Morgunblaðið - 04.07.2006, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 41
þeim sem sömdu slíka söngva, slíka
blúsa, var Blind Lemon Jefferson.
Framan af tónlistarferlinumframfleytti Blind Lemon
Jefferson sér með því að syngja á
götum úti, í samkvæmum og á
skemmtunum blökkumanna, jafnan
við annan mann. Einn af þeim sem
spiluðu með honum á þeim tíma var
Huddie William Ledbetter sem
þekktur varð sem Lead Belly eða
Leadbelly. Hann spilaði með Jeffer-
son í Dallas og eitt laganna sem
hann sagðist hafa lært af honum
var „The Titanic“, fyrsta lagið sem
hann lærði að spila á tólfstrengja
gítar.
Lead Belly tók The Titanic í
tveimur útgáfum, en hann breytti
textanum ef hann var að syngja
fyrir hvíta. Texti annarrar útgáf-
unnar hefst svo:
„It was midnight on the sea,
Band playin’ „Nearer My Got to Thee“.
Cryin’ „Fare thee, Titanic, fare the well“.“
Það var hluti af þjóðtrú banda-
rískra negra að hnefaleikakappinn
Jack Johnson hefði verið meðal
þeirra sem ætluðu að fara með Tit-
anic frá Liverpool til New York en
honum hefði verið neitað um pláss
á fyrsta farrými þar sem hann var
svartur. Leadbelly segir frá þessu í
útgáfunni sem hvítir fengu helst
ekki að heyra:
„Jack Johnson wanted to ge on boa’d;
Captain Smith hollered, „I ain’ haulin’ no coal.“
Cryin’, „Fare thee, Titanic, fare thee well“.“
Fyrir vikið, sagði sagan, fórst
enginn svartur maður með Titanic
og þegar Johnson heyrði um skips-
skaðann dansaði hann og söng:
„Black man oughta shout for joy.
Never lost a girl or either a boy.
Cryin’, „Fare thee, Titanic, fare thee well.“
arnim.blog.is Þögn er önnur plata Láru en hún
sendi frá sér plötuna Standing Still
árið 2003. Tónlistin er lágstemmd og
persónuleg og er hljóðfæraleikurinn
afar smekklegur. Lagasmíðarnar
eru einfaldar en
ágætar. Útsetn-
ingar laganna eru
hreinlegar og
smekklega út-
færðar.
Það sem platan
líður einna helst
fyrir er það hve hljómur hennar er
einsleitur. Lögin líða í gegn án þess
að þau sitji eftir, ég átti í stökustu
vandræðum með að muna eftir sum-
um þeirra þrátt fyrir að hlusta á þau
aftur og aftur. Hugmyndirnar eru
þó góðar, sem dæmi má nefna lagið
Insane sem byrjar frábærlega í anda
Portishead, þar sem blíð rödd Láru
nýtur sín stórkostlega og verður fal-
lega tregafull, en svo breytist út-
setningin og lagið verður allt annað.
Mér finnst þau hefðu mátt stíga
skrefið til fulls og leyfa upphaflegu
stemningunni að lifa. Þetta gildir
eiginlega um alla plötuna. Mjög mik-
ið af góðum hugmyndum sem fá ekki
að njóta sín og vegna þess verður yf-
irbragðið stundum væmið, frekar en
þroskað og þokkafullt.
Eins og áður sagði er hljóðfæra-
leikur plötunnar afskaplega vand-
aður og góður. Að öðrum ólöstuðum
ber þar hæst hljómborðs- og org-
elleik Daða Birgissonar. Hann er
flinkur og smekkvís.
Þögn hefur alla burði til þess að
vera frábær plata og er það á sinn
hátt, en hún er hvorki spennandi né
frumleg. Tilraunir til frumleika
kafna í æfðu andrúmslofti tækni og
hreinleika. Sumir tónlistarmenn
senda frá sér sálarlausar plötur ár
eftir ár, það gildir ekki um Láru, því
hún hefur heilmikla sál og heillandi
tjáningu. Textarnir eru kannski ekki
þeir bestu sem ég hef heyrt en þeir
eru einlægir og það þykir mér af-
skaplega mikilvægt. Þegar listamað-
ur hefur fundið sína rödd er hálfur
sigurinn unninn og á meðan Lára
heldur áfram að skapa tónlist ætti
henni að farnast vel í þeim efnum.
Einlægt og
snyrtilegt
TÓNLIST
Íslenskur geisladiskur
Geisladiskur Láru Rúnarsdóttur, Þögn.
Lög og textar eru eftir hana sjálfa. Börk-
ur Hrafn Birgisson spilar á gítar og syng-
ur bakraddir, Daði Birgisson spilar á
hljómborð, hammond, rhodes og syngur
bakraddir, Kristinn Snær Agnarsson spil-
ar á trommur, Pétur Sigurðsson á bassa,
Sigurður Flosason á saxófón og Damien
Rice spilar á kassagítar og syngur í Why.
Útsett af Láru, Daða og Berki Hrafni.
Hljóðblandað í Stúdíó Silence af Daða.
Masterað í Írak af Bjarna Braga Kjartans-
syni. Teikningar, hönnun og uppsetning á
útliti disksins var í höndum Hörpu Dagg-
ar Kjartansdóttur. Dennis gefur út.
Lára – Þögn
Helga Þórey Jónsdóttir
Morgunblaðið/Ásdís
Tónlistarkonan Lára Rúnarsdóttir.
MARGT var um manninn við opnun
sumarsýningar Listasafns ASÍ við
Freyjugötu síðastliðinn laugardag.
Sýningin samanstendur af vatns-
litaverkum fimm listamanna sem
spanna þrjár kynslóðir íslenskrar
listsögu, þeirra Daða Guðbjörns-
sonar, Eiríks Smith, Hafsteins Aust-
manns, Kristínar Þorkelsdóttur og
Svavars Guðnasonar. Öll eiga þau
það sameiginlegt að hafa fengist við
vatnslitamálun um áratuga skeið og
náð umtalsverðum árangri á því
sviði, en vatnsliturinn er afar vand-
meðfarinn miðill.
Morgunblaðið/ Jim Smart
Þór G. Axelsson, listamaðurinn Daði Guðbjörnsson, Sigurjón B. Daðason og Nanna Ólafsdóttir voru við opnunina.
Vatnslita-
verk á Lista-
safni ASÍ
Fyrsta plata Snorra Snorrasonarsem sigraði í síðustu Idol-
stjörnuleit kemur út í dag, en platan
heitir Allt sem ég á. Snorri samdi
sjálfur mikið af efninu á plötunni, en
þar má einnig finna nýjar útgáfur
erlendra laga
með íslenskum
textum, meðal
annars eftir Stef-
án Hilmarsson og
Andreu Gylfa-
dóttur. Þá eru
einnig nokkur lög
á plötunni sem Snorri söng í Idolinu.
Tvö lög eru nú þegar komin í spilun
á útvarpsstöðvum, en það eru lögin
Farin burt og Allt sem ég á.
Mikill fjöldi tónlistarmanna kem-
ur við sögu á plötunni. Auk Vignis
Snæs Vigfússonar sem leikur á gítar
spilar Þórir Úlfarsson á hljómborð
og píanó, Benedikt Brynleifsson
lemur húðir, KK spilar á munn-
hörpu, Margrét Eir syngur bak-
raddir og Eiður Arnarsson er á
bassa. Það eru svo þeir Andrzej
Kleina, Zbigniew Dubik, Guð-
mundur Kristmundsson og Sigurð-
ur Bjarki Gunnarsson sem spila á
strengjahljóðfæri.
Fólk folk@mbl.is
Uppselt er á tónleika Nicks Caveí Reykjavík, en síðustu mið-
arnir seldust upp á laugardaginn.
Nick Cave kemur fram í Laugar-
dalshöll hinn 16. september ásamt
hljómsveit sem skipuð er Bad Seeds
meðlimunum Martyn P. Casey, Jim
Scavunos og Warren Ellis. Nick
Cave er á meðal virtustu tónlistar-
manna samtímans og á að baki tíma-
mótaverk bæði einn síns liðs og með
hljómsveitunum Birthday Party og
The Bad Seeds. Hann hélt tvenna
tónleika hér á landi fyrir fjórum ár-
um. Það er Hr. Örlygur sem stendur
fyrir tónleikum Nicks Cave á Íslandi
í samvinnu við Icelandair og Rás 2.
FRÁ J.J. ABRAMS, HÖFUNDI LOST OG ALIAS
eeee
VJV, Topp5.is
S.U.S. XFM
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY" OG "PERFECT STORM"
HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA.
eee
V.J.V.Topp5.is
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
KVIKMYNDIR.IS
ÁRA.
ÁRA.
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
NÝJASTA MEISTARA-
VERKIÐ FRÁ PIXAR
SEM ALLIR ERU AÐ
TALA UM.
FRÁ FRAMLEIÐEN-
DUM „THE INCREDI-
BLES“ & „LEITIN AÐ
NEMO“
VINSÆLASTA MYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ.
STAFRÆNA / DIGITAL BÍÓIÐ Á ÍSLANDI
eee
Kvikmyndir.is
NÚ ER KOMIÐ
AÐ HENNI AÐ SKORA
eeee
V.J.V, Topp5.is
FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 3:30 - 6 - 8:15 - 10:30 B.I. 12.ÁRA.
BÍLAR M/- ÍSL TAL. kl. 3:30 - 5:30
CARS M/- ENSKU TAL. kl. 3:30 - 6 - 8 - 10:30 DIGITAL SÝN.
MI : 3 kl. 10:30 B.I. 14.ÁRA. DIGITAL SÝN.
THE POSEIDON ADVENTURE kl. 8:30 B.I. 14.ÁRA.
FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:20 B.I. 12.ÁRA.
FAST AND THE FURIOUS 3 LÚXUS VIP kl. 4:15 - 8 - 10:20
BÍLAR M/- ÍSL TAL. kl. 3 - 5:30 - 8
CARS M/- ENSKU TAL. kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30
THE LAKE HOUSE kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20
SLITHER kl. 10:30 B.I. 16.ÁRA.
SHE´S THE MAN kl. 3 - 5:45 - 8
THE POSEIDON ADVENTURE kl. 10:30 B.I. 14.ÁRA.
01.07.2006
8
4 8 5 0 7
8 3 3 2 3
15 16 25 34
26
28.06.2006
12 17 21 23 25 39
1333 37
HöfundurHarry Pot-
ter-bókanna,
J.K. Rowling,
hefur sætt
harðri gagnrýni
aðdáenda bók-
anna eftir að hún
upplýsti að ein
aðalsöguhetja
bókanna myndi láta lífið í síðustu
bókinni um galdrastrákinn og vini
hans.
Mikillar reiði hefur gætt í garð
höfundarins á vef- og bloggsíðum
aðdáenda Potters eftir að hún upp-
lýsti um áform sín í síðustu viku og
hafa þeir jafnvel sakað hana um
tilfinningaleysi gagnvart börnum
og kallað hana galdrakvendi með
pyntingahneigð.
Fólk folk@mbl.is