Morgunblaðið - 04.07.2006, Side 16
Hveragerði | Gróðurhús í
Hveragerði víkja hvert af öðru
fyrir íbúðabyggð. Byrjað var nú
í vikunni að rífa gróðurhús við
Gróðurmörk þar sem ræktaðar
voru gúrkur. Myndarleg gróðr-
arstöð var rekin á þessum stað
en ekki þykir henta að vera með
slíka ræktun alveg ofan í íbúða-
byggð. Ræktunin kallar m.a. á
mikla lýsingu sem þykir trufl-
andi. Það gekk heilmikið á þeg-
ar öflug vélskófla með gripkjaft
réðist að húsunum og malaði
þau niður í haug. Hringrás hf
annast niðurrif og hreinsun lóð-
arinnar eftir settum reglum
þannig að allt sé hreint og klárt
þegar byggingaverktakar hefj-
ast handa við húsbygginguna
sem rísa mun á lóðinni.
Gróðurhúsin víkja fyrir íbúðabyggð
Niðurrif
Akureyri | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Sæluhelgarlag | Hugsum heim er heiti á
Sæluhelgarlaginu í ár, en Sæluhelgin verð-
ur haldin nú um komandi helgi á Suður-
eyri.
Lagið er eftir Siggeir Siggeirsson en
textinn er eftir Hildi Guðbjörnsdóttur.
Helgi Þór Arason syngur lagið en svo vill
til að hann var kosinn bjartasta vonin í
söngkeppni á Sæluhelginni fyrir fáeinum
árum. Þau eiga öll ættir sínar að rekja til
Suðureyrar við Súgandafjörð.
Tíu manna dómnefnd, skipuð einum full-
trúa frá hverju byggðu bóli frá Arnarfirði
til Álftafjarðar auk sigurvegara keppn-
innar á síðasta ári sáu um valið.
Sæluhelgin á Suðureyri er nú haldin í
nítjánda sinn helgina, hún verður dagana
6.–9. júlí af Mansavinum í Súgandafirði.
Upphaflega snérist skemmtunin um það að
ungmenni kepptust við að veiða marhnút í
höfninni á Suðureyri en síðan þá hefur
keppninni vaxið fiskur um hrygg og er nú
fjölskylduhátíð heimamanna jafnt sem
burtfluttra Vestfirðinga.
Úr
bæjarlífinu
Höldur-Bílaleiga Akureyrar semum nokkurra ára skeið hefurboðið upp á þýska lúxusbíla hef-
ur nú bætt þann flota sinn verulega. Alls
er Höldur nú með 20 Marcedes Benz-
fólksbíla, af ýmsum gerðum, en að sögn
Steingríms Birgissonar hefur eftirspurn
eftir slíkum bílum aukist að undanförnu.
Steingrímur segir þetta vera mesta
úrval lúxusbíla sem nokkur bílaleiga hér
á landi hafi upp á að bjóða. Við-
skiptavinir eru fyrst og fremst íslensk
og erlend fyrirtæki en hinn almenni
ferðamaður hefur þó kallað eftir þessum
bílum yfir sumartímann. Allur flotinn
var nýlega í útleigu til Mercedes-Benz í
tengslum við kynningu þeirra á nýjum
GL-Class hér á landi.
Þýskir lúxusbílar
Steingrímur Birgisson við einn af nýju bílunum.
Á föstudag misrit-aðist vísa eftirGuðmund G. Hall-
dórsson á Húsavík og er
hún rétt svona:
Það væri næstum guðlegt gaman
gömul kynni endurvekur;
mér finnst þau ættu að fara saman
í Fjörður þegar skyggja tekur.
Davíð Hjálmar Har-
aldsson vann að grisjun
og skógarhöggi í fjöl-
skyldureitnum og kom í
hug:
Skógurinn okkar er skjólsæll og hlýr,
skýlir hinn laufgræni viður.
Fjalldrapi, maðra og fjóla þar býr
og fuglanna svæfir mig kliður.
Gríðarlegt verk er að græða upp
skóg
svo gefist þar yndi og friður
en loks þegar birkið og lerkið er nóg
er langbest að höggva það niður.
Séra Hjálmar Jónsson
veitti orðu viðtöku á
Bessastöðum og fór þá
með vísu:
Hæstvirtur forseti heiðra kaus
og hrósa okkur, mikið.
Ég er því ekki orðulaus
– en orðlaus fyrir vikið.
Af skógarhöggi
pebl@mbl.is
♦♦♦
Blönduós | Hafíssetur verður opnað á
Blönduósi á morgun, miðvikudaginn 5. júlí,
kl. 18. Setrið verður til húsa í Hillebrandts-
húsi og er öllum velkomið að vera við opn-
un þess.
Einn helsti hvatamaður setursins er dr.
Þór Jakobsson, veðurfræðingur, einn
helsti fræðimaður á sviði hafíss og hafís-
rannsókna á Íslandi. Þór er höfundur texta
sem notaður er á sýningunni. Sýningar-
stjóri Hafíssetursins er Björn G. Björns-
son. Setrið er að nokkru leyti í minningu
Jóns Eyþórssonar en hann var fremstur í
flokki íslenskra náttúrufræðinga sem hófu
að huga að hafís við landið.
Veðurathugunartæki sem voru hjá
Grími Gíslasyni verða á setrinu og hefur
Veðurstofan gefið tækin. Forstöðumaður
Hafíssetursins er Anna Margret Valgeirs-
dóttir.
Hillebrandtshús Hafísinn er „kominn í
hús“ á Blönduósi á sérstöku safni.
Hafíssetur
opnað á
Blönduósi
Króksfjarðarnes | Kjötafurðastöð Kaup-
félags Skagfirðinga hefur tekið sláturhúsið
í Króksfjarðarnesi á leigu frá 1. júní sl.
Þetta gerist í framhaldi af samstarfi af-
urðastöðvarinnar og Kaupfélags Króks-
fjarðar. Samkvæmt upplýsingum frá
Ágústi Andréssyni sláturhússtjóra fólst
samstarfið m.a. í að KS keypti allar afurðir
sem féllu til í Króksfjarðarnesi auk þess
sem sláturhúsið slátraði fyrir KS í verk-
töku þegar það hentaði. Um 11 þúsund fjár
var slátrað í Króksfjarðarnesi á síðasta
hausti og auk þess nokkru af nautgripum.
Innleggjendur þar eru því viðskiptavinir
KS frá því í byrjun júní síðastliðinn.
Sláturhúsið leigt
Til fyrirmyndar | Í könnun sem Umferð-
arstofa og Slysavarnafélagið Landsbjörg
hafa gert varðandi öryggi barna í bílum
kemur í ljós að foreldrar leikskólabarna á
Akureyri og Dalvík standa sig vel hvað
varðar öryggismál barna í bílum.
Könnunin var gerð í apríl síðastliðnum
með því að skoða bíla við leikskóla um allt
land og kom í ljós að 3,2% barna í úrtak-
inu voru án nokkurs öryggisbúnaðar í bíl-
um. Á Akureyri þar sem 144 bílar voru í
úrtakinu og á Dalvík með 41 bíls úrtak
var hins vegar öryggisbúnaður í öllum bíl-
um sem skoðaðir voru. Á Ólafsfirði var í
einu tilfelli barn í bíl án alls öryggisbún-
aðar.
Þetta er ellefta árið í röð sem slík könn-
un er gerð.
Mengunarhýsi | Slökkvilið Akureyrar hef-
ur fengið nýtt mengunarhýsi afhent og er
það liður í því að stórbæta aðstöðu slökkvi-
liðsins við mengunarslys á Norðurlandi.
Hýsið er ætlað undir búnað vegna meng-
unarslysa en einnig nýtist það við bílslys
eða annars konar slys og/eða aðstæður þar
sem vinna þarf við mengaðan vettvang.
Hýsið er meðfærilegt í notkun og er búið
mjög fullkomnum búnaði og kemur til með
að breyta verulega viðbúnaði slökkviliðsins
gagnvart mengunarslysum.
HÉÐAN OG ÞAÐAN