Morgunblaðið - 04.07.2006, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 17
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
BJARNI geimfari Tryggvason, kom
við á Flugsafni Íslands á Akureyri
þegar hann átt leið um í sumarfríi
sínu. Bjarni er eðlisverkfræðingur
að mennt en hann hefur m.a. unnið
sér það til frægðar að hafa farið
180 sinnum kringum hnöttinn á
geimskutlunni Discovery, það var á
12 dögum, 7. til 19. ágúst árið 1997,
en tilgangurinn var að rannsaka
lofthjúp jarðar.
Svanberg Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Flugsafnsins, sagði
Bjarna hafa staldrað lengi við,
hann hefði margt séð sem vakti for-
vitni hans. Á hverju ári er sett upp
ný sýning á safninu og er nú nýlega
búið að opna sýningu um feril Agn-
ars Kofoed-Hansen. Hann lærði
flug hjá danska flughernum og kom
heim fullur áhuga, hafði hann
frumkvæði að því að stofna Flug-
félag Akureyrar árið 1937 en það
varð síðan hluti af Flugfélagi Ís-
lands og síðar Flugleiðum. Á liðnu
ári var opnuð sýning um Jóhannes
Snorrason og þar áður um Arngrím
Jóhannsson.
Bjarni Tryggvason
skoðaði Flugsafn Íslands
Áhugasamur Bjarni Tryggvason geimfari skoðar sýningu um Agnar Kofoed-Hansen í Flugsafni Íslands á Akureyri. Svanberg Sigurðsson framkvæmdastjóri
fór með honum um safnið. Á myndinni t.h. er Bjarni við Piper Cub-vél Kristjáns Víkingssonar, en hún er ein elsta flughæfa flugvél landsins, frá árinu 1943.
ÞYRPING hf. hefur sótt um lóð fyrir
verslun og þjónustu við norðurjaðar
miðbæjarins á Akureyri, það er gert
með hliðsjón af tillögu að breytingu á
Aðalskipulagi Akureyrar, sem var í
þá veru að opnað var fyrir möguleika
á byggingu verslunar- og þjónustu-
húsnæðis á Akureyrarvelli.
Á fundi umhverfisráðs í vikunni
var fjallað um erindið og fagnaði ráð-
ið áhuga á uppbyggingu þjónustu í
miðbæ Akureyrar. Ráðið hafnaði er-
indinu að svo stöddu, enda tillaga að
Aðalskipulagi Akureyrar 2005–2018
í auglýsingu og því ekki unnt að taka
afstöðu til einstakra erinda fyrr en
að loknu staðfestingarferli.
Sækja
um lóð
Nýr troðari | Endurnýjun snjó-
troðara í Hlíðarfjalli var til umfjöll-
unar á fundi íþrótta- og tóm-
stundaráðs í vikunni og einnig var
rætt um þátttöku Vetraríþrótta-
rmiðstöðvar Íslands í kaupunum.
Rætt var um aukin umsvif í rekstri
Hlíðarfjalls og nauðsyn þess að
tryggja betra þjónustustig í Hlíð-
arfjalli með kaupum á nýjum snjó-
troðara fyrir komandi vetur. Óskaði
ráðið eftir því við stjórn VMÍ að
miðstöðin fjármagnaði kaup á nýj-
um snjótroðara fyrir Hlíðarfjall og
skipaði formann og deildarstjóra í
vinnuhóp sem skal leita hagstæð-
ustu leiða til slíkra kaupa. Jafnframt
er óskað eftir því að stjórn Vetr-
aríþróttamiðstöðvarinnar skipi full-
trúa sinn í vinnuhópinn.
SYSTURNAR Inga Lísa og Aldís
Eir Sveinsdætur höfðu komið sér vel
fyrir á hlöðnum vegg sem liggur eft-
ir Strandgötunni í gærmorgun. Þær
höfðu raðað skeljum og steinum úr
fjörunni og höfðu í nógu að snúast
við að sýna varninginn ferðalöngum
sem streymdu hjá. Við bryggju lá
skemmtiferðaskipið Costa Atlantica,
hið stærsta sem hefur viðkomu á Ak-
ureyri í sumar, 85.700 tonn. Farþeg-
arnir eru um 2.200 talsins og í áhöfn
850 manns. Það var því mikill ys og
þys þegar fólk brá sér í land til að
skoða bæinn eða nágrannabyggðir.
„Við gerðum þetta oft þegar við
áttum heima á Eyrinni,“ sögðu syst-
urnar, en halda uppteknum hætti þó
svo að þær séu fluttar út í Gler-
árhverfi, í Tungusíðuna. Þær voru
ekki feimnar við að bjóða ferðafólk-
inu að skoða skeljarnar sínar og þeir
sem vildu gátu tekið með sér eina
sem minjagrip.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Framtakssamar systur Inga Lísa og Aldís Eir Sveinsdætur gáfu ferða-
löngum af Costa Atlantica skeljar sem þær tíndu í fjörunni.
Ferðalöngum í miðbænum
boðnar skeljar að gjöf
Bankastræti 3 • S. 551 3635
www.stella.is
SNYRTIVÖRUR
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Ýmislegt áhugavert
fyrir safnara
Ýmislegt áhugavert fyrir safnara
Borðstofuhús ögn
Stakir skápar