Morgunblaðið - 04.07.2006, Side 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Þórir Már Jóns-son fæddist í
Reykjavík 8. maí
1922. Hann lést á
Vífilsstöðum 26.
júní síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Jón Jónsson
frá Mörk í Reykja-
vík, f. 22. júní 1883,
d. 27. febrúar 1971
og Guðbjörg Guð-
jónsdóttir frá
Vatnsleysuströnd, f.
19. september 1898,
d. 8. mars 1940.
Systkini Þóris Más eru Bergdís, f.
9. mars 1925 og Guðjón, f. 26.
desember 1931.
Þórir Már kvæntist 21. janúar
1950 Þóru Karítas Árnadóttur, f.
1. apríl 1928. Foreldrar hennar
voru Guðný Kristjánsdóttir frá
Bergsstöðum, f. 7. febrúar 1906,
d. 20. febrúar 1997 og Árni Frið-
finnsson frá Rauðaskriðu í S.-
Þingeyjarsýslu, f. 31. júlí 1893, d.
21. apríl 1961. Börn Þóris Más og
Þóru Karítasar eru: 1) Jón Árni
flugumferðarstjóri, f. 1. október
1950, kvæntur Guðrúnu Haf-
steinsdóttur skólaritara. Börn
þeirra eru Þórir Már, Helgi
Hrafn og Unnur. Sonur Jóns
Árna og Guðrúnar Sigurðardótt-
ur er Stefán. 2)
Guðbjörg skóla-
stjóri, f. 25. mars
1952. Börn hennar
og Árna Blandon
Einarssonar eru
Einar og Þóra Kar-
ítas. 3) Sverrir
kennari, f. 15. des-
ember 1953, kvænt-
ur Helenu Pálsdótt-
ur kennara. Börn
þeirra eru Anna
Pála, Sindri og
Sunna Mjöll. Sonur
Sverris og Dag-
bjartar Línu Þorsteinsdóttur er
Kristján Þór, kvæntur Helgu Vil-
borgu Sigurjónsdóttur og börn
þeirra eru Margrét Helga, Jóel
og Dagbjartur Elí. 4) Guðný
kennari, f. 27. nóvember 1957,
gift Åke Lindell lækni. Börn
þeirra eru Jóhann, Sebastian og
Anna Þóra. 5) Gylfi Þór við-
skiptafræðingur, f. 16. desember
1967, kvæntur Sigurbjörgu S.
Sverrisdóttur þroskaþjálfa. Börn
þeirra eru Daníel og Eyþór.
Þórir Már starfaði lengst af hjá
Pósti og síma og síðustu árin var
hann fulltrúi á Tollpóststofunni.
Þórir Már verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Elsku pabbi, nú hefur þú kvatt okk-
ur hinsta sinni.
Frá því ég man fyrst eftir mér og
allt til dagsins í dag man ég þig sem
mesta góðmenni sem ég hef þekkt. Þú
varst aldrei reiður og þolinmæðin
endalaus. Þótt þú hefðir ekki alltaf
tíma fyrir okkur börnin notaðir þú
hann vel þegar færi gáfust. Þú kennd-
ir mér að veiða, tefla og margt annað.
Ég skildi reyndar aldrei hversu góður
skákmaður þú varst áratugum saman
því ég sá aldrei að þú æfðir þig.
En þú varst góðum gáfum gæddur
þótt skólagangan hafi ekki orðið ýkja-
löng og var það metnaðarmál þitt
helst í lífinu að við börnin þín hlytum
sæmilega menntun.
Ég var staddur á Vífilsstöðum viku
fyrir andlát þitt og þú heyrðir
ímömmu í símanum. Þá ljómaðir þú
og ég skildi að þú værir sáttur en þó-
fyrst og fremst ennþá ástfanginn eftir
nærri sextíu ár með mömmu.
Ég á eftir að sakna þín en minning-
arnar um þig eru bara ljúfar. Vonandi
verð ég jafn lánsamur og þú að sjá
börnin mín menntast, lifa og dafna,
verða gamall eins og þú og vera ennþá
jafn ástfanginn af konunni minni.
Ef einhverjir komast til himna átt
þú þar víst sæti og ég vonaað þeir eigi
í nefið.
Þinn sonur,
Sverrir Þórisson.
