Morgunblaðið - 16.06.2006, Side 56
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
Er sæla í kotinu?
EKKERT var athugavert við utan-
kjörfundaratkvæðagreiðslu á Sól-
heimum í Grímsnesi að mati
þriggja manna nefndar sem sýslu-
maðurinn á Selfossi skipaði. Fram-
bjóðendur C-lista, lista lýðræðis-
sinna, í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi kærðu niðurstöðu kosninga
í sveitarfélaginu vegna fram-
kvæmdar við utankjörfundarat-
kvæðagreiðsluna á Sólheimum sem
fór fram skömmu fyrir sveitar-
stjórnarkosningar. C-listinn hlaut
109 atkvæði í kosningunum en K-
listinn, listi óháðra kjósenda, 114.
Kærendur voru einkum ósáttir
við að kjósendur hefðu ekki þurft
að gera grein fyrir sér með full-
nægjandi hætti og að áróður hefði
verið á kjörstað. Þegar fulltrúar C-
lista hefðu mætt á staðinn hefðu
margir vistmanna á Sólheimum
verið með barmmerki K-listans og
svo hefði verið kassi með stefnu-
skrá listans í salnum þar sem var
kosið. Kærendur fóru því fram á að
úrslit kosninganna yrðu dæmd
ógild og að gengið yrði til kosninga
að nýju. Nefndin telur hins vegar
að ekkert við framkvæmd utan-
kjörfundaratkvæðagreiðslunnar
gefi tilefni til þess.
Kjörstaður í 8 km fjarlægð
Gunnar Þorgeirsson, einn kær-
enda og fyrrum oddviti hrepps-
nefndar, segir að úrskurði nefnd-
arinnar hafi þegar verið áfrýjað til
félagsmálaráðuneytisins. Kærend-
ur geri athugasemd við að sýslu-
maðurinn hafi skipað nefnd til að
dæma í málinu þar sem kæran hafi
varðað framkvæmd hans. „Okkur
þykir jafnframt sérkennilegt að
nefndin hafi komist að þeirri nið-
urstöðu að Sólheimar hafi orðið
kjörstaður um leið og sýslumaður
mætti á staðinn tuttugu mínútur
yfir eitt. Það má lesa út úr því að
gera megi hvað sem er á kjörstað
alveg þar til klukkan slær og menn
byrja að kjósa. Ef við létum kjósa í
félagsheimilinu klukkan 10 að
morgni gætum við verið með fram-
boðsfund klukkan 8 í sama húsi.
Það skýtur skökku við að ekki sé
gefið út hvað flokkist sem kjörstað-
ur og hvenær kjörfundur hefjist,“
segir Gunnar og bætir við að ut-
ankjöfundaratkvæðagreiðsla hafi
ekki farið fram á Sólheimum síðan
árið 1998 og að kjörstaður sé að-
eins í 8 kílómetra fjarlægð.
Ekkert athugavert við
kjörfundinn á Sólheimum
Úrskurði þriggja manna nefndar sem
sýslumaður skipaði verður áfrýjað
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
LYFJAVER við Suðurlandsbraut var oft-
ast með lægsta verðið í verðkönnun sem
verðlagseftirlit ASÍ gerði á algengum lausa-
sölulyfjum í lyfja-
búðum á höfuð-
borgarsvæðinu
þriðjudaginn 12.
júní síðastliðinn,
eða í 23 tilvikum
af 32. Þá var Lyf
og heilsa í
Hamraborg með
hæsta verðið í
könnuninni í 19
tilvikum og Skip-
holtsapótek í 18
tilvikum.
Verðmunur á
lausasölulyfjum
milli apóteka er
allt að 67% og
reyndist mestur verðmunur á 150 ml af
Pektólínmixtúru sem kostuðu 293 krónur
þar sem verðið var lægst, í Lyfjaveri, en 490
krónur þar sem það var hæst, í Laugarnes-
apóteki.
Mikill verðmunur var einnig á nikótínlyfj-
um og reyndist munurinn nema 38–48%. |
25
Verðkönnun verðlagseft-
irlits ASÍ á lausasölulyfjum
Allt að 67%
verðmunur
HLJÓMSVEITIN Ham frumflytur í
kvöld fyrsta nýja lag hljómsveitarinnar
síðan 1993. Lagið heitir „Sviksemi“ og
verður flutt í Kastljósi Sjónvarpsins í
kvöld.
„Þetta er skemmtilegt lag og það kom
okkur á óvart hvað það fæddist full-
skapað,“ sagði Óttar Proppé, einn for-
sprakka hljómsveitarinnar, þegar blaða-
maður náði af honum tali. „Lagið er
klassískur „glamrokkslagari“, epískt og
dramatískt verk sem segir frá sviksemi
tveggja vina sem hafa ásakað hvor annan
í kór.“
Ham-liðar standa nú í ströngu við æf-
ingar fyrir stórtónleika hjómsveitarinnar
sem haldnir verða á skemmtistaðnum
Nasa 29. júní.
Nýtt Ham-lag
frumflutt í dag
Morgunblaðið/Eggert
„VIÐ ákváðum að taka smááhættu
og poppa staðinn vel upp og við er-
um sannfærðir um að hann muni
verða aðalstaðurinn í dag, bæði með
tilliti til matargerðar og útlits,“ seg-
ir Andrés Þór Björnsson innanhúss-
arkitekt, sem fékk það vandasama
hlutverk að endurhanna Pálmasal-
inn og Jóhannesarstofu á Hótel
Borg og færa til nútímahorfs. Nú í
vikunni var í gamla Pálmasalnum
opnaður nýr veitingastaður sem
nefnist Silfur og er rekinn af fyr-
irtækinu 101 Heild.
Þar sem Hótel Borg er friðað hús
þurfti Andrés að taka mið af því í
hönnuninni. T.d. mátti ekki fjar-
lægja gylltu loft- og hurðalistana,
en þeir hafa fengið silfurlitinn sem
staðurinn er kenndur við. Þá mátti
ekki heldur fjarlægja speglaveggi
og voru þeir faldir á bak við falskan
gifsvegg sem bólstraður er með
hvítu leðri og silfurhnöppum. | 22 Morgunblaðið/Kristinn
Pálmasalurinn fær
andlitslyftingu
EKKI var fjallasýninni fyrir að fara á Sæbrautinni þar sem ung-
menni í unglingavinnunni voru að vinna sumarstörf sín. Esjan, sem
ávallt er hið mesta augnayndi og prýði í útsýni höfuðborgarsvæð-
isins, var vandlega falin í skýjum. Óhætt er að segja að býsna
þungbúið hafi verið á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu, að
þriðjudeginum undanskildum. Framundan er spáð fleiri rigning-
ardögum, en það gerir ekkert til því sagt er að rigningin geri
mann fallegan.
Morgunblaðið/Ásdís
Esjan felur sig í skýjum