögreglunn-
ar á Ísafirði og verða þeir boðnir upp á gömlu lögreglustöðinni
Fjarðarstræti 28, Ísafirði, föstudaginn 23. júní 2006 kl. 16.00.
Gaskútur, 9 kg. 1 stk.
Kalkhoff þrekhjól 1 stk.
Dekk af ýmsum stærðum undir fólksbíla og jeppa.
Þríhjól 1 stk.
Hlaupahjól 3 stk.
Reiðhjól 30 stk.
60 cm gifsstytta af David eftir Michaelangelo.
Skartgripir og aðrir smámunir.
Vænta má að greiðslu verði krafist við hamarshögg.
16. júní 2006.
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
Una Þóra Magnúsdóttir,
fulltrúi.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Barmahlíð 45, 203-0651, Reykjavík, þingl. eig. Guðvin Flosason,
gerðarbeiðandi Innheimtustofnun sveitarfélaga, þriðjudaginn 20.
júní 2006 kl. 14:00.
Barónsstígur 19, 200-5611, Reykjavík, þingl. eig. Hafþór Guðmunds-
son, gerðarbeiðandi Innheimtustofnun sveitarfélaga, þriðjudaginn
20. júní 2006 kl. 14:30.
Brautarholt 8, 0202, Reykjavík, þingl. eig. Spark ehf., gerðarbeiðandi
Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., þriðjudaginn 20. júní 2006 kl. 15:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
15. júní 2006.