Morgunblaðið - 04.07.2006, Page 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Hinn 23. apríl 1940 var hald-in skemmtun í Natchez,smábæ í Mississippi, um
200 kílómetra norðvestur af New
Orleans. Skemmtunin var í gamalli
bárujárnsskemmu og neglt fyrir
gluggana til að koma í veg fyrir að
menn svindluðu sér inn. Skemman
var um 70 metrar að lengd og á
henni einar dyr, fyrir endanum, og
eina loftræsingin var vifta sem blés
lofti í átt að þeim dyrum. Í nokkur
ár hafði verið rekin í henni hryn-
klúbburinn, The Rhythm Club, vin-
sæll staður til að skvetta úr klauf-
unum, en hann var ætlaður svert-
ingjum.
Skemmst er frá því að segja að
það kviknaði í mosaskreytingu sem
var um allan skálann að innan.
Mosinn sem notaður var, spán-
armosi, sem er reyndar ekki mosi,
er mjög eldfimur og klúbburinn,
sem var troðfullur af fólki, varð
alelda á svipstundu. Erfitt var fyrir
fólk að komast út vegna troðnings
og æsings og ekki bætti úr skák að
dyrnar einu opnuðust inn og fyrir
vikið komust fáir út. Alls létust 212
í brunanum, 212 negrar, eins og
tekið var fram í dagblaðinu Nash-
ville Banner daginn eftir.
Hljómsveitin sem spilaði þetta
kvöld hét Walter Barnes and his
Royal Creolians Orchestra, en Bar-
nes var vinsæll hljómsveitastjóri á
sinni tíð og virtur. Sagan segir að
Barnes hafi verið eini rólegi
maðurinn í eldhafinu, hann hafi
reynt að róa fólk niður, en allt kom
fyrir ekki. Hljómsveitin hélt þó
áfram að spila þótt hljómsveit-
armenn væru banvænir – síðasta
lagið sem spilað var hét Marie og
það síðasta sem heyrðist frá hljóm-
sveitinni var tær trompettónn um
leið og þakið hrundi.
Þessi fallega saga og átakanlegaer meðal annars rakin í bók-
inni Lost Delta Found sem Vander-
bilt-háskóli gefur út, en í þeirri bók
er safnað saman áður týndum
rannsóknarskjölum þriggja litra
fræðimanna. Fræðimennirnir
héldu til Mississippi á vegum Fisk-
háskóla, háskóla svartra, 1942
meðal annars til að leita laga sem
samin hefðu verið um þennan
hörmulega atburð, en þar sem
stærstur hluti negra var ólæs og
óskrifandi á þeim slóðum á þessum
tíma var munnleg geymd mjög
mikilvæg til að miðla fréttum, frá-
sögnum og skoðunum manna á
milli. Í kafla sem segir frá brun-
anum er meðal annars vitnað í einn
þeirra sem komust úr eldinum við
illan leik og hann lýsir þessu svo:
„[Hljómsveitin kaus] ekki hlutverk
hugleysingjans. Þeir voru eins og
hugdjarfur skipstjóri og áhöfn
hans sem fer í dauðann með skipi
sínu.“
Ég geri ráð fyrir að eins sé farið
flestum þeim sem þetta lesa og mér
– ósjálfrátt kemur upp í hugann
hljómsveitin á ólánsfleyinu Titanic
sem lék undir harmleiknum og fór
síðan niður með skipinu vorið 1912.
Sá harmleikur átti sér líka stað í
apríl, ólánsdaginn 14. apríl sem
blökkumenn nefndu svo því þann
dag 1985 féll lausnarinn mikli
Abraham Lincoln fyrir morðingja-
hendi. Lincoln var að vísu ekki lýst-
ur látinn fyrr en morguninn fimm-
tánda apríl, en 14., föstudagurinn
langi, var ólánsdagurinn. Uppá-
haldssálmur Lincolns var „Nearer,
My God, to Thee“ eftir ensku skáld-
konuna Sarah Flower Adams og
var sunginn við útför hans. Eftir
andlát og útför Lincolns varð sálm-
urinn gríðarlega vinsæll vestan
hafs.
(Matthías Jochumsson heyrði
sálminn sunginn í Chicago-för sinni
1893 og hreifst af, snaraði honum á
íslensku sem „Hærra minn Guð til
þín“ og birti í tímaritinu Samein-
ingunni í Winnipeg sama ár.)
Á Titanic var átta manna hljóm-sveit undir stjórn Englend-
ingsins Wallaces Hartleys. Skipið
sigldi á ísjaka að kvöldi 14. apríl
1912 og hóf þegar að sökkva. Upp
úr miðnætti aðfaranótt fimmtánda
apríl kom hljómsveitin sér fyrir í
stássstofu fyrsta farrýmis og byrj-
aði að spila til að reyna að róa fólk.
Síðar færði hljómsveitin sig
framarlega á bátadekkið og spilaði
á meðan skipið sökk. Ýmsar sögur
hafa verið uppi um hvaða lag
hljómsveitin lék er hún hvarf í
djúpið en mestra vinsælda naut
snemma sú að það hefði verið sálm-
urinn „Hærra minn Guð til þín“.
Fræðimennirnir frá Fisk-háskóla
héldu til Mississippi að leita að
söngvum um brunann í Natchez og
af slíkum söngvum er líka til nóg.
Það var líka til gríðarmikið af
söngvum um Titanic-slysið. Einn af
Natchez brennur
’Stærstur hluti negravar ólæs og óskrifandi í
Mississippi í upphafi
fimmta áratugarins og
munnleg geymd mjög
mikilvæg til að miðla
fréttum, frásögnum og
skoðunum manna á
milli.‘
Varla þarf að taka fram um hvað fjallað er í laginu „The Band Played
’Nearer My God to Thee‘ as the Ship Went Down“ eftir þá Mark Beam og
Harold Jones: „And the band was bravely playing, / The song of the Cross
and Crown: / ’Near-er My God to Thee,‘ / As the ship went down“. Lagið
var gefið út 1912.
AF LISTUM
Árni Matthíasson
SÝNING á nýlegum málverkum
bandarísku myndlistarkonunnar
Joan Backes var opnuð í Safni við
Laugarveg 37 á laugardaginn og var
listakonan viðstödd opnunina. Sýn-
ingin ber heitið „Beneath the Sur-
face“ en þungamiðja verka Backes
er fínleg vinna með tré.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sarah Brownsberger og Hafþór Yngvason ásamt Joan Backes í miðið.
Opnun í Safni
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
„THE INCREDIBLES“ & „LEITIN AÐ NEMO“
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
eeee
V.J.V, Topp5.is
HVERNIG ÁTTU
AÐ HALDA Í
ÞANN SEM ÞÚ
HEFUR ALDREI
HITT.
FERSK, HUGLJÚF OG RÓMANTÍSK ÞAR SEM STÓRSTJÖRNURNAR KEANU REEVES OG
SANDRA BULLOCK FARA Á KOSTUM.EKKI MISSA AF ÞESSARI PERLU. ALGJÖRT AUGNAKONFEKT.
KVIKMYNDIR.IS
eee
S.V. MBL.eeeeVJV, Topp5.is
S.U.S. XFM
FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY" OG "PERFECT STORM"
HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA.
eee
V.J.V.Topp5.is
THE LAKE HOUSE kl. 6 - 8:15 - 10:30
CARS M/ENSKU TALI kl. 6 - 8:30 - 11
BÍLAR M/ÍSL. TALI kl. 6 - 8:30
KEEPING MUM kl. 6 - 8:20 - 10:30 B.I. 12.ÁRA.
THE POSEIDON ADVENTURE kl. 6:10 - 8:20 B.I. 14.ÁRA.
SLITHER kl. 11 B.I. 16.ÁRA.
MI : 3 kl. 10:30 B.I. 14.ÁRA.
LAKEHOUSE kl. 8 - 10
BÍLAR M/ÍSL. TALI kl. 5:40
CARS M/ENSKU TALI kl. 5:40 - 8
KEEPING MUM kl. 10:20 B.I. 12 ÁRA
FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 8 - 10:10 B.I. 12.Á
CLICK kl. 8 - 10:10 B.I. 10.
SAMBÍÓ KEFLAVÍKSAMBÍÓ AKUREYRI
K R A F T M E S TA
HASARMYND ÁRSINS
EINA LEIÐIN TIL AÐ VINNA ER AÐ MISSA STJÓRNINA
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA
LOGI Ólafsson, fyrrv. landsliðsþjálf-
ari Íslands í knattspyrnu, hefur tekið
að sér þjálfun hins nýja fótboltaliðs
KF Nörd. Sýningar á veruleikaþætti
um þjálfun liðsins hefjast á Sýn 31.
ágúst.
Liðið er skipað sannkölluðum
nördum, sem engan áhuga eða
reynslu hafa af fótbolta, en hafa varið
þeim mun fleiri stundum fyrir framan
tölvuskjáinn. Standa vonir til að með
stífri þjálfun undir leiðsögn atvinnu-
manna megi gera úr nördunum
fimmtán liðtæka knattspyrnumenn.
Aðspurður sagðist Logi lítast
ágætlega á hópinn: „Ég held hann
falli vel undir þá skilgreiningu sem
lögð er til grundvallar. Þetta er lík-
lega eitthvert erfiðasta verkefni sem
ég hef tekið að mér sem knatt-
spyrnuþjálfari, en um leið mjög
spennandi og skemmtilegt.“
Þátttakendur hittu þjálfara sinn í
fyrsta skipti í gær: „Við tókum eina
æfingu í morgun og könnuðum getu
strákanna. Svo lék liðið á móti 3.
flokki kvenna frá Val og beið mikinn
ósigur.“
Fyrir höndum eru þrír mánuðir af
ströngum æfingum sem lýkur með
leik gegn Íslandsmeisturunum í
knattspyrnu á Laugardalsvelli í sept-
ember.
Logi hljómar hæfilega bjartsýnn á
frammistöðu liðsins: „Fyrsti dag-
urinn lofaði góðu og það eru hér inn á
milli kúnstugir menn sem létta
stemninguna í hópnum.“
Sjónvarp | Tökur hafnar á raunveruleikaþættinum KF Nörd
Logi þjálfar nördana
Þrátt fyrir að hafa marga fjöruna
sopið sem knattspyrnuþjálfari segir
Logi að þjálfun FK Nörds sé líklega
erfiðasta verkefnið sem hann hafi
tekið að sér. Hér er Logi við tökur á
fyrstu æfingu liðsins í gær.