Morgunblaðið - 04.07.2006, Side 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 rusl, 4 kústur,
7 ræðustóls, 8 léleg
skepna, 9 dugur,
11 vitlaus, 18 stífni,
14 þora, 15 knippi,
17 þref, 20 málmur,
22 veslingur, 23 árnar,
24 langloka,
25 nytjalönd.
Lóðrétt | 1 drekkur,
2 meðvitundin, 3 boli,
4 úrgangur, 5 hænur,
6 sefaði, 10 ávítur,
12 gætni, 13 á húsi,
15 beitir tönnum,
16 brúkum, 18 ílát,
19 ávextir, 20 baun,
21 skott.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 reimleiki, 8 hugað, 9 dótið, 10 una, 11 faðir,
13 reisa, 15 úrann, 18 skapa, 21 átt, 22 skafl, 23 augað,
24 fangelsið.
Lóðrétt: 2 ergið, 3 móður, 4 endar, 5 kætti, 6 óhæf,
7 eðla, 12 inn, 14 eik, 15 únsa, 16 apana, 17 nálæg,
18 stall, 19 angri, 20 auða.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Vilji þinn til að sjá alla möguleika í
ákveðinni stöðu er einn þinn mesti kost-
ur. Hvaða máli skiptir það þó maki þinn
og þú séuð ekki sammála um grund-
vallaratriði? Það er kannski einmitt þess
vegna sem þið eruð fullkomin fyrir hvort
annað.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þróaðu sambönd með fólki sem hefur
sama drifkraft og þú sjálfur. Það er mik-
ið af þess konar fólki á kreiki nú. Þú
þekkir þetta fólk á blikinu í augum þess
sem segir „ég er alveg að koma“.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Lykillinn að velgengni er að koma fram
með eitthvað nýtt. Ef allir aðrir eru dug-
legir við það þessa dagana ættir þú hins
vegar að láta það eiga sig. Þú munt fá
nóg af nýstárlegum hugmyndum þegar
þú gefur þér tíma í það síðar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þér sýnist allt vera mögulegt, meira að
segja það sem er ómögulegt (reyndar
sérstaklega það ómögulega). Þér er
meira að segja sama þó að samband sem
þú ert í sé ófyrirsjáanlegt sem stendur.
Þetta er allt hluti þess að vera ástfang-
inn.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þessi dagur er betri en flestir þar sem
þú hefur gleymt gömlum byrðum.
Stjörnurnar baða þrautseigju þína í
skini sínu og þú ættir að losa þig um leið
við slæma vana.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú ert ekki eins hrædd og venjulega að
biðja um það sem þú þarfnast og því
mun verða séð um þig. Þú verður fyrst
að trúa á sjálfa þig, annars getur þú ekki
búist við því að aðrir trúi á þig.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Stjörnurnar sýna að þú sért í kjörinni
aðstöðu til að miðla málum, gagnrýna
eða stýra. Þú gætir jafnvel fengið borg-
að fyrir það. Þú munt gera þetta á óhlut-
drægan hátt, hlusta án fordóma og það
sem þú lærir mun veita þér innblástur.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þegar þú gerir þitt besta þá er það ekki
bara nóg, heldur miklu betra en það sem
allir aðrir gera. Með þetta í huga ættir
þú að hætta að hafa áhyggjur og njóta í
auðmýkt þeirra verðlauna sem dagurinn
færir þér.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Fyrr eða seinna mun allt sem þú átt
enda með að eiga þig. Ef þú hefur þetta í
huga þegar þú ferð næst út í búð muntu
spara þér stórar upphæðir. Ef þú geym-
ir þetta í hjarta þínu muntu spara þér
enn stærri upphæð.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Frábær framatækifæri þýða að þú vinn-
ur meira með því að vinna öðruvísi en
allir aðrir. Þú hefur efni á að prófa þig
áfram og setja þér háleitari takmörk,
svo lengi sem þú manst að geyma tromp-
ið þitt aðeins lengur.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Fullkláruðu verki fylgir mikil ánægja.
Þú ættir að hafa það í huga og fylgja þín-
um bestu hugmyndum strax eftir, sér-
staklega ef það eru góðar lausnir á ein-
földum hlutum, eins og t.d. hvað á að
hafa í matinn í kvöld.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Áhyggjur þínar af því að gera eitthvað
rangt munu draga úr heiðarleika frum-
legrar hugsunar þinnar. Þú ættir að vera
djarfur, mjög djarfur jafnvel. Þú munt
gleðjast yfir því síðar að hafa haft þinn
hátt á.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Merkilegt nokk, undir
tungli vogar, er skemmti-
legra að vera örlítið með-
virkur eða háður öðrum fremur en sjálf-
stæður. Þó sól í krabba sýni styrkleika
sinn, hugrekki og sjálfstæði þá er það
staðreynd að tungl og sól þarfnast hvors
annars. Það er því sérlega skemmtilegt
að fagna því með einhverjum sem þarfn-
ast þín líka.
Tónlist
Reykholtskirkja | Hljómsveitin Københavns
Yngre Strygere heldur tónleika í Reykholts-
kirkju 4. júlí kl. 20.30. Á efnisskránni eru
verk eftir: Carl Nielsen, Rued Langgaard,
Svend A. Schultz, Jón Ásgeirsson og Dmit-
rij Sjostakovitj. Stjórnandi er Jesper Ryskin.
Nánari upplýsingar eru á www.reykholt.is
Myndlist
101 gallery | Steinunn Þórarinsdóttir sýnir
til 22. júlí. Opið fimmtudaga, föstudaga og
laugardag frá 14–17.
Anima gallerí | Sumarsýning: Opið fim.,
föst. og laug. kl. 12–17. Til 15. júlí.
Aurum | Petra og Hanna Lind leitast eftir
að geta skapað heim innan ákveðins rýmis
með sem minnstu efni og mögulegt er. Færa
heim götunnar inn í formlegt rými búðar.
Blanda götulist, myndlist og grafískri hönn-
un saman. Notast er við hugmyndaheim
teiknimynda og nýtt allt það frelsi sem hon-
um fylgir. Til 7. júlí.
Bókasafn Mosfellsbæjar | Um er að ræða
myndlistarsýningu 13 myndlistarmanna frá
5 Evrópulöndum í Listasal Mosfellsbæjar
1.–8. júlí og vinnusmiðju í Þrúðvangi Álafoss-
kvos 1.–10. júlí. Listamennirnir eru með verk
að heiman unnin fyrir sýninguna og vinna
einnig með íslensku listamönnunum í smiðj-
unni.
Café Karólína | Sýningin ber titilinn „Hlynur
sterkur Hlynur“ (portrett af Hlyni Hallssyni
myndlistarmanni) og er þriðja sýningin í
röðinni af stjörnumerkjaportrettum unnin
sem innsetning í rými. Sýningin stendur til
4. ágúst.
Café Mílanó | Reynir Þorgrímsson – Reyno-
matic-myndir, nærmyndir af náttúrunni, ein-
stakar ljósmyndir unnar á striga. Skartgripir
fjallkonunnar sem vakið hafa mikla athygli.
Opið frá kl. 9–23.30 alla daga út júlímánuð.
DaLí gallerí | Sigurður Árni Sigurðsson,
myndlistarmaður, sýnir til 9. júlí.
Deiglan | Sýning á frummyndum Rúnu K.
Tetzschner við ævintýri hennar um Óféta-
börnin. Sérlega fíngerðar og litríkar penna-
og vatnstússlitamyndir af ófétunum ör-
smáu. Þau búa í blómum og fljúga á fiðr-
ildum, minna á blómálfa en hafa krækiklær!
Listakonan er á staðnum kl. 16–17 og áritar
bók sína með skrautskrift.
Gallerí Sævars Karls | Reiter sýnir um 20
myndverk sem hann hefur málað undir hug-
hrifum frá Íslandsferð fyrir ein og hálfu ári.
Þá ferðaðist hann um óbyggðir landsins og
má sjá áhrif þess í myndunum sem hann
sýnir. Til 5. júlí.
Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina-
félags Hallgrímskirkju. Ásgerður Búadóttir
sýnir í forkirkju Hallgrímskirkju. Ásgerður er
frumkvöðull nútímaveflistar á Íslandi og
hafa verk hennar ætíð haft sterka skírskot-
un til landsins og til náttúrunnar. Sýningin er
í samvinnu við Listasafn Háskóla Íslands. Til
26. ágúst.
Hallgrímskirkja | Sýning á íkonum frá Balk-
anskaga er í Hallgrímskirkju á vegum Mót-
ettukórs Hallgrímskirkju. Verkin eru gerð á
síðustu 7 árum og sýna þróun í gerð íkona
innan Austurkirkjunnar. Sýningin, sem er
sölusýning, er opin kl. 9–20 alla daga. Til 9.
júlí.
Handverk og hönnun | Á sumarsýningu er
til sýnis bæði hefðbundinn íslenskur listiðn-
aður og nútíma hönnun úr fjölbreyttu hrá-
efni eftir 37 aðila. Á sýningunni eru hlutir úr
leir, gleri, pappír, tré, roði, ull og silfri. Sýn-
ingin stendur til 27. ágúst. Aðgangur er
ókeypis.
Hrafnista, Hafnarfirði | Ósk Guðmunds-
dóttir sýnir handverk og málun í Menning-
arsal til 15. ágúst.
Húsið á Eyrarbakka | Sýningin Einfarar í
borðstofu Hússins á Eyrarbakka. Á sýning-
unni er einstakt úrval næfistaverka í eigu
hjónanna Áslaugar G. Harðardóttur og Jóns
Hákonar Magnússonar. Meðal listamanna
má nefna Ísleif Konráðsson, Þórð frá Dag-
verðará, Stórval og Kötu saumakonu. Til 31.
júlí.
Kaffi Kjós | Ólafur Jónsson, (iló) Berjalandi,
Kjós, með málverkasýningu. Opið í sumar,
alla daga kl. 12–20.
Karólína Restaurant | Joris Rademaker
sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines. Til
6. okt.
Listasafn ASÍ | Daði Guðbjörnsson, Eiríkur
Smith, Hafstein Austmann og Kristín Þor-
kelsdóttir sýna nýjar vatnslitamyndir. Einnig
eru sýndar vatnslitamyndir eftir Svavar
Guðnason í eigu Listasafns ASÍ. Opið 13–17.
Aðgangur ókeypis. Til 13. ágúst.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið daglega
nema mánudaga kl. 14–17. Höggmyndagarð-
urinn við Freyjugötu er alltaf opinn.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Yfirlits-
sýning á verkum Guðmundar Einarssonar
frá Miðdal. Í samvinnu við Náttúrufræði-
stofu Kópavogs. Til 30. júlí. Safnbúð og
kaffistofa
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Kjarval –
Kraftur heillar þjóðar. Verk í eigu Lands-
banka Íslands. Í tilefni af 100 ára afmæli
bankans. Til 30. júlí.
Listasafn Reykjanesbæjar | „Tíminn tvinn-
aður“. Alþjóðlegi listhópurinn Distill sýnir
verk sem spannar sviðið frá tvívíðum hlut-
um í skúlptúra og innsetningar. Í hópnum
eru listamennirnir Amy Barillaro, Ann Chuc-
hvara, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Jaeha
Yoo, Julie Poitras Santos, Patricia Tinajero
Baker, Tsehai Johnson. Til 31. júlí.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund-
arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista-
maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir,
gifs, stein, brons og aðra málma – og hvern-
ig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum efnum.
Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sýning
á listaverkum sem voru valin vegna úthlut-
unar listaverka– verðlaunanna Carnegie Art
Award árið 2006. Sýningin endurspeglar
brot af því helsta í norrænni samtímalist en
meðal sýnenda eru fjórir íslenskir lista-
menn, meðal annars listmálarinn Eggert
Pétursson sem hlaut önnur verðlaun þetta
árið. Til 20. ágúst.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Erró –
Grafík. Myndirnar eru frá ýmsum tímabilum
í list Errós þær nýjustu frá síðastliðnu ári.
Við vinnslu málverka sinna gerir Erró sam-
klipp, þar sem hann klippir og límir saman
myndir sem hann hefur sankað að sér úr
prentmiðlum samtímans. Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sýning á verkum úr eigu safnsins þar sem
fagurfræði er höfð að leiðarljósi við val
verkanna og hefðbundin listasöguleg við-
mið látin víkja fyrir samhljómi þeirra. Margir
af helstu málurum þjóðarinar eiga verk á
sýningunni sem spannar tímabilið frá alda-
mótunum 1900 til upphafs 21. aldarinnar. Til
17. sept.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á
völdum skúlptúrum og portrettum Sigur-
jóns Ólafssonar. Opið daglega nema mánu-
daga 14–17. Kaffistofan opin á sama tíma.
Sumartónleikar hefjast 11. júlí.
Norræna húsið | Sumarsýning í anddyri
Norræna hússins 23. júní til 27. ágúst. Ljós-
myndir frá Austur-Grænlandi eftir danska
ljósmyndarann Ole G. Jensen. Opið virka
daga kl. 9–17. Laugardaga og sunnudaga kl.
12–17.
Pakkhúsið í Ólafsvík | Hugrenningar – Mál-
verkasýning Sesselju Tómasdóttur mynd-
listarmanns til 17. júlí. Viðfangsefni sín sækir
hún í Snæfellsjökul og hugsandi andlit, sem
hún vinnur með akríl- og olíumálningu á
striga.
Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir
sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina til
28. ágúst.
Safn | Tvær af fremstu myndlistarkonum í
Evrópu; Karin Sander & Ceal Floyer, sýna
nýleg verk sín í bland við eldri, sem eru í
eigu Safns. Sýningin er opin mið.–fös. kl. 14–
18 og lau.–sun. kl. 14–17. Safn er staðsett á
Laugavegi 37. Aðgangur er ókeypis. Leið-
sögn á laugardögum. www.safn.is
Saltfisksetur Íslands | Í Saltfisksetrinu
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos/
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða