Morgunblaðið - 04.07.2006, Page 44
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
endurskoðun
reikningsskil
skattar / ráðgjöf
www.ey.is
KOLBEINN Ketilsson óperusöngvari söng hlut-
verk Tristans í óperunni Tristan og Ísold eftir
Wagner í tónleikauppfærslu í Champs-Elysée-
leikhúsinu í París á laugardagskvöld. Franska
þjóðarhljómsveitin lék undir stjórn hljómsveit-
arstjórans Kurts Masur, en í hlutverki Ísoldar
var stórstjarnan Deborah Voigt.
Boðið um að syngja á tónleikunum kom með
sólarhringsfyrirvara. „Ég hugsaði mig ekki um
heldur kíkti í nóturnar, pakkaði kjólfötunum og
hoppaði upp í næstu flugvél til Parísar og var
kominn á hótel um miðnættið,“ sagði Kolbeinn í
samtali við Morgunblaðið í gær. Kolbeinn hafði
lært hlutverkið fyrir flutning í Bastilluóperunni í
París í fyrra, en ekkert varð úr því að hann syngi
það þá. Hlutverk Tristans þykir mesta hlutverk
óperubókmenntanna fyrir tenórsöngvara og það
er mikil ögrun fyrir söngvara að glíma við það.
Af hlutverkum á borð við Tristan varð til hug-
takið hetjutenór, en það á við um tenórsöngvara
sem syngja allra dramatísku óperuhlutverkin,
eins og finna má í mörgum verkum Wagners. Fá-
ir Íslendingar hafa orðið hetjutenórar.
„Viðtökurnar voru góðar og allt gekk þetta
vel,“ sagði Kolbeinn, en skipuleggjendur tón-
leikanna voru líka himinlifandi og buðu honum
strax að koma aftur að syngja með hljómsveit-
inni. „Ég hlakka svo sannarlega til.“ | 20
Morgunblaðið/Jim Smart
Kolbeinn Ketilsson söng undir stjórn Kurts Mas-
ur í uppfærslu Champs-Elysée-leikhússins.
Íslenskur
Tristan í París
SIGRÚN Klara Hannesdóttir landsbókavörður
telur að helst þurfi að þrefalda þá fjárhæð sem
notuð hafi verið til ritakaupa við Landsbóka-
safnið á árinu, sem var um 36 milljónir króna.
Rögnvaldur Ólafsson, dósent við HÍ og fulltrúi í
stjórn safnsins, er sammála því að þörf sé á fleiri
bókum til að efla HÍ sem rannsóknastofnun, en
tekur fram að skoða þurfi málið út frá þeirri
stefnu sem mörkuð hafi verið við skólann. Sig-
rún og Rögnvaldur taka því undir það með
Guðna Elíssyni, sem ritaði grein í Lesbók Morg-
unblaðsins sl. laugardag, að ef Háskóli Íslands
ætlar sér að verða í hópi hundrað bestu háskóla
heims þurfi að auka framlög til ritakaupa við
Landsbókasafnið. | 20
Þrefalda þarf fram-
lag til ritakaupa
VARP kríu og sílamávs á Miðnesheiði er allt úr
skorðum í sumar, annað sumarið í röð. Þetta er
mat Gunnars Þórs Hallgrímssonar líffræðings.
Telur hann líklegast að skorti á æti sé um að
kenna. Á Miðnesheiði
er eitt stærsta síla-
mávavarp í heimi.
Sílamáva verður
víða vart um þessar
mundir, bæði í byggð
og óbyggðum. Spurð-
ur hvort mávarnir
séu inni í landi á hött-
um eftir ungum mófugla vísar Gunnar því á bug.
Sílamávi hefur fjölgað hérlendis á síðustu ára-
tugum, en það hve mávarnir eru orðnir sýni-
legir t.d. í Reykjavík undanfarin tvö ár gefur að
mati Gunnars ekki rétta mynd af stækkun
stofnsins. Segir hann mávana einfaldlega hafa
flutt sig til og þeir sæki meira í þéttbýlið en áð-
ur, sem skýrist m.a. af fæðuskorti. | 11
Varp úr skorðum
vegna fæðuskorts
MILLI áranna 1992 og 2004
fjölgaði öryrkjum sem höfðu of-
fitu sem fyrstu sjúkdómsgrein-
ingu í örorkumati um 200%; úr
37 í 111. Árið 1992 voru 29 konur
og átta karlar metnir öryrkjar
vegna offitu en árið 2004 voru
konurnar orðnar 82 og karlarnir
29 talsins. Aukning milli ára
nemur 182% hjá konum og 263%
hjá karlmönnum. Þess ber þó að
geta að á árunum fjölgaði ör-
yrkjum almennt talsvert mikið;
kvenkyns öryrkjum fjölgaði um
63% og karlkyns um 53%. Þetta
kemur fram í fræðigreininni „Al-
gengi offitugreiningar hjá ör-
yrkjum á Íslandi 1992–2004“
Í fræðigreininni í Lækna-
blaðinu er bent á þá staðreynd
að offita getur bæði verið orsök
og afleiðing örorku. Sænsk rann-
sókn bendir til þess að offita hjá
miðaldra karlmönnum hafi í för
með sér aukna hættu á örorku
og til eru bandarískar rannsókn-
ir sem sýna fram á að fólk sem á
við margvíslega fötlun eða
skerðingu að etja er í mun meiri
áhættuhópi varðandi offitu en
aðrir hópar.