Tengdapabbi minn, Þórir Már, er
látinn eftir langa og góða ævi. Hann
var ríkur maður, eignaðist góða eig-
inkonu, fimm heilbrigð og vel gerð
börn og 15 barnabörn. Þórir hefur
alla tíð haft mikinn metnað fyrir hönd
afkomenda sinna, bar hag þeirra
mjög fyrir brjósti og fylgdist vel með
hvað allir höfðu fyrir stafni alveg fram
í andlátið. Ég var svo heppin að kynn-
ast Jodda og þar með fjölskyldunni
allri fyrir 32 árum. Fyrsta kvöldið
sem ég kom í heimsókn á Rauðalæk-
inn kom Þórir og bankaði á dyrnar á
forstofuherberginu hans Jodda og
heilsaði upp á mig. Hann sagði mér
síðar frá því að honum hefði fundist
skórnir sem voru fyrir utan dyrnar
svo litlir að rétt væri að athuga hvort
frumburðurinn væri kominn með
barn í heimsókn.
Þórir var einstaklega ljúfur maður
og góður við alla. Aldrei sá ég hann
skipta skapi þótt stundum gengi mik-
ið á þegar barnabörnin voru öll komin
í heimsókn. Honum fannst alltaf jafn
gaman að fá gesti og spurði Kaju
gjarnan: „Kemur ekki einhver í mat?“
ef ekkert var fyrirfram ákveðið. Þórir
gat ekki verið heima síðustu þrjú ævi-
árin vegna heilsuleysis. Ekki þótti
honum gott að fara að heiman en aldr-
ei var kvartað. Það var alltaf brosandi
andlit sem tók á móti manni á Vífils-
stöðum. Svo var yfirleitt slegið í slag
og undartekningalítið vann hann
enda slyngur bridsspilari.
Það lýsir gæsku Þóris kannski best
að þegar hann var orðinn talsvert las-
inn í maí og tengdamamma var hik-
andi við að fara frá honum og spyr:
„Finnst þér ekki verra að ég fari með
Guðrúnu og Jodda til Vínar?“ Þá seg-
ir Þórir: „Nei, betra,“ þótt ekkert hafi
honum fundist betra en að hafa Kaju
sína hjá sér.
Elsku Þórir, takk fyrir alla um-
hyggjuna sem þú hefur sýnt mér og
mínum í gegnum tíðina. Það væri ósk-
andi að við hefðum lært smávegis af
þínu góða skaplyndi því þá væri lífið
auðveldara og betra.
Bless í bili.
Þín tengdadóttir
Guðrún.
Við minnumst og kveðjum afa okk-
ar og langafa héðan frá Eþíópíu.
Margt þótti mér nú skrýtið sem afi
sagði og gerði. En það sem hann sagði
mér hafði einkennilegt lag á að sýna
sig og sanna. Ég var til dæmis líklega
helst til ungur þegar afi ráðlagði mér
að fara aldrei langt án þess að vera
með góða inniskó. Nú hugsa ég hlý-
lega til afa í hvert sinn sem ég pakka
inniskónum til ferðalaga. Fluguhnýt-
ingar og kastnámskeið hafa enn eng-
an ávöxt borið en fræjunum var sáð.
Sjáum hvað setur.
Afi þurfti ekki að gera neitt til að
vekja áhuga minn á skák, og ég held
hann hafi verið ákaflega glaður þegar
mér tókst að vinna hann í fyrsta sinn.
Einn vinur minn gaf honum viður-
nefnið skákafinn hans Stjána eftir að
hafa talað við hann í afmæli mínu
snemma á unglingsárunum. Þar sagði
hann víst að ég hefði aldrei átt að
byrja í golfinu, því ég hefði getað orð-
ið mjög góður í skákinni. Því miður
held ég að hann hafi ofmetið hæfileika
mína en í staðinn fékk ég í hvert sinn
sem mér mistókst á golfvellinum að
heyra frá vini mínum að ég hefði nú
átt að halda mig við skákina.
Fleira áttum við sameiginlegt, t.d.
klippi ég alltaf í sundur teygjuna á
þröngum herrasokkum og það gerði
afi líka. Gott blóðstreymi til fóta er
mikilvægt.
Þórir afi var ekki að mér vitandi
mikið að flíka tilfinningum sínum en
það þótti mér ákaflega vænt um þeg-
ar hann kom í brúðkaupsveislunni
minni til mín eftir að konan mín hafði
sungið fallegan sálm og sagði: „Ég
veit ekki hvort er heppnara, þú eða
hún.“ Ég leyfi mér að skilja þessi orð
þannig að honum hafi þótt ég vera
vænlegur en að líklega yrði Helga Vil-
borg betri helmingur hjónabandsins.
