Morgunblaðið - 04.07.2006, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MINNST 41 FÓRST
Að minnsta kosti 41 fórst þegar
neðanjarðarlest fór út af sporinu í
borginni Valencia á austurströnd
Spánar í gær. Embættismenn sögðu
að ekki væri um hryðjuverk að ræða
og töldu líklegast að lestin hefði ver-
ið á of mikilli ferð og að hjól undir
henni hefðu gefið sig. Er þetta eitt
mannskæðasta lestarslys í sögu
Spánar.
Lýstu báðir yfir sigri
Mikil óvissa ríkti í gær um úrslit
forsetakosninga sem fram fóru í
Mexíkó á sunnudag. Hægrimað-
urinn Felipe Calderon og vinstri-
maðurinn Manuel Lopez Obrador
lýstu báðir yfir sigri en kjörstjórnin
sagði of snemmt að kveða upp úr um
úrslitin.
Sigraði í 100 km hlaupi
Fyrsta íslenska konan sem tekur
þátt í 100 kílómetra keppnishlaupi
lét sér það ekki nægja í hlaupi sem
fór fram í Svíþjóð á föstudaginn
heldur gerði sér lítið fyrir og sigraði
í hlaupinu í kvennaflokki. Elín Reed
var aðeins 10 klst. og 39 mínútur að
hlaupa 100 kílómetrana.
Öllum kríueggjum rænt
Öllum kríueggjum í Dyrhólaey
var rænt af friðlýstu svæði í síðustu
viku og er nú svo komið að öll krían
er á bak og burt úr eynni. Varp var á
tveimur stöðum á eynni, annars veg-
ar austanmegin þar sem stærsta
svæðið var og svo vestanmegin.
Voru öll egg á báðum stöðum tekin.
Örorka vegna offitu
Öryrkjum, sem höfðu offitu sem
fyrstu sjúkdómsgreiningu í ör-
orkumati, fjölgaði um 200% á milli
áranna 1992 og 2004, eða úr 37 í 111.
Árið 1992 voru 29 konur og 8 karlar
metin öryrkjar vegna offitu en árið
2004 voru konurnar orðnar 82 og
karlarnir 29 talsins.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann
Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Magnús
Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri,
sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 22
Fréttaskýring 8 Bréf 24
Viðskipti 12 Minningar 26/28
Úr verinu 13 Dagbók 32/35
Erlent 14/15 Víkverji 32
Akureyri 17 Velvakandi 33
Landið 18 Staður og stund 34
Austurland 18 Bíó 38/41
Daglegt líf 19 Ljósvakamiðlar 42
Menning 20, 36/37 Veður 43
Umræðan 21/24 Staksteinar 43
* * *
EINN varð fyrir
skoti úr haglabyssu
þegar skotárásin við
Burknavelli átti sér
stað að morgni 21.
júní síðastliðins þegar
þrír menn óku
framhjá húsi á
Burknavöllum og
skutu úr haglabyssum
að húsinu.
Í dómi hæstaréttar
er gæsluvarðhaldsúr-
skurður yfir tveimur
mönnum staðfestur
og kemur fram í úr-
skurði héraðsdóms að
einn þeirra sem var inni í húsinu
hafi orðið fyrir skoti. Annar mann-
anna sem situr í gæsluvarðhaldi er
hinn meinti skotmaður en hinn var
í bílnum. Tekið er fram í úrskurði
héraðsdóms að framburður hinna
kærðu hafi verið ótrúverðugur.
Segir þar ennfremur að skot-
manni hafi verið ljóst að menn
væru inni í húsinu þegar hann
skaut.
Hæstiréttur staðfesti úrskurð
héraðsdóms um gæsluvarðhald yfir
tveimur hinna kærðu í málinu fram
til dagsins í dag.
Fram kemur að rannsókn máls-
ins sé enn ólokið og að vopnið sé
ófundið.
MAÐURINN
sem lést í vélhjóla-
slysi í Öræfasveit
á sunnudag hét
Heiðar Þórarinn
Jóhannsson, til
heimilis að Lund-
argötu 10 á Akur-
eyri. Heiðar var
fæddur 15. maí
1954, hann var ókvæntur og barnlaus.
Heiðar Þórarinn var þaulreyndur
vélhjólamaður og meðlimur í Vél-
hjólasamtökum lýðveldisins, Sniglun-
um. Minningarvaka um Heiðar Þór-
arin verður haldin fimmtudaginn 6.
júlí við Grillið í Heiðmörk og hefst kl.
21.
Lést í vél-
hjólaslysi í
Öræfasveit
STÚLKAN sem
lést í umferðar-
slysi á Skaga-
fjarðarvegi við
Varmahlíð á
sunnudagsmorg-
un hét Sigrún
Kristinsdóttir, til
heimilis að Vest-
urgili 5 á Akur-
eyri. Hún var fædd 12. mars 1986,
dóttir hjónanna Kristins Tómassonar
og Guðbjargar Ingu Ragnarsdóttur.
Lést í
bílslysi við
Varmahlíð
ATLANTSOLÍA og Orkan fóru að
fordæmi hinna olíufélaganna og
hækkuðu í gær hjá sér verðið á bæði
95 oktana bensíni og dísilolíu, en
Skeljungur og Olíufélagið hækkuðu
bensínið og dísilolíuna sl. laugardag
og Olís hækkaði verðið hjá sér á
sunnudaginn var.
Eftir hækkun kostar lítrinn af 95
oktana bensíni 127,8 kr. hjá Orkunni
og 127,9 kr. hjá Atlantsolíu. Dísilol-
íulítrinn kostar 121,8 kr. hjá Orkunni
og 121,9 kr. hjá Atlantsolíu.
Ástæða hækkana nú er sögð lágt
gengi krónunnar gagnvart banda-
ríkjadal og hátt heimsmarkaðsverð.
Hækka einnig
bensínverð sitt
LÖGREGLUBÍLL frá Lögreglunni í Hafnarfirði
lenti út af veginum og valt á Reykjanesbraut á móts
við álverið í Straumsvík um kvöldmatarleytið í gær.
Tveir lögreglumenn voru í bílnum og sluppu þeir
ómeiddir eftir slysið.
Bílnum var ekið með forgangsljósum er slysið
varð en lögreglumennirnir voru á leið í útkall
skammt frá, þar sem tilkynnt hafði verið um slags-
mál.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu virtust slags-
málin alvarlegri samkvæmt útkallinu en raun reynd-
ist og því var bílnum ekið með forgangsljósum.
Missti ökumaður stjórn á bílnum með fyrrgreindum
afleiðingum. Lögreglubíllinn er mikið skemmdur.
Morgunblaðið/ÞÖK
Lögreglubíll valt á leið í útkall
FRAKTÞOTA Atlanta var á of
miklum hraða þegar reynt var að
stöðva hana og flugmennirnir
neyddust þess vegna til að stýra
henni út af flugbraut í flugtaki á
flugvellinum í Sharjah, skammt frá
Dubai, í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum í nóvember 2004.
Þetta er niðurstaða skýrslu rann-
sóknarnefndar flugslysa í Samein-
uðu arabísku furstadæmunum sem
nýlega var gefin út.
Slysið varð með þeim hætti að
þegar þotan, sem var af gerðinni
Boeing 747-230C, var nýkomin á
svokallaðan flugtakshraða barst
boð úr flugturni um að reykur
kæmi úr hægri hlið vélarinnar.
Flugstjóri vélarinnar tók þá
ákvörðun að hætta við flugtak og
reyna að stöðva vélina en í skýrsl-
unni kemur fram að þegar flug-
takshraða sé náð eigi ekki að hætta
við flugtak heldur taka á loft og
reyna lendingu að nýju. Þess í stað
reyndi flugstjóri vélarinnar að
stöðva vélina og reyndist það erfitt
en í ljós kom að reykurinn sem
starfsmenn í flugturni urðu varir
við átti upptök sín í hjólabúnaði
vélarinnar. Hluti hans virkaði því
ekki sem skyldi þegar reynt var að
hægja á vélinni.
Þegar vélin kom að brautar-
endanum stýrði flugstjórinn vélinni
út af brautinni til að koma í veg
fyrir árekstur við ljósabúnað sem
þar var.
Flugstjórinn gaf þá skýringu að
hann hefði túlkað tilkynningu frá
flugturni svo að eldur væri í vélinni
og ályktað að öruggara væri að
halda vélinni á jörðinni en að taka á
loft. Hefðu rifjast upp fyrir honum
afdrif Concorde-vélarinnar sem
nokkrum árum áður hafði hrapað
eftir að eldur kom upp í flugtaki í
París. Skýrsluhöfundar benda á að
með þessu hafi flugvélinni verið
stefnt í hættu og að ljóst sé að
meiri líkur hafi verið á slysi með
því að hætta við flugtak en að taka
á loft. Þrátt fyrir að bilun hafi orðið
í búnaði vélarinnar hafi meginorsök
slyssins verið ákvörðun flugstjór-
ans um að hætta við flugtak.
Vélin skemmdist mikið í slysinu
og var úrskurðuð ónýt. Engin slys
urðu á áhöfninni en í henni var einn
Íslendingur.
Of mikill hraði til að hægt
væri að stöðva þotuna
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
Einn varð fyrir skoti
á Burknavöllum
Morgunblaðið/Eggert
Glugginn á húsinu er illa farinn eftir skotárásina.
♦♦♦
♦♦♦