Morgunblaðið - 04.07.2006, Side 19
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Mallorka
13. júlí
frá kr. 29.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr.29.990
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn,
2-11 ára, í íbúð í viku. Flug, skattar, gisting
og íslensk fararstjórn. Aukavika kr. 10.000.
Verð kr.39.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/
íbúð í viku. Flug, skattar, gisting og íslensk
fararstjórn. Aukavika kr. 10.000.
Allra síðustu sætin
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á
síðustu sætunum til Mallorka í júlí. Þú
bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum
fyrir brottför færðu að vita hvar þú
gistir. Gríptu tækifærið og tryggðu þér
sumarfrí á frábærum kjörum á
vinsælasta sumarleyfisstað Íslendinga.
VILLANDI markaðssetning á matvörum
mun heyra sögunni til ef ákvörðun Evrópu-
þingsins þess efnis nær fram að ganga. Í
Göteborgs Posten er greint frá því að
markmið tillögunnar sem liggur fyrir
Evrópuþinginu sé m.a. að hindra að mat-
vörur séu markaðssettar sem hollari en
þær eru í raun og veru. Merkingar eins og
„90% fitulaus“ og „1/3 minni sykur“ eru
taldar villandi og þess verður krafist að
samanburður liggi fyrir svo neytendur geti
raunverulega áttað sig á innihaldi matvæl-
anna. Rætt er við Åsu Westlund Evr-
ópuþingmann en hún finnur fyrir reiði
neytenda vegna þess að þurfa að lúslesa
umbúðir til að komast að hinu sanna um
innihald matvöru og ganga úr skugga um
að ekki sé verið að plata þá.
Í tillögunni sem liggur fyrir Evrópuþinginu er
gerð krafa um að matvörur innihaldi ekki meira en
ákveðið hámark af sykri, fitu, salti eða alkóhóli, til
að þær megi merkja sérstaklega sem heilsu-
samlegar eða næringarríkar. Þannig má t.d. ekki
merkja morgunkorn með „heilhveiti“ skrifað með
stórum stöfum ef sykurinnihald er meira en heil-
hveitiinnihald.
Villandi markaðs-
setning úr sögunni?
MATUR
Morgunblaðið/Þorkell
Merkingar á matvælum geta verið nokkuð óskýrar og oft er
auðvelt fyrir neytendur að misskilja það sem þar stendur.
Í
slandskort þekur heilan vegg
á skrifstofu ritstjóra eins í
Gautaborg. Hann kíkir á
kortið á hverjum degi enda
er landafræði drjúgur þáttur
í starfi hans sem ritstjóra íslenska
tímaritsins Útiveru. Jón Gauti Jóns-
son er reyndar að flytja aftur heim til
Íslands eftir tveggja ára búsetu í
Gautaborg. Honum þykir ágætt að
sjá fram á samvinnu við fólk augliti til
auglitis og segja skilið við fjarvinn-
una sem getur verið einmanaleg.
Fjarvinnan hefur gengið nokkuð
vel þó hún geti verið þung í vöfum
þar sem þrír aðstandendur og eig-
endur Útiveruútgáfunnar eru hver á
sínum stað. Ritstjórinn situr í Sví-
þjóð, hönnunarstjórinn Jósep Gísla-
son í Reykjavík og framkvæmda-
stjórinn Jónas Guðmundsson á
Hólum í Hjaltadal.
„Já, þetta hefur gengið ótrúlega
vel,“ segir Jón Gauti þar sem hann
stendur við skrifborðið á heimaskrif-
stofunni. Hann útskýrir fyrir-
komulag fjarvinnunnar þar sem net-
símaforritið Skype, MSN-spjall,
tölvupóstur og svokallaður I-folder
koma við sögu. „Með I-folder höfum
við allir aðgang að einni og sömu
möppunni en hver í sinni tölvu.
Mappan er síðan uppfærð á 5 sek-
úndna fresti og því liggja alltaf fyrir
nýjustu breytingar, aðgengilegar öll-
um. Þetta kemur í veg fyrir óhóflegar
tölvupóstsendingar á þungum skjöl-
um. Notkun á Skype kemur þar að
auki í veg fyrir óhóflega símareikn-
inga og hefur reynst okkur sér-
staklega vel til fundahalda,“ segir
Jón Gauti.
Jafnt klifur sem
rómantískar gönguferðir
Útivera er tiltölulega nýtt blað á
íslenskum tímaritamarkaði en það
hefur komið út frá árinu 2003. Að-
standendur útgáfunnar eru allir van-
ir útivistar- og fjallamenn og félagar í
Flugbjörgunarsveitinni. Markmiðið
er að tímaritið höfði til allra sem
áhuga hafa á útivist. „Á Íslandi er
ekki markaður fyrir of sérhæfð úti-
vistarblöð þar sem við erum svo fá.
Við leggjum því mikið upp úr því að
hafa efnið það fjölbreytt að það hvetji
þá sem eru nýbyrjaðir, en höfði líka
til þeirra sem lengra eru komnir.
Hvort sem það eru rómantískar
gönguferðir, jeppaferðir, klifur eða
kajakróður,“ segir Jón Gauti. Út-
koman er fjölbreytt blað að efni og
uppsetningu þar sem lengri og styttri
fréttir, greinar og ferðasögur fylla
um 100 blaðsíður. Auk sex tölublaða
af Útiveru á ári gefur Útiveruútgáfan
út Outdoors in Iceland, tímarit ætlað
erlendum ferðamönnum á Íslandi
sem koma mun út tvisvar á ári með
því besta úr Útiveru á ensku. Nýj-
asta afurð útgáfunnar er svo tímarit-
ið Á ferðinni sem á að höfða til þeirra
sem ferðast með ferðahýsi, þ.e. tjald-
vagna, fellihýsi eða í húsbílum. Úti-
veruútgáfan heldur auk þess úti vef-
síðum í tengslum við blöðin og á
hennar vegum hafa komið út og eru
væntanlegar bækur af ýmsu tagi.
Mikilvægara að vera á
staðnum þegar fyrirtækið vex
Jón Gauti er sjálfur höfundur
ferðabókarinnar Gengið um óbyggðir
sem kom út hjá Eddu útgáfu fyrir
tveimur árum. Um sama leyti stóðu
flutningar fjölskyldunnar til Gauta-
borgar fyrir dyrum, en þar hefur
kona Jóns Gauta, Hulda Steingríms-
dóttir, stundað nám í viðskipta- og
umhverfisfræðum undanfarin tvö ár.
Jóni Gauta bauðst þá að koma að Úti-
veruútgáfunni. „Ég var ekki kominn
með vinnu á færibandinu hjá Volvo
eða Saab, og hafði ekki gert upp hug
minn varðandi frekara nám, þannig
að ég greip þetta spennandi tæki-
færi,“ segir hann brosandi. Kostirnir
við fjarvinnunna voru flestir fyrst,
t.d. að stýra vinnutímanum sjálfur,
og að geta hjálpað börnunum þrem-
ur, Sólveigu Láru, Heru og Kolbeini
Tuma, af stað í nýjum aðstæðum og
taka á móti þeim eftir skóla og leik-
skóla. Eftir því sem á hefur liðið, hafa
gallarnir orðið sýnilegri, að sögn
Jóns Gauta, t.d. langir vinnudagar
þar sem taka þarf mið af íslenskum
tíma. „Fyrirtækið er að vaxa og verk-
efnum að fjölga og þá verður mik-
ilvægara að vera á staðnum,“ segir
ritstjórinn að lokum og hlakkar
greinilega til að flytja heim.
Jón Gauti Jónsson segir fjarvinnuna ganga ótrúlega vel þó að aðstandendurnir séu hver á sínum stað.
TENGLAR
.....................................................
www.utivera.is
www.tjaldsvaedi.is
Daglegtlíf
júlí
Morgunblaðið/Ásdís
Eftir Steingerði Ólafsdóttur
steingerdur@mbl.is
Ritstjóri í fjarvinnu
SVÍÞJÓÐ | Jón Gauti Jónsson ritstýrir tímaritinu Útiveru frá Gautaborg
ÞEGAR menn standa frammi fyrir
vali á sólgleraugum er mælt með
því að gul- og hunangslituð gler
séu tekin fram yfir þau bláleitu, að
því er dr. Janet Sparrow, prófessor
í augnlækningum við Columbia-
háskólann í New York, hefur bent
á.
Gul- og hunangslituð gleraugu
eru líklegri til að sía út bláa ljósið
og draga þau þar með úr magni út-
fjólublárra ljósa, sem annars skera
í augun frá sólinni, segir Sparrow,
sem rannsakar nú áhrif út-
fjólublárra geisla sólarinnar með
tilliti til sjónhrörnunar og blindu á
efri árum.
„Það eru ákveðin efnasambönd,
sem hlaðast upp í sjónhimnu-
frumum með aldrinum og eru þessi
efnasambönd ljósnæm. Bláa ljósið
espar upp þessi sambönd og veldur
skaða.
Þess vegna ætti allt fólk, óháð
aldri, að forðast bláa litinn í sól-
gleraugum,“ segir Sparrow og bæt-
ir við að auk gul- og hunangslitaðra
glerja séu dökklituð gler líka góður
kostur til að verja augun gegn sól-
inni.
Morgunblaðið/Ómar
Forðast
skal blá
sólgler
HEILSA