Af bókum Biblíunnar held ég að
Prédikarinn í jákvæðum skilningi
endurspegli best lífsviðhorf afa míns:
„Það er ekkert betra til með mönnum
en að eta og drekka og láta sálu sína
njóta fagnaðar af striti sínu.“ „Betri
er hnefafylli af ró en báðar hendur
fullar af striti og eftirsókn eftir vindi.“
Ég og við fjölskyldan minnumst Þóris
afa með hlýhug og biðjum Guð að
blessa minningu hans.
Kristján Þór
Sverrisson og fjölskylda.
ÞÓRIR MÁR
JÓNSSON
Elskuleg dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR,
Bjarkarheiði 5,
Hveragerði,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Sel-
fossi fimmtudaginn 29. júní, verður jarðsungin frá
Hveragerðiskirkju fimmtudaginn 6. júlí kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á MS félag Íslands.
Helga Baldursdóttir,
Ögmundur Jónsson, Ida Løn,
Þorbjörn Jónsson, Vigdís Anna Kolbeinsdóttir,
Daníel Örn Þorbjörnsson,
Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir.
Lokað
Vegna jarðarfarar SIGURÐAR K. KRISTBJÖRNSSONAR verður
lokað frá kl. 12.00 á hádegi í dag, þriðjudaginn 4. júlí.
Malbikunarstöðin Höfði hf.
Hjartkær eiginkona, móðir og amma,
BERGÞÓRA KRISTINSDÓTTIR
húsmóðir og trúboði,
Tjarnarási 13,
Stykkishólmi,
fór heim til Drottins föstudaginn 30. júní sl. á
Sjúkrahúsinu í Stykkishólmi.
Jarðsett verður frá Stykkishólmskirkju laugardag-
inn 8. júlí kl. 14.00.
Benjamín Þórðarson,
Björg Benjamínsdóttir,
Bergþóra Rós Ólafsdóttir,
Örn Reynir Ólafsson.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ARNDÍS ÞORSTEINSDÓTTIR,
Dvalarheimili aldraðra Borgarnesi,
áður til heimilis í Yztu-Görðum,
Kolbeinsstaðahreppi,
lést laugardaginn 1. júlí síðastliðinn.
Útförin verður auglýst síðar.
Markús Benjamínsson,
Ölver Benjamínsson, Ragnhildur Andrésdóttir,
Rut Benjamínsdóttir,
Þorsteinn Benjamínsson,
Rebekka Benjamínsdóttir, Þorgeir Guðmundsson,
Guðmundur Benjamínsson, Ingibjörg Gústafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
HÖRÐUR VALDIMARSSON,
Nestúni 17,
Hellu,
lést mánudaginn 3. júlí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Jórunn Erla Bjarnadóttir,
Bjarni R. Harðarson, Inga Guðmundsdóttir,
Guðrún B. Harðardóttir, Sigurður Héðinn,
Hafdís Harðardóttir, Alan Jónsson,
Logi Harðarson, Fjóla Lárusdóttir,
afabörn og langafabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
KONRÁÐ RAGNAR SVEINSSON,
Háagerði,
lést á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn
30. júní síðastliðinn.
Jarðsett verður frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
6. júlí kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðbjörg Jóna Jónsdóttir.
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓHANN INGVARSSON,
Hjallaseli 31,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
fimmtudaginn 29. júní.
Jarðarför hans verður auglýst síðar.
Ragna Bergmann,
Valur Ragnar Jóhannsson, Sædís Sigurðardóttir,
Katrín Gróa Jóhannsdóttir, Trausti Friðfinnsson,
Jóhanna Huld Jóhannsdóttir, Albert Ingason,
Guðrún Edda Jóhannsdóttir, Birgir Ingibergsson,
Bergþóra Ósk Jóhannsdóttir, Ólafur Eyjólfsson,
Örn Ingvar Jóhannsson, Hrefna Hermannsdóttir,
William Ragnar Jóhannson,
Eiríkur Þorsteinsson, Berglind Björnsdóttir,
Guðmundur Reynir Jóhannsson, Inga Rún Garðarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
EINAR SÆMUNDSSON
fyrrverandi formaður KR,
Jökulgrunni 27,
Reykjavík,
andaðist á Landspítala Hringbraut mánudaginn
3. júlí.
Auður Einarsdóttir,
Ásbjörn Einarsson, Jóna Guðbrandsdóttir,
Sigrún Einarsdóttir, Gunnar Guðmundsson,
Helga Einarsdóttir, Ólafur Davíðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.