Morgunblaðið - 04.07.2006, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Zidane og Henry
óstöðvandi með
Frökkum á HM
í Þýskalandi?
Íþróttir á morgun
SIGURÐUR Tómas Magnússon,
settur saksóknari í Baugsmálinu, hef-
ur kært frávísun héraðsdóms
Reykjavíkur á fyrsta ákærulið af
nítján, í endurákæru málsins, til
Hæstaréttar. Verjendur Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar, Tryggva Jóns-
sonar og Jóns Geralds Sullenberger
kærðu í kjölfarið ákvörðun héraðs-
dóms um að hafna kröfu um frávísun
málsins í heild sinni.
Síðastliðinn föstudag var fyrsta
ákæruliðnum í endurákærunni vísað
frá dómi þar sem ekki þótti koma
nógu skýrt fram hvernig atburða-
rásin, sem þar er lýst, brjóti gegn lög-
um. Þar er Jón Ásgeir sakaður um
fjárdrátt, en til vara umboðssvik.
Sigurður Tómas sagði í samtali við
Morgunblaðið að ákvörðunin hefði
verið tekin að vel íhuguðu máli og að
það hefði verið metið sem svo að
grundvöllur væri fyrir kæru. Óljóst
er hvenær kæran verður tekin fyrir.
Verjendur kærðu einnig
„Það er vissulega óljóst og undir
Hæstarétti komið hvað þeir þurfa
langan tíma. Það fer eftir því hvernig
þeir meta þörfina á þessu, hvort þeir
afgreiða þetta innan skamms eða ein-
hvern tíma í haust,“ sagði Sigurður
Tómas sem vonast eftir því að fá nið-
urstöðu Hæstaréttar sem allra fyrst.
Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ás-
geirs, og Jakob Möller, verjandi
Tryggva Jónssonar, kærðu einnig úr-
skurð héraðsdóms frá sl. föstudegi.
Þeir höfðu krafist þess að málinu yrði
vísað frá í heild sinni þar sem alvar-
legir ágallar væru á rannsókn máls-
ins – en því var hafnað.
Brynjar Níelsson, verjandi Jóns
Geralds Sullenberger, kærði jafn-
framt ákvörðun Arngríms Ísbergs
héraðsdómara en Brynjar hafði kraf-
ist frávísunar málsins fyrir skjólstæð-
ing sinn og rökstuddi kröfuna með því
að tekin hafi verið sú ákvörðun við
rannsókn málsins að ákæra ekki Jón
Gerald.
Frávísun héraðsdóms í Baugsmálinu kærð til hæstaréttar
Óvíst hvenær niður-
staða liggur fyrir
VEIÐI hófst í fjölmörgum lax-
veiðiám nú um helgina og voru opn-
anir víða líflegar. Þannig komu fjór-
ir laxar á land á fyrstu vöktunum á
Nesveiðum í Laxá í Aðaldal en þar
er veitt á fjórar stangir. Laxarnir
sem á land komu voru stórir og vógu
allir um 5 kg en veiðimenn urðu víða
varir við fisk og nokkrir sluppu fim-
lega af flugum þeirra.
Hrútafjarðará gaf tvo laxa þegar
áin var opnuð á laugardaginn. Þeir
veiddust á efstu veiðistöðum og því
líklegt að laxinn sé að finna um alla
á. Breiðdalsá opnaði þann sama dag
en gríðarlegt vatnsmagn árinnar
gerði veiðimönnum nokkuð erfitt
fyrir. Þrátt fyrir það náðist einn lax
á land en það reyndist 5,5 kg hrygna
sem var 81 cm að lengd. Var hún
sett í klakkistu líkt og margir aðrir
stórlaxar sem veiðast í Breiðdalsá.
Þá byrjaði Flekkudalsá mjög vel
en þar komu átta laxar á land um
helgina.
Stórlaxar í Hnausastreng
Stórlaxar hafa verið að veiðast í
Vatnsdalsá að undanförnu en á laug-
ardaginn negldu tveir tuttugu punda
fiskar flugur veiðimanna í Hnausa-
streng auk eins fjórtán punda.
„Meðallengdin á fiskunum er 80
cm og meðalþyngdin 5,5 kg. Það er
alveg glæsilegt,“ sagði Pétur Pét-
ursson, leigutaki Vatnsdalsár, en
laxagöngur hafa verið að renna sér
upp í Hnausastrenginn síðustu
daga.
„Þær stoppa þó stutt við og ganga
hratt upp enda gott vatn í ánni. Í
fyrradag horfðum við á bleikju-
göngu koma inn í Hnausastrenginn.
Bleikjurnar röðuðu sér upp í löngum
röðum niður við fætur veiðimanna
sem skemmtu sér við að háfa þær.“
Pétur sagði jafnframt að gríð-
arlega góð silungsveiði hafi verið í
Reykjadalsá síðastliðnar vikur.
„Um það er bara eitt að segja: Vá!
Það er ofboðslega góð veiði í ánni og
þar er einnig kominn lax á land.
Rúnar Marvinsson var þar á dög-
unum með félögum við veiðar og
þeir náðu um 300 urriðum. Svo er
mjög góð veiði í Vestmannsvatni og
á dögunum voru tveir menn með 60
silunga á tvær stangir eftir einn dag
og aðrir náðu 90.“
Líflegar
opnanir um
helgina
Morgunblaðið/Golli
Sigurður Albertsson með 85 cm hrygnu sem tók svartan Frances nr. 16 á
Fossbrún í Aðaldal. Henni var sleppt eins og öðrum löxum á Nesveiðum.
veidar@mbl.is
STANGVEIÐI
TÍÐARFAR í nýliðnum júnímánuði
var úrkomu- og umhleypingasamt
um landið sunnanvert, en hagstæð-
ara norðan- og austanlands. Talsvert
kuldakast gerði tólfta og þrettánda
dag mánaðarins. Þetta kemur fram í
yfirliti frá Veðurstofu Íslands.
Meðalhiti í Reykjavík var 9,4 stig
og er það 0,4 stigum yfir meðallagi.
Júnímánuðir áranna 2002 til 2005
voru allir óvenju hlýir og hagstæðir
og bregður því nokkuð við nú, þótt
hiti sé ofan meðallags. Nokkru kald-
ara var í júní 2001 en nú. Meðalhiti á
Akureyri var 10,9 stig og hefur ekki
orðið hærri í júní þar síðan 1988.
Meðalhiti í Akurnesi var 9,9 stig eða
1,5 stigum yfir meðallagi og 5,8 stig á
Hveravöllum sem er einu stigi yfir
meðallagi.
Mikil rigning
Úrkoma í Reykjavík mældist 58
millímetrar og er það 17% umfram
meðallag, oft hefur rignt meira í júní,
síðast 2003. Úrkomudagarnir urðu
þó óvenju margir eða 24 en það er sjö
umfram meðallag. Ekki hefur rignt
jafn marga daga í júní frá árinu 1983
en þá voru úrkomudagarnir 25, úr-
komudagar í júní 1960 voru líka 25
og 24 1969.
Á Akureyri mældist úrkoman að-
eins tæpir 10 millímetrar og er það
innan við helmingur meðalúrkomu
þar. Þetta er minnsta úrkoma í júní á
Akureyri frá 1998, en þá mældist
hún 9 millímetrar. Úrkoman í Ak-
urnesi mældist 85 millímetrar.
Sól fyrir norðan
Sólskinsstundir í Reykjavík
mældust 143, hið minnsta í júní frá
1999 og 18 stundum undir meðallagi,
en oft hafa sólskinsstundirnar orðið
mun færri í júní. Á Akureyri mæld-
ust sólskinsstundirnar 188 og er það
ellefu stundum umfram meðallag.
Hæsti hiti mældist 22,5 stig í Mið-
fjarðarnesi þann tíunda. Mest frost í
mánuðinum mældist -5,8 stig á Brú-
arjökli þann þrettánda. Sömu nótt
var frost á nokkrum stöðvum í
byggð.
Morgunblaðið/Ásdís
Óvenju margir úrkomudagar voru í júní, eða 24, en það er sjö umfram
meðallag. Ekki hefur rignt jafnmarga daga í júní frá árinu 1983.
Hitatölur almennt
yfir meðallagi
ENGIN umræða hefur verið á yf-
irstandandi þingi um að hækka bíl-
prófsaldurinn úr 17 árum í 18 ár og
ekkert frumvarp þess efnis hefur
komið fyrir allsherjarnefnd Al-
þingis. Þetta segir Bjarni Bene-
diktsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins og formaður
allsherjarnefndar Alþingis. Ólafur
Helgi Kjartansson, sýslumaður á
Selfossi, skrifaði grein í Morgun-
blaðið í gær, þar sem hann velti
upp þeirri spurningu hvort eðlilegt
sé að börn, sem ekki eru sjálfráða
samkvæmt lögræðislögum, eigi að
fá bílpróf. Í niðurlagi greinarinnar
segir að allir, einkum foreldrar, Al-
þingi, ríkisstjórn, umboðsmaður
barna, yfirvöld heilbrigðis- og
menntamála, hljóti nú að taka sam-
an höndum og forða börnum frá því
að bera ábyrgð á sjálfum sér og
öðrum í umferðinni.
„Það er löngu tímabært. Börnin
hvorki eiga né mega bera þessa
þungu ábyrgð,“ segir jafnframt í
grein Ólafs Helga.
Ólíklegt að bílprófsaldur verði
hækkaður á yfirstandandi þingi