Morgunblaðið - 04.07.2006, Side 38
ágætir en ekkert í líkingu við White
Stripes sem mér finnst vera ein af
bestu starfandi hljómsveitum
heims.
Hinir ofmetnu Kaizer Chiefs
spiluðu á eftir Placebo á Arena og
sóttu þá tónleika þónokkrir. Ég
ætlaði að vera dugleg og fylgjast
með þeim en eftir eitt og hálft lag
var mér nóg boðið svo að ég stakk
af og fór á Balkan Beat Box á Ball-
rom, en sú sveit spilar afar hress-
andi tónlist frá Búlgaríu, Palestínu
og Spáni. Ballroom-tjaldið hefur
þann góða kost að vera alltaf með
frumlega góða tónlist eins og djass
eða heimstónlist, sem er ægilega
gott að hlusta á þegar síbyljan hef-
ur náð að suða sig of langt inn í
eyrun.
Hátíðinni lauk svo á Roger Wa-
ters – Dark Side of the Moon.
Margir höfðu látið sig hverfa þegar
hér var komið við sögu, enda klukk-
an orðin margt og flestir þurftu að
mæta til vinnu í gærmorgun. Tón-
leikar Waters voru stórgóðir fyrir
þá sem eru hrifnir af Pink Floyd.
Sumir tónleikagesta virtust vera í
afar annarlegu ástandi þar sem þeir
sungu með og böðuðu út handleggj-
unum í ánægju sinni.
Þegar þessu öllu var lokið tók ég
saman allt mitt hafurtask og hélt
heim á leið. Ég ákvað að fara út um
austurútgang svæðisins en þar voru
gríðarlegar raðir í strætisvagna og
leigubíla. Ég gafst upp eftir hálf-
tíma bið og stytti mér leið í gegnum
fjölmiðlasvæðið, pantaði þar
leigubíl með tveimur dönsk-
um blaðakonum og komst
svo í lest hingað til Kaup-
mannahafnar þar sem beið
mín sturta og hreint rúm.
Já, stundum þarf ekki mik-
ið til þess að líða vel og eftir
hátíð eins og þessa er sturta
gulls ígildi. Þrátt fyrir hið
hefðbundna ryk og drullu
tókst þessi vika með ágætum.
Að sögn skipuleggjenda Hró-
arskelduhátíðarinnar gekk allt
vonum framar, þrátt fyrir að
þurft hefði að aflýsa þrennum
tónleikum. Lítið var um óhöpp
og slys, rán og glæpir voru í al-
geru lágmarki. Fólk virtist
skemmta sér vel og almenn gleði
ríkti alla dagana. Af þeim fjórum
skiptum sem ég hef farið á Hró-
arskelduhátíðina þótti mér þessi
vera sú skemmtilegasta, bæði
vegna tónlistarinnar og fólksins
sem eyddi dögunum með mér, en
líka vegna umhverfisins og stemn-
ingarinnar sem enginn getur
ímyndað sér sem ekki hefur komið
á Hróarskeldu.
Hróarskelduhátíðinni varslitið á hefðbundinn háttá sunnudaginn. Þá erhægt að kaupa sér sér-
stakan passa sem gildir bara fyrir
sunnudaginn. Fólk kemur þá oft
með fjölskylduna með sér eða bara
til þess að kíkja á tónleika og spóka
sig í góða veðrinu. Íbúar Hróars-
keldu fá sunnudagspassann ókeyp-
is, svona eins konar sárabót fyrir
hávaðann og lætin sem ganga yfir
bæjarfélagið þessa viku.
Ég byrjaði á því að kíkja á Artic
Monkeys á Arena, þar sem Damien
Jr. Gong Marley hafði aflýst sínum
tónleikum, þar var allt troðfullt og
varla hægt að hreyfa sig, jafnvel
þótt ég stæði langt fyrir utan tjald-
ið. Eftir að hafa reynt að finna mér
góðan stað ákvað ég frekar að
skreppa yfir á Orange og finna mér
góðan stað til þess að sjá Strokes.
Hitinn á sunnudaginn var engu
minni en dagana á undan svo að ég
settist á pallana vel birg af djús og
vatni og smurði á mig sólarvörn í
hundraðasta skipti. Strokes komu
mér á óvart því þeir spiluðu frá-
bæra tónleika. Mér datt ekki í hug
að þeir væru svona fín tónleika-
sveit. Þeir voru reyndar ekkert
hrikalega frumlegir en allt hljómaði
mjög vel hjá þeim.
Tónleikar Franz Ferdinand,
eða hinna nýju Strokes – eins og
ég kýs að kalla þá – voru strax á
eftir og voru þeir mun
betur sóttir enda njóta
þeir mikilla vinsælda nú.
Norðurlandabúar virð-
ast vera afar hrifnir af
hressandi popp-rokki
því einnig var fullt á
Placebo á Arena á
svipuðum tíma en
færri fóru að sjá
Coldcut á Metro-
pol. Þótt Placebo
sé fínasta hljóm-
sveit er það mikil
synd því að Coldcut
er sérstaklega vönduð raftónlist-
arsveit sem hefur haft meiri áhrif á
popptónlist en margan grunar.
Goldfrapp aflýstu sínum tónleikum
vegna veikinda og olli það miklum
vonbrigðum, þar er nefnilega á
ferðinni skemmtileg hljómsveit sem
hefur náð að þróa sinn eigin hljóm í
hafsjó flatrar popptónlistar, mér
þótti afar leitt að missa af henni.
Hljómsveitin The Raconteurs,
með Jack White úr White Stripes í
fararbroddi, spilaði á Odeon við
góðar undirtektir. Skiptar skoðanir
eru á tónlist þeirra, mér finnst þeir
Tónlist | Strokes, Franz Ferdinand og Roger Waters á lokakvöldi Hróarskelduhátíðarinnar í fyrrakvöld
Sturtan gulls ígildi eftir hátíðina
Julian Casa-
blancas úr The
Strokes mund-
ar ímyndað
skotvopn.
Eftir Helgu Þóreyju Jónsdóttur
Hróarskelduhátíðinni í ár lauk á Roger Waters – Dark Side of the
Moon. „Tónleikar Waters voru stórgóðir fyrir þá sem eru hrifnir af
Pink Floyd. Sumir tónleikagesta virtust vera í afar annarlegu
ástandi þar sem þeir sungu með og böðuðu út handleggjunum í
ánægju sinni,“ segir Helga Þórey Jónsdóttir m.a. í umfjöllun sinni.
Alex Kapranos, söngvari hljómsveitarinnar
Franz Ferdinand, þenur raddböndin hér af innlifun,
en hljómsveitin lék á Hróarskeldu í fyrrakvöld.
Reuters
38 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 8 - 10:10 B.I. 12.ÁRA.
Click kl. 8 - 10:10 B.i. 10 ára
Just My Luck kl. 6
RV kl. 6
Click kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára
Click LÚXUS kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára
Just My Luck kl. 5.40, 8 og 10.20
RV kl. 3.40, 5.50 og 8
X-Men 3 kl. 10.10 B.i. 12 ára
Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára
Rauðhetta/Hoodwinked m. íslensku tali kl. 4
Ísöld 2 m. íslensku tali kl. 3.40
Adam Sandler, Kate Beckinsale og Christopher Walken í fyndnustu gamanmynd ársins!
VINSÆLASTA MYNDIN Í BANDARÍKJUNUM Í DAG!
Ef þú ættir fjarstýringu sem gæti stýrt lífi þínu? Hvað myndir þú gera ...?
...Myndir þú breyta heiminum með henni ...eða gera eitthvað allt annað?
ROBIN WILLIAMS
Frábær unglinga gamanmynd með
Lindsey Lohan í fantaformi!
HÚN VAR HEPPNASTA STELPAN
Í BÆNUM ÞANGAÐ TIL DRAU-
MAPRINSINN EYÐILAGÐI ALLT! 1 fjölskylda - 8 hjól
ENGAR BREMSUR
eee
Topp5.is - VJV
Komdu í fyndnasta
ferðalag sumarsins.
Sími - 564 0000Sími - 462 3500