Höfundar fræðigreinarinnar
„Algengi offitugreiningar hjá ör-
yrkjum á Íslandi 1992–2004“ eru
Sigurður Thorlacius, dósent við
HÍ, Sigurjón B. Stefánsson, sér-
fræðingur hjá TR, og Laufey
Steingrímsdóttir, næringarfræð-
ingur Lýðheilsustöðvar.
gögnum um þróun vandamálsins
víðs vegar í heiminum, ekki síst í
Bandaríkjunum, þar sem offitu-
sjúklingum fjölgar ört og aukn-
ingin mælist mest í hópi þeirra
sem haldnir eru sjúklegri offitu.
Vaxandi heilsu-
farsvandamál
Offita er vaxandi heilsufars-
vandamál á Íslandi, eins og víða
annars staðar. Sjúkdómurinn er
áhættuþáttur fyrir hjarta- og
æðasjúkdóma, sykursýki, slit-
gigt í burðarliðum auk fleiri
kvilla. Í Bandaríkjunum hafa 9%
af heildarútgjöldum heilbrigðis-
kerfisins verið rakin til offitu en
við það bætist kostnaður sem
einstaklingar og atvinnulífið
hafa af heilsufarsvandamálinu.
sem birt er í nýjasta hefti
Læknablaðsins.
Mikil aukning umfram aðra
sem kljást við offitu
Samkvæmt könnun Manneld-
isráðs á árunum 1990–2002 jókst
hlutfall karla með offitu um 5,9%
milli áranna og hlutfall kvenna
um 3,8%. Það er því um gríð-
arlega hlutfallslega aukningu að
ræða á þeim sem greindir eru
öryrkjar vegna offitu, jafnvel
þótt fjöldi þeirra sem glíma við
offituvandamál hafi farið vax-
andi undanfarin ár. Fræðimenn
telja sennilegt að þessi mikla
fjölgun öryrkja vegna offitu sé
merki um að veruleg og sjúkleg
offita hafi aukist umfram væga
offitu. Á sú skýring sér stoð í
Sjúkleg offita að aukast
Öryrkjum vegna offitu fjölgaði um 74 á rúmum áratug
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
ELÍN Reed kom fyrst kvenna í
mark í hlaupinu Lappland Ultra
sem fór fram á föstudaginn og
aðfaranótt laugardags en það er
100 kílómetra langt. Elín hljóp á
10 klukkustundum og 39 mín-
útum en hún tók þátt ásamt
þremur öðrum Íslendingum úr
hlaupahópnum Laugaskokki frá
Reykjavík, þeim Gunnari Rich-
ter, Ellerti Sigurðssyni og Pétri
Frantzsyni.
Í samtali við Morgunblaðið
sagði Elín að brautin hefði verið
erfiðari en hún hefði búist við en
landslagið hins vegar afar
glæsilegt og dýralíf framandi.
því einungis ein önnur kona skil-
aði sér í mark, 4 klst á eftir El-
ínu. Aðspurð segir hún und-
irbúning fyrir hlaupið hafa
staðið yfir í hálft ár, en á þeim
tíma hljóp Elín að meðaltali 95
km á viku. | 4
Henni hefði því ekki leiðst á
leiðinni. Á leiðinni voru
drykkjarstöðvar en Elín segist
þó aldrei hafa stoppað þótt hún
hafi hægt á sér og drukkið
vökva og maulað smávægilegar
veitingar. „Það er mjög hættu-
legt að stoppa á leiðinni. Maður
stirðnar ofsalega hratt upp, sér-
staklega þegar maður er búinn
með 60–70 kílómetra.“
Af þeim 52 sem lögðu af stað í
hlaupið tókst aðeins 32 að kom-
ast í mark og luku allir Íslend-
ingarnir keppni. Elín varð í 7.
sæti yfir heildina og hafði
nokkra yfirburði í kvennaflokki,
Sigraði í 100 kíló-
metra löngu hlaupi
Elín Reed
VÍGLUNDUR Þorsteinsson, stjórn-
arformaður Lífeyrissjóðs verslunar-
manna, segir að á næstu dögum verði
hugur óháðra hluthafa í Straumi –
Burðarási kannaður og athugað
hvort menn verði sammála um að
bjóða fram sjálfstæðan frambjóð-
anda til stjórnarkjörs sem fer fram á
hlutahafafundi 19. júlí.
Engin tilboð bárust í um 5% hlut
Lífeyrissjóðs verslunarmanna í
Straumi, en tilboðsfrestur rann út í
gær. Sagði Þorgeir Eyjólfsson,
framkvæmdastjóri sjóðsins, að nú
lægi fyrir stjórninni að taka afstöðu á
hlutahafafundinum þann 19. júlí. |12
Mun kanna
hug óháðra
hluthafa
LOKA þurfti Vesturlandsvegi í um klukku-
tíma í gærkvöldi vegna umferðarslyss sem
varð við gatnamót Vesturlandsvegar og Vík-
urvegar. Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Reykjavík varð slysið með þeim
hætti að fólksbíl sem var ekið áleiðis til
Reykjavíkur var ekið upp á umferðareyju
fólkið hafa sloppið ótrúlega vel miðað við að-
stæður á slysstað. Ökumaður jeppans og
annar þeirra sem var í fólksbílnum voru út-
skrifaðir seint í gærkvöldi, en þriðji ein-
staklingurinn þurfti að fara í aðgerð vegna
beinbrota og dvaldi því á sjúkrahúsinu í
nótt.
þar sem hann valt og í kjölfarið hafnaði hann
á gagnstæðri akrein þar sem hann varð fyrir
jeppa sem ekið var út úr bænum. Tveir voru
í bílnum sem valt en einn í hinum bílnum.
Var fólkið flutt á Landspítala – háskóla-
sjúkrahús til rannsóknar og aðhlynningar.
Samkvæmt upplýsingum frá lækni virðist
Morgunblaðið/ÞÖK
Þrír slösuðust í umferðarslysi við Vesturlandsveg
♦♦♦
♦♦♦