Morgunblaðið - 04.07.2006, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Reyðarfjörður | Á hverju sumri
er settur fiskur í Andapollinn á
Reyðarfirði. Nýlega var sleppt
þar 500 sprellfjörugum þing-
eyskum regnbogasilungum frá
Norðurlaxi hf. á Laxamýri. Anda-
pollurinn hefur verið dýpkaður
og hreinsaður en nokkuð bar á
því síðasta sumar að gróður væri
kominn upp úr vatninu. Lítið hef-
ur sést af öndum á pollinum, þrjú
gæsahreiður eru í hólmanum og
ýmsar fuglategundir hafa þar við-
komu eins og fram kom við fugla-
skoðun nýlega en þá voru á svæð-
inu 28 tegundir. Andapollurinn er
við tjaldsvæðið á Reyðarfirði og
er nú verið að stækka og bæta að-
stöðu þar.
Veiðileyfi eru seld í Veiðiflug-
unni í verslunarmiðstöðinni Mol-
anum á Reyðarfirði og ættu menn
að geta skemmt sér vel við að
elta þá þingeysku.
Hæg heimatökin Andapollurinn er við tjaldstæðið á Reyðarfirði.
Hægt að elta Þingey-
inga í Andapollinum
AUSTURLAND
Seyðisfjörður | Steinasafn Petru
hlaut hvatningarverðlaun Þróunar-
félags Austurlands árið 2006, en
verðlaunin voru afhent á aðalfundi
samtakanna á Seyðisfirði síðastlið-
inn fimmtudag. Safnið hlýtur verð-
launin fyrir metnaðarfull safnastarf
og framlag til ferðaþjónustu á Aust-
urlandi, en þetta var í sjöunda
skipti sem verðlaunin eru afhent.
Konan á bakvið safnið er Ljós-
björg Petra María Sveinsdóttir,
fædd 1922, og hefur hún safnað
steinum frá tvítugsaldri. Árið 1974
opnaði Petra heimili sitt á Stöðv-
arfirði fyrir gestum og gangandi
sem vildu skoða steinasafnið henn-
ar. Í fyrra var safnið hennar það
fjölsóttasta á Austurlandi, en þang-
að lögðu um 20.000 manns leið sína.
Hún segir að gestum fjölgi alltaf ár
frá ári, enda sé safnið alltaf opið.
„Það var nú ekki búið að opna safn-
ið í sumar þegar fyrstu gestirnir
komu en við hleypum alltaf inn.
Sumarið hefur farið vel af stað og
það er alltaf mikið rennirí hjá okk-
ur.“
Hún segir að það hafi komið
henni verulega á óvart að hljóta
hvatningarverðlaunin, en verðlauna-
gripurinn er gerður á Álfasteini í
Borgarfirði. „Það er örugglega
pláss fyrir þennan stein þó mikið sé
fyrir. Það er rosalega gaman að
hljóta þessi verðlaun.“
Petra hefur ekki getað fylgst
jafnnáið með safninu í sumar og
undanfarin ár þar sem hún fékk
blóðtappa í vetur. Hún dvelur nú á
hjúkrunarheimili á Fáskrúðsfirði en
afkomendur hennar sinna safninu.
„Ég á þrjár krakka og hver fjöl-
skylda sér um einn mánuð. Þau
sækja mig alltaf annað slagið,“ seg-
ir Petra og bætir því við að hún sé
alltaf að hressast.
Alltaf opið í Steinasafni Petru
Hlaut hvatningar-
verðlaun Þróunar-
félags Austurlands
Pláss fyrir einn í viðbót Petra Sveinsdóttir tók við verðlaununum úr
hendi Auðar Önnu Ingólfsdóttur. Með þeim eru Stefán Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Þróunarfélagsins, og Ásbjörn Guðjónsson formaður.
LANDIÐ
Hali í Suðursveit | „Þetta hefur ver-
ið mjög viðburðarík og skemmtileg
helgi, það er ekki hægt að segja
annað,“ segir Þorbjörg Arnórs-
dóttir, forstöðumaður nýs seturs
sem tileinkað er rithöfundinum Þór-
bergi Þórðarsyni. „Það voru um
120–130 manns á opnunarhátíðinni,
reyndar var rigning en það truflaði
okkur ekkert og við héldum heil-
mikla hátíð. Inni á sýningunni var
skemmtileg uppákoma þar sem leik-
arar lásu úr verkum Þórbergs,“
segir Þorbjörg.
Mikil leynd hafði hvílt yfir sýn-
ingu í svokölluðum vestri sal Þór-
bergsseturs allt fram á opnunardag
og nokkur eftirvænting ríkti um
hvað biði gestanna þar. Sjón er auð-
vitað sögu ríkari, að sögn Þor-
bjargar, en um er að ræða leik-
myndir úr ævi Þórbergs og af
sögusviði bóka hans. „Þetta er í
raun heimur sem fólk fer inn í og
fylgir Þórbergi eftir gegnum ævina.
En það er líka vísun í ýmis áhuga-
mál hans í sýningunni, þannig að
hún fjallar ekki eingöngu um Þór-
berg sem persónu heldur mörg önn-
ur mál sem hann hafði áhuga á á
lífsleiðinni.“ M.a. verður hægt að sjá
Þórberg í sjóbaði og í Müllersæf-
ingum á myndbandsspólu. „Svo er
fjallað um jóga, esperantó og margt
fleira. En það sem er aðalatriði í
sýningunni er eftirlíking af fjósbað-
stofunni á Hala sem hann ólst upp í
og lýsir svo vel í bókinni Steinarnir
tala.“
Stórt málþing framundan
Þorbjörg segir gesti hafa tekið
sýningunni afskaplega vel og hún
komið öllum mikið á óvart. „Menn
höfðu ekki gert sér í hugarlund að
þessi sýning væri neitt í líkingu við
það sem hún er í uppsetningu.“
Margt góðra gesta mætti á opn-
unina og þeirra á meðal Þórarinn
Eldjárn, stjórnarformaður Gljúfra-
steins, húss Halldórs Laxness. „Á
haustdögum er fyrirhugað að vinna
að samningi um náið samstarf
Gljúfrasteins og Þórbergsseturs.
Þessi tvö rithöfundasetur verða
bæði undir forsætisráðuneytinu og í
formlegu samstarfi.“
En hvað fleira ber framtíðin í
skauti sér fyrir setrið? „Fjölmörg
verkefni bíða, meðal annars að
klára opnunina sem slíka. Ýmislegt
smávægilegt er eftir sem mun fylla
betur í myndina og enskar þýðingar
verða til dæmis settar upp fljót-
lega,“ svarar Þorbjörg. Framundan
segir hún að sé meiri uppbygging til
að treysta setrið í sessi. Frekara
starf í ýmsum rannsóknaverkefnum
um Þórberg og umhverfi hans bíði
og í haust verði haldið stórt málþing
í tilefni opnunarinnar sem fjölmarg-
ir aðilar muni koma að.
Nýjasta útgáfa ritsafnsins Á útvegg Þórbergsseturs sem hér sést má greina kjölinn af hverju og einu verka Þór-
bergs, reyndar í þessu tilviki úr áli en ekki leðri. Inni í húsinu má svo kynnast heimi verka Þórbergs.
Þórbergssetur
opnað með viðhöfn
Ljósmynd/Þórgunnur
Mikið í lagt Á sýningu í Þórbergssetrinu má finna leikmyndir úr lífi Þór-
bergs og m.a. fjósbaðstofuna sem hann ólst upp í og skrifaði um.
Náið samstarf
við Gljúfrastein
fyrirhugað
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@mbl.is
er manneskjan úr bronsi en á Ís-
landi úr áli. Verkin hafa verið stillt
af með þeim hætti að stytturnar
horfast í augu yfir hafið.
Borgarstjórn Hull, sveitarstjórn
Mýrdalshrepps, ríkisstjórn Íslands
og breska sendiráðið á Íslandi
ásamt einkafyrirtækjum hafa tekið
höndum saman og kostað þetta
skemmtilega verkefni.
Vík í Mýrdal varð fyrir valinu
sem einn af þeim stöðum sem
breskir ferðamenn minnast helst
þegar þeir eru spurðir um minn-
isstæða staði eftir heimsókn til Ís-
lands. Einnig er Vík gamall út-
gerðarbær fyrr á öldum þótt
hafnleysa hafi ávallt torveldað sjó-
sókn.
Vík og Hull standa
fyrir órjúfanleg bönd
tveggja vinaþjóða
Listaverkið För eftir Steinunni afhjúpað
Mýrdalur | Val-
gerður Sverrisdótt-
ir utanríkisráðherra
afhjúpaði á föstu-
dag minnismerkið
För eftir listakon-
una Steinunni Þór-
arinsdóttur í Vík í
Mýrdal. Fjölmenni
var viðstatt afhjúp-
unina, þar á meðal
sendiherra Bret-
lands á Íslandi, Alp
Mehmet, Sveitar-
stjóri Mýrdals-
hrepps og meðlimir
sveitarstjórnar
ásamt fleiri fyrir-
mennum. Varðskip-
ið Óðinn sem er að
ljúka sinni síðustu
för fyrir Landhelg-
isgæsluna var fyrir
utan Vík við þetta
tilefni og þeytti
þokulúður til hátíð-
arbrigða.
Með uppsetningu
verksins í Hull á
Englandi annars
vegar og í Vík á Ís-
landi hins vegar er
haldið á lofti þeirri
staðreynd að við-
skipti hafi verið
stunduð milli þjóð-
anna í yfir þúsund ár. Verkið er
einnig hugsað til þess að minnast
sjófarenda og atburða tengdum
hafinu. Þorskastríð voru háð á Ís-
landsmiðum, þar sem tvær vina-
þjóðir tókust á. Þeir tímar eru að
baki og er ætlunin að verkið skír-
skoti einnig til framtíðar þar sem
samskipti þjóðanna eru enn mikil
og vaxandi.
Horfast í augu yfir hafið
Verkið För er í tveimur hlutum.
Fyrri hluti verksins var settur upp
í Hull fyrir viku en nú var uppsetn-
ingu lokið með afhjúpun í Vík í
Mýrdal. Á báðum stöðum er um að
ræða háa steinsúlu sem manneskja
stendur á og horfir til hafs. Í Hull
Steinunn Þórarinsdóttir við listaverk sitt, minn-
isvarðann För, í fjörunni í Vík í Mýrdal.